Morgunblaðið - 13.10.1989, Page 38
38, ,MORGUNBLAÐIÐ IÞRO1 IIR FÖSyjJOftWft lft OKTÓBER 1989
HANDKNATTLEIKUR
Sigurður Sveinsson í
12 mánaða leikbann?
Dortmund hefurekki staðið við samkomulagið sem gert varvið Val.
Valsmenn hafa gefið þýska félaginu frest fram yfir helgi til að ganga frá málinu
SVO gæti farið að Sigurður
Sveinsson, landsliðsmaður í
handknattleik, verði dæmdur
í 12 mánaða keppnisbann.
Ástæðan er sú að Dortmund
hefur ekki staðið við það
samkomulag sem félagið
gerði við Val er gengið var frá
félagaskiptum Sigurðar yfir í
Dortmund f lok júlí.
Valsmenn gengu frá félaga-
skiptum Sigurðar yfir í Doit-
mund fyrir 1. ágúst, þegar frestur
um félagskipti leikmanna rann út.
Ágreiningur var um samning milli
félganna í fyrstu, en síðan náðist
munnlegt samkomulag..Ekki var
skrifað undir samning á þeirri
stundu þar sem formaður Dort-
mund var í Þýskalandi. Hann
hafði lýst því yfír að þjálfari Dort-
mund, sem var hér á lámdi í samn-
ingaviðræðunu'm, ætti að ganga
að öllum kröfum Valsmanna.
Formaðurinn ætlaði síðan að
ganga endanlega frá samningnum
9g skrifa undir og senda hann til
íslands. Siðan hefur ekkert heyrst
frá forráðamönnum Dortmund
þrátt fyrir bréfa- og skeytasend-
ingar að hálfu Valsmanna.
Þórður Sigurðsson, formaður
handknattleiksdeildar Vals, sagð-
ist vonast til að þetta mál leystist
á farsælan hátt á næstu dögum.
„Við gáfum Dortmund frest fram
yfír næstu helgi til að ganga frá
þessum málum og við buðum þeim
að senda menn út tii að ganga
frá samningi um helgina. Ef Dort-
mund gerir ekkert í málinu verð-
um við að fara fram á það við
HSÍ að Sigurður verði settur í
tólf mánaða leikbann.
Framkoma forráðamanna
Dortmund hefur verið fyrir neðan
allar hellur. Við getum ekki látið-
þessa menn hafa okkur að fíflum.
Stjórn Vals hefur alla tíð reynt
að greiða götur leikmanna og því
ekki óeðlilegt að félagið fái fyrir
það örlitla þóknun,“ sagði Þórður.
Þórður sagði að ef Dortmund
kæmist upp með að standa ekki
við munnlega samkomulagið við
Val þá væru félagaskipti Sigurðar
dauðadómur fyrir aðra leikmenn
sem hyggðust leika með erlendum
liðum í framtfðinni.
Ef Sigurður verður úrskurðað-
ur í 12 mánaða leikbann getur
það þýtt að hann fái ekki að leika
með íslenska landsliðinu á heims-
meistaramótinu í Tékkóslóvakíu í
febrúar á næsta ári.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Sigurð Sveinsson í gær-
Sigurður Sveinsson.
kvöldi vegna þessa máls sagðist
hann ekki trúa öðru en að það
myndi leysast. „Satt að segja hélt
ég að þetta mál væri úr sögunni.
Annars er þetta eingöngu á milli
Vals og Dortmund. Ég skil ekki
hvernig ég ætti að geta fengið
12 mánaða ieikbann þar sem ég
hef þegar fengið leyfí Vals og
HSÍ til að leika með Dortmund,“
sagði Sigurður.
v
FR JALSlÞRÓTT AÞJALF ARI
ðSKAST
til þess að sjá um þjálfun unglinga 3var í viku í
Reykjavík.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 673409 á
kvöldin.
KNATTSPYRNA / TYRKLAND
Erlendir leikmenn bannaðir?
„Hljóta að standa
við gerða samninga"
- sagði Atli Eðvaldsson. Samningsbundnir útlendingar látnirfara í lok tímabilsins?
Handknattleikssamband
fslands
boðar til almennrar ráðstefnu um efniö:
STEFNUMÓTUN í
AFREKSÍÞRÓTTUM Á ÍSLANDI
Vilja islendingar eiga afreksmenn í ibróttum?
Laugardaginn 14. október 1989
kl. 13.30-18.30 á Hótel Esju, Reykjavík.
Ráðstefnustjóri:
Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ.
Dagskrá:
13.30 Setning ráðstefnunnar.
Hr. Svavar Gestsson, mennta- og íþrótta-
málaráðherra.
14.00 Viðhorf nokkurra forsvarsmanna íþrótta-
hreyfingarinnar.
15.00 Viðhorf nokkurra forsvarsmanna auglýs-
ingastofa, fjölmiðla og íþróttafrétta-
manna.
15.45 Kaffiveitingar.
16.00 Viðhorf nokkurra forsvarsmanna íslenskra
fyrirtækja á sviði útflutnings og ferðaþjón-
ustu.
