Morgunblaðið - 13.10.1989, Side 24
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjölbýlishúsið í Helgamagrastræti 53 er eitt þeirra verkefna sem Híbýli hf. vann að. Kappkostað verður
að ljúka við þær framkvæmdir sem fyrirtækið var með í gangi á þann hátt að sem minnst röskun hljótist af.
Híbýli hf. úrskurðað gjaldþrota:
Leitað eftir samningum við
bæjarsjóð um verkeftialok
Mörg fyrirtæki í byggingariðnaði standa höllum fæti
GJALDÞROT Híbýlis hf„ sem er stærsta og elsta byggingafyrirtæki á
Akureyri, kom mörgum á óvart. Fyrirtækið var stofnað árið 1971 og
hefur æ síðan verið umsvifamikið á sviði byggingariðnaðar. Mörg stór
verkefni hafa verið í gangi hjá félaginu á þessu ári. I gær fóru fram
samningaviðræður milli skiptaráðanda og bæjarsjóðs og að hluta til
með þátttöku stjórnar verkamannabústaða um verklok þeirra verka
sem lýrirtækið er með í gangi og hugsanlega leigu bæjarsjóðs á tækj-
um búsins. Allt kapp var lagt, á að sem allra minnst röskun yrði á fram-
kvæmdum og reiknað var nteð að starfsmenn fyrirtækisins héldu vinnu
sinni þann tíma sem tæki að ljúka verkunum.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson skipta-
ráðandi hjá bæjarfógetaembættinu á
Akureyri úrskurðaði Híbýli hf. gjald-
þrota í gær, en stjórnendur fýrirtæk-
isins lögðu inn beiðni um að félagið
yrði tekið til gjaldþrotaskipta síðdeg-
is í fyrradag. Ásgeir Pétur sagði í
samtali við Morgunblaðið að unnið
væri að því að koma tækjum búsins
í leigu og ganga til samninga við
bæjarsjóð og að hluta til stjórn verka-
mannabústaða svo unnt yrði að ljúka
þeim verkum sem fyriitækið vai' með
í gangi. Reiknaði hann með að geng-
ið yrði frá samningum þar að lút-
andi í gær eða í dag.
Þau verkefni sem í gangi hafa
verið hjá Híbýli hf. á þessu ári er
m.a. bygglng þijátíu íbúða fjölbýlis-
•♦íúss fyrir aldraða við Víðilund 24,
sem afhent var formlega fyrir
skömmu. Þá er sundlaugarbygging
við Glerárskóla á lokastigi og einnig
hefur fyrirtækið verið að ljúka upp-
setningu innréttinga á nýrri röntgen-
deild Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri. Stærsta verkefni félagsins nú
er bygging fjölbýlishúss við Hc'ga-
magrastræti 53, en þar eru alls 22
íbúðir, þar af 15 kaupleiguíbúðir á
ivegum bæjarfélagsins.
„Við munum kappkosta að sem
allra minnst röskun verði á fram-
kvæmdum og reynt verður að ljúka
þeim verkum. sem í gangi eru. Núm-
er eitt tvö og þrjú er að allir aðilar
sem þarna eiga hagsmuna að gæta
hljóti sem allra minnstan skaða,“
sagði Ásgeir Pétur.
Eigið fé neikvætt um
tæpar 53 milljónir
um síðustu áramót
Ekki liggur ljóst fyrir um hversu
stórt gjaldþrot er að ræða og segir
Ásgeir Pétur að þar fléttist inn marg-
ir óvissuþættir, svo sem eins og úti-
standandi kröfur þrotabúsins, sem
hugsanlega séu meiri en gert var ráð
fyrir.
Samkvæmt bókhaldi fyrirtækisins
fyrir síðasta ár var eigið fé þess
neikvætt um tæpar 53 milljónir
króna í lok ársins 19§S. Félagið
greiddi á síðasta ári taí'svert hærri
upphæð í fjármagnskostnað, vexti
og verðbætur, en í launakostnað.
Ásgeir Pétur sagði hugsanlegt að
selja eignir félagsins í einu lagi og
yrði sá möguleiki kannaður nánar á
næstunni. Fyrir liggur að auglýsa
eftir kröfum í búið og einnig væri
hugsanlegt að ráðinn yrði bústjóri
að búinu.
