Morgunblaðið - 05.10.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1989
Stjörim-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Heilsa Bogmannsins
í dag er það umfjöllun um
Bogmanninn útfrá heilsu-
farslegu sjónarmiði. Athygli
er vakin á því að þar sem
hver maður á sér nokkur
stjörnumerki geta önnur
merki haft sitt að segja þeg-
ar heilsufar er annars vegar,
ekki síst Tunglmerkið eða
Rísandi merki. Þar sem sjúk-
dómar gefa til kynna af-
brigðilegt ástand, eru það
, erfið merki eða afstöður sem
leiða til sjúkdóma. Það þar<
því ekki endilega að veva
sólarmerkið sem veldur erfið-
leikum, heldur fullt eins önn-
ur merki sem eru á einhvern
hátt erfið hjá viðkomandi.
Lifur
Bogmaðurinn stjórnar neðra
baki, lifrarkerfi, mjöðmum
og lærum. Hann á því oft í
erfiðleikum með lifur og
gallrás, sem og með mjaðmir
og læri. Hann á t.d. til að fá
settaugarbólgu, eða eiga í
erfiðleikum með taugar sem
liggja frá spjaldhrygg eftir
aftanverðu læri niður í fót.
Einnig er iðrakvef sagt angra
Bogmanninn og ef streita
verður of mikil getur hann
átt við öndunarerfiðleika að
stríða. Hann er sagður við-
kvæmur í lungum og hættir
til að fá lungnakvef.
Yfirkeyrir
Bogmaðurinn þarf að varast
að dreifa orku sinni um of,
eða fást við of margt með
þeim afleiðingum að hann
yfirkeyri sig og verði slæmur
á taugum. Hann þarf einnig
— að varast þungan og ofkrydd-
aðan mat, sem og annað sem
skapar of mikið álag á lifr-
ina. Hann ætti þvert á móti
að leitast við að borða mat
sem hreinsar og er léttur fyr-
ir lifrina. Heimildir mínar
mæla með grænmeti, höfrum
og grófu korni sem æskileg-
um efnum í fæðu og lifrar-
hreinsandi vökvun.
Óhóf
Önnur hætta þegar Bog-
maðurinn er annars vegar er
óhóf og agaleysi. Hann á til
að sleppa fram af sér beisl-
inu, gera ofstórar áætlanir
eða borða og drekka of mik-
tið. Hann þarf því að temja
sér hófsemi og vissa var-
kárni. Hann þarf að gæta
þess að vera raunsær og á
jörðinni í áætlunum sínum
og lífsstfl.
Þarfhreyfingu
Eins og við er að búast verð-
ur Bogmaðurinn slappur ef
hann er bundinn niður á
sama stað og þarf að búa við
of mikla vanabindingu til
langframa. Hann þarf fjöl-
breytileika og hreyfingu, en
einnig umhverfi óg áhugamál
sem höfða til hugsunar og
vitsmuna. Ef svo er ekki er
hætt við að hann verði leiður
og þreyttur. Frelsi og hreyf-
anleiki er því mikilvægur
heilsugjafi fyrir Bogmann,
ef svo má að orði komast.
Útivist
Bogmanni er ráðlagt að
stunda útivist, t.d. hesta-
mennska, veiðar, golf,
gönguferðir eða aðrar íþrótt-
ir, ekki síst líflegar hópíþrótt-
ir. Hann þarf hreyfingu og
hreint loft, að vítt sé til
veggja og lítið um þrengsii.
Því er sérstaklega mæit með
útiíþróttum. Eg læt það einn-
y ig fljóta með að sagt er að
honum líði best í þurru fjalla-
loftslagi en ekki í röku sjáv-
arlofti.
Skapléttur
Sálræn vandamál eru heldur
sjaldgæf, þegar hinn dæmi-
gerði Bogmaður er annars
vegar, enda er hann að öllu
jöfnu skapléttur og lítið fyrir
að flækja líf sitt með þung-
lyndislegum vangaveitum.
