Morgunblaðið - 13.10.1989, Qupperneq 2
8
e«ei íiaao'rao .gi >1 LJOAcrjraö'-i QigAjanuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ -FÖSTUDAGUR 13. OKTÖBER 1989 .
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra:
Leitar álits aðila vinnumarkaðar
á breytingum á vinnulöggjöfinni
JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagði við setningu
Verkamannasanibandsþings í gær, að hún myndi á næstunni leita
til aðila vinnumarkaðarins og fá fram afstöðu þeirra og greinargerð
um það hvort þörf sé á endurskoðuu á vinnulöggjöfinni, og þá hvernig.
í ræðu sinni sagðist Jóhanna
telja, að verkalýðshreyfingin hafi
verið alltof íhaldssöm á innra skipu-
lag sitt, en afleiðing þess væri að
foiystan hefði fjarlægst fjöldann í
verkalýðshreyfingunni.
Leiðrétting:
Breytingar á tekju-
skattskerfi til skoðunar
Á baksíðu Morgunblaðsins í gær birtist frétt um fiárlagafrumvarpið,
sem lagt var fram í fyrradag undir fyrirsögninni:“Tekjuskattshlut-
fall hækkað og sérstakt hátekjuþrep." Fyrirsögn þessa má skilja á
þann veg, að í íjárlagafrumvarpinu sé þrví lýst, að ríkisstjórnin hafi
tekið ákvörðun um að hækka tekjuskattshlutfall og taka upp sérs-
takt hátekjuþrep. Þetta er ekki rétt.
í fjárlagafrumvarpinu segir m.a.:
“Ríkisstjómin hefur ákveðið að end-
urskoða tekjuskattkerfið á næst-
unni í því skyni að það stuðli að
meiri jöfnuði með því að létta skatt-
byrði af lágtekjufólki en auka hana
á hátekjufólki. Við þessa endur-
skoðun hefur verið ákveðið að eftir-
farandi kostir verði skoðaðir, sem
tæki til áukins jöfnuðar innan tekju-
skattskerfisins:
1. Að barnabætur verði í ríkara
mæli tekju- og eignatengdar, þann-
ig að þær komi fyrst og fremst í
hlut lágtekjufólks.
2. Að hækka skatta á fólki með
háar tekjur með því að hækka tekju-
skattshlutfall og persónuafslátt.
3. Að komið verði á sérstöku
skattþrepi á háar tekjur.
4. Að teknir verði upp tekju-
tengd-
ir húsaleigustyrkir."
Þetta leiðréttist hér með.
Jóhanna sagði að við slíkar að-
stæður væru lýðræðisleg vinnu-
brögð í vei’kalýðshreyfingunni í
mikilli hættu. Því væri það knýj-
andi nauðsyn að leiðandi öfl í verka-
Lýðshreyfingunni staldri við og hugi
að því skipulagsformi, sem hún
hefði frá öndverðu byggt á, iiugi
að því hvoit skipulagsform og
starfshættir, sem gefið hefði verka-
lýðshreyfingunni styrk í gær, sé
ekki orðið hennar veikleiki í dag.
„Virkt lýðræði og skilvirkt skipulag
innan verkalýðshreyfingarinnar eru
sá hornsteinn, sem verkalýðsbar-
átta framtíðarinnar stendur og fell-
ur með. Uppbygging og skipulag
vei'kalýðshreyfingarinnai' verður að
svara kröfum tímans og taka mið
af fyrri reynslu. Ég bendi á hvort
ekki sé tímabært að hugleiða álykt-
un Alþýðusambandsþings frá 1958,
þar sem kveðið var á um grundvall-
arbreytingar í skipulagsmálum
verkalýðshreyfingarinnar m.a. með
því að taka upp starfsgreinafélög,"
sagði Jóhanna.
„Ég er ekki hér og nú að boða
endurskoðun á vinnulöggjöfinni. Ég
er einungis að benda á að ég tel
tímabært fyrir verkalýðshreyfing-
una í landinu að staldra við og
huga að skipulagsmálum
sínum“,sagði Jóhanna rneðal ann-
are.
