Morgunblaðið - 19.10.1989, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989
27
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Verðtrygg’ing
o g VMSÍ
A
Aþingi Verkamanna-
sambands íslands,
sem haldið var fyrir nokkr-
um dögum, var samþykkt
ályktun, þar sem m.a. er
gerð krafa um, að annað-
hvort verði laun verðtryggð
eða verðtryggingar af-
numdar á peningalegum
skuldbindingum. I viðtali
við Morgunblaðið í gær tók
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, undir
þessa kröfu og kvaðst telja
eðlilegt, að afnema verð-
tryggingu á fjármagni.
Ástæða er til að staldra við
þessa ályktun og afstöðu
forsætisráðherra.
Verðtrygging launa var
afnumin í sumarbyijun
1983 í tíð þáverandi ríkis-
stjórnar Steingríms Her-
mannssonar og var kjarn-
inn í viðleitni þeirrar ríkis-
stjórnar til þess að ná tök-
um á óðaverðbólgunni, sem
þá var komin í 130%. Jafn-
framt var tekin ákvörðun
um að halda verðtryggingu
á fjárskuldbindingum. Sú
ákvörðun var umdeild og
margir töldu á þeim tíma
umhugsunarefni, hvort
hægt væri að afnema verð-
tryggingu launa án þess
að afnema hana einnig á
fjárskuldbindingum. Enda
kom á daginn að þessi
ákvörðun leiddi til mikils
vanda fyrir stóran hóp
ungs fólks.
Laun hafa ekki verið
verðtryggð frá þeim tíma
og verðbólgan hefur fallið
úr 130% í um 25%, þótt
það eigi sér margar aðrar
skýringar en þá. Hins veg-
ar hefur sparnaður verið
byggður upp ekki sízt
vegna þess trausts, sem
skapazt hefur á að verð-
gildi peninga haldi sér og
það traust byggist á verð-
tryggingunni. Jafnframt
hefur orðið hugarfars-
breyting hjá þjóðinni. Fólki
finnst nú ekki síður skipta
máli að spara fjármuni sína
en eyða þeim.
Könnun, sem sparisjóð-
irnir í landinu létu gera á
sparnaði almennings,
sýndi, að það eru ekki fyrst
og fremst eignamenn eða
hátekjumenn, sem legga fé
fyrir. Það er ekkert síður
og raunar fremur lágtekju-
fólk, sem tryggir öryggi
sitt með því að leggja fé
fyrir. Það eru því ekkert
síður og sennilega fremur
félagsmenn í Verkamanna-
sambandi íslands, sem
njóta góðs af verðtrygg-
ingu fjármagns en félags-
menn [ Vihnuveitendasam-
bandi íslands.
Að því kemur, ef rétt er
á haldið, að allar verð-
tryggingar verða afnumd-
ar en eins og mál hafa þró-
azt gæti það orðið reiðar-
slag fyrir sparnaðinn í
landinu og trú fólks á
gjaldmiðilinn, ef verð-
trygging yrði afnumin of
fljótt. Sú breyting, sem
gerð var á lánskjaravísi-
tölunni í byrjun þessa árs
og tengir hana meir launa-
breytingum en áður, hefur
t.d. orðið til þess að draga
úr trú fólks á sparnað.
Verðtryggingu fjárskuld-
bindinga er ekki hægt að
afnema fyrr en verðbólgan
hefur minnkað verulega frá
því, sem nú er og kemst á
svipað stig og í nálægum
löndum. Eins og nú háttar
er óskynsamlegt að afnema
verðtryggingu og raunar
hefur ríkisstjórnin þegar
gengið of langt í að þvinga
fram vaxtalækkun. Við
eigum enn eftir nokkur
skref áður en við náum því
marki, að verðbólga verði
hér svipuð og í Evrópu og
Bandaríkjunum og að
sæmilegt jafnvægi ríki í
efnahagsmálum og at-
vinnumálum. Þá fyrst þeg-
ar því marki hefur verið
náð er tímabært að afnema
verðtryggingu fjárskuld-
bindinga. w
Jarðskjálftinn í San Francisco
San Francisco. Reuter.