Alvarlegt áfall fyrir
byggingariðnaðinn
Guðmundur Ómar Guðmundsson
formaður Trésmiðafélags Akureyrar
sagði áð ef samningar tækjust við
Akureyrarbæ um yfirtöku verkefna
Híbýlis, væri það í sjálfu sér farsæl
lausn fyrir þá aðila sem unnu hjá
fyrirtækinu.' Að öðru leyti sagði hann
erfitt að segja fyrir um hver fram-
vinda mála yrði. Gjalþrot Híbýlis hf.
hefði engin áhrif á byggingarfrani-
kvæmdir í bænum, nema ef til vill
tímabundið.
Guðmundur sagði að útlitið í bygg-
ingariðnaði á Akureyri væri þokka-
legt fram til áramóta, en sér kæmi
ekki á óvart þó til einhvers atvinnu-
leysis kæmi á meðal trésmiða eftir
áramót. Á milli 170 og 180 trésmið-
ir eru starfandi í bænum, þar af störf-
uðu um 20 hjá Híbýli. „Þetta er alvar-
legt áfall fyrir byggingariðnaðinn á
Akureyri," sagði Guðmundur.
Aðilar sem Morgunblaðið ræddi
við í gær, sögðu að mörg byggingar-
fyrirtæki í bænum stæðu höllum
fæti og væri róðurinn erfiður. Þrátt
fyrir að vel hafi árað síðustu tvö ár
þyldu fyrirtækin ekki mikinn sam-
drátt. Þá bentu menn eirinig á að
þegar boltinn væri farin af stað yrði
erfitt að stöðva hann og ekki ólíklegt
að gjaldþrotið rnyndi draga dilk á
eftir sér.
Alvarlegast ef menn
missa vinnuna
Hólmsteinn Hólmsteinsson for-
maður atvinnumálanefndar sagði að
alvarlegast væri í þessu sambandi
ef menn misstu atvinnu sína, en von-
andi kærni til þess að eitthvert fyrir-
tæki yfirtæki þau verk sem Híbýli
hefði verið með og menn hefðu því
vinnu áfram. Gjaldþrotið myndi ekki
breyta stöðunni atvinnulega séð,
heldur myndu menn færast á milli
fyrirtækja.
Hólmsteinn sagði ástandið ekki
svo slæmt í byggingariðnaði nú, tölu-
vert væri í gangi og fyrirsjáanlegt
að næg atvinna yrði til áramóta og
þá væri eftir vinna innan dyra.
Varðandi stöðu fyrirtækja í bygg-
ingariðnaði á svæðinu sagði hann
að mörg hver ættu erfitt uppdrátt-
ár.„Það er fyrst og fremst hinn gífur-
lega hái fjármagnskostnaður sem
spilar þar inn í. Hins vegar erum við
Akureyringar mjög heppnir, við höf-
um hér öflug fyrirtæki sem standa
mjög vél og má þá nefna ýmis fyrir-
tæki í sjávarútvegi í því sambandi.
Þannig að í heildina getum við verið
tiltölulega bjartsýnir," sagði Hólm-
steinn.
íslenskir dagar hjá KEA
ÍSLENSKIR dagar hjá KEA hófust í gær með opnunarhátíð í Hrísa-
lundi. Að íslensku dögunum standa Kaupfélag Eyfirðinga, Iðnþróun-
arfélag Eyjafjarðar og Félag íslenskra iðnrekenda. Ávörp fluttu
Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri, og VígJundur Þorsteins-
son, formaður Félags íslenskra iðnrekenda, og ræddu þeir m.a um
mikilvægi þess að neytendur velji íslenskar vörur og leggi þar með
sitt lóð á vogarskálina til að sporna gegn atvinnuleysi. Þeir Magnús
Gauti og Víglundur reyndu með sér í innkaupakcppni og fór sá
síðarnefndi með sigur af hólmi þrátt fyrir að kaupfélagsstjórinn
væri á heimavelli. Islensku dagarnir standa til 21. október nk. og
> munu yfir 80 lýrirtæki kynna vörur sínar.
Hótel Stefanía:
Tíu þús-
undasti
gesturinn
TÍU þúsundasti matargesturinn
borðaði á Hótel Stefaníu um
síðustu helgi. Það var Lára
Björnsdóttir sem varð matar-
gestur númer tíu þúsund í veit-
ingasal Hótels Stefaníu og af því
tilefni voru henni færð blóm og
kampavín.
í frétt frá hótelinu segir að að-
sókn að veitingastaðnum hafi verið
framar björtustu vonum manna þá
sex mánuði sem hann hefur starfað
og segjast þau á Stefaníu vonast
til að tuttugu þúsundasta gestinum
verði fagnað á ársafmæli staðarins.
