Morgunblaðið - 19.10.1989, Síða 15
mínum, en ég veit, að annað getur
ekki ósjaldan verið sjúklingnum
óþægilegt, getur valdið honum
sjúkdómi og í algjöru undantekn-
ingartilviki dauða. Ég gæti reynt
að útskýra þetta fyrir sjúklingnum
en mér persónulega yrði sú útskýr-
ing heldur innantóm, því með sjálf-
um mér myndi ég vita það, að fyr-
ir mína nánustu, og mig sjálfan
myndi ég hiklaust kjósa hin nýju
efni.
Hvað kemur þetta íjölmiðla-
gaspri um heilbrigðisþjónustu og
útspilunum og yfirboðum stjórn-
málamannanna (undirboðum?) við,
og hver eru hugrenningatengslin?
Jú, á sama hátt og gerðar eru
ákveðnar faglegar og siðfræðilegar
kröfur til lækna, svo sem annarra
þjóðfélagsþegna megum við ætlast
tÚ þess, að stjómmálamenn, fylgi-
sveinar þeirra og fjölmiðlar sýni
hhðstæðan skilning á málefnum
þeim, sem þeir kjósa að fjalla um,
að farið sé með rétt mál og satt
sé sagt frá og sýnt sé fram á að
staðhæfmgar og alhæfingar um
málefni heilbrigðisþjónustu lands-
manna eigi við rök að styðjast. Þá
á ég einkum við tvennt; annars
vegar að rökstuddar sannanir liggi
til grundvaUar því, að hægt sé að
draga saman og spara í rekstri
sjúkrahúsa á þann hátt, sem fjár-
málaráðherra og hans nótar gefa
fyrirmæli um á yfírstandandi ári
og því næsta; hins vegar, að hug-
myndir um endurskipulagningu sér-
fræðistarfa íslenzkra lækna og þá
einkum á sjúkrahúsum, sem viðrað-
ar hafa verið nýlega af áhuga-
manni úr röðum fylgismanna ríkis-
stjórnarinnar, séu raunhæfar og
faglega eða félagslega veijandi, svo
sleppt sé bollaleggingum um hugs-
anlegan sparnað. Auðvitað er víða
hægt að hagræða rekstri og ná
fram ýmsum spamaði í jafn stóru
og fjölþættu kerfi og íslenzka heil-
brigðisþjónustan er, en því miður
er hér verið að hamra á nokkrum
þáttum, sem geta höfðað til fjöl-
miðla og e.t.v. sefjað hluta almenn-
ings í landinu. Það er rétt, að þeirri
* staðhæfingu eins ráðherra okkar
nýlega, að hér séu fjögur hátækni-
sjúkrahús, sé svarað, þótt nokkuð
sé umliðið.
Sannleikurinn er sá, að hér er
ekkert sjúkrahús í þessu landi, sem
getur státað af því að standa á öll-
um sviðum tæknilega jafnfætis
meðalstóru mið- eða háskólasjúkra-
húsi í neinu þeirra landa, sem við
á hátíðastundum og frammi fyrir
almenningi í þessu landi teljum
jafningja okkar í heilbrigðisþjón-
ustunni. Við eigum eina vel tækni-
vædda krabbameinslækningadeild,
við eigum eina skurðstofueiningu
þar sem hægt er að sinna svonefnd-
um opnum hjartaaðgerðum, og hafa
verið stundaðar hér með góðum
árangri í nokkur ár, en þó eru gögn
og gæði kringum þá starfsemi ekki
meiri en svo, að meira en helming-
ur þeirra sjúklinga, sem kransæða-
aðgerðir þurfa, eru sendar utan.
Astæðan? Einfaldlega skortur á
húsnæði fyrir og kringum starfsem-
ina. Hvers vegna? Óraunhæfar
pólitískar ákvarðanir í byggingar-
málum innan heilbrigðiskerfisins
sem leitt hafa til óhagkvæmrar
dreifingar takmarkaðs fjármagns.