HÚS hrundu, eldar brutust út er
gasleiðslur roliiuðu, 15 metra
langur brúarhluti hrundi og hálf-
ur annar km af efri liæð hrað-
brautar féll með braki og brest-
um ofan á bíla fólks sem var á
heimleið úr vinnu eftir einni
helstu umferðaræð San Francis-
co. Fjöldi manna kramdist til
dauða. Þannig var ástandið á
háannatima í San Francisco
klukkan rúmlega fimm síðdegis
að staðartíma á þriðjudag, þegar
jarðskjálfti gekk þar yfir. Skelf-
dir borgarbúar reyndu að forða
sér á hlaupum er múrsteinar og
gluggar losnuðu og féllu niður á
göturnar, eldar geisuðu víða á
borgarsvæðinu og í nærliggjandi
borgum. Nær fimm milljónir
manna búa á öllu jarðskjálfta-
svæðinu en hamfarirnar áttu
upptök sín um 80 km suður af
borginni sjálfri, í þéttbýlishéruð-
unum San Jose og Santa Cruz.
Ljóst er að hundruð manna fór-
ust í þessum mannskæðustu jarð-
hræringum sem orðið hafa í Kali-
forníu frá 1906.
Fyrstu fregnir af landskjálftan-
um bárust hingað frá Reuters-
fréttastofunni 18 mínúturyfir mið-
nætti að íslenskum tíma í fyrrinótt.
Var sagt að hræringarnar hefðu
varað í 15 sekúndur og rafmagn
víða farið af en einskis mannsskaða
getið. Skömmu fyrir hálf þrjú var
skýrt frá því að fimm manns hefðu
týnt lífi en fljótlega kom í ljós að
mannskaðinn var mun meiri. Er
hræringarnar hófust var klukkan
rúmlega fimm e.h. í San Francisco
og fjölmargir voru í bílum, strætis-
vögnum eða lestum á leið heim til
sín að loknum vinnudegi, umferð
var því með mesta móti. Lyftur
stöðvuðust þegar rafmagnið datt
Björgunarmaður horfir hryggur á eitt fórnarlambanna á Flóabrúnni
eftir að lífgunartilraunir hafa reynst árangurslausar.
Bílar hafa stungist niður í gap sem opnaðist milli hluta Flóabrúarinnar, helstu samgönguæðarinnar frá
San Francisco til nágrannaborgarinnar Oaklands.
út og lokuðust margir inni í þeim
um hríð.
Nimitz-hraðbrautin liggur frá
Flóabrúnni yfir San Francisco-fló-
ann til nágrannaborgarinnar Oak-
land. Rösklega hálfur annar kíló-
metri af brautinni, sem er tveggja
hæða, hrundi í skjálftanum. „Fjögur
hundruð manns slösuðust er þeir
urðu fyrir brakinu," sagði talsmað-
ur almannavarna San Francisco og
síðar kom í ljós að margir þeirra
höfðu beðið bana. Marty Cody,
þrítugur sjúkraliði, klifraði örþreytt
niður af hrúgu af sundurtættum
járnabindingum og mölbrotnum
steinstoðum. „Það er ekki einu sinni
hægt að sjá hvort það eru leifar
af andliti eða fótlegg sem sést í
þarna uppi,“ sagði hún. Stýrishjól
hafði lent í fanginu á einum bílstjór-
anum en bíllinn sjálfur hafði lagst
saman undan ofurþunganum, flakið
var aðeins um 30 sm að þykkt.
Cody tókst að draga manninn út
úr brakinu og bjarga lífi hans.
