Morgunblaðið - 19.10.1989, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989
5
Keppir um titilinn „Ungfrú heimur“:
„Hlakka til að taka
þátt í keppninni“
- segir Hugrún Linda Guðmundsdóttir
HUGRÚN Linda Guðmundsdóttir, fegurðardrottning íslands, er nú
á leið til Taiwan þar sem undirbúningur undir keppnina um titilinn
„Ungfrú Heimur" fer fram. Keppnin sjálf verður í Hong Kong 22.
nóvember nk. í Taiwan verða keppendur m.a. við æfingar og mynda-
tökur til 8. nóvember.
Loðnan ekki veiðanleg
ENGIN loðna hafði veiðst á miðvikudagsmorgun en Jón Kjartans-
son SU, Börkur NK og Harpa RE hafa leitað að loðnu norður af
landinu að undanförnu. Engin erlend loðnuskip voru á miðunum á
miðvikudagsmorgun.
Hugrún Linda hefur síðustu vik-
urnar stundað líkamsrækt á hveij-
um degi auk þess sem hún hefur
unnið hálfan daginn. Mikill tími
hefur farið í alls kyns undirbúning,
svo sem að útvega föt fyrir keppn-
ina. Hún fer ein til Hong Kong og
eini keppandinn sem hún þekkir er
Ungfrú Finnland, sem hún kynntist
í Finnlandi fyrir skömmu þegar hún
EINUM tug bíla að minnsta kosti
hefur undanfarna sex mánuði ver-
ið stolið af bílasölum í Reykjavík.
Algengt er að þjófarnir fái að
reyna bílinn, en skili röngum lykli
til bílasala að reynsluakstri lokn-
um. I skjóli nætur er rétti lykillinn
síðan notaður til að stela bílnum.
Dæmi um slíkan þjófnað var nú
síðsumars, þegar BMW-bíl var stol-
ið. Þjófarnir höfðu fengið að aka
honum til reynslu, en að akstrinum
loknum létu þeir bílasalann fá annan
BMW-lykil í hendur. Um nóttina
fóru þeir síðan, stálu bílnum og hirtu
úr honum vél, gírkassa og flest ann-
að nýtilegt.
Jón Snorrason, deildarstjóri hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins, segir
að bílar, sem stolið er með þessum
hætti, hafi verið notaðir í innbrots-
leiðangra frá Reykjavík, til dæmis
til Selfoss, Víkur í Mýrdal og Mý-
vatns. „Það virðist oft ekkert eftirlit
með því á bílasölunum hveijir fá að
reynsluaka bílum og til dæmis ekki
óskað eftir að þeir sanni að þeir
hafi ökuréttindi," sagði hann. „Það
eru dæmi þess að menn, sem sviptir
hafa verið ökuréttindum ævilangt,
eiga ekki í neinum vandræðum með
að komast yfir bíla á bílasölum.
Þegar í ljós kemur að bílnum hefur
verið stolið hefur bílasalan ekkert í
höndunum um það, hveijir hafa
komið nálægt honum. Eftirlitið er
oft ekki meira en svo, að þjófnaður-
inn uppgötvast ekki fyrr en að tölu-
verðum tíma liðnum. Það væri eðli-
legast að bílasalan hefði einhveija
tryggingu í höndum og upplýsingar
um það hveijir hafa fengið að reyna
bílinn."
Ragnar Lövdal, formaður Félags
bílasala, sagði að það væri vissulega
rétt að bílasalar hefðu ekki gætt
þess nógu vel að fá upplýsingar um
þá, sem fengju að reynsluaka bílum.
„Það er kominn tími til að taka á
þessu, enda er greinilegt að þjófnað-
ir af bílasölum eru skipulagðir,“
sagði hann. „Það verður sjálfsagt
aldrei hægt að koma algjörlega í veg
fyrir þessa þá, en það er hægt að
draga úr þeim með ýmsum ráðum.
Sjálfur hef ég þá reglu að halda
ökuskírteini eftir sem tryggingu og
starfsmaður bílasölunnar fer með í
reynsluakstur."
Ragnar sagðist þekkja af eigin
raun, að tiyggingafélögin seldu bíla-
sölum ekki tryggingar á þá bíla, sem
standa utan húss. „Þeir eru á bílasöl-
unni á ábyrgð eigenda," sagði hann.
Hreinn Bergsveinsson, deildar-
stjóri bifreiðatryggingadeildar Vá-
tryggingafélags Islands, sagði að
bílasölur tryggðu sig stundum fyrir
mistökum starfsmanna, sem gætu
til dæmis falist í því að þeir gleymdu
að læsa bílum á lóð bílasölunnar.
Bílarnir væru hins vegar á ábyrgð
eiganda. „Við semjum 'við einstakl-
inga og þá er það á þeirra ábyrgð
hveijum þeir fá bílinn til umráða.
tók þátt í keppni þar sem fegursta
stúlka Norðurlanda var valin. Linda
Pétursdóttir Ungfrú heimur mun
krýna arftaka sinn, en hún kemur
ekki til Hong Kong fyrr en rétt
fyrir keppnina.
Þegar heim kemur ætlar Hugrún
að reyna að fá vinnu við eitthvað
sem tengist líffræði því hún hyggst
leggja stund á nám er tengist því
Ef réttindaiaus ökumaður lendir í
óhappi á bíl, sem hann hefur fengið
að láni á bílasölu, þá verður að vera
orsakasamband á milli réttindaleysis
hans og óhappsins, svo trygging
falli niður. En í flestum tilvikum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hugrún Linda Guðmundsdóttir
fegurðardrottning íslands.
fagi og hefja það næsta haust.
