Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 19.89
foafrm
FOLX
■ SHEFFIELD Wed., sem hafði
ekki skorað nema tvö mörk í níu
leikjum, skoraði átta mörk gegn
Aldershot í deildarbikarkeppninni,
8:0, á þriðjudagskvöldið. Steve
Whitton skoraði fjögur, en Dalian
Atkinson þrjú.
■ DANSKI leikmaðurinn Lars
Elstrup skoraði þijú mörk fyrir
.Luton þegar það vann Mansfield,
7:2 í sömu keppni.
■ MICHAEL Thomas hjá Arse-
nal var einnig á skotskónum. Hann
skoraði þijú mörk þegar Arsenal
vann Plymouth, 6:1.
I BRYAN Robson lék á ný með
Manchester United gegn
Portsmouth. Þrátt fyrir það varð
félagið að sætta sig við jafntefli,
0:0, á Old Trafford. United komst
áfram í þriðju umferð á saman-
lagðri markatöku, 3:2. Robson hef-
ur verið valinn í enska landsliðs-
hópinn sem mætir Pólverjum í
undankeppni HM í næstu viku.
■ Motherwell skaust upp á topp-
inn í Skotlandi í fyrsta skipti í fjór-
tán ár, þegar félagið vanri Glasgow
Rangers, 1:0. Bobby Russell, fyrr-
um leikmaður Rangers, skoraði
sigurmarkið eftir aðeins sex mínút-
ur.
■ CHELSEA hefur áhuga á að
fá til sín vestur-þýska sóknar-
manninn Herbert Waas frá Bay-
ern Leverkusen. Schalke hefur
einnig sýnt áhuga á honum.
■ HEIMSSAMBAND kylímga
hefur formlega óskað eftir við al-
þjóða ólympíunefndina að golf verði
sýningargrein á Ólympíuleikunum
í Barcelona 1992 og verður um-
sóknin tekin fyrir í desember. Þegar
hefur verið ákveðið að Pelota (jai
alai - boltaleikur ekki ósvipaður
veggtennis), hjólaskautakeppni,
og taekwondo (svipar til karate)
verði sýningargreinar, en - tekið
verður fyrir slíkar greinar eftir
næstu Ólympíuleika.
KNATTSPYRNA / SKOTLAND
Guðmundur Torfason kunni vel við sig á heimavelli St. Mirren í gær-
kvöldi. Hér er hann í búningi félagsins.
Gudmundur
skoradi tvö
- fyrir St. Mirren gegn Dundee í gærkvöldi
GUÐMUNDURTorfason gerði
tvö mörk fyrir St. Mirren er lið
hans sigraði Dundee, 3:2, í
skosku úrvalsldeildinni f knatt-
spyrnu í gærkvöldi.
Dundee fékk óskabyijun og
komst í 2:0 eftri 20 mínútur.
Guðmundur Torfason minnkaði
muninn fyrir St. Mirren rétt fyrir
leikhlé. „Þetta var glæsilegt mark.
Há sending kom fyrir markið og
eftir að varnarmaður hafði skallað
frá marki barst boltinn til mín. Ég
tók hann viðstöðulaust með vinstri
og hamraði knöttinn í netið,“ sagði
Guðmundur.
Guðmundur jafnaði leikinn með
marki úr vítaspyrnu í upphafi síðari
hálfleiks eftir að brotið hafði verið
á sóknarmanni St. Mirren. Sigur-
markið gerði síðan Walker skömmu
fyrir leikslok.
Guðmundur sagðist vera mjög
ánægður með leikinn, utan fyrstu
20 mínúturnar. Hann sagðist þó
hafa fengið högg á bakið þegar 15
mínútur voru eftir og orðið að yfir-
gefa völlinn. „Ég er mjög slæmur
núna en held að þetta sé ekkert
alvarlegt. Ég fæ góðan tíma til að
jafna mig því næsti leikur er ekki
fyrr en eftir 10 daga. Þetta er búið
að vera mjög skemmtilegur tími hér
í Skotlandi.“
Guðmundur hefur gert 4 mörk
fyrri St. Mirren á tímabilinu, þijú
í deildinni og eitt í bikarkeppninni.
