Morgunblaðið - 19.10.1989, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989
25
JARÐSKJALFTINN I SAN FRANCISCO
Líkur taldar á fleiri
skjálílum næstu daga
London, París. Reuter.
FRANSKUR jarðskjálftafræð-
ingur við Jarðeðlisfræðistoftiun
Frakklands, Paul Tapennier,
sagði í gær að búast mætti við
fleiri skjálftum í Kaliforniu því
sá hluti af San Andreas mis-
genginu sem legið hefur í dvala
siðan 1906 hefði nú vaknað til
lífsins. Vincent Courtillon, sem
starfar við sömu stofimn, taldi
40% likur á skjálfta af svipaðri
stærð næstu 10 árin.
Jarðskjálftinn síðdegis á þriðju-
dag að staðartíma reið yfir San
Tjóninu dreift á
tryggjngafyrirtæki
London. Reuter.
BRESK tryggingafyrirtæki sögðu í gær að jarðskjálftinn í Kali-
forníu kæmi ekki harkalega niður á þeim en hlutabréf í tryggingafyr-
irtækjum höfðu fallið í verði þegar markaðir opnuðu í gærmorgun.
Hlutabréfin hækkuðu afftur í verði þegar ljóst varð að baktrygging-
ar og ýmsar sérstakar aðstæður í San Francisco yllu því að trygg-
ingafélög gætu staðið við skuldbindingar sínar.
Tjónið af völdum skjálftans var veldur því að einungis 15% af heim-
metið á 1 milljarð dala (62 milljarða
ísl. króna) í gær en tryggingasér-
fræðingar telja að það mat sé allt
of lágt.
Tryggingafélög hafa þann sið að
baktryggja sig hjá sérstökum end-
urtryggingarfyrirtækjum til þess
að létta stórtjónum af sér. Tals-
menn eins slíks, Lloyd’s í London,
sögðust ekki geta metið útgjöld sín
að svo stöddu vegna skjálftans.
Þeir töldu að mest fjárhagstjón
gæti orðið af eldsvoðum í kjölfar
skjálftans. Tjónið af völdum skjálft-
ans 1906 var metið á hálfan millj-
arð dala, þar af 320 milljónir dala
vegna eldsvoða. Talsmenn sviss-
nesks endurtryggingarfyrirtækis
sögðust þurfa að greiða tæplega
62 milljónir dala vegna skuldbind-
inga á jarðskjálftasvæðinu.
Sérstakar reglur gilda hjá trygg-
ingafyrirtækjum um hættuleg jarð-
skjálftasvæði. Iðgjöld eru há sem
ilum í San Francisco og nágrenni
hafa heimilistryggingu. Auk þess
verða þau oft að mæta 5-10% af
tjóninu sjálf.
Francisco og nágrenni án allrar við-
vörunar. Það sýnir að jarðfræðingar
eiga enn langt í land með að spá
fyrir um jarðskjálfta.
Jarðfræðingar fylgjast dag og
nótt með San Andreas sprungunni
sem liggur eftir endilangri Kali-
forníu en dugir ekki til. „Jarð-
skjálftar eiga upptök sín 10-15 km
undir yfirborði jarðar og í raun vit-
um við minna um eðlisfræðilegar
aðstæður þar en úti í geimnum,“
segir Russ Evans hjá bresku jarð-
fræðistofnuninni í Edinborg.
Ota Kulhanek, yfirmaður jarð-
skjálftastofnunarinnar við Upp-
sala-háskóla segir: „Framfarir eiga
sér stað en ég held að við getum
ekki gert nákvæmar spár fyrr en
eftir svo sem eins og 10 ár.“
Kínverskum jarðfræðingum
tókst að segja fyrir um skjálfta í
Haicheng-heraði árið 1975 og
bjarga þannig lífi þúsunda manna
sem flúðu svæðið eftir viðvaranir
þeirra. En ári síðar varð mikill
skjálfti í Tangshan sem enginn sá
fyrir og olli miklu manntjóni.
