Morgunblaðið - 19.10.1989, Síða 39
MORG UNBLAÐIÐ 'FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 19S9
39
AMNESTY-VIKAN HELGUÐ BÖRNUM
Júgóslavía
Stúlkurnar Nafíje Zendeli 18
ára og Valdeta Fejzullai 17 ára
og drengirnir Dashmir Osmani
og Nuredin Aliu báðir 17 ára eru
frá lýðveldinu Makedóníu í Suð-
ur-Júgóslavíu en af albönsku þjóð-
arbroti.
Ungmennin voru öll nemendur
við gagnfræðaskólann í bænum
Gostivar er þau vom handtekin í
október 1988 í kjölfar friðsam-
legra mótmæla gegn því að bekk-
ir þar sem kennt hafði verið á
albönsku höfðu verið lagðir niður.
Til framkvæmda höfðu komið ný
lög um gagnfræðaskóla og fram-
haldsskóla í Makedóníu þar sem
m.a. er kveðið á um að kennsla
skuli fara fram á albönsku ef í
bekk em fleiri en 30 albanskir
nemendur og ef til kennslunnar
fáist hæfir kennarar. Skólinn í
Gostivar uppfyllti ekki skilyrði
laganna og þurftu albanskir nem-
endur því að stunda nám sitt á
tungumáli Makedóníu. Fólk af
albönskum uppmna hefur lýst
yfir óánægju sinni með þetta fyr-
irkomulag og hefur jafnframt
bent á að skort á hæfum kennur-
um megi rekja til þess að fjöldi
kennara hefur verið sagt upp
störfum fyrir að innræta nemend-
um sínum albanska þjóðrækni.
Ungmennin vom leidd fyrir rétt
30. desember 1988 og sökuð um
„stofnun félagsskapar í fjandsam-
legum tilgangi“ og „að grafa und-
an félagslegum stöðugleika“ sam-
kvæmt 114. og 136. grein júgó-
slavneskra hegningarlaga. Við
réttarhöldin kom fram að öll voru
þau duglegir námsmenn og höfðu
ekki fram að þessu sýnt andfé-
lagslega hegðun.
Nafije og Valdeta voru hvor
um sig dæmdar í 4 ára fangelsi.
Dashmir var dæmdur í 6 ára fang-
elsi og Nuredin i 5 ára fangelsi.
Þau áfrýjuðu dómnum og eru því
enn í varðhaldi. Þau munu öll
afplána dóm sinn í fangelsum fyr-
ir fólk undir lögaldri. Fregnir
herma að þau séu í haldi í
Idrizovo-fangelsinu nærri Skopje.
Amnesty International hefur sam-
Nafije Zendeli
þykkt þau öli sem samviskufanga.
Vinsamlegast skrifið og farið
fram á að þau verði látin laus
tafarlaust og án nokkurra skil-
yrða.
Skrifið til:
Janez Drnovsek,
President of the SRFJ Presidency
Bulevar Leninja 2,
Beograd,
Yugoslavia.
Bahrein
Amnesty-samtökunum hafa
borist fregnir um að Mehdi Hus-
sein Ziad 16 ára, Abbas ’Atiya
Hassan 15 ára, Salman ’Atiya
Sahnan og Hassan ’Ali Hussein
báðir 16 ára og Fadhel Hassan
Fateel 18 ára hafi verið í hópi
15 manna sem handteknir voru í
febrúar 1989 og hafðir í einangr-
un í ’Adliya-fangelsinu vegna
andófs við ríkisstjórnina. Talið er
að hluti hópsins hafi mátt sæta
pyntingum og hafi hlotið illa með-
ferð.
Ástæður fyrir handtökunni eru
ekki kunnar en talið er að hinir
handteknu séu virkir meðlimir í
samfélagi ’Shi-múslima og að ein-
Nígería
Hinn 26. febrúar 1989 var
Matthew Anu, ásamt tveimur
öðrum, tekinn af-lífi fyrir morð
og rán. Dómurinn var kveðinn upp
af svokölluðum „Rán- og vopna-
dómstóli" (Robbery and Firearms
Trihunal). Slíkum dómstólum var
komið á fót í Nígeríu 1984 og
hafa þeir vald til að kveða upp
dauðarefsingu fyrir vopnuð rán.