Annar björgunarmaður sá látinn
mann í bíl sínum, hendur og fætur
stóðu út um gluggana. „Ég sá gift-
ingarhringinn, ég get ekki gleymt
þessari sjón meðan ég lifi.“
Um 15 metra hluti efri akbrautar
Flóabrúarinnar, annarrar af tveim
helstu brúm sem liggja frá San
Francisco, hrundi niður á næstu
Skjálftinn slæmur en hefði
getað verið miklu verri
- segir Will H. Perry, fyrrverandi almannavarnastjóri í Kaliforníu
WILL H. Perry var um tveggja ára skeið yfirmaður almannavarna í
einu af byggðarjögum San Francisco-svæðisins, en hann er nú sestur
í helgan stein á íslandi. í samtali við Morgunblaðið lagði hann áherslu
á að skjálftinn við San Francisco hefði í raun verið miðlungsskjálfli,
þó svo styrkur hans væri í hærri kanti þess flokks. „Þetta var hörníu-
legur og slæmur skjálfti, en hann hefði getað verið miklu verri,“
sagði Perry. Hann taldi að skjálftinn gæti verið afar lærdómsríkur,
sérstaklega fyrir jarðskjálftaverkfræðinga, enda hefði nú í fyrsta
skipti verið reynt á þá verkfræði, sem beitt er gegn jarðskjálftahættu
í þéttbýli.
„Þessi skjálfti er ekkert í saman-
burði við hvað gæti hafa gerst ef
um stóran skjálfta hefði verið að
ræða. Arlega verða um 200 skjálft-
ar af þessari stærðargráðu í heimin-
um, 10-20, sem eru 7-7,9 stig á
Richter, og kannski um tveir á ári,
sem eru yfir 8 stig. Viðmiðunin er
náttúrulega sú hversu mikið tjón
hlýst af þeim.“
Sagði Perry að eftir skjálftann
hefði fundist 15 cm breið sprunga
í undirstöðum efri svala Cand-
lestick-leikvangsins, þar sem úr-
slitaleikur í hafnabolta fór fram.
Skjálftinn hefði ekki þurft að vera
miklu öflugri til þess að allt hefði
hrunið og þá hefði vart þurft að
spyija að leikslokum.
„I áætlunum gerðum við ráð fyr-
ir að manntjón í litlu stærri skjálfta
yrði á bilinu 40-100.000. Full
ástæða er til að minna á það að
fréttamyndir í sjónvarpi gefa ekki
alltaf rétta mynd af ástandinu, því
tökumennirnir taka vitaskuld helst
myndir af því, sem verst er útleik-
ið.“
Perry kvaðst ekki hafa haft sam-
band við fyrrum samstarfsmenn
sína enda hefðu þeir í nógu að snú-
ast. Hann sagði hins vegar ljóst að
margt væri hægt að læra af skjálft-
anum. „í Kaliforníu er skylda að
koma fyrir jarðskjálftamælitækjum
í nýjum húsum og þær upplýsing-
ar, sem fást úr þeim eru ómetanleg-
ar. Ég hugsa að menn verði enn
að meta þær eftir tíu ár.“
Perry sagði ómögulegt að spá
fyrir um hve lengi uppbyggingar-
starfið tæki. „Menn eru að nefna
einn milljarð Bandaríkjadala þegar
tjóninu er velt fyrir sér, en það er
aðeins kúfurinn. Atvinnulífið á eftir
að verða lamað næstu daga og vik-
ur, skemmdir hafa orðið á verk-
smiðjum, samgönguæðarnar fyrir
utan lestakerfið eru meira og minna
úr skorðum gengnar og svo fram-
vegis. Þessi skaði verður ekki bætt-
ur á einu vetfangi."
Will H. Perry.
Will Perry kom fyrst hingað til
lands árið 1971 í boði íslenskra
stjórnvalda til þess að veita ráðgjöf
varðandi almannavarnaáætlanir.
