Morgunblaðið - 06.10.1989, Side 24
24
G86T H3SOTSÍO .9 HUOAQIIT8Ö3 QIQAJHMtíííHOM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÖBER 1989
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Það eru bílar eins og þessir, sem
gera íbúum við Skarðshlíðina
gramt í geði. Er slysið varð í
vikunni söfnuðust nokkrir ibúar
götunnar saman við slysstaðinn
eins og sjá má á innfelldu mynd-
inni.
íbúar við Skarðshlíð:
Langþreyttir á stórum bílum
Hyggjast senda bæjaryfirvöldum undirskriftalista
ÍBÚAR við Skarðshlíð hafa í hyggju að senda bæjaryfirvöldum undir-
skriftalista þar sem stöðum stórra bíla er mótmælt og einnig yrði far-
ið fram á að settar yrðu upp hraðahindranir á götuna vegna þess hve
algengt er að menn aki þar hratt. I fyrrakvöld var ekið á dreng við
Skarðshlíð, stutt er síðan þar varð harður árekstur og þá er einnig bent
á að skammt sé síðan stúlka hafí lærbrotnað er bifreið ók á hana á
svipuðum slóðum.
Friðrikka Ámadóttir íbúi við
Skarðshlíð sagði að iðulega væri allt
að fjörum stórum bílum lagt við göt-
una og torveldaði það vegfarendum
mjög yfirsýn yfir götuna. Þá benti
hún einnig á að hraðaakstur um
götuna væri mikill og stæði íbúum
ógn af hversu hratt sumir ökumenn
ækju.
Hún sagði að í undirbúningi væri
að safna undirskriftum íbúa við
Skarðshlíð þar sem bifreiðastöðum
þessum,væri mótmælt og einnig yrði
farið fram á að settar yrðu upp
nokkrar hraðahindranir á götuna.
„Mér þykir hart að æviniega þurfi
að safna undirskriftum vegna mála
af þessu tagi, þetta er þess eðlis að
eitthvað ætti að vera búið að gera
til að laga þessi mál fyrir löngu,“
sagði Friðrikka.
Gunnar Jóhannesson deildaiverk-
fræðingur hjá Akureyrarbæ sagði
að sér væri fullkunnugt um hraðan
akstur í hverfinu. Hann sagði að
þetta mál yrði skoðað ef til þess
WiíM
Dansleikur
laugardagskvfild
Hins stórgóða hliómsveit
Kvartett
leikur fyrir dausi.
Kristján Guðmundsson
leikur fyrir matargesti.
Borðapantanir
í sfma 22200.
Hótel KEA
kæmi að undirskriftum yrði skilað
inn til bæjarins. Gunnar benti á að
nú væri í gildi bann við því að leggja
stórum bifreiðum við Skógarlund, en
ef banna ætti slíkar bifreiðastöður
þyrfti að breyta lögreglusamþykkt-
inni. Drög að endurskoðaðri lög-
reglusamþykkt lægju fyrir og þar
inni væru ákvæði um bann við bif-
reiðastöðum stórra bíla á ákveðnum
svæðum í ákveðinn tíma.
Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu:
Stilla saman strengi
sína fyrir veturinn
IÐNÞRÓUNARFÉLAG Eyjafjarðar boðaði á sinn fund helstu for-
svarsmenn á sviði ferðamála á Akureyri þar sem rætt var um hugsan-
legt samstarf og sameiginlegt lfynningarátak helstu hagsmunaaðila
á þessu sviði. Fundinn sóttu m.a. fúlltrúar hótela, veitingastaða, ferða-
skrifstofa, bílaleiga og flugfélaga.
Þorleifur Þór Jónsson ferðamála-
fulltrúi Iðnþróunarfélagsins sagði
að til fundarins hefði verið boðað
svo menn fengju tækifæri á að
stilla saman strengi sína fyrir vetur-
inn. „Við þurfum að leggja áherslu
á að hér á Akureyri er margt í
boði yfir vetrartímann, en stað-
reyndin er sú að við þurfum að
sækja fólkið, bjóða upp á eitthvað
og kynna það vel,“ sagði Þorleifur.