Lára Björnsdóttir t.h. ásamt
Unni Vébjörnsdóttur yfirþjóni.
Kannaður áhugi
aldraðra fyrir
sambýlisbúsetu
ÖLDRUNARRÁÐ Akureyrar
ætlar að boða til fundar fljótlega
þar sem kannaður verður áhugi
meðal aldraðra til sambýlis-
búsetu. í stefnumótun bæjarins
í öldrunarmálum er gert ráð
fýrir að hefðbundin dvalarheim-
ilispláss víki, en þess í stað er
lögð áhersla á önnur úrræði.
Eitt þeirra úrræða er sambýli
og annað eignaríbúðir.
Eignaríbúðaformið hefur þegar
gefið góða raun með uppbyggingu
slíkra íbúða við Víðilund. Þegar er
búið að taka í notkun íjölbýlishús
með þijátíu íbúðum og er annað
samskonar í byggingu. Þá hafa
einnig verið byggðar raðhúsíbúðir
við Víðilund, alls þrettán, og er
hluti þeirra enn í byggingu.
Bjarni Kristjánsson forstöðu-
maður öldrunarþjónustu Akur-
eyrarbæjar sagði að talið væri að
býsna stór hópur aldraðra hefði
ekki ráð á að eignast slíkar íbúðir.
„Það vantar aðra valkosti, og við
erum að velta fyrir okkur sambýlis-
búsetu í því sambandi," sagði
Bjarni.
Hugmyndir eru uppi um að ein-
hver aðili legði til húsnæði og fengi
aðra aldraða með sér til búsetu.
Bjarni sagði hugmyndina með
þessu formi þá, að ijúfa þá einangr-
un sem margir aldraðir búa við,
en hún væri oft ein af meginástæð-
unum fyrir því að viðkomandi sæk-
ir inn á dvalarheimili. Margt aldrað
fólk er við ágæta heilsu, en ein-
semdin vegur oft þyngst þegar fólk
vill komast inn á dvalarheimili.
Þá sagði Bjarni að eínnig væru
uppi hugmyndir um að byggja upp
litlar eignaríbúðir, sem yrðu ódýr-
ari en þær sem nú eru í boði.
Samkeppni um
frumsamda
smásögu
Menningarsamtök Norðlendinga
og dagblaðið Dagur á Akureyri
hafa ákveðið að efna til sam-
keppni um frumsamda smásögu.
Skilafrestur handrita er 24. nóv-
ember næstkomandi og skal
senda sögurnar til formanns
Menningarsamtakanna, Hauks
Ágústssonar, Gilsbakkavegi 13 á
Akureyri.
Þriggja manna dómnefnd mun
fjalla um sögurnar og er formaður
hennar Sverrir Páll Erlendsson
menntaskólakennari, en aðrir í
dómnefnd eru Hjalti Pálsson bóka-
vörður við Héraðsbókasafn Skag-
firðinga og Bragi V. Bergmann
ritstjóri Dags.
Sögur í keppninni mega að há-
rnarki vera sex tii sjö vélritaðar
síður í A-4 stærð. Sögurnar skal
senda undir dulnefni, en rétt nafn
höfundar ásamt heimilisfangi og
símanúmeri skal fylgja með í lok-
uðu umslagi.
Verðlaunaafhending verður í
Gamla Lundi við Eiðsvöll sunnu-
daginn, 10. deseniber. Veitt eru
60.000 króna verðlaun fyrir bestu
söguna að mati dómnefndar, auk
20.000 króna viðurkenningar fyrir
þá sögu sem næstbest þykir.
Verðlaunasagan verður birt í
jólablaði Dags, en Fréttabréf
MENOR áskilur sér einnig rétt til
birtingar ef tök verða á.
Leigubíll fyrir
fatlaða hjá BSO
FYRSTA sérútbúna leigubifreið-
in fyrir fatlaða hefur verið tekin
í notkun hjá Bifreiðastöð Odd-
eyrar nú í vikunni og er Albert
Valdimarsson leigubílstjóri eig-
andi hennar.
Bifreiðin er þýsk af gerðinni
Volkswagen Caravelle og er sjö
manna. Hægt er að taka mið-
bekkinn úr henni þannig að þar
komast fyrir tveir hjólastjólar. Ská-
brautir eru notaðar til að renna
stólunum inn og út úr bifreiðinni.
Bílinn verður hægt að panta á BSO.
Morgunblaðið/Rúnar hór
Albert Valdimarsson leigubílstjóri við bifrcið sína.