Hann kvaðst þegar hafa hrifist að
landi og þjóð, svo mikið að hann
hafi þar og þá afráðið að flytjast
hingað til lands þegar hann færi á
eftirlaun, sem hann hefði síðan
gert fyrir átta árum. Perry er
kvæntur íslenskri konu, Huldu
Óskarsdóttur Perry.
hæð. Fólk, sem verið hafði í bílum
sínum á brúnni, sem liggur frá San
Francisco til Oakland, hélt í lengstu
lög dauðahaldi í molnandi steypu-
brot á brúnni áður en það steyptist
niður á veginn fyrir neðan eða í
sjóinn.
„Fyrst hélt ég að reykurinn væri
mengunarský. Seinna sá ég eld-
hnettina," sagði • Cecile Scandone,
sem var í bíl sínum á leið suður á
bóginn til San Francisco er hún sá
loga í Marina-hverfinu. Slökkviliðs-
menn börðust við elda í hundruðum
seglbáta í hafnarhverfunum og hús
hrundu í nágrannaborginni Santa
Cruz þar sem heilar íbúðarblokkir
stóðu í ljósum logum. Þak stór-
markaðs í San Jose féll og lokaðist
fólk inni í húsinu. Eldar kviknuðu
í Palo Alto, skammt frá Stanford-
háskólanum. Nokkuð bar á grip-
deildum op hópar unglinga flykkt-
ust sums staðar um með hafnabol-
takylfur og ógnuðu vegfarendum
en hermenn og þjóðvarðliðar gripu
þó fljótt í taumana.
Neyðarástandi hefur verið lýst
yfir og alríkisstjórnin í Washington
hét yfirvöldum í Kaliforníu aðstoð
sinni.
Reuter
Áhorfandi á Candlestick leikvanginum í San Francisco fórnar höndum
þegar skjálftinn ríður yfir.
Urslitaleik Giants
o g Oakland frestað
vegna jarðskjálftans
Oliio. Frá Gunnari Valgeirssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
MIKIL skelfing greip um sig meðal 60.000 áhorfenda sem biðu þess
að úrslitaleikur Giants og Oakland í bandaríska hafnaboltanum hæf-
ist á Candlestick leikvanginum í San Francisco siðdegis á þriðjudag
að þeirra tíma er jarðskjálftinn reið yfir borgina. Það þykir krafta-
verki næst að enginn áhorfandi slasaðist alvarlega.
Leikurinn átti að hefjast kl. 17.30
að staðartíma, en jarðskjálftinn reið
yfir kl. 17:05 og voru þá flestir
Formaður íslendingafélagsins:
Rétt slapp yfir brúna
„HÁLFTÍMA áður en skjálftinn
varð ókum við eftir brúnni yfir
San Francisco-flóa á leið til kunn-
ingja okkar í Hayward þannig
að þegar maður lítur til baka
hryllir mann við tilhugsuninni
um hvað hefði gerst ef við liefð-
um verið hálftíma seinna á ferð-
inni,“ sagði Árni Árnason, versl-
unarmaður og formaður Islend-
ingafélagsins í San Francisco, í
gærmorgun.
Árni hefur verið búsettur í sjö ár
í San Francisco ásamt eiginkonu
sinni, Guðrúnu Pálsdóttur. „Skjálft-
inn varð kl. rúmlega 17 og við höfð-
um ákveðið að flýta okkur til Hay-
ward, sem er austan við flóann,
fyrir fimm, áður en umferðin yrði
of mikil eins og var fyrirsjáanlegt
vegna úrslitaleiksins í hafnaboltan-
um. Við vorum svo rétt komin inn
úr dyrunum hjá vinafólki okkar
þegar skjálftinn reið yfir. Það skalf
svo húsið að maður hefur aldrei
upplifað annan eins hristing. Nán-
Árni Árnason.
ast ekkert tjón varð innanstokks
en myndir duttu niður af veggjum."
