Morgunblaðið - 19.10.1989, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTOBER 1989
H
Minning:
Friðrik M. Friðleifs■
son, myndskeri
Fæddur 19. nóvember 1922
Dáinn 5. október 1989
Eitt sinn verða allir menn að
deyja segir í litlu lagi, en ekki er
maður nú alltaf sammála því hve-
nær það er. En nú er hann afi á
Nesinu dáinn. Amma og afi fengu
„Nes“- nafnið til viðbótar af því að
þau búa á Seltjarnarnesi.
Að fara í heimsókn til ömmu og
HÆTTIÐ
AÐ
BOGRA
VIÐ
ÞRIFIN!
H ú fást vagnar med nýrri vindu
par sem moppan er undin með
éinu handtaki án pess að taka
purfi hana afskaftinu. Moppan fer
alveg inn í horn og auðveldlega
undir húsgögn. Einnig er hún
tilvalin í veggjahreingerningar.
Þetta pýðir auðveldari og betri prif.
Auðveldara,
fljótlegra og
hagkvæmara!
IBESTAI
Nýbýlavegi 18
Sími 641988
afa á Nesið var alltaf jafn gott og
gaman, og gott var að fá að skreppa
aðeins út á verkstæði til afa, þar
var nú ýmislegt sem við fengum
að gera með hjálp afa, síðan var
farið inn til ömmu og henni sýnt
hvað gert hafði verið, var því alltaf
hrósað mikið (og mikið var maður
ánægður þá). Við gátum misst ham-
arsréttindin um stund ef við lömd-
um á fingur eða annað, en ekki var
það lengi.
Minningarnar frá þessum tímum
eru alveg sérstaklega skemmtilegar
og ógleymanlegar.
Elsku amma við biðjum guð að
gefa þér styrk í sorg þinni.
Guðrún og Gunnar Friðrik
Þegar dauðinn ber að dyrum er-
um við alltaf jafn óviðbúin þrátt
fyrir að það megi teljast eðlilegt
að vinir kveðji þessa jarðartilveru.
Mér kemur þetta í hug þegar ég
nú kveð vin minn og mág Friðrik
M. Friðleifsson myndskera sem lést
5. október sl. 66 ára að aldri.
Við vinir hans og kunningjar
reiknuðum ekki með að kallið kæmi
svona skyndilega þrátt fyrir að við
vissum að veikindi hans voru alvar-
leg. Það er stutt síðan að við hjón-
in heimsóttum hann og virtist hann
þá hress að sjá og vorum við mág-
arnir einmitt að ráðleggja spila-
mennsku á komandi vetri en við
höfum spilað saman brids í áraraðir.
Friðrik barðist hetjulegri baráttu
við sjúkdóm sinn í rúmt ár og urð-
um við vinir hans og kunningjar
aldrei varir við annað hjá honum
en æðruleysi og kjark þann tíma.
Það kom best fram meðal annars
í hans léttu lund og góðum húmor
sem honum var gefið í ríkum mæli. .
Kynni okkar Friðriks hófust er
ég giftist systur hans, Margréti.
Var það upphafið að nánum og
góðum vinskap sem entist alla tíð
meðan hann lifði. Ég tel mig mikinn
gæfumann að hafa kynnst slíkum
manni á lífsleiðinni sem bauð allt
það besta í fari manns sem piýtt
getur góðan dreng, af því má mikið
læra.
Friðrik hlaut menntun í mynd-
skurði sem hann stundaði óslitið
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BÁRÐUR SIGURÐSSON,
Birtingakvfsl 64,
Reykjavík,
lést í Landakotsspítala miðvikudaginn 18. október.
Fyrir hond annarra vandamanna,
Guðný Lúðvíksdóttir,
Lúðvik Bárðarson, Rannveig Sveinsdóttir,
Gerður Bárðardóttir,
Sigurður Bárðarson,
Tinna Guðrún Lúðviksdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
foreldra okkar, tengdaforeldra, ömmu, afa, systur og mágs,
HALLFRÍÐAR SVEINSDÓTTUR,
og
ÞORVARÐAR HJALTASONAR
frá Súðavík.
Hjalti Þorvarðarson, Guðrún Vigfúsdóttir,
Svavar Þorvarðsson, Helga Bjarnadóttir,
Jóna Þorvarðardóttir, Þórður Eiríksson,
Ásbjörn Þorvarðarson, Guðlaug Hálfdánardóttir,
barnabörn og Guðrún Sveinsdóttir.
þar til fyrir ári er hann fékk sjúk-
dóm þann er að lokum dró hann til
dauða. Friðrik var mikill listamaður
í sínu fagi og mikið til hans leitað
enda vandaður í verkum sínum svo
af bar. Það má í þessu sambandi
minnast á allar þær gestabækur
sem hann hannaði og skar út eftir
óskum kaupanda. Auk þess hin
mörgu félagsmerki af öllum stærð-
um og gerðum og marga aðra hluti
stóra og smáa.