Hugrún sagði áður en hún fór utan
að keppnin legðist vel í sig og hún
hlakkaði til að taka þátt í henni.
bera eigendur ábyrgðina. Trygg-
ingaféiög eru ekki í beinu réttarsam-
bandi við bílasölur og þess vegna er
í raun ekki okkar að kreflast þess
að bílasalar fullvissi sig um hveijir
fá að reynsluaka bílum.“
Loðnan er dreifð og stendur
djúpt og hugsanleg skýring á því
að hún er ekki farin að þjappa sér
saman ennþá er að sjórinn á milli
íslands og Grænlands hefur verið
óvenju heitur í haust, að sögn skip-
veija á Jóni Kjartanssyni SU.
SJÚKRABÍLL á leið á slysstað
lenti í hörðum árekstri _ við
fólksbíl í hádeginu í gær. Oku-
maður fólksbílsins meiddist lítil-
lega. Báða bílana varð að flytja
á brott með kranabíl.
Um klukkan 11.51 var tilkynnt
að ekið hefði verið á gangandi veg-
faranda á mótum Suðurlandsbraut-
ar og Vegmúla. Síðar kom í ljós
að meiðsli hans voru minni en á
horfðist og fékk hann að fara heim
að lokinni skoðun á slysadeild.
Sjúkrabíll, sem var sendur á vett-
vang, lenti hins vegar í mjög hörð-
um árekstri við fólksbíl á mótum
Bústaðavegar og Bústaðabrúar
klukkan 11.53. Báðir bílarnir
skemmdust mikið og varð að flytja
þá á brott með aðstoð kranabíls.
Ranghermt var í Morgunblaðinu
í gær að útgerð Jóns Kjartansson-
ar SU 111 hefði fengið olíustyrk
frá Síldarverksmiðjum ríkisins.
Tvö skip hafa fengið slíkan styrk,
400 þúsund krónur hvor útgerð,
Harpa RE og Hilmir SU.
Ökumaður fólksbílsins meiddist, en
ekki alvarlega.
Hafnaríjörður:
Holræsi endur-
bætt o g lengd
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
hefur ákveðið að lengja holræsi,
sem nú eru ulan við hafúargarðinn
og er áætlaður kostnaður um
136,2 milljónir króna.
Að sögn Guðmundar Árna Stef-
ánssonar bæjarstjóra, hefur verið
gerð úttekt á holræsum í Hafnarfírði
með það fyrir augum að koma skolpi
lengra á haf út auk ráðstafana til
að hreinsa það áður.
TOYOTA
VETRARSKOÐUN
Eins og undanfarin ár bjóöa öll viðurkennd TOYOTA-verkstæði
í landinu upp á vetrarskoðun. Innifalið er:
ll Mótorþvottur. ® Ath. viftureim. ® Ath. fjaðrabúnað, stýrisbúnað,
® Skipt um kerti. ® Mæla hleðslu. virkni hemla og pústkerfi.
® Skipt um platínur ® Fireinsa og smyrja ® Stilla kúplingu.
(ekki EFi). rafgeymispóla. ® Smyrja hurðalæsingar og lamir.
@ Skipt um loftsíu. ® Ath. þurrkur og rúðu- ® Mæla og jafna loft í dekkjum.
® Skipt um bensínsíu sprautur, setja á ísvara. ® Ath. olíu á vél, gírkassa og drifum.
(ekki EFi). ® Ath. öll Ijós. ® Bera silíkon á þéttikanta.
® Ath. btöndung. ® Ljósastilling. ® Reynsluakstur.
® Mótorstilling. ® Mæla frostþol kælivökva.
Innifalið: vinna, kerti, platínur, loftsía, bensínsía, ísvari, silíkon og vetrarpakki í bílinn að auki.
TILBOÐSVERÐ KR. 8.498.
Gildistími: 16.10.-31.12. 1989.
Eftirfarandi umboðsmenn sjá um vetrarskoðun T0Y0TA:
KÓPAV0GUR BLÖNDUÓS HÚSAVÍK
Toyota, Nýbýlavegi 8, Bílaþjónustan, Bilaleiga Húsavíkur,
s. 91-44144. s. 95-24575. S. 96-41888.
AKRANES SAUÐÁRKRÓKUR EGILSSTAÐIR
Ölatur E. Guöjónsson, Bifreiöaverkstæöi Bifreiöaþjónusta
s. 93-12218. Kaupfélags Sauöárkróks, Borgþórs Gunnarssonar,
BORGARNES s. 95-35200. s. 97-11436.
Bifreiða- og trésmiöja SIGLUFJÖRÐUR ESKIFJÖRDUR
Borgarness, s. 93-71200. B if re i öaver kstæö i Bifreiöaverkstæöi
PATREKSFJÖRÐUR Ragnars Guömundssonar, Benna og Svenna,
Bílaverkstæöi Guöjóns, s. 96-71860. S. 97-61499.
s. 94-1124. AKUREYRI NESKAUPSTAÐUR
ÍSAFJÖRÐUR Bifreiöaverkstæöiö Bláfell sf., Bifreiöaverkstæöi S.V.N.,
Vélsmiöjan Þór, s. 94-3711. s. 96-21090. S. 97-71602.
TOYOTA
HÖFN HORNAFIRÐI
Vélsmiöja Hornafjarðar,
S. 97-81340.
kirkjubæjarklaustur:
Bifreiöaverkstæöi
Gunnars Valdimarssonar,
s. 98-74630.
SELFOSS
Kaupfélag Árnesinga,
s. 98-22000.
VESTMANNAEYJAR
Fjölverk hf, s. 98-11216.
KEFLAVÍK
Bifreiöaverkstæöi Steinars,
s. 92-15499.
Tug bíla stolið af bílasölum
í Reykjavík á sex mánuðum
Sjúkrabíll lenti í
hörðum árekstri
AUK/SlA k109d22-166