Kórónudæmi: Ákvörðun um að
stöðva byggingu K-álmu Landspít-
alans í miðjum klíðum, sem var líkt
rothöggi á þróun þeirrar stofnunar
í þá átt að geta sinnt hlutverki sínu
sem höfuð- og aðalkennslusjúkra-
hús landsins á sómasamlegan hátt,
veldur því, að í dag er ekki fyrirsjá-
DUOBOnD
FRAMRÚÐU
VIÐGERÐIR
BILABORG H.F.
FOSSHÁLS11, SÍMI6812 99
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989
--i— f-pi-------—T— “ffl ;;''7 ■ r-r
anlegt, að hægt verði að bæta að-
stöðu handlæknisdeildar, þannig að
m.a. megi færa alla þá hjartaskurð-
lækningu inn í landið, sem vonir
stóðu til og þekking er fyrir hendi
til að leysa úr. Þessi stórkostlega
ákvörðun varð líka til þess að ein
þýðingarmesta sjúkdómsgreining-
ardeild nútíma sjúkrahúss mun ekki
geta þróast eðhlega og er í raun
komin aftur úr þeim staðli, sem við
sjáum í „þeim löndum, sem við ber-
um okkur saman við“ eins og það
er svo fallega orðað. Margt fleira
mætti telja upp, sem leitt hefur af
þeirri óheillavænlegu ákvörðun að
hætta framkvæmdum við K-bygg-
inguna. Engu að síður vinnur allt
starfslið stofnunarinnar einarðlega
að því að halda í horfinu og bæta
þar sem hægt er. Sama er að segja
frá öðrum sjúkrahúsum. Það er hins
vegar ekki hvetjandi né bætandi á
erfiðleikana að þurfa sí og æ að
hlusta á og veijast alhæfingum um
að illa sé haldið utan um fjármuni
og enn sé hægt að herða ólina, al-
hæfingum frá aðilum, sem hafa
mjög takmarkaða eða enga þekk-
ingu á verkefnunum, sem þeir sjálf-
ir ætlast til að við vinnum. Langt
mál mætti skrifa um þann þátt
þessarar umræðu, sem einblínir á
sjúkrarúm og lokun deilda sem eitt
meginstjórntækið í spamaðarher-
ferðinni. Ég ætla ekki að gera það
nú og hér, en ljúka máli mínu á
sömu nótum og ég byijaði.
Það eru ákveðin félagsleg og sið-
fræðileg rök og lögmál, sem stjóm-
málamenn og fjölmiðlar verða að
beygja sig undir, engu síður en við
hin: Hættið að skrökva því að ykk-
ur sjálfum og þjóðinni að við búum
við nánast bezta og þróaðasta heil-
brigðiskerfi heimsins. Umfram allt,
gerið ykkur sjálfum og öðmm ljóst,
að kerfið er engan veginn svo gott,
að það þoli niðurskurð á niðurskurð
ofan. Það er að vísu mjög gott og
vel þróað á mörgum sviðum, en á
öðrum sorglega gloppótt. Það er
og hefur verið í slíku fjársvelti, að
það þolir engan frekari niðurskurð
eða stöðnun, svo þess fari ekki að
gæta í mælanlegum einingupi heil-
brigðisskýrslna. Tæknivæðing og
mannafli innan hinna deildaskiptu
sjúkrahúsa er langt undir sambæri-
legum stöðlum nágranna okkar og
í engu samræmi við mjög sómasam-
legt ástand ýmissa þátta frum-
heilsugæzlunnar. Við skulum muna,
að góð frumheilsugæzla ásamt
mjög háum þekkingarstaðli sér-
fræðinga okkar gerir þörfina á
fyrsta flokks sérfræðisjúkrahúsum
ennþá brýnni.
Áratugum saman trúði þessi þjóð
því, að við værum heimsmeistarar
í fiskveiðum. Við vitum nú, að það
var ekki rétt; það er ekki nóg að
draga fískinn úr sjónum, það verður
líka að þróa afurðina. Látum ekki
það sama henda okkur í heilbrigðis-
kerfinu!
