Morgunblaðið - 19.10.1989, Qupperneq 4
Hæstiréttur:
15,2 milljónir í bætur
vegna slyss á Broadway
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Véitingahúsið Álfabakka 8 í Reykjavík,
Broadway, til að greiða manni, sem slasaðist á veitingahúsinu í júní
1986, 15,2 milljónir króna í bætur, auk vaxta frá slysdegi. Full fébóta-
ábyrgð var lögð á veitingahúsið, en áður hafði borgardómur komist
að þeirri niðurstöðu, að skipta bæri sök að jöfnu. Tveir dómarar i
Hæstarétti skiluðu sératkvæði og tóku undir niðurstöðu borgardóms.
Maðurinn, sem þá var 24 ára, slas-
aðist með þeim hætti að hann féll
tæpa 4 metra aftur fyrir sig af hand-
riði við dansgólf og lenti við stiga.
Hann hlaut af 100% örorku og getur
aðeins búið í vernduðu umhverfi og
stundað verndaða vinnu. í málinu
kom fram, að handrið við dansgólfið
var 90 sm á hæð og ekki voru sér-
stakar merkingar, þar sem hærra
var niður af gólfinu, eins og þar sem
maðurinn féll. Tvisvar áður höfðu
orðið slys, er gestir veitingahússins
féllu af dansgólfinu yfir handriðið.
Var handriðið þá um 75 sm, en var
hækkað í 90 sm. Á þeim tveimur
stöðum, þar sem gengið er í sal
undir dansgólfinu, hafði handriðið
verið hækkað á kafla upp í um 117
sm. Er maðurinn slasaðist hafði
þessi útbúnaður verið fjarlægður.
Hæstiréttur taldi að hvað sem liði
þeim framburði vitna, að maðurinn
hafi sest á handriðið og sveiflað fót-
unum, hafi það athæfi að fjarlægja
búnaðinn verið svo vítavert, að fella
yrði á veitingahúsið fulla fébóta-
ábyrgð í málinu. Örorkutjón manns-
ins var metið á 14 milljónir og miska-
bætur 1,2 milljónir. Þá var veitinga-
húsinu gert að greiða manninum 720
þúsund krónur í málskostnað í hér-
aði og 975 þúsund krónur í ríkis'sjóð
í málskostnað fyrir Hæstarétti.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Guðmundur Jónsson og
Guðrún Eriendsdóttir og Sigurður
Reynir Pétursson, hæstaréttarlög-
maður. Þór Vilhjálmsson, hæstarétt-
ardómari og Guðmundur M. Guð-
mundsson, settur hæstaréttardóm-
ari, skiluðu sératkvæði, þar sem
kemur fram, að þeir telja ámæli-
svert að fjarlægja handriðið. Hins
vegar hafi maðurinn setið á handrið-
inu með fætur á hreyfingu áður en
hann féll og hafi það verið gálaust
tiltæki. Væri því bæði við veitinga-
húsið og manninn að sakast. Mætti
því fallast á niðurstöðu héraðsdóms
um skiptingu sakar og bæri veitinga-
húsinu því að bæta manninum helm-
ing tjónsins, eða 7,0 milljónir króna.
VEÐURHORFUR í DAG, 19. OKTÓBER:
YFIRLIT í GÆR: Á Grænlandssundi er minnkandi lægðardrag, en
um 1100 km suðvestur í hafi er víðáttumikil 967 mb lægð sem
hreyfist norðaustur. Milt verður áfram.
SPÁ: Austlæg átt, víðast allhvöss og rigning um sunnanvert landið
fyrri hluta dags. Stinningskaldi eða allhvass en úrkomulítið norðan-
lands annað kvöld. Fremur hlýtt um allt land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUOAG:Stíf austan og síðar norðaustanátt, rigning
á Suðaustur- og Austurlandi, skýjað en úrkomulaust annars stað-
ar. Fremur milt.
HORFUR Á LAUGARDAG: Nokkuð hvöss norðaustanátt um allt
land. Slydda eða rigning norðanlands og austan en léttir til suðvest-
aniands. Heldur kólnandi.
o
•á
•ö
i
r-
N: X Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig:
0 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrimar • Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður V
er 2 vindstig. * V Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 5 9 Suid
Skýjað / * / * Siydda / * / oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 7 skýjað Reykjavik . 6 skúr
Bergen 12 skýjað
Helsinki 7 léttskýjað
Kaupmannah. 14 skýjað
Narssarssuaq +3 hrimþoka
Nuuk -s-3 skýjað
Osió 8 skýjað
Stokkhólmur 8 alskýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 23 léttskýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Barcelona 20 alskýjað
Berlin 16 léttskýjað
Chicago 1 snjóél
Feneyjar vantar
Frankfurt 13 mistur
Glasgow 13 rigning
Hamborg 16 mistur
Las Palmas 26 hálfskýjað
London 17 mistur
Los Angeles 16 þoka
túxemborg 13 lénskýjað
Madríd 18 skýjað
Malaga 24 léttskýjað
Mallorca 24 úrkoma
Montreal 0 snjókoma
New York 9 alskýjað
Oriando 24 hálfskýjað
París 17 skýjað
Róm 19 léttskýjað
Vtn 15 téttskýjað
Washington 17 poka
Winnipeg *r6 heiðskirt
_ , Gardar Rúnar Sigurgeirsson
Irafoss kom nýverið til Seyðisljarðar frá Noregi með fullfermi af
síldartunnum. í skipinu voru 41.000 tunnur; 15.000 trétunnur og
26.000 plasttunnur. Að sögn Kristjáns Jóhannessonar hjá Síldarút-
vegsnefnd mun þetta liklega vera stærsti tunnufarmurinn sem kem-
ur til landsins á þessari síldarvertíð. Þessum tunnum verður skipað
upp á söltunarstöðvarnar allt frá Seyðisfirði til Grindavíkur.
