Morgunblaðið - 13.10.1989, Síða 36
MÖRGUÉBLÁÐIÐ' FÖSTCDAGUR 13. OKTÓBER 1989
.36
„ (?essí nýjct. geré okfcar heitír
, Hjónaloanclsbjajrg\/eeituhrW
. . . að leyna engu.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
• 1909 Los Angeles Times Syndicate
czrzj
þeim ...
Vitið ræður ekki ferðinni
Til Velvakanda.
Nú loksins þegar Fram-
sóknarflokkurinn er búinn að
syngja sitt síðasta, þá væri fróðlegt
að vita hvað hann hefur kostað
Hver á
þessa kisu?
Þessi kisa fannst á hrakningi
í Ljárskógum. Hún er grá og hvít
og ómerkt. Þeir sem kannast við
kisu eru vinsamlegast beðnir að
hringja strax í síma 76206.
þjóðfélagið sem úrelt miðflokka-
kerfi. Til að fela tilgangsleysi sitt
var kvótaruglinu komið á. Það er
jafn heimskulegt og að ætla að
banna fisknum að synda úr land-
helginni að hafa þessa kvóta, sem
enginn skilur og er ekki annað en
feigðarflan framsóknarstefnunnar.
Árið 1981 var farinn leiðangur á
vegum Hafrannsóknastofnunar út
að Reykjaneshrygg og þá var sagt
að úthafskarfinn væri óætur, nú
9—10 árum seinna er hann talinn
vel ætur. Þetta voru niðurstöður
fiskifræðinga á þessum tíma, þetta
væri svipað og svínakjöt yrði að
lambakjöti.
Síðan hafa fiskifræðingar talið
stofninn svona og svona stóran.
Sjávarútvegsráðherra tekur þessar
niðurstöður mjög alvarlega þó sýnt
sé að fiskifræðingar hafa ekki alltaf
rétt fyrir sér. T.d. þegar Stranda-
grunnið var opnað og togarar fengu
að stunda gengdarlaust smáfiska-
dráp áður en svæðinu var lokað
aftur. Þetta sýnir að vitið ræður
ekki ferðinni í þessum málum.
Fiskistofninn verður fyrir áhrifum
af sjávarhita og straumum og
landið er í Golfstraumsbelti. Og því
tel ég að sjómenn viti það manna
best hvernig eigi að haga fiskiveið-
unum og standa að annarri nýtingu
sjávarauðlinda. Það þætti t.d. gott
þótt það kæmi nema 2—3 prósent
af hrygningu til skila. Til að slíkt
gæti gerst væri nauðsynlegt að
stöðva veiðar yfir hrygningartím-
ann. Það er sýnt að Framsóknar-
flokkurinn er ekki hæfur til að
stjórna fiskveiðum þegar hann sjálf-
ur er á góðri leið með að setja sína
sterku samvinnuhreyfingu á haus-
inn, SÍS-veldið sjálft. Eg tala nú
ekki um villigróðurinn sem hann
hefur gróðursett í valdastöðum í
ke.rfinu. Það væri fróðlegt að vita
hvor hverfur fyrr, Stalínisminn eða
gin og klaufaveiki framsóknarinn-
ar.
Jónas Guðmundsson
Þessir hringdu . .
Röng dagsetning
Spaugsamur hringdi:
„Það er ekki von að fjár-
málaráðherra geti reiknað hin
stærri dæmin þegar hann og að-
stoðarmenn hans eru ófærir um
að segja til um réttan vikudag
nokkur ár fram í tímann. Þetta
sést í auglýsingu frá hinu háa
ráðuneyti nýverið sem sýnir for-
síðu Morgunblaðsins með dag-
setningunni miðvikudagur 16.
janúar 2010. 16. janúar 2010 er
laugardagur."
Frábært barnaleikrit
L.G. hringdi:
„Barnaleikritið Regnboga-
drengurinn eftir Ólaf Gunnarsson,
sem nú er verið að sýna í Gerðu-
bergi, er alveg frábært. Ég fór á
sýninguna með fimm ára barn og
þó húsið væri fullt af börnum
hefði ekki mátt heyra saumnál
detta alla sýninguna, svo vel hélt
hún athygli barnanna. Því var
ekki að heilsa á Óliver í Þjóðleik-
húsinu, sem ég sá einnig fyrir
skömmu, því þar mátti heyra
skijáf í sælgætispappír og þess
hátta meðan á sýningu stóð.“
Gleraugu
Gleraugu töpuðust á leið frá
Hamraborg í Kópavogi að Bíóhöll-
inni. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 641542
eftir kl 17.
Kettir
Mjög stór svartur og hvítur
högni fór að heiman frá sér að
Rauðalæk 2 hinn 3. október. Hann
er ómerktur. Þeir sem einhvetjar
upplýsingai' geta gefið eru beðnir
að hringja í síma 681525.