Sakborningar hafa ekki rétt til
að skjóta m|li sínu til æðri dóm-
stóla.
Talið er að Matthew Anu hafi
verið 17 ára eða yngri þegar af-
brotið var framið. Dómsfullnæg-
ingin yfir honum er andstæð al-
þjóðlegum samþykktum um refs-
ingu þeirra sem eru undir 18 ára
aldri.
Vinsamlega skrifið og látið í
ljós áhyggjur vegna aftöku Matt-
hveijir þeirra kunni að hafa tekið
þátt í trúarlegum mótmælum og
hrópað slagorð gegn ríkisstjórn-
inni.
í byijun maí fékk Amnesty
fregnir um að þremur úr hópnum
hafi verið sleppt úr haldi. Kunn-
ugt er um nöfn tveggja en ekki
er vitað um þann þriðja og er
líklegt að hann sé einn af ungling-
unum sem nefndir eru hér að of-
an. Hermt er að hinir 12 sem eft-
ir eru í haldi verði fljótlega leidd-
ir fyrir rétt.
Ámnesty hefur oft látið í ljós
áhyggjur sínar við ríkisstjóm
Bahrein varðandi það réttarfar
sem ríkir í landinu. Einstaklingar
sem hnepptir eru í varðhald sam-
kvæmt öryggislögum ríkisins geta
verið í haldi um ótiltekinn tíma
án dóms og laga og fá oft ekki
hew Anu og tveggja annarra hinn
26. fewbrúar 1989 og einkanlega
vegna þess að Matthew Anu virð-
ist hafa verið innan 18 ára aldurs
þegar afbrotið, sem hann var
dæmdur fyrir, var framið. Útský-
rið andstöðu Amnesty Internatio-
nal við dauðarefsingu yfirleitt og
vitnið í varúðarreglur ECOSOC
(þ.e.: United Nations’ Economic
and Social Council), á ensku
„safeguards", gegn aftökum fólks
innan 18 ára aldurs þegar afbrot
er framið. Látið í ljós sérstakar
áhyggjur út af grimmdarlegum
aftökum í augsýn almennings og
áhrifum þeirra á nærstadda, ekki
síst börn.
Skrifið til:
Major-General M.G. Nasko,
Minister in charge of the Federal
Capital Territory,
Ministry in charge of the Federal
Capital Territory,
15 Awolowo Road, Ikoyi Island,
Lagos, Nigeria.
að hafa samskipti við ættingja
sína og lögfræðinga og mega oft
sæta pyntingum. Amnesty telur
að pólitískir fangar fái ekki rétt-
mæta dómsmeðferð eins og lýst
er í 14. grein Alþjóðlega sáttmál-
ans um borgaraleg og pólitísk
réttindi. Sakborningar hafa
hvorki fullnægjandi aðgang að
lögfræðingum né rétt til að áfrýja
dómsúrskurði. Dómstólar mega
nota játningar sem eina sönnunar-
gagn í dómsmáli og eykur það
hættuna í pyntingum.
Amnesty fer enn einu sinni
þess á leit við ríkisstjórn Bahrein
að hún samræmi réttarvenjur
landsins til jafns við alþjóðlegar
reglur og hvetur ríkisstjómina til
að sýna stuðning sinn við mann-
réttindi með því að undirrita og
þar með staðfesta Alþjóðlega sátt-
málann um borgaraleg og pólitísk
réttindi.
Vinsamlegast skrifið og spyijist
fyrir um það hvort áðurnefndir
unglingar séu enn í haldi, hvað
þeir séu ásakaðir fyrir og hvort
búið sé að dagsetja réttarhöld í
máli þeirra. Farið fram á