Hann sagði að ýmislegt yrði í
gangi í vetur, boðið yrði upp á
skemmtidagskrá í Sjallanum, Leik-
félagið hefði margt forvitnilegt á
fjölunum, síðan þyrfti að kynna
mönnum betur hvað í boði væri á
sviði vetraríþrótta.
„Það er ljóst að hér verður mikil
umferð skíðafólks síðari hluta vetr-
ar, Vetraríþróttahátíð ÍSÍ verður
haldin í mars, síðan koma páskarn-
ir hálfum mánuði síðar og þá er
stutt í fimmtán ára afmæli Andrés-
ar Andarleikanna. En við munum
einnig leggja áherslu á gönguskíða-
brautir í Kjarnaskógi og skauta
íþróttina,“ sagði Þorleifur.
Kynning
á Hyundai töivum í dag og á
morgun irá kl. 10-16.
Verð frákr. 59.911,-
með samráðshugbúnaði.
Kaupvangsstræti 4
sími 26100 Akureyri
Strandgat-
an í Hafii-
arfírði með
nýjum svip
STRANDGATAN í Hafnarfirði
verður formlega opnuð í dag,
fostudaginn 6. október, klukkan
16 eftir gagngerar breytingar
og endurbætur sem staðið hafa
yfir síðastliðna fimm mánuði.
Gatan er nú upphituð og stein-
lögð. Sett hefúr verið upp ný
lýsing, trjágróðri plantað og
umferð bíla er takmörkuð.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar blæs
til ieiks klukkan 4, en að því loknu
klippir Guðmundur Árni Stefáns-
son bæjarstjóri á borðann. Fim-
leikaflokkurinn Björk sýnir listir
sínar og á útipalli verða hljómleikar
með Ríó Tríói og hljómsveit Ingi-
mars Eydal. Kynnir er Þorgeir
Ástvaldsson.
í menningarmiðstöðinni verða
tónleikar á vegum Tónskólans í
Hafnarfirði og þar er einnig opin
myndlistarsýning á verkum Sigur-
björns E. Logasonar. I Strandgöt-
unni eru 94 verslunar- og þjón-
ustuaðilar. Sértilboð og afslættir
verða í öllum verslunum í tilefni
dagsins.
I vetur hefur verið ákveðið að
hafa opið á laugardögum frá klukk-
an 10 til 16.
Ómar með þjóð-
arspaug á Sögu
ÞJÓÐARSPAUG í 30 ár nefiiist
skemmtidagsrá Ómars Ragnars-
sonar fréttamanns og skemmti-
krafts, sem verður á boðstólum
í Súlnasal Hótel Sögu á laugar-
dagskvöldum í október og nóv-
ember. Frumsýning verður laug-
ardaginn 7. október.
í kynningu á dagskránni segir
m.a: „Æringinn Ómar Ragnarsson
tekur bakföll inn í sögusviðið og
þeysir með okkur 30 ár aftur í
tímann. Ekkert er heilagt og eng-
um hlíft - höfðingjar reynast hrekk-
jalómar og kennimenn kroppar.
Þetta er Ómar eins og hann reyn-
ist óútreiknanlegastur."
AuB Ómars koma fram í sýning-
unni Hermann Gunnarsson, Helga
Möller og Haukur Heiðar undlir-
leikari. Leynigestur kemur fram
og hljómsveitin Einsdæmi leikur
fyrir dansi. Stjórnandi sýningarinn-
ar er Björn Björnsson og útsetning-
ar eru eftir Árna Scheving.
Miðaverð á sýninguna með
þriggja rétta kvöldverði er 3600
krónur. Þá býður hótelið uppá að-
göngumiða með mat og gistingu í
eina nótt á 5150 krónur.
Sýningu Sigurð-
ar Þóris að ljúka
Málverkasýning Sigurðar
Þóris sem staðið hefur frá 23.
september í kjallara Norræna
hússins lýkur sunnudaginn 8.
október. Þetta er 9 einkasýning
Sigurðar hér í Reykjavík, en
hann hefur haldið sýningar er-
lendis og tekið þátt í samsýning-
um hér heima og annars staðar.
Málverkin sem sýnd eru að þessu
sinni eru öll máluð á síðustu tveim-
ur árum og fjalla um manninn og
hans nánasta umhverfi og um sam-
skipti manns og konu.
