Morgunblaðið - 05.10.1989, Qupperneq 52
SAGA CLASS
Fyrir þá sem eru aðeins
á undan
FLUGLEIÐIR
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmi^mmmmmmi^mmmm
Þyrla sótti slas-
aðan sjómann
Landhelgisgæslan leitaði lið-
sinnis varnarliðsins í gærkvöldi,
þegar tilkynnt var að skipverji
hefði slasast uni borð í skipi undan
Suðurlandi.
Ekki var hægt að fá upplýsingar
um miðnætti í gær um hvernig slysið
bar að, en þyrla frá varnarliðinu sótti
manninn, sem talið var að hefði hlot-
ið innvortis meiðsli. Þyrla landhelgis-
gæslunnar gat ekki sinnt kallinu, þar
sem hún var að ná í konu í barns-
nauð í Reykhólasveit.
Þjóðleikhús-
stjóri kærður
Rafiðnaðarsamband Islands
hefur kært Gísla Alfreðsson,
þjóðleikhússtjóra, fyrir að hafa
gengið inn í störf rafiðnaðar-
manna við leikhúsið, sem eru í
verkfalli.
Miðstjórn ASÍ sendi forsætisráð-
herra í gær erindi, þar sem mót-
mælt er harðlega þeim vinnubrögð-
um, sem viðhöfð hafa verið í kjara-
deilu stjórnvalda við Rafiðnaðar-
sambandið og þeim lagaskilningi,
sem er notaður sem skjól til verk-
fallsbrota.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að hann
vildi ekki tjá sig um bréf miðstjórn-
ar ASÍ fyrr en að loknum ríkis-
stjórnarfundi í dag. Þar yrði málið
tekið fyrir.
Sjá bls. 2.
Sjfflji fT 4 j !
1 i ý/l ■ ji
S'W; //: b
C V/V//.
%
SAGA FLOKKS í 60 ÁR
Morgunblaðið/Sverrir
Sjálfstæðisflokkurinn í 60 ár heitir bók, sem Hannes Hólmsteinn
Gissurarson tók saman og út kom í gær. Fyrstu eintökin fengu
þau Marta Thors, dóttir Olafs Thors varaformanns flokksins 1932-
1934 og formanns 1934-1961, Ragnheiður Hafstein, ekkja Jóhanns
Hafstein varaformanns 1965-70 og formanns 1970-73, Vala Thor-
oddsen, ekkja Gunnars Thoroddsens varaformanns 1961-65 og
1974-81, Elín Þorláksson, dóttir Jóns Þorlákssonar, fyrsta form-
anns Sjálfstæðisflokksins 1929-34, Ingibjörg Magnúsdóttir, ekkja
Magnúsar Jónssonar frá Mel, varaformanns 1973-74, Ásgeir Pét-
ursson, sonur Péturs Magnússonar, varaformanns 1937-48, Már
Jóhannsson, skrifstofústjóri Sjálfstæðisflokksins, sem hefúr starfað
með velflestum forystumönnum flokksins, og Björn Bjarnason,
sonur Bjarna Benediktssonar, varaformanns 1948-61 og formanns
1961 til 1970. Geir Hallgrimsson varaformaður 1971 - 73 og for-
maður 73 - 83, var staddur erlendis.
Sjá frásögn á bls. 20.
Morgunbiaðið/Bjarni
Frú Helga Helgadóttir, séra Ragnar Fjalar Lárusson og biskup
Islands, herra Olafur Skúlason, sem jafnframt er forseti Biblíufé-
lagsins, skoða Guðbrandsbiblíuna.
Bankar gefa Biblíufélaginu Guðbrandsbiblíu:
Biblían árituð af
dóttur Guðbrands
HIÐ íslenska biblíufélag hefur nú eignast óskemmt eintak Guð-
brandsbiblíu. I gær tóku forseti og varaforseti féiagsins, Ólafur
Skúlason biskup og Jónas Gíslason vígslubiskup, við biblíunni af
fyrri eiganda, frú Helgu Ilelgadóttur.
Biblían er gjöf Seðlabanka,
Landsbanka, Búnaðarbanka og ís-
landsbanka til Hins íslenska biblíu-
félags. Bankastjórarnir Jóhannes
Nordal og Sverrir Hermannsson
höfðu forgöngu um kaupin og til-
efnið er 175 ára afmæli Biblíufé-
lagsins á næsta ári og að rúm 400
ár eru liðin frá prentun biblíunnar.
Biblían var prentuð á Hólum í
Hjaltadal árið 1584 og er talið að
prentuð hafi verið 500 eintök. Það
var Guðbrandur biskup Þorláksson
sem gaf út fyrstu prentun biblíunn-
ar á íslenska tungu og er biblían
kennd við hann.
Neðst á titilblaði þess eintaks,
sem bankarnir gefa nú Biblíufélag-
inu, er áritun Halldóru, dóttur
Guðbrands biskups, sem árið 1625
gaf biblíuna Gísla Magnússyni,
barnungum syni Magnúsar Björns-
sonar lögmanns að Munk^þverá í
Eyjafirði. Gísli varð síðar sýslumað-
ur.