Sjá frásögn af setningu Verka-
mannasanibandsþings á bls. 7
Ríkisendurskoðun í bréfí til utanríkisráðherra:
Ekki ástæða til að tengja saman
afinælisveizlu og áfengisúttekt
Ærumeiðandi áburði hnekkt af óviihöllum aðila, segir
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra
Ríkisendurskoðun sendi Jóni Baldvin Hannibalssyni, utanríkis-
ráðherra, bréf í gær, þar sem fram kemur, að Ríkisendurskoðun
hafi athugað gögn, sem utanríkisráðherra lagði firam -varðandi
greiðslu á áfengi í afmæli þáverandi fiármálaráðherrafrúar. Segir
í bréfinu, að gögn þessi hafi verið borin saman við áfengisúttektir
frá 19. júlí og 5. ágúst 1988 og ekkert hafi komið fram, sem gefi
tilefni til að tengja þetta tvennt saman eða rengja sannleiksgildi
þeirra gagna, sem lögð hafi verið fram um að greiðsla veizlufanga
hafi verið með eðlilegum hætti.
Fréttatilkynning utanríkisráð-
herra fer hér á eftir í heild:“Hjá-
lagt er afrit af bréfi Ríkisendur-
skoðunar til mín, sem mér barst
í dag. Efni bréfsins skýrir sig
sjálft. Þar með tel ég, að ærumeið-
andi áburði, sem studdur hefur
verið órökstuddum grunsemdum,
hafi verið hnekkt af réttbærum
og óvilhöllum aðila:
Ríkisendurskoðun hefur, að
beiðni yðar, hr. utanríkisráðherra,
athugað gögn, er þér hafið látið
í té, um það með hvaða hætti
afmælisveisla fyrrverandi fjár-
málaráðherrafrúar, sem haldin
var 9. júlí 1988, var fjármögnuð
og borið þau saman við tvær út-
tektarnótur dags. 19. júlí og 5.
ágúst 1988, er varða reiknings-
gerð Borgartúns 6 á hendur fjár-
málaráðuneyti, vegna áfengisút-
tektar þess skv. risnuheimildum.
Ofangreind athugun hefur ekki
leitt neitt í ljós sem gefur ástæðu
til að tengja þetta tvennt saman
eða rengja sannleiksgildi fyrir-
liggjandi gagna um að greiðsla
veislufanga hafi verið með eðlileg-
um hætti.
Ríkisendurskoðun tekur skýrt
fram að unnið er áfram að heildar-
athugun á áfengisúttekt ráðu-
neytanna árið 1988, sem henni
var falin af yfirskoðunarmönnum
ríkisreiknings 1988.
Þetta tilkynriist yður hér með.“
Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofiiuiiar:
Sjálfstæðisflokkur fengi 47,6%
atkvæða í Alþmgiskosningiim nú
Aðeins 26,4% styðja ríkissljórnina
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN fengi 47,6% greiddra atkvæða í al-
þingiskosningum ef kosningar til Alþingis færu nú fram, samkvæmt
þjóömálakönnun sem Félagsvísindastofnun hefúr unnið fyrir Morgun-
blaðið. í alþingiskosningum 1987 fékk Sjálfstæðisflokkurinn 27,2%
atkvæða. Sömuleiðis myndi Kvennalistinn bæta við sig. Hann fengi
14,8% atkvæða ef kosið yrði nú, en fékk í kosningunum 1987 10,1%.
Fylgi annarra flokka myndi hrapa, samkvæmt niðurstöðum könnunar-
innar.
Samkvæmt könnuninni fengju
A-flokkarnir báðir 8,3% greiddra
atkvæða, en í kosningunum 1987
fékk Alþýðuflokkur 15,2% atkvæða
og Alþýðubandalag 13,4% atkvæða.
Framsóknarflokkurinn fengi 17,6%
atkvæða í kosningum nú, en fékk
18,9% í síðustu kosningum. Þá hefur
fylgi Borgaraflokksins hrunið úr
10,9% í 0,3%. Fylgi Flekks mannsins
færi úr 1,6% í 0,8% og Samtaka
jafnréttis og félagshyggju færi úr
1,2% í 0,7%. Sömuleiðis fengi Þjóðar-
flokkur 0,7% atkvæða í kosningum
nú, en fékk í kosningum 1987 1,3%.
Ftjálslindir hægrimenn fengju einnig
0,7% atkvæða ef kosið yrði nú.