GARPUR
GRETTIR
BRENDA STARR
1 ^ All Rl0 U RcMrvad | \ V. V ^PI
FERDINAND
SMÁFÓLK
I MI55EP YOU WWEN
I U)A5 AWAY AT CAMP..
PIP ANVTWING EXCITING
WAPPEN WWILE I
U)A5 60NE 7
TWERE I C0A5 AT \
TU)0 TW0U5ANP FEET \
OVER 5T. JUVIN..5UPPENLY
A FOKKÉR TRIPLANE /
APPEAREP ABOVE ME' /
6-Z2
Ég saknaði þín á meðan ég var í sumarbúðunum. Gerð- Þarna var ég í tvö þúsund feta hæð yfir St. Juvin.
ist eitthvað skemmtilegt á meðan ég var í burtu? Skyndilega birtist þriggja hreyfla Fokker fyrir ofan mig!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hálfslemma í spaða er hinn
eðlilegi samningur á spil NS.
En gráðugur í topp ákvað suður
að freista gæfunnar í sex grönd-
um.
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ Á32
¥Á2
♦ 1073
+ ÁKG87
Vestur Austur
♦ G96 ♦ D4
¥ 104 ¥9873
♦ KDG8 ♦ 9542
+ D1053 ♦ 962
Suður
♦ K10875
¥ KDG65
♦ Á6
♦ 4
Vestur Norður Austur Suður
— 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 3 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 spaðar Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: tígulkóngur.
Tólf slagir eru auðveld bráð
í spaðasamningi, en í gröndun-
um sjást aðeins tíu. Eftir tígulút-
spil er ekki hægt að dúkka spað-
ann og þótt svíningin í laufi
heppnist vantar enn slag.
„En þeir kasta nú oft vitlaust
af sér,“ hugsaði suður bjartsýnn
og lagði af stað með hjörtun.
Þetta var staðan þegar hann
átti eitt hjarta eftir.
Norður ♦ Á3 ¥ — ♦ 10 ♦ ÁKG87
Vestur Austur
♦ G96 ♦ D4
¥ — ¥ —
♦ D ♦ 954
♦ D1053 ♦ 962
Suður ♦ K10875 ¥6 ♦ 6 ♦ 4
Hjartasexan batt enda á vonir
vesturs í vörninni. Hann var ein-
faldlega ofurseldur kastþröng í
þremur litum. Hann gat frestað
vandanum með því að henda
tíguldrottningunni, en tígultían
myndi þá síðar þvinga fram 13.
slaginn. Einu mistök vesturs
voru að spila út tígli, því með
öðru útspili dúkkar sagnhafi
spaða og fær aðeins 12 slagi!
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í nýju hefti júgóslavneska In-
formatorsins kemur m.a. fram að
ungverski jafntefliskóngurinn
Zoltan Ribli(2.610) hefur fundið
laglega vinningsleið í skák sinni
við Gary Kasparov (2.775)
heimsmeistara á heimsbikarmót-
inu í Barcelona í vor. I þessari
stöðu telur Ribli sig hafa misst
af vinningnum:
Hann segist hafa átt að leika: 39.
— c3! og gefur upp tvö meginaf-
brigði: a) 40. bxc3 — a4 41. Bc4
- fxg4 42. Kf2 - Kf5 43. Kg3
— Rc5 og vinnur. b) 40. g5-l---
hxg5 41. fxg5+ — Kxg5 42. bxc3
- a4 43. Bc4 - f4+! 44. Kd3 -
Kxh5 45. Kc2 - f3 46. Kb2 -
f2 47. Ka3 - Rc5 48. Kb4 - Kg4
o.s.frv. í staðinn lék Ribli: 39. —
£xg4? 40. Bc4 — Rc5 og samið
var jafntefli.