Svartur og brúnbröndóttur
fressköttur með hvítan háls, trýni
og loppui' fór að heiman frá sér
7. október. Hann er eyrnamerktur
R7587. Vinsamlegast hringið í
síma 34146 eða 25404 ef hann
hefur einhvers staðar komið fram.
Gullhringir
Tveir gullhringir fundust í
snyrtiherbergi í Kringlunni fyrir
nokkru. Upplýsingar í sín;a 37310
eftir kl. 20.
Veski
Veski var tekið í Rauðaljón-
inu 23. septemlrer. 1 þvi voru gler-
augu, húslyklar, bankabók, vísa-
kort o. fl. Vinsamlegast hringið í
síma 34508 ef eitthvað af þessu
hefur fundist.
Kápa
Ljós tvíhneppt ullarkápa
kom í jeitirnar í fatahenginu hjá
Hótel ísland. Getur eigandi vitjað
hennar þar.
Hjól
Hvítt Winther kvenreiðhjól
með barnastól er í óskilum hjá
Háskóla íslands. Eiganandi hafi
samband við húsverði í Odda eða
Árnagarði.
Frakki
Nýlegur dökkblár frakki
var tekinn í misgripum í fatag-
eymslu á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins í Laugardalshöll 7. októ-
ber. Frakki mjög svipaður en með
slitnara fóðri var skilinn eftir. Sá
sem hér á hlut að máli er beðinn
að hafa samband í síma 666044.
Víkverji skrifar
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins
er lokið með mannabreytingum
í varaformannsstóli. Einn lesenda
Morgunblaðsins hringdi á ntstjórn
blaðsins og vildi tjá sig um þessar
breytingar, sem hann kvað stinga
mjög í stúf við annað, sem gerðist í
stjórnmálum landsins. Fannst honum
foiystumenn ilokksins hafa sýnt
hveijir öðinm mikinn drengskap og
flokknum mikla hollustu og kvað
hann menn vera orðna vana allt öðr-
um vinnubrögðum í stjórnmálum í
dag, þar sem hver reyndi að klóra
úr náunganum augun. Vildi les-
andinn lýsa ánægju sinni með þetta
og vonaðist til að þetta bæri vitni
betri tíð í íslenzkum stjórnmálum.
xxx
Viðbrögð foiystumanna í Aust-
ur-Þýzkalandi vekja furðu, er
þegnar þess lands kreflasb breytinga
í landsstjórninni og aukins frelsis. Á
sama tíma og Ungverjar leggja niður
Kommúnistaflokk landsins af því að
kommúnismi er úrelt þjóðfélagskei'fi,
stíga öldungarnir í foiystu Austur-
Þýzkalands á stokk og hóta að beita
vopnavaldi gegn vopnlausri alþýðu
landsins, sem aðeins krefst frelsis.
Öldungamir era raunar einu stjórn-
málamennirnir í Evrópu, sem mælt
hafa árásum kínverska alþýðuhersins
á stúdenta í Peking, bót og telja að
þeir geti leyst sín vandamál heima
fyrir með vonpavaldi. Á sama tíma
og þeir lialda upp á 40 ára afmæli
nkisins flýr fólk tugþúsundum saman
til Vestur-Þýzkalands, fólk, sem er
úrkula vonar um betri tíð heima fyr-
ir. Staðreyndirnar tala sínu máli og
stoðar lítt fyrir Eric Honecker flokks-
foringja austur-þýzkra kommúnista,
að lýsa yfir að þar blómstri sælui'íki
á meðan fólksflóttinn heldur áfram.
xxx
Yíkveija hefur borizt bréf frá
Geir Magnússyni í Harrisburg í
Pensilvaníu, þar sem hann segir m.a.:
„Ég sá í blöðum, sem ég fékk
nýlega, að Svíakonungur og hans
góða kona höfðu heimsótt gamla
Frón. Það er ekkert nema gott um
það að segja, einhvers staðar verða
allir að vera.
Það sem ég hnaut um, var sú
frétt, að kóngi hefði verið leyft að
„veiða“ 10 hreindýr. Mér brá, þegar
ég sá þetta. Era ennþá til menn, sem
telja það til gildis að slátra dýram á
víðavangi? Varla skortir kónginn kjöt
til vetrarins og ekki býst ég við að
hann háfi haft svo mikið við að elta
dýrin uppi, þykir líklegt að gæfar
skepnur hafi verið reknar fram fyrir
byssukjaft hans hátignar.
Var ekki alveg eins hægt að leyfa
honum að vinna við trippaslátran
part úr degi, ef hann hefur svona
ósköp gaman af því að fella stór-
gripi?“
I lok bréfs síns segir Geir Magnús-
son síðan: „Nei, þurfi að grisja dýra-
hjörð, þá eiga eftirlitsmenn að gera
það á sem kvalaminnstan hátt. Veið-
ar til þess eins að drepa eiga sið-
menntaðir menn að leiða hjá sér.“