Liðið hefur nú sjö stig og er þrem-
ur stigum á eftir efstu liðunum.
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Islendingar
mæta Grikkjum
- á móti í Danmörku í desember
Islenska landsliðið í körfuknatt-
leik tekur þátt í Ijögurra þjóða
móti í Danmörku dagana 28. til 30.
desember næstkomandi. Þátttöku-
þjóðir verða, auk íslands, Danmörk,
Eystland og Grikkland.
KKÍ fékk endanlega staðfest í
gær að Grikkir taki þátt í mótinu,
en Danir ætluðu sér. Danir ætluðu
sér að fá eitt stórlið á mótið og það
tókst. Grikkir eru með allra bestu
körfuboltaþjóðum álfunnar —
nældu í silfurverðlaun á síðasta
Evrópumóti sem fram fór fyrr í
sumar; töpuðu þá úrslitaleiknum
gegn Júgóslövum, en urðu hins
vegar Evrópumeistarar á næsta
móti þar á undan. Sigruðu þá sjálfa
Sovétmenn í eftirminnilegum úr-
slitaleik.
FIMLEIKAR / HEIMSMEISTARAMOT
íslendingar á
heimsmeistara-
mót fyrsta sinni
Þrjárstúlkurfara á næsta mót,
sem hefst í Stuttgart um aðra helgi
LINDA Steinunn Pétursdóttir,
Fjóla Ólafsdóttir og Bryndís
Guðmundsdóttir verða meðal
keppenda á heimsmeistara-
mótinu ífimleikum sem hefst
Stuttgart íVestur-Þýskalandi
14. október.
Heimsmeistaramótið í fimleik-
um, sem haldið er annað
hvert ár, verður nú haldið í 25.
sinn. Mótið stendur yfir frá 14.
til 22. október. Þetta _er í fyrsta
sinn í sögunni sem íslandingar
senda keppendur á þetta mót.
íslensku keppendurnir, Lindá
Steinunn Pétursdóttir, íslands-
meistari, Fjóla Ólafsdóttir, Norð-
urlandameistari á tvíslá, og
Bryndís Guðmundsdóttir, sem
varð þriðja á íslandsmótinu, hafa
æft sleitulaust í allt sumar og
undirbúið sig vel fyrir mótið.
í tengslum við heimsmeistara-
mótið í Suttgart verður m.a. ráð-
stefna um vísindalegar athuganir
á fimleikum og námskeið fyrir
Bryndís Guðmundsdóttir.
dómara. Stórbrotinn sýningarat-
riði verða í tegslum við opnunar-
hátíð mótsins sem hefst daginn
áður, eða 13. október.
Mikið hefur verið að gerast hjá
íslensku fimleikafólki á þessu ári.
Alþjóða fimleikasambandið, FIG,
hélt stjórnarfund í Reykjavík í lok
Fjóla Ólafsdóttir.
júní og byijun júlí. Þetta var
fyrsti fundir FIG á Norðurlöndum.
A sama tíma og stórnarfundir FIG
stóð yfir hér var hópur fimleika-
stúlkna úr Gerplu og Stjörnunni
í Vejle í boði danska fimleikasam-
bandsins, sem hélt upp á 90 ár
afmæli sitt.
Ellert
sækist
ekki eftir
endurkjöri
Ellert B.
Schram,
formaður
Knattspyrnu-
sambands Is-
lands, sækist
ekki eftir
endurkjöri á
ársþingi sam-
bandsins,
sem verður haldið fyrstu helgina i
desember. Ellert staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið. Hann
hefur verið formaður KSÍ síðan
1973 og er því að ljúka sextánda
árinu sem slíkur.
KORFOBOLTI
Evrópuleikur
í Kef lavík
Keflvíkingar mæta ensku meist-
urunum Bracknell Tigers í
Evrópukeppni meistaraliða í körfu-
knattleik í kvöld. Þetta er síðari
viðureign félaganna, en Englend-
ingarnir unnu fyrri leikinn á heima-
velli sínum 140:105. Leikurinn í
Keflavík í kvöld hefst kl. 20.
Ellert B. Schram.