Samkvæmt könnuninni nýtur
ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar stuðnings 26,4%. 51,2% sögð-
ust vera á móti þéirri ríkisstjórn, sem
nú sæti. 20% sagðist hlutlaus og
2,4% neituðu að svara þegar spurt
var hvort viðkomandi væri frekar
stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar
eða andstæðingur.
Könnunin var gerð dagana 3.-7.
október sl. og var leitað til 1.500
manna á aldrinum 18 til 75 ára, af
öllu landinu. Upplýsinga var aflað í
gegnum síma og fengust svör frá
1.060 manns. Nettósvörun nam 75%.
Þrjár spurningar voru lagðar fyrir
svarendur um hvað þeir myndu kjósa
ef alþingiskosningar yrðu haldnar á
morgun. Fyrst voru menn spurðir:
Ef alþingiskosningar væiu haldnar
1 Þjóðleikhúsinu.
Moi’gunblaðið/Julíus
Harka færist í verk-
fall rafiðnaðarmanna
Eftir nokkurt stapp í Þjóðleikhúsinu í gær tókst Gísla Alfreðssyni
þjóðleikhússtjóra að teygja sig með prik í hendi framhjá verkfallks-
vörðum og í rafmagnstöflu fyrir liljóðkerfi Þjóðleikhússins og setja
á það strauin. Verkfallsverðirnir færðu sig þá að spennistöð fyrir
ljósabúnað hússins, en voru bornir burt og sýning fór fram.
Hópur rafiðnaðannanna stóð arinnar á það ráð að tengja útsend-
vörð við dyr sjónvarpshússins við ingu framhjá stjórnstöðinni. Þannig
Laugaveg en innan dyra höfðu átta hófust útsendingar klukkan 18.30.
starfsbræður þeirra sest að i aðalút- Pétur sagði að í Ijósi þessarar að-
sendingarstjórn sjónvarpsins og gerðar hefðu sjónvarpsmenn talið
krafist þess að öllum sjónvarpsút- sig óbundna af fyrra samkomulagi
sendingum yrði hætt klukkan við Rafiðnaðarasambandsins og því
18.15. Að sögn Péturs Guðfinnsson- hafi að nýju útsendingu auglýyjnga
ar framkvæmdastjóra Ríkissjón- en þeim hafði verið hætt 4 fyrra-
varpsiris tóku forráðamenn stofnun- kvöld að kröfu verkfallsmanna.
Við Sjónvarpið.
Moi'gunblaðið/Ámi Sæbeig
Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningum nú?
Samanburður við fyrri kannanir og alþingiskosningarnar 1987.
Peir sem taka afstöðu.
Fjöldi Kjósa Sept. Júní Maí Kosningar
nú 1989 1989 1989 1987
% % % %
Alþýðuflokkur 61 8,3 8,9 11,3 10,9 15,2
Framsóknarflokkur 129 17,6 17,6 20,3 19,8 18,9
Sjálfstæðisflokkur 348 47,6 44,0 39,3 41,8 27,2
Alþýðubandalag 61 8,3 12,6 8,6 9,7 13,4
Kvennalisti 108 14,8 13,4 15,2 12,6 10,1
Flokkur mannsins 6 0,8 0,7 1,1 0,8 1,6
Samt. jafnr. og félagsh. 5 0,7 0,5 0,9 0,3 1,2
Þjóðarflokkur 5 0,7 0,5 1,1 1,9 1,3
Borgaraflokkur 2 0,3 1,4 1,8 03 10,9
Frjálsl. hægrimenn 5 0,7 0,1 0,4 1,6 -
Aðrir 1 0,1 0,3 - 0,1 -
Samtals 731 99,9% 100% 100% 100% 100%
á morgun, hvaða flokk eða lista
heldurðu að þú myndir kjósa? Þeir
sem sögðu „veit ekki“ voru spurðir
áfram: Én hvaða flokk eða lista held-
urðu að líklegast sé að þú myndir
kjósa. Segðu menn enn „veit ekki“
voru þeir spurðir: En hvort heldurðu
að sé líklegra að þú kjósir Sjálfstæð-
isflokkinn eða einhvern annan flokk
eða lista? 16,3% svarendanna sögðu
„veit ekki“ eftir fyrstu tvær spurn-
ingarnar, en þegar svörum við þriðju
spurningu er bætt við fer hlutfall
óráðinna niður í 7%.