Leiðrétting
í Morgunblaðinu í gær, fimmtu-
dag, var sagt að Kvikmyndahátíð
í Reykjavík sem hefst iaugardaginn
7. október myndi standa yfir í þrjár
vikur, það er ekki rétt. Kvikmynda-
hátíð hefst 7. október og stendur
til 17. október eða í 10 daga. Er
beðist velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Brúðkaup Fígar-
ós sýnt að nýju
ÍSLENSKA óperan tekur um
helgina til sýninga að nýju óper-
una Brúðkaup Fígarós eftir W.A.
Mozart sem sýnd var í vor við
góðar undirtektir. Sýnt verður
laugardagskvöldið 7. október,
klukkan 20.
Sú breyting hefur orðið á hlut-
verkaskipan frá því í vor að Banda-
ríkjamaðurinn Keith Reed hefur
tekið við af Kristni Sigmundssyni
sem greifinn Almaviva. í öðrum
hiutverkum eru Ólöf K. Harðar-
dóttir, John Speight, Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir, Viðar Gunnarsson, Hrönn
Hafliðadóttir, Sigurður Björnsson,
Sigríður Gröndal, Inga J. Backman
og Soffía' H. Bjarnleifsdóttir.
Hljómsveitarstjóri er Anthony Hose
og leikstjóri Þórhildur Þorleifs-
dóttir.
Uppselt var á allar sýningarnar
í vor og nú verða einungis örfáar
sýningar, þannig að þeir sem ekki
vilja missa af þessari bráðskemmti-
legu óperu ættu að drífa sig strax
af stað.
Gísli Magnússon
leikur verk eftir
Beethoven og
Brahms
ÚT ER komin hljómplata með
Gísla Magnússyni píanóleikara.
Á hljómplötunni eru nýjar staf-
rænar hljóðritanir á verkum eft-
ir Beethoven og Brahms: Sónata
nr. 31 í As-dúr, op. 110, eftir
Beethoven og Tilbrigði og fúga
um stef eftir Hándel, op. 24, eft-
ir Brahms.
Þetta er sjöunda hljómplatan
sem Gísli Magnússon leikur inn á,
en verkin á plötunni lék hann á
tónleikum Tónlistarfélagsins í
Reykjavík árið 1987. Þessi verk eru
meðal stórbrotnustu tónsmíða sem
samdar hafa verið fyrir píanó og
hafa þau átt miklum vinsældum
að fagna.
Hljóðritun annaðist Halldór
Víkingsson í Háskólabíói. Hljóm-
platan er beinskorin og framleidd
hjá Teldec í Vestur-Þýskalandi.
Dreifingu annast Steinar hf.
Frú Emilía sýnir
„Djöfla“
LEIKHÚSIÐ Frú Emilía frum-
sýndi leikritið „Djöflar" (Class
Enemy) eftir breska leikrita-
skáldið Nigel Williams, miðviku-
daginn 13. september, en síðan
þá hafa sýningar legið niðri
vegna veikinda. Þær heíjast nú
aílur laugardaginn 7. október.
Aðstandendur sýningar Frú
Emilíu eru Kristján Franklín Magn-
ús, Árni Pétur Guðjónsson, Emil
Gunnar Guðmundsson, Steinn Ár-
mann Magnússon, Sigurþór Albert
Heimisson, Stefán Sturla Sigur-
jónsson og Þröstur Guðbjartsson.
Leikstjóri er Guðjón P. Pedersen.
Leikmynd og búningar sá Guðjón
Ketilsson um. Anton Helgi Jónsson
þýddi verkið og lýsingu annaðist
Ágúst Pétursson.
Næstu sýningar verða laugar-
daginn 7. október klukkan 20 og
mánudaginn 9. október klukkan
20.30. Miðasalan er opin alla daga
klukkan 17-19 í Skeifunni 3c og
sýningardaga til klukkan 20.30.
Tónleikar
í Logalandi
FYRSTU tónleikar Tónlistarfé-
lags BorgarQarðar á þessu
starfsári verða haldnir í Loga-
landi þriðjudagskvöldið 10. októ-
ber klukkan 21.00.
Olöf Kolbrún Harðardóttir syng-
ur lög eftir Jórunni Viðar, E. Gri-
eg, P. Heyse, G. Verdi og R.
Strauss. Undirleikari verður Jónas
Ingimundarson.