Brunavörður að
San Francisco.
störfum við húsarústir í
Reuter
Marina-hverfinu
Egill Hauksson, jarðeðlisfræðiprófessor í Kaliforníu:
Skjálftinn kom ekki á óvart en
búist var við honum í ágúst
Jarðskjálftinn
í San Francisco
EGILL Hauksson prófessor við jarðeðlisfræðideild Suður-Kaliforníuhá-
skóla í Los Angeles er framarlega í hópi jarðskjálftafræðinga í Kali-
forníu og uppgötvaði í fyrra tvö áður óþekkt jarðlagamisgengi undir
Los Angeles, þar sem jarðskjálfti gæti valdið margfalt meiri eyðilegg-
ingu en skjálfti eins og sá sem varð í fyrrinótt í grennd við San Fran-
cisco. I samtali við Morgunblaðið í gær sagði Egill að skjálftinn í San
Francicso hefði ekki komið á óvart en menn hcfðu fremur átt von á
skjálfta þessarar stærðar fyrr í sumar.
„í ágúst varð
skjálfti á þessu
svæði sem mældist
5,4 stig á Richter-
kvarða. Þá var bent
á að hann gæti ver-
ið forskjálfti fyrir
annan af stærðinni
6,5, sem talið var Egi„ IIauksson.
líklegast að kæmi
innan viku. Hann kom hins vegar
ekki fyrr en núna.“
„Það er San Andreas sprungan
sem veldur þessari skjálftavirkni en
um hana liggja aðalplötuskil eftir
endilöngu fylkinu frá suðri til norð-
urs. Því lengri sem sprungur eru því
stærri verða skjálftar og San Andre-
as spmngan er eina sprungan í fylk-
inu sem er svo löng að þar geta orð-
ið mjög stórir skjálftar, upp á 8 á
Richter eða meira. Menn vita um tvo
mjög stóra skjálfta á San Andreas.
1857 varð skjálfti í S-Kaliforníu sem
talinn er hafa verið í kringum 8 og
1906 varð San Francisco- skjálftinn
mannskæði, sem var 7,8-8. Þá
hreyfðist sprungan við San Francisco
og þar fyrir norðan í kringum 4
metra
í norðurátt en fyrir sunnan borgina,
á svæðinu sem kallað er Bay Area,
hreyfðist hún aðeins um tvo metra
á um það bil 50 kílómetra löngum
kafla. Þannig að til að ná jafnvægi
á hreyfinguna átti hún eftir að hreyf-
ast um tvo metra á því svæði. Það
gerðist í [fyiTakvöld].
Egill sagði að skjálftans hefði orð-
ið vart í Los Angeles og allt suður
til San Diego, sem er um ,600 mílna
fjarlægð frá San Francisco. Þar hefði
fólk í háhýsum fundið húsin hreyfast.
„Það sem er óeðlilegt við þennan
skjálfta er hvað skemmdirnar eru
miklar á San Francisco-svæðinu.
Upptök skjálftans eru um 100 kíló-
metra frá borginni. En í hverfum þar
sem byggt hefur verið á mýrum og
uppfyllingum magnast hreyfingin og
jarðvegurinn hegðar sér eins og
ávaxtahlaup. Undanfarin 20-30 ár
hafa menn byggt hús hér í samræmi
við hættuna á jarðskjálftum en það
er alltaf eitthvað sem kemur á óvart.
Háhýsin á San Francisco-svæðinu
skemmdust ekki. Þau eru ný, en
gömul hús í sögulegum hverfum fóru
illa. Mörg þeirra höfðu verið byggð
eftir 1906 á uppfyllingum. Hér eru
byggingamar yfirleitt með þeim
bestu í heimi en þær eru mismun-
andi gamlar. Flest hús hér eru fors-
köluð timburhús, sem gefa vel eftir
og standást því vel. Aðalvandamálið
er að gömlu húsin eru ekki tengd
við grunninn heldur liggja ofan á
honum og skríða af stað í skjálfta.“
Um möguleika á að spá fyrir um
náttúruhamfarir af þessu tagi sagði
Egill að menn hefðu í 10-20 ár verið
að reyna að þróa aðferðir til að spá
nákvæmlega fyrir um skjálfta en
framfarirnar hefði verið fremur hæg-
ar. Hann sagði að undanfarna ára-
tugi hefði verið unnið stöðugt að
jarðskjálftarannsóknum í Kaliforníu.