Hæstaréttardómarar víkja í
máli Magiiúsar Thoroddsen
í þriðja skipti sem dómarar réttarins víkja
vegna málaferla eins úr þeirra hópi
HÆSTIRÉTTUR hefúr ákveðið að hæstaréttardómararnir Guðmundur
Jónsson, Benedikt Blöndal, Bjarni K. Bjarnason, Guðrún Erlendsdóttir,
Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Þór Vilhjálmsson víki sæti
er mál ríkisvaldsins gegn Magnúsi Thoroddsen verður tekið til með-
ferðar í réttinum. Gunnar M. Guðmundsson, settur hæstaréttardómari
sem tók sæti Magnúsar í réttinum, mun ekki víkja sæti í málinu. Dóms-
málaráðuneytið hefúr, að tillögu Hæstaréttar, skipað þrjá dómara og
íjóra hæstaréttarlögmenn til að taka sæti þeirra sem víkja við meðferð
málsins. Þetta mun vera í þriðja skipti í sögu Hæstaréttar sem skipað-
ir dómarar hans víkja sæti við meðferð dómsmáls sem varðar einn úr
þeirra hópi.
Þeir sem skipa munu Hæstarétt í
máli þessu eru, auk Gunnars M.
Guðmundssonar: Gunnlaugur Briem-
yfirsakadómari, Helgi V. Jónsson
hæstaréttarlögmaður, Jón Finnsson
hæstaréttarlögmaður, Ragnar Hall-
dór Hall borgarfógeti, Sigurður
Reynir Pétursson hæstaréttarlög-
maður, Sveinn Snorrason hæstarétt-
arlögmaður og Ingibjörg Benedikts-
dóttir sakadómari, sem eftir því sem
Morgunblaðið kemst næst er önnur
íslenskra kvenna til að taka sæti í
Hæstarétti.
Tvívegis áður hafa allir hinir
reglulegu dómarar Hæstaréttar vikið
sæti vegna mála sem snerta einn úr
þeirra hópi. I fyrri skiptin var um
meiðyrðamál að ræða.
í mars 1967 var kveðinn upp í
Hæstarétti dómur í meiðyrðamáli .
sem Lárus Jóhannesson, sem látið
hafði af störfum dómara við réttinn
1964, hafði höfðað gegn forsvars-
mönnum blaðsins „Fijálsrar þjóðar".
Starfsfélagar Lárusar úr Hæstarétti
viku sæti og varadómarar komu í
þeirra stað. Lárus vann málið.
1978 og 1979 voru kveðnir upp í
Hæstarétti dómar í nokkrum meið-
yrðamálum sem forsvarsmenn undir-
skriftasöfnunarinnar „Varins lands“
höfðu höfðað. Þeirra á meðal var
Þór Vilhjálmsson, sem skipaður hafði
verið hæstaréttardómari 1976. Vara-
dómarar dæmdu málin, sem for-
svarsmenn_„Varins lands“ unnu.
Halldór Ásgrímsson var sem kunn-
ugt er dómsmálaráðherra þegar
Magnúsi Thoroddsen var vikið úr
embætti og mál höfðað gegn honum
til embættismissis en Oli Þ. Guð-
bjartsson skiþar nú varadómara
Hæstaréttar sem dómsmálaráðherra.
Morgunblaðið innti Jón Steinar
Gunnlaugsson lögmann Magnúsar
Thoroddsen eftir því hvort hann sæi
annmarka á því hvernig að skipun
varadómara hefði verið staðið þar
sem dómsmálaráðherra, sem á aðild
að málinu fyrir hönd ríkisvaldsins,
hefði skipað varadómara réttarins.
Jón Steinar sagðist ekki mundu gera
neinar kröfur fyrir rétti byggðar á
því hvernig að skipun varadómara
hefði verið staðið.
Löndunarstöð fyrir
mjöl reist í Póllandi
SAMKOMULAG hcftir tekist milli framleiðenda og útflytjenda fiski-
mjöls og pólskra innflytjenda um að reisa í borginni Stettin losunarsam-
stæðu og geymslutanka fyrir fiskimjöl sem notuð yrðu sem miðstöð
fyrir dreifingu til neytenda. Áætlaður kostnaður vegna þessa er röskar
300 milljónir króna, að sögn Haralds Haraldssonar framkvæmdastjóra
Andra h/f sem haft hefúr forgöngu um málið. Auk Andra standa að
verkefninu nokkrir stærstu fiskimjölsframleiðcndur landsins auk
pólskra innflytjenda.
Stofnað verður hlutafélag, sem
verður að 55 hundraðshlutum í eigu
íslendinganna, og taldi Haraldur að
um yrði að ræða eitt fyrsta sam-
starfsfyrirtæki í sameign Pólveija
og vestrænna aðila. Stefnt er að því
að mjöl veðri sekkjað í losunarstöð-
inni og fluttþaðan til kaupenda, jafn-
vel utan Póllands. Pólveijar hafa um
langt skeið verið meðal helstu kaup-
enda íslensks loðnumjöls og hafa
keypt allt að 55 þúsund tonn af fiski-
mjöli héðan á ári.
Sjá nánar B1