Friðrik hafði mjög gaman af að
spila brids enda spilamaður góður.
Við mágarnir vorum makkerar og
félagar í Krummaklúbbnum sl. 16
ár, auk þess spiluðum við 4 félagar
saman í heimaklúbbi sama ára-
ijölda. Það var oft mikið skrafað
og skeggrætt á þessum spilakvöld-
um og einstaka sinnum tekist á en
þó alltaf í góðu, sárindi eða skamm-
ir þekktust ekki enda Friðrik fyrst-
ur til að gera gott úr öllum misskiln-
ingi. Friðrik var á þessum kvöldum
alltaf hrókur alls fagnaðar. Létt-
lyndi hans og fyndni hafði mjög
góð áhrif á alla sem hann um-
gekkst. Ég minnist í þessu sam-
bandi á öll ferðalögin með spilafé-
lögunum fjórum sem við fórum á
hveiju ári með konum okkar í stutt-
ar helgarferðir innanlands og að
lokum til Englands sumarið 1988.
í þeirri ferð sáum við vinir hans í
fyrsta sinn byijun á veikindum hans
þó svo að hann iéti ekki á neinu
bera og legði sig fram til að gera
ferðina sem ánægjulegasta.
Þá hafði Friðrik mjög gaman af
að renna fyrir lax enda veiðimaður
góður, laginn og fiskinn vel. Hafði
hann gaman af að segja frá þessum
veiðiferðum sínum í glöðum vina-
hópi og var þá oft mikið hlegið
enda hafði hann mjög skemmtilega
frásagnargáfu.
Þessar línur í minningu Friðriks
eru frá okkur hjónunum sameigin-
lega enda milli þeirra systkina sér-
stakur kærleikur og hlýja sem syst-
ir hans mat mikils. Hún hafði mikla
ánægju af heimsóknum hans á
heimili okkar hjónanna. Ég fann
það oft að henni þótti mjög vænt
um bróður sinn og virti hann mikils
í allri hans framkomu. Að lokum
vil ég minnast aldraðrar móður
Friðriks sem hann annaðist á ýmsan
hátt núna seinni árin af einstakri
hlýju og kærleika. Við hjónin vitum
að henni er sár söknuður í huga.
En góðar minningar um góðan
dreng munu draga úr sárasta treg-
anum í huga hennar.
Ég hefi sleppt úr í þessum línum
öllum ættartölum. Friðrik átti stóra
fjölskyldu, bæði í foreldrahúsum og
eigin Ijölskyldu. Hann ólst upp í
hópi sjö systkina sem öll eru á lífi.
Áttunda systkinið sem var drengur
og var næst elstur fæddist and-
vana. Sjálfur átti Friðrik sjö börn
í sínu hjónabandi auk stjúpþóttur
sem öll eru uppkomin og eru þau
öll á lífi og farin úr foreldrahúsum
þegar faðir þeirra lést.
Mestur er þó missir eftirlifandi
konu Friðriks, Guðrúnar Ólafsdótt-
ur ættaðrar frá Hurðarbaki í Flóa.
Þau gengu í hjónaband 16. júní
1945. Heimili þeirra hjóna sem
lengst var á Skólabraut 49, Sel-
tjarnarnesi, var til mikillar fyrir-
myndar á öllum sviðum og gestrisni
í hávegum höfð enda þau hjón sam-
hent að taka á móti vinum og kunn-
ingjum af sem mestri rausn.
Við hjónin biðjum, Guðrún mín,
góðan guð að blessa þig og ástvini
þína sem eftir lifa og veita ykkur
styrk og huggun í ykkar mikla
missi.
Margrét og Helgi
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
frá Kleifum,
Steingrímsfirði.
Guðrún Þóroddsdóttir,
Anders Guðmundsson,
Hilmar Guðmundsson,
Hafsteinn Guðmundsson, Guðbjörg Ólafsdóttir,
Hreinn Guðmundsson, Dögg Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
SIGFÚSAR BJARNASONAR
sjómanns,
fv. skrifstofustjóra Sjómannafélags Reykjavíkur,
og heiðruðu minningu hans.
Sérstakar þakkir til Sjómannafélags Reykjavíkur fyrir virðingu
auðsýnda hinum látna.
Sveinborg Lárusdóttir,
Bjarni Sigfússon, Guðrún Ásbjörg Magnúsdóttir,
Kristján Sigfússon, Guðfinna Inga Guðmundsdóttir,
Ingvar Alfréð Sigfússon, Ingibjörg Bjartmarz
og barnabörn.
}
1|
E