Höfundur er prófessor.
PAM YOUNG
SIÁLFS
DÁLEIÐSLA
Iðunn hefur gefið út bókina
Sjálfsdáleiðsla eftir sálfræðing-
inn Pam Young.
Bók um sjálís-
dáleiðslu
IÐUNN hefur gefið út bókina
Sjálfsdáleiðsla, eftir sálfraeðinginn
Pam Young. í fréttatilkynningu
segir m.a.:
„í fyrsta hluta bókarinnar er saga
dáleiðslunnar rakin í meginatriðum,
sagt frá helstu kenningum og teg-
undum meðferðar svo að lesandanum
gefist kostur á að kynnast þeim hug-
myndum sem höfundur byggðir að-
ferð sína á. En aðferð sú sem lýst er
í seinni hlutum bókarinnar er mjög
einföld og aðgengileg og gildi hennar
felst ekki síst í því að sá sem henni
beitir situr ekki aðgerðarlaus og læt-
ur aðra lækna sig, heldur er hann
sjálfur við stjómvölinn og ræður
ferðinni. Aðferðinni hefur meðal ann-
ars verið beitt til að draga úr og sigr-
ast á kvíða, feimni, sektartilfinn-
ungu, þunglyndi, svefnleysi, mígreni,
astma ogljölmörgum öðram vanda-
málum. Hún hefur einnig gefist vel
fyrir fólk sem er að reyna að hætta
að reykja eða vill Æaga úr'ofáti og
ofdrykkju og hún hefur verið notuð
til að lækka blóðþrýsting og deyfa
sársauka. Sjálfsdáleiðsla hefur einn-
ig reynst heppileg til að auka sjálf-
straust og bæta minni og námsár-
angur.
Nanna Rögnvaldsdóttir þýddi bók-
ina.
NÝTT ÞRÁÐLAUST
MULTI-MIX ALLTAF TILBÚIÐ
,TIL NOTKUNAR
Black & Decker auðveldar núna lífið í eld-
húsinu með hinu þráðlausa Multi-Mix. Ef þú þarft
að þeyta, hræra eða hnoða eitthvað t'ljótt, þá gríp-
urðu að sjálfsögðu til þráðlausa Multi-Mix tækis-
ins frá Black & Decker. Eftir hleðslu er hægt að
nota tækið í 25 mínútur stanslaust. Eftir hverja
notkun þá seturðu tækið
í hengið þar sem það
hleður sig. Hraðvirkt,
létt og meðfærilegt.
Tvær hraðastillingar
og fjórir mismun-
andi aukahlutir.
Það er ekki hægt
að hugsa sér það
auðveldara.
VERÐ KR. 2.995,-
Það er leikur einn með
#BLACK&DECKER
ÚTSÖLUSTAÐIR: Akranes, Rafþjónusta Sigurdórs / Akureyri, Radióvinnustotan og Hagkaup
hf. / Blönduós, Verslunin Ósbær / Bolungarvik, Rafsjá hf. / Búöardalur, Einar Stefánsson /
Egilsstaöir, Sveinn Guðmundsson / Grundarfjöröur, Rafbúð Guöna / Hafnarfjöröur, Ljós og
raftæki / Húsavík, Grímur og Ámi / Hvammstangi, K.V.H. / Keflavík, R.Ó. rafbúö / Laugarvatn,
KÁ Laugarvatni / Njarövík, Hagkaup hf. / Reykjavik, Peran hf., Armúla 3, Rafvömr hf„
Langholtsvegi 130, Hagkaup hf„ Borgarljóssbúðirnar / Selfoss, Arvirkinn hf. / Stykkishólmur,
Húsiö hf. / Vopnafjörður, Kaupf. Vopnfirðinga / Porlákshöfn, Rás hf.
Góðan daginn!
Laugavegi 59, 2.hv simi 15250