Morgunblaðið - 13.10.1989, Page 4
a
4
M (MuáiSíBÍ ÁT)I D FdsTUDAGlÍR '13. ÓKTÓBER U)H9
Olafur Ragnar Grímsson, gármálaráðherra:
„Hlutverk hins almenna vinnu-
markaðar að móta launasteínu“
OLAFUR Ragnar Grímsson, qarmalaraðherra segir að launastefna
ríkisstjórnarinnar seni slík komi ekki fram í íjárlagafrumvarpinu sem
hann lagði fram á Alþingi í fyrradag, heldur sé einungis gengið út
fi'á því að aðilar vinnumarkaðarins muni semja um kaup og kjör inn-
an þess ramma verðbreytinga sem miðað er við að verði á fjárlagaár-
inu, þ.e. 15 til 16%. „Launastefna ríkisstjórnarinnar kemur ekki fram
í þessu frumvarpi, því við teljum að það eigi að vera hlutverk hins
almenna vinnumarkaðar að móta hana,“ sagði fjármálaráðfierra í
samtali við Morgunblaðið i gær.
Ummæli Pálma Jónssonar, al-
þingismanns og fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í fjárveitinganefnd í blað-
inu í gær voru borin undir fjármála-
ráðherra, en þar sagði Pálmi m.a.:
„Ekki er gert ráð fyrir neinuni
launahækkunum og svari nú hver
fyrir sig að það sé trúlegt að laun
standi óbreytt í 16% verðbólgu."
„Það er ekki rétt að ekki sé gert
ráð fyrir neinum launahækkunum.
Munurinn á Þjóðhagsáætlun núna
og þessu fjárlagafrumvarpi er að
áður hefur verið kortlagt nákvæm-
lega að laun hækki þetta mikið og
gengi breytist þetta mikið, en það
er ekki gert núna. í staðinn er sett
fram spá um verðlagsþróun," sagði
Ólafur Ragnar, „og hún er 16% á
milli ára. Sú verðlagsþróun getur
síðan orðið af ýmsum ástæðum:
vegna breytinga á gengi, vegna
breytinga á launum, eða af öðrum
ástæðum. RíkiSstjÓrnin telur það
ekki vera sitt hlutverk að segja til
um það fyrirfram hvað af því eigi
að vera vegna gengisbreytinga og
hvað vegna launabreytinga. Því
þetta frumvarp er burðarásinn í
þeirri efnahagsstefnu að ljúka milli-
færslutímabilinu á þessu ári og loka
millifærslusjóðunum sem voru
stofnaðir hér sem bráðabirgðaað-
gerð til að bjarga atvinnulífinu.
Síðan verður haldið inn í tímabil þar
sem nýr grundvöllur markast af því
að ríkið mótar hinn almenna ramma,
og síðan verða aðilarnir á vinnu-
markaðnum að laga sig að honum
með sínum fijálsu ákvörðunum."
Fjármálaráðherra sagði að um-
mæli Pálma Jónssonar væru á mis-
skilningi byggð. „Hann hefur ein-
faldlega ekki lesið frumvarpið nægj-
anlega vel, sem skiljanlegt er, því
hann hafði til þess skamman tíma
í gær,“ sagði ijármálaráðherra.
Fjármálaráðherra sagðist telja að
16% verðlagsbreyting milli ára væri
nokkuð raunhæf áætlun, því þetta
þýddi að verðbólgan myndi fara
hægt og bítandi niður á við, en ekki
væru ráðgerð nein stór stökk í þeim
efnum.
Ólafur Ragnar sagði einnig að
þótt ríkisvaldið hefði verið á undan
almenna launamarkaðnum í kjara-
samningum á þessu ári, þá liti ríkis-
stjórnin þannig á að þar hefði verið
um undantekningartilvik að ræða.
Nú ætti afkoma atvinnuveganna og
afkoma launafólks að ráðast í fijáls-
um samningum samtaka launafólks
og samtaka atvinnulífsins, án þess
að lúta ríkisforsjá.
VEÐURHORFUR í DAG, 13. OKTÓBER:
YFIRLIT í GÆR: Um 400 km austur af Langanesi er 985 mb lægð
á leið austul og 988 mb lægð við suðvesturströnd íslands hreyfist
einnig austur. Veður fer kólnandi.
