Morgunblaðið - 05.10.1989, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1989
49
I
Þessir hringdu . .
Þakkir
Sólveig Eggerz Pétursdóttir-
hringdi:
„Ég var með sýningu í Gamla-
lundi á Akureyri fyrir nokkru.
Meðan sýningin stóð yfir var ég
lögð inn á Fjórðungssjúkrahúsið
þar og fékk sérstaklega góð
umönnun. Ég vil senda senda
hjartans þakkir til starfsfólksins
þar. Einnig vil ég þakka þeim er
sáu um sýninguna fyrir mig og
öllum gestunum sem komu en ég
gat ekki talað við. Svo langar
mig til að vekja athygli á hve
Gamlilundur er vinalegur sýning-
arstaður og hversu mikill mynd-
listaráhugi eru á Akureyri. Kærar
þakkir tii Akureyringa.“
Góður saltfískur
Guðrún hringdi:
„í Velvakanda hinn 28. septem-
ber heldur einhver kona því fram
að saltfiskurinn sem seldur er á'
útimarkaðinum í Austurstræti
kosti 760 kr. kílóið. Þetta er ekki
rétt. Ég keypti þarna pakka sem
var 1.8 kg og kostaði 760 kr.
Þetta er mjög góður saltfiskur og
þykir mér rétt vað fólk fái að vita
hið sanna um verðið.“
Greiðvikinn bílstjóri
Lesandi hringdi:
„Ég vil koma á framfæri þökk-
um til sendibílstjóra sem tók
frænku mína uppí bílinn hjá sér
og ók henni heim í óveðrinu 26.
september. Veðrið var mjög vont
og var hún í stökustu vandræðum.
Ef allir væru svona greiðvinknir
eins og þessi bílstjóri, sem ég
held að sé hjá Nýju sendibílastöð-
inni, værum margt með öðrum
hætti."
Reiðhjól
Hvítt kvenreiðhjól er í óskilum
við Reynimel. Upplýsingar í síma
19428.
Svart SCO kvenreiðhjól var
tekið við Ásvallagötu 27 aðfara-
nótt laugardags. Þeir sem geta
gefið upplýsingar eru beðnir að
hringja í síma 10869.
Taska
Svört taska merkt FOX tapað-
ist sl. laugardagskvöld. í henni
voru skilríki, lyklar og græn
snyrtibudda. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
50327.
Úr
Kvenúr fannst í söludeild Póst
og síma í Miðbænum og getur
eigandinn vitjað þess þar.
Kettling-ur
Undanfarinn mánuð hefur
stálpaður kettlingur, læða, haldið
til í Trönuhólum 8. Hún er svört
að lit með örfá hvít hár framan
á hálsinum. Eigandi hennar er
beðinn að hringja í síma 72715.
Hvar er gamli góði Alþýöuflokkurinn
Til Velvakanda.
Þegar ég fór að hugsa um pólitík,
á yngri árum, fannst mér mikið til
hugsjóna Alþýðuflokksins koma. Þá
voru markmiðin háleit, t.d. afnám
tekjuskatts af almennum launatekj-
um, lagfæring skattakerfisins með
hliðsjón af mýmörgum leiðum til
skattsvika, uppskurð úreltrar land-
búnaðarstefnu o.s.frv.
Hvernig hefur reyndin orðið. Al-
þýðuflokkurinn hefur skriðið upp í
fangið á Framsókn, komið á sérstök-
um matarskatti, hækkað tekjuskatt,
leggur á ráðin um misrétti tií barna-
Frá hjartanu
Ágæti Velvakandi.
Hann var bæði hreinskilinn og frá
hjartanu kominn, boðskapurinn
þeirra í Krossinum í Kópavogi hinn
19. ágúst. Ræðumaður lagði út af
V. Mósebók 7. kapítula, sýndi lit-
skyggnur og útskýrði nánar. Allt var
þetta einfalt og auðskilið utan þess
hvað boðskapur þessi hefur með
kross og Jesúm að gjöra.
Bjarni Valdimarsson
bóta og ellilífeyrisgreiðslna og
hyggst standa að framlengingu bú-
vörusamnings sem nánast hefur gert
þjóðina gjaldþrota.
Er nokkur undrandi yfir því, að
skoðanakannanir sýni, að Álþýðu-
flokkurinn er að hverfa úr íslenskri
pólitík.
11( 14 14
WKSTHICTKD tggg)
UNDEK 17 REOtHRES RCCOMPANTWS
PARENT Ofi ADUIT SUANOIAN
T WENTlETH CCNTUHV EOX FK.M COGPOnATON
. REYKJAVÍK
TEG: VICTORY - BREIDD 305 CM
REGENT MÖBEL
Þýsk vegghúsgögn í miklu úrvali
- Ijós og dökk.