áhorfenda komnir á leikvanginn,
eða um 60.000. Rafmagn fór af
leikvanginum og skelfing greip um
sig meðal áhorfenda og en enginn
mun hafa slasast alvarlega. San
Francisco-búar eru vanir jarð-
skjálftum og voru áhorfendur á leik-
vanginum ótrúlega rólegir.
Eftir að ósköpin dundu yfir þustu
leikmenn liðanna, sem voru inni í
búningsklefum, út á völlinn og upp
í áhorfendastúku þar sem þeir
reyndu að nálgast fjölskyldur sínar.
Lögreglan kom inn á völlinn og bað
áhorfendur að halda kyrru fyrir um
stund. Allt fór vel og flestir áhorf-
enda voru komnir til síns heima
áður en náttmyrkrið skall á.
Candlestick-leikvangurinn var
byggður 1958 en 1973 var hann
styrktur og endurbættur sérstak-
lega með tilliti til jarðskjálfta. Leik-
vangurinn tekur alls 63.000 áhorf-
endur í sæti.
Giants og Oakland hafa leikið tvo
leiki af sjö í úrslitakeppni hafnar-
boltans og hefur Oakland unnið
báða. Næstu þrír leikir áttu að fara
fram á heimavelli Giants, Cand-
lestick leikvanginum. Allt bendir til
þess að flytja verði leikina út fyrir
borgina, en ekki hefur verið ákveð-
ið hvenær eða hvar næsti leikur fer
fram.
Hundruð manna krömd-
ust undir akbrautinni
Skjálftinn lærdómsrík-
ur fyrir Islendinga
- segir Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur
„VIÐ fáum sennilega ekki annan skjálfta sem líkist því meir sem
við getum átt yfir höfði okkar hér á íslandi," segir Páll Einarsson
jarðeðlisfræðingur á Raunvísindastofnun Háskólans um jarðskjálft-
ann suður af San Francisco á þriðjudag.
„Hingað til höfum við verið ef-
ins um að tjón yrði í Reykjavík í
Suðurlandsskjálfta en það er mjög
fróðlegt að sjá hvað gerist í San
Francisco því hún er í svipaðri fjar-
lægð frá skjálftaupptökum og
Reykjavík er frá yfii’vofandi upp-
takasvæði Suðurlandsskjálfta,"
segir Páll. „Hliðrunin í jarðskorp-
unni sem átti sér stað þarna er
mjög lík því sem gæti átt sér stað
hérlendis. Á báðum helstu
skjálftasvæðum Islands á suðurl-
andi og norðurlandi eru skjálftarn-
ir af sarna toga og í Kaliforníu.
Eins virðast skjálftabylgjurnar
berast um jarðskorpuna í Kali-
forníu á svipaðan hátt og hér.
Þegar þetta kemur saman má
gera ráð fyrir að áhrif skjálfta af
sömu stærð hérlendis verði svipuð
og á skjálftasvæðinu í Kaliforníu.
Það er einmitt áætlað að Suður-
landsskjálfti yrði af stærðargráð-
unni 6,5-7 á Richter. Skjálftinn á
þriðjudag mæidist 6,9 og er því
mjög sambærilegur. Byggingar á
skjálftasvæðinu í Kaliforníu eru
traustari en hér ef eitthvað er.
Ef vilji og peningar eru fyrir
hendi þá gætu íslendingar dre’gið
mikinn lærdóm af skjálftanum á
þriðjudag. Æskilegt væri að
íslenskir sérfræðingar fengju
tækifæri til að skoða upptaka-
svæði skjálftans og helsta tjón sem
af honu mhlaust. í Kaliforníu er
eitt þéttriðnasta net jarðskjálfta-
mæla og annarra mælitækja í
heiminum og aðstæður til að fylgj-
ast með jarðhræringum allar hinar
bestu. Þessi skjálfti kemur því
áreiðanlega til með að auka þekk- ■
ingu á upptökum skjálfta og að-
draganda."