SPÁ: Norðaustangola eða kaldi og skýjað norðanlands, en léttskýj-
að syðra. Dálítil rigning norðanlands og austan. Hiti 1-7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg norðaustlæg átt og fremur kalt.
Él norðaustanlands en annars þurrt.
HORFUR Á SUNIMUDAG: Hæg breytileg átt og víðast léttskýjað.
Fremur kalt í veðri og víða næturfrost inn til landsins.
_______________________i_______________________
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CO Mistur
—j~ Skafrenningur
[~<^ Þrumuveður
TAKN:
O ► Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 6 skýjað
Reykjavík 5 rigning
Björgvin 7 súld
Helsinki 4 rigning
Kaupmannah. 11 skýjað
Narssarssuaq *1 léttskýjað
Nuuk 0 snjókoma
Ósló 4 rigning
Stokkhólmur 7 hálfskýjað
Þórshöfn 8 skúrir
Algarve 23 skýjað
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 15 þokumóða
Berlin 9 rigning
Chicago 13 léttskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 14 skýjað
Glasgow 13 súld
Hamborg 13 rigning
Las Palmas vantar
London 18 skýjað
Los Angeles 17 þokumóða
Lúxemborg 13 skýjað
Madríd 17 skýjað
Malaga 23 skýjað
Mallorca 22 hálfskýjað
Montreal 8 skýjað
New York 12 mistur
Orlando 23 skýjað
Paris 17 hálfskýjað
Róm 20 skýjað
Vin 13 skýjað
Washington 11 heiðskírt
Winnipeg 53 skýjað
Frumvarp
til fjárlaga
1990
Hagnaður
ATVR
rúmir 6
milljarðar
GERT er ráð fyrir að ÁTVR
skili 6,15 milljörðum af hagnaði
sinum í ríkissjóð árið 1990. í ár
verða skil á hagnaði ÁTVR um
5/2 milljarður.
I fjárlagaft-umvarpi ríkisstjórn-
arinnar kemur fram, að áætlanir
um bjórsölu hafa nokkuð gengið
eftir, en innlenda framleiðslan náð
stærri markaðshlutdeild en búist
var við. Hins vegar hefur gætt
meiri samdráttar í annarri áfengis-
sölu en reiknað var með og þá
ekki síður í tóbakssölu. Búist er
við svipaðri þróun á næsta ári, þ.e.
að sala þessara vara dragist saman
um 3-4% frá þessu ári. Miðað við
það er gert ráð fyrir að 6,15 mill-
arðar renni í ríkissjóð frá ÁTVR á
næsta ári.
Milljón í náttúru-
fræðihús
ÁÆTLAÐ er að verja einni millj-
ón króna á næsta ári til hönnun-
ar náttúrufræðilmss fyrir Nátt-
úrufræðistofnun Islands.
Heildarfjái'veiting til Náttúru-
fræðistofnunar á næsta ári er áætl-
uð tæpar 28,5 milljónir króna og
er það 16% hækkun frá 1989. Til
kaupa á hirslum undir vísindalega
starfsemi eru veittar 2,5 milljónir.
Þá kemur fram, að að undanförnu
hafa staðið yfir viðræður milli ríkis-
ins, Háskóla íslands og Reykjavík-
urborgar um náttúrufræðihús. Til
hönnunar þess er veitt cinni millj-
ón, enda takist um verkið sam-
komulag milli þessara aðila.
Framlag til
ríkisstjórnar
hækkar um 43%
FRAMLAG til ríkisstjórnarinnar
á að hækka á næsta ári um 43%,
samkvæmt fjárlagafrumvarpinu,
fer úr tæpum 40 milljónum í
tæpar 57 milljónir.
Reiknað er nú með launum ellefu
ráðherra og ellefu aðstoðarmanna,
samanborið við níu ráðherra og
jafn marga aðstoðarmenn í fjárlög-
um 1989. Launagjöld ríkisstjórnar-
innar nema alls rúmum 49 milljón-
um króna.