„Hópur sérfræðinga skrifaði skýrslu
í fyrra þar sem sagði að 30% líkur
væru á öðrum skjálfta í Mið-Kali-
forníu að styrkleika í kringum 7 á
Richter á næstu 30 árum. Þá voru
einnig taldar 40% líkur á skjálfta í
kringum 8 á Richter í Suður-Kali-
forníu á sama tímabili," sagði Egill.
Að sögn Egils yrði Suðurlands-
skjálfti, sem yfirgnæfandi líkur
benda til að verði á Suðurlandi á
næsta aldaríjórðungi, væntanlega í
kringum 7 á Richter, svipaðrar
stærðar og skjálftinn í San Franc-
isco. „Það er erfitt að meta hver
áhrif skjálfta yrðu á Reykjavíkur-
svæðinu miðað við upptök í 80-100
kílómetra fjarlægð. Það yrði ekki
reglubundið munstur á svæðinu. Á
ákveðnum svæðum sem eru byggð á
mýrum yrðu meiri skemmdir. Mest
tjón og óþægindi á höfuðborgarsvæð-
inu yrðu líklega vegna þess að há-
spennulínur tii dæmis frá Búrfelli
mundu falla niður. Háhýsi mundu
hristast meira en önnur hús. En þar
sem byggð er á mýrum og vatnsborð
er hátt mundi hreyfing verða 5-10
sinnum meiri en þar sem byggð er
á klöpp. En almennt mundu hús á
íslandi, úr jámbentri steinsteypu
standast mjög vel þótt sprungur
mundu myndast enda er veðráttan
heima þannig að húsin eru vel
byggð,“ sagði Egill Hauksson.
Helstu jarðskjálflar sögunnar
Los Angeles. Reuter. .
Mannskæðasti jarðskjálflti sögunnar er talinn hafa orðið í Kína
árið 1556 og munu þá um 830 þúsund manns hafa farist. 1976 fór-
ust um 240 þúsund í Tangshan-borg og nálægum héruðum í norð-
austurhluta Kina og 1920 180 þúsund í Jiangsu-héraði. Mikið mann-
tjón varð einnig í landskjálftum í Japan árið 1923, á Sikiley 1908 og
í Perú 1970. í skjálftunum miklu í Armeníu á síðasta ári fórust um
25 þúsund manns. Hér verða taldir upp helstu landskjálfltar sem
orðið hafa í Kaliforniu á þessari öld.
■ 18. apríl 1906: San Francisco. "9. febrúar 1971: Los Angeles. 64
Geysilega harður jarðskjálfti skók deyja af völdum jarðhræringa í San
gömlu gultgrafaraborgina og eina
helstu hafnarborg vesturstrandar-
innar. Eldar sem kviknuðu vegna
leka í gasleiðslum urðu hundruðum
manna að fjörtjóni og lögðu megin-
hluta borgarinnar í auðn. „Stóri
skjálftinn“ alræmdi kostaði alls um
500 manns lífið og skemmdir voru
sagðar nema 350 milljónum Banda-
ríkjadala. Styrkleiki mældist 8,3
stig á Richters-kvarða.
■ 10. mars 1933: Long Beach. 117
týndu lífi. Stærð skjálftans ekki
gefin upp.
Fernando-dalnum. Tjón á mann-
virkjum talið vera um 1.000 milljón-
ir dala. Styrkleiki skjálftans reynd-
ist 6,5 á Richter-kvarða.
■ 1. október 1987: Nágrenni Los
Angeles. Jarðskjálfti olli tjóni sem
nam milljónum dala en enginn fórst.
Styrkleiki var 5,9 á Richter-kvarða.
■ 23. - 24. nóvember 1987: West-
moreland, smábær um 160 km
austan við San Diego. Margir slö-
suðust og skemmdir metnar á millj-
ónir dala. Styrkleiki skjálftans ekki
gefinn upp.