Að sögn Páls yrðu upptök Suð-
urlandsskjálfta í byggð á Suður-
landsundirlendi, jafnvel í þéttbýli
eins og á Selfossi en Hella og Flúð-
ir eru einnig nálægt upptaka-
svæði. Áætlað hefur verið að 80%
líkur séu á Suðurlandsskjálfta á
næstu 30 árum. Páll leggur
áherslu á hve erfitt er að segja
fyrir um tjón af völdum jarð-
skjálfta og það sé undir því komið
hversu nærri upptökin enj byggð.
Ólafiir Jóhann Ólafs-
son framkvæmdasfiórí:
Var ítennis
þegar skjálft-
inn reið yfir
„ÉG var ný-
kominn heim
frá fundi í San
Francisco og
var úti á tennis-
velli ' þegar
skjálftinn átti
sér stað,“ sagði
Ólafur Jóhann
Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri
hjá japanska
Ólafur Jóhann
Ólafsson.
stórfyrirtækinu
Sony í Bandarikjunum um jarð-
skjálftann.
Ólafur Jóhann er staddur í Cup-
ertion, sem er skammt sunnan við
San Francisco og aðeins 10 til 20
kílómetra frá upptökum skjálftans.
Hann sagðist ekki hafa gert sér
strax grein fyrir því hversu alvar-
legur skjálftinn var, en mikill ótti
greip fyrst um sig meðal fóiks.
„Það hentist allt á góifið, bækur,
myndir og málverk," sagði Ólafur
Jóhann en hann býr í íbúð Sony-
fyrirtækisins.
Ólafur Jóhann bjó í San Franc-
isco í þijú ár, en flutti ásamt eigin-
konu sinni til New York, fyrir mán-
uði síðan.
Gólfið gekk í bylgjum
- segir Oddný Jónsdóttir í San Francisco
„ÉG VAR í vinnunni og sat við
tölvuna mína þegar allt fór af
stað og gólfið gekk í bylgjum.
Ég reyndi að slökkva á tölvunni
en tókst það ekki og barst ein-
hvern veginn fram og aftur eftir
skrifstofunni," sagði Oddný Jóns-
dóttir Nelson frá Keflavík sem
búsett er í San Francisco ásamt
bandarískum eiginmanni sinum
og fimm ára syni. „Rafmagnið fór
af. Ég fór strax að hugsa um son
minn sem var á dagheimili í
kirkju skamint undan og reyndi
að hringja þangað en síminn var
dauður.
Ég fór út til að sækja hann, sótti
fyrst bílinn minn í neðanjarðar-
geymslu þar sem gæslumaðurinn
var viti sínu fjær af hræðslu og
keyrði síðan af stað. Hús í hverf-
inu, fjármáiahverfi San Francisco,
skemmdust ekki mikið en malbik á
götunum var sprungið. Ég er venju-
lega svona korter að keyra að dag-
heimilinu en var klukkutíma að
þessu sinni enda var algjört öng-
þveiti á götunum. Á dagheimilinu
höfðu öil börnin verið látin setjast
undir borð og þar sátu þau og voru
látin biðja hástöfum til guðs. Það
virkaði hálfóhugnanlega á mig.
Stutt frá þar sem ég á heima
hrundi hús en ég held að enginn
hafi meiðst. Nokkrir vinnufélagar
Oddný Jónsdóttir Nelson.
mínir fóru á úrslitaleikinn í hafna-
boltanum og þurftu að fara yfir
brúna sem hrundi. Ég hef ekkert
heyrt frá þeim og veit því ekkert
um þá. Okkur er skipað að vera
innandyra, og aðeins ætlast til að
björgunarlið og lögregla sé á ferli.
Maður hefur heyrt um að talsvert
hafi verið um rán og þjófnaði í
skjóli ástandsins," sagði Oddný
Jónsdóttir.