Útsendingar úr
risi Alþingis
SAUTJÁN milljóna framlagi
til Alþingis, scm er í fjárlaga-
frumvarpi undir liðnum „ýmis
stofnkostnaður“, er meðal ann-
ars áætlað að verja til sjón-
varps- og hljóðvarpsaðstöðu í
risi Alþingishússins.
Til viðhalds fasteigna Alþingis
er áætlað að verja 9,1 milljón
króna, en það er hækkun um 87%
frá fjárlögum 1989. Þá er áætlað
að veija 17 milljónum til ýmissa
verkefna, meðal annarrs áfram-
haldandi framkvæmda við öryggis-
og eftirlitskerfi Alþingis og við
sjónvarps- og hljóðvarpsaðstöðu í
risi Alþingishússins.
Bifreiðagjald á
að hækka
BIFREIÐAGJALD á að hækka
um 2-3 krónur á kíló á næsta
ári, en í fjárlagafrumvarpinu
kemur fram, að þegar allt sé
meðtalið eigi skattar af rekstri
bifreiða að lækka að raungildi
árið 1990.
Áætlað er að heildartekjur ríkis-
sjóðs af bifreiðasköttum, þ.e.
þungasköttum og bifreiðagjaldi,
verði samtals um 2,1 milljarður á
næsta ári. Talið er að hækkun bif-
reiðagjalds þýði um 300 milljón
króna viðbótartekjur, þannig að
heildartekjur af gjaldinu verði 900
milljónir á næsta ári. Hins vegar
mun þungaskattur og bensíngjald
ekki hækka í samræmi við heimild-
ir á næsta ári. Tekjur af þunga-
skatti eru áætlaðar 1200 milljónir
á næsta ári, eða tæpum 100 millj-
ónum meiri en á þessu ári. Þá seg-
ir í íjárlagafrumvarpinu, að þegar
allt sé meðtalið munu skattar af
rekstri bifreiða á næsta ári lækka
að raungildi frá því sem nú er.
Hafrannsóknarstofti-
un:
Hækkun fram-
laga vegna
tekjumissis
FRAMLAG til Hafrannsóknar-
stofnunar hækkar á næsta ári
um rúmar 115 milljónir, eða
34%, miðað við fjárlagafrum-
varpið.
Ástæða hækkunarinnar er sú,
að stofnunin hefur ekki lengur tekj-
ur af hvalarannsóknum og ekki er
gert t'áð fyrir leigutekjum af r/s
Hafþóri. Framlag til stofnunarinn-
ar samkvæmt fjárlögum 1989 var
tæplega 340,5 milljónir, en hækkar
nú í tæpar 456 milljónir.
Framlag til
sendiráðisins í
Brussel hækkar
um 96%
FRAMLAG til sendiráðsins í
Brussel og hjá Evrópubandalag-
inu hækkar um 96% milli ára,
iniðað við fjárlagafrumvarp
næsta árs. Framlagið verður nú
tæpar 26 milljónir króna, sem
er hækkun um tæpar 13 milljón-
ir frá fjárlögum 1989.
Launakostnaður sendiráðs ís-
lands í Brussel hækkar á næsta
ári um rúmar 5,2 milljónir króna
og framlag vegna annarra gjalda
um 2,8 milljónir. Um er að ræða
kostnað vegna stofnunar sérstaks
sendiherraembættis hjá Evippu-
bandalaginu, auk þess sem einum
starfsmanni er bætt við í sendiráð-
inu.
Rekstrarframlög til sendiráða
Islands eru áætluð rúrnar 331 millj-
ón króna, sem er hækkun um tæp-
ar 94 milljónir, eða 40%. Launa-
kostnaður vegna staðráðinna
starfsmanna og fastanefnda hækk-
ar umfram verðlagsforsendur.
Skýrngin á því er sú, að verið er
að leiðrétta misræmi sem orðið
hefur í launakjörum þeirra miðað
við launakjör starfsmanna í sam-
bærilegum störfum í viðkomandi
landi.
Þá hækka önnur rekstrargjöld
nokkuð hjá sendiráðunum, sem
stafar einkum af auknum síma- og
póstburðargjöldum, sem m.a. er
afleiðing af kröfum um meira og
skjótara upplýsingastreymi, að því
er fram kemur í fjárlagafrumvarp-
inu.