Morgunblaðið - 13.10.1989, Síða 17

Morgunblaðið - 13.10.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1989 17 Ingrar J. Karlsson læknir afhenti peningagjöfina fyrir hönd Newman-sjóðsins. Við henni tóku Ragnheiður Viggósdóttir, formaður Kvenfélagsins Hringsins, og Víkingur H. Arnósson prófessor. Gjöf í byggingarsj óð nýja barnaspítalans SJÓÐUR kvikmyndaleikarans Pauls Newmans (Newman’s Own Foundation) til styrktar líknarmálelhum hefur nýlega gefið 10 þúsund dollara í bygg- ingarsjóð barnaspítala Hrings- ins sem stofnaður var fyrir einu og hálfú ári (Byggingar- sjóður nýja barnaspítalans). Ingvar J. Karlsson læknir af- henti peningagjöfina fyrir hönd Newman-sjóðsins. Við henni tóku Ragnheiður Viggósdóttir, for- maður Kvenfélagsins Hringsins, og Víkingur H. Arnórsson yfir- læknir sem eru gjaldkeri og for- maður stjórnar byggingarsjóðs- ins. Haustfagnaður Íslensk-ameríska félagsins: James Thompson ræðumaður HINN árlegi haustfagnaður Íslensk-ameríska félagsins verður haldinn á Hótel Loftleiðum nk. laugardag, þann 14. október. Að þessu sinni kemur ræðumaður kvöldsins frá Kentucky, en það er James Thomp- son, forstjóri Glenmore Distilleries Company i Louisville, fyririækisins sem selur Eldurís-vodka erlendis. Íslensk-ameríska félagið hefur um áratuga skeið haldið sérstakan haustfagnað fyrir félaga sína og gesti þeirra. Lögð er áhersla á mat- föng og skemmtun á amerískan hátt. í þetta sinn verður haldið sérstaklega upp á tímamót í starfi félagsins, en í ár eru liðin 40 ár frá því að Islensk- ameríska félagið hóf milligöngu um útvegun styrkja fyrir íslenska náms- menn í Bandaríkjunum. Meðal skólastyrkja þeirra, sem félagið hefur milligöngu um, enj styrkir Thor Thors-sjóðsins, Charles Willey-sjóðsins, listiðnaðarstyrkir sjóðs Pamelu Sanders Brement, kennarastyrkir og rithöfundastyrkir. Islensk-ameríska félagið hefur í sam- vinnu við American Scandinavian Foundation í New York liðsinnt hundruðum íslenskra námsmanna og fræðimanna á þessum 40 árum. Á undan haustfagnaðinum, sem hefst kl. 20.00 á Hótel Loftleiðum, býður Menningarstofnun Banda- ríkjanna haustfagnaðargestum til ■hanastéls í Ameríska bókasafninu við Neshaga. (Fréttatilkynning) James Thompson, forstjóri Glen- more Distilleries Company í Lou- isville. Óvíst hvenær leigiiflug Brit- ish Midland hingað hefst EKKI liefur verið ákveðið hvenær breska flugfélagið British Midland hefúr fiug hingað til lands, en félagið hefúr heimild til lciguflugs liing- að einu sinni í viku í vetur, í fyrsta sinn á fimmtudag í næstu viku. Það er ný ferðaskrifstofa, Skotferðir, eða Skot Travel, setn ætlar að standa að ferðunum. Flugfélagið fékk heimild til viku- legs leiguflugs milli Keflavíkur og Edinborgar í Skotiandi, en sam- gönguráðherra hafnaði á þriðjudag umsókn þess um flug tvisvar í viku. Sú ákvörðun var studd með tilvísun í 3. grein reglúgerðar frá 1987 um leiguflug, þar sem segir m.a. að sam- gönguráðuneytið geti takmarkað eða bannað alveg leiguflug, Binstakar ferðir eða um tiltekinn tíma á til- teknum flugleiðum, þar sem reglu- bundið flug er fýrir á meðan það er stundað, enda fullnbegi framboð á áætlunarleiðum eftirspurn. Við mat á því, hvort áætlunarflug þjónar til- teknum stað augljóslega, tekur reglugerðin mið af fjarlægð milli áætlunarflugvallar og hins tiltekna staðar og samgöngum milli þeirra. í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Ólafi Steinari Valdimarssyni, ráðu- neytisstjóra í samgönguráðuneytinu, að með tveimur ferðujrn British Mid- land í viku yrði gengið ol' nærri sam- keppnisaðstöðu Flugleiða á Skot- landsferðum. Flugleiðir fljúga til Glasgow tvisvar í