16.45 Viðhorf nokkurra forsvarsmanna bæjar-
og sveitarfélaga.
17.30 Viðhorf forsvarsmanna allra stjórnmála-
flokka.
18.30 Ráðstefnuslit.
Þátttaka í ráðstefnunni er öllum heimil. Þátttaka
tilkynnist vinsamlegast til skrifstofu HSÍ, íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal, í síma 685422.
Ráðstefnugjald er krónur 2.000. Innifaldar eru
kaffiveitingar.
Tyrkneska knattspyrnusam-
bandið hefur ákveðið að banna
erlendum atvinnumönnum að leika
með tyrkneskum félagsliðum. Nú
eru 46 erlendir leikmenn samnings-
bundnir félögum í Tyrklandi. Reut-
er-fréttastofan segir að þeir fái að
ljúka keppnistímabilinu, en verða
látnir fara í vor.
„Þessi ákvörðun var tekin til að
styðja tyrkneska leikmenn og efla
knattspyrnuna í landinu," sagði
talsmaður stjórnarinnar, en í Tyrkl-
andi eru 204 atvinnumannafélög í
þremur deildum.
Atli Eðvaldsson, fyrirliði íslenska
kndsliðsins, er eini og um leið fyrsti
íslendingurinn, sem leikur í Tyrkl-
andi. Hann gerði samning við Genc-
lerbirlig, sem gildir til vors 1991.
„Menn hafa verið að tala um að
hleypa ekki fleiri erlendum atvinnu-
mönnum inn í deildina, en félögin
hijóta að standa við gerða samninga
hvað sem gerist," sagði Atli við
Morgunblaðið í gærkvöldi. „Tyrkir
hafa horft til Italíu, þar sem útlend-
ingar hafa verið að gera góða hluti,
og því á ég ekki von á miklum tak-
mörkunum," bætti hann við.
GETRAUNIR
Spámaður
vikunnar:
Guðni
Guðmundsson
Guðni Guðmundsson, rekt-
or Menntaskólans í
Reykjavík, er alltaf með í get-
raununum og fékk einu sinni
fyrsta vinning i beinni útsend-
ingu hjá Stöð 2. „Það var bara
heppni. Annars var ég að
koma frá París, þar sem ég
sá mína menn, Skota, tapa
fyrir Frökkum. Frakkarnir
spiluðu vel og opnuðu vörn
Skota eins og niðursuðudós,"
sagði rektorinn.
Guðni hefur lengi fylgst
íneð ensku knattspymunni.
„Ég hef alltaf haldiþ með
Manchester United' og
Arsenal, en þessi lið geta ekk-
ert núna og því tvítryggi ég
fyrsta leikinn," sagði Guðni.
Fjórir med 12 rétta
Isíðustu viku komu fram fjórar raðir með 12 leikjum réttum og var
vinningurinn fyrir hverja rúmlega tvö hundruð þúsund krónur. 11 rétt-
ir gáfu 2.014 krónur í vinning, en annar vinningur skiplist á 96 raðir.
Potturinn var tvöfaldur, en athygli vakti að engum leik lauk með jafn-
tefli. Átta heimasigrar litu dagsins ljós og fjórir útisigrar.
SOS og SÍLENOS eru efstir í haustleik Getrauna með 52 rétta. Síðan
kemur TVB16 með 51, SWENSON, FÁLKAR og HAPPAKEÐJA með
50 og aðrir færri.
Getraunaþáttur Morgunblaðsins byijar nú á ný, en með breyttu sniði.
Spámaður vikunnar fyllir út 64 raða seðil — tvítryggir sex leiki og festir
sex.
1 2
X2
X2
2
1 2
2
X2
1
2
X2
2
2
l i i i i i i r
c
C
C i='
■s;á
«o
'o.
c £
h; <0 ‘3
2. ro W
i r
£ c
« -2j
_Q
«o
3
•O
5 o t— a VU o CQ cc 55 V) < I 1 X 2
Arsenal — Man. City 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 2 10 0 1
Charlton — Tottenham 1 2 X 2 2 X 2 X 2 2 X 1 4 6
Coventry — Nott. For. 1 1 1 1 1 2 1 X X 1 1 8 2 1
Derby —C. Palace 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
Everton — Millwall 1 1 X 1 1 1 1 1 1 1 1 10 1 0
Luton —AstonVilla 1 1 1 X 1 1 1 1 1 1 2 9 1 1
Norwich — Chelsea X 1 f 1 1 X 1 X X 1 X 6 5 0
QPR — Southampton 1 1 2 X 1 1 1 X 1 1 2 7 2 2
Wimbledon — Liverpool 2 2 2 2 2 2 X 2 2 2 2 0 1 10
Brighton — Watford 1 1 2 2 1 1 1 1 X 1 X 7 2 2
Portsmouth — Blackburn X 1 2 1 2 2 2 2 1 1 1 5 1 5
I Sheff. Utd. — West Ham 1 X X X X 2 X 1 2 1 X 3 6 2
Samtals