Sfldar varð vart við
Selvogsbankann
2.0001 fengust við Hvalbak á þnðjudag
SÍLDARBÁTURINN Gaukur frá Grindavík keyrði yfir síldartorfii á
Forunum efst í Grindavíkurdýpi og vestan í Selvogsbankakantinum í
gær. Gaukur var þá á leið til Grindavíkur með 140 tonn. Kolbeinn
Marínósson, skipstjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið, að þeir litu
væntanlega betur á þetta, er þeir færu út aftur, svo fremur sem veður
og aðrar aðstæður leyfðu. Þriðjudagurinn var gjöfulasti dagurinn á
vertíðinni til þess, að en þá fengust að minnsta kosti 2.000 tonn. í
gærkvöldi hafði verið saltað í um 30.000 tunnur.
Veiðin á þriðjudag var nánast öll
út af Hvalbak, en Gaukur fékk afla
sinn skammt austan Ingólfshöfða.
Þar var hún fremur blönduð og fóru
aðeins um 40% í stærsta flokkinn.
Við Hvalbakinn var síldin heldur
stærri, mest um 32 sentímetrar á
stærð, en á þessum slóðum voru
flestir bátarnir. Engin veiði var þá
inni á Austfjörðunum. Kolbeinn segir
að sér litist engu að síður vel á vert-
íðina }>g nóg væri af síld_, þó hún
fyndist ekki inni á fjörðuni.
Þar sem ekki hefur verið samið
við Sovétmenn um saltsíldarkaupin
er aðeins saltað upp í gerða samn-
inga og söltun á hvert plan takmörk-
uð. Því hefur söltunin ekki gengið
eins hratt og ella þó að í gær hafi
verið saltað á meira en 30 plönum.
Nú er saltað upp í samninga við
Finna, Svía, Pólverja, Bandaríkin,
Kanada og Danmörku. Jón Finnsson
RE var meðal þeirra skipa, sem
fengu afla við Hvalbakinn, en hann
frystir um borð. Síld er einnig fryst
um borð í Brettingi, sem liggur við
bryggju á Vopnafirði. Sigþór ÞH sér
meðal annars um að afla honum
síldar.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, var fyrir skömmu í
Sovétríkjunum og ræddi hann þar
við ráðamenn, meðal annars um
saltsíldarsöluna. „Ég ræddi all-
nokkuð við sovézka ráðmenn um
sölu sjávarafurða okkar þangað. Litil
hreyfing hefur verið á samningum
um saltsíldina og lagði ég áherzlu á
að áríðandi væri að samingaviðræður
hæfust sem allra fyrst. Eitthvað hef-
ur losnað um þau mál og ég vænti
saltsíldarkaupa Sovétmanna nú eins
og undanfarin ár,“ sagði Halldór
Ásgrímsson í samtali við Morgun-
blaðið.
Morgu nblaðid/Þorkell
Bjarni Dagur í hljóðnámu Aðalstöðvarinnar, en hún er í Aðalstræti.
Aðalstöðin hefur
útsendingar í dag
í MORGUN klukkan 7.00 hóf ný útvarpsstöð, Aðalstöðin, útsendingar
og er hún á tíðni FM 90,9. Ólafur LanfdaJ er eigandi stöðvarinnar og
hefur hún aðsetur í Aðaistræti 16. Á dagskrá stöðvarinnar verður lyrst
og fremst tónlist, sem ætlað er að höfða til hlustenda 25 ára og eldri.
Þó mun ætlunin að leggja áherslu á vandað talmálsefni frekar en gert
hefur verið á öðrum tónlistarstöðvum.
Að sögn Gunnlaugs Helgasonar,
eins starfsmanns stöðvarinnar, verða
útsendingar allan sólarhringinn. „Víð
verðum með mikið af ísienskri tónlist
og jafnframi svonefndu gullaldar-
rokki — róleg og þægileg tónlist af
ýmsum toga,“ sagði Gunnlaugur í
samtaii við Morgunblaðið, en bætti
við að menn yrðu ekki rígbundnir
við einstakar stefnur og strauma.
Fastir fréttatímar eru ekki íyrir-
hugaðir fyrsta kastið, en Gunnlaugur
sagði að fréttatengdir þættir yrðu á
dagskrá stöðvarinnar.
Dagskrársljóri Aðalstöðvarinnar
er Bjarni Dagur Jónsson og Margrét
Hrafnsdóttir er framkvæmdastjóri
dagskrárdeildar, en meðal annarra
dagskrárgerðarmanna eru Gunn-
laugur Helgason, Þorgeir Ástvalds-
son, Jón Axel Ólafsson, Ásgeir Tóm-
asson, Inger Anna Aikman og Gunn-
laugur Guðmundsson, stjörnuspek-
ingur. Þá mun Eiríkur Jónsson sjá
um síðdegisþátt milli klukkan 16.00
og 18.00.