viku, en þaðan er um l'/j klukkustundar akstur til Edin- borgar. Chris Boylan, talsmaður British Midland, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að flugfélagið hefði í fyrra sótt um að fá að fljúga til Glas- gow, en þeiri beiðni hefði verið hafn- að þar sem Flugleiðir voru með áætl- unarflug þangað. Nú hefði verið sótt um Edinborg og það leyfi fengist. íslenska ferðaskrifstofan Skotferðir, sem ætlaði að selja í þessar ferðir, hefði hins vegar óskað eftir því síðar að flugfélagið sækti um leyfi til flugs tvisvar í viku, en því verið hafnað. „Það hefur ekki verið gengið frá formlegum samningum milli British Midland og Skotferða og því get ég ekki sagt til um hvenær þessar ferð- ir hefjast,“ sagði Boylan. „Sem starfsmaður flugfélags skil ég vel þau rök, sem að baki ákvörðun íslenskra yfirvalda liggja og sé ekki ástæðu til að mótmæla þeim. Við höfum skýrt Skotferðuin frá því að beiðninni var hafnað, svo nú er það þeirra að taka ákvörðun um fram- haldið." Ekki tókst að ná' tali af forsvars- manni Skotferða í gær, en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er það Gunnar Guðmundsson, lög- fræðingur. British Midland er eina erlenda flugfélagið, sem heimild hefur til leiguflugs hingað til lands, í sumar hafði danska flugfélagið Sterling leyfi til að millilenda á leiðinni milli Danmerkur og Kanada og setja af farþega. SAS stundar áætlunarflug hingað til lands og slíkt hið sama hefur þýska flugfélagið Lufthansa gert. á sumrin. Hafskipsmál: Geri nauðsynlega grein fyrir málinu - segir verjandi Ragnars Kjartanssonar „ÆTLI ég lesi skýrsluna ekki upp með viðeigandi viðbótum og úrfellingum í frávísunarmálinu, ég mun gera eins nákvæma grein fyrir inálinu og nauðsynlegt er,“ sagði Jón Magnússon verjandi Ragnars Kjartanssonar, fyrrum stjórnarformanns Hafskips, um neitun Hæstaréttar við því að upplýsingaskýrsla umbjóðanda lians verði lögð fram sem dóm- skjal í máli ákæruvaldsins gegn Ragnari og sextán öðrum fyrr- verandi forsvarsmönnum Haf- skips og Utvegsbankans. „í skýrslunni er mjög mikið af mjög mikilvægum ati'iðum sem þurfa að koma inn í málið en líká hlutir sem ekki þarf að ræða í tengslum við frávísunarmálið," sagði hann. Jón Magnússon sagði að hingað til hefði verið munnlegur málflutningur um þær frávísun- arkröfur sem gerðar hefðu verið í máli þessu og hann kvaðst reikna með að svo yrði einnig um um þá kröfu hans og fjögurra annarra veijenda um að ákæru sérstaks saksóknara verði vísað frá vegna ágalla á rannsókn. Sú krafa verður lögð fram í málinu á morgun föstu- dag. Skýrslan gefin út Ragnar Kjartansson hefur gefið út upplýsingaskýrslu sína í tak- mörkuðu upplagi. Ragnar sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að útgáfan væri við- brögð hans við neitun Hæstaréttar. Heimilt er að vitna í útgefin rit fyrir dómstólum og sagði Ragnar að upplag útgáfunnar miðaðist fyrst og fremst við það að hún teld- ist lögleg svo til skýrslunnar mætti vitna. Nokkur eintök verða til sölu í bókaverzlun Pennans. Með viðskiptafargjaldi Arnar- flugs geturðu sneitt hjá öllu aukavafstri og fyrirhöfn. Þú færð akstur frá heimili þínu að flugstöð Leifs Eiríkssonar, þú ferðast á Gullrými og nýtur margs konar þseg- inda og þarft ekki að hafa áhyggjur af lágmarks- dvalartíma. Hámarksdvalartími þegar ferðast er á viðskiptafargjaldi Arnarflugs er aftur á móti 5 dagar. • Hafið samband við ferðaskrifstofurnar og söluskrifstofur Arnarflugs. ( Verð kr. 35.690,- REYKJAVIK - AMSTERDAM ÁN FYRIRVARA Söluskrifstofur: Lágmúla 7, sími 84477 • Austurstræti 22, sími 623060 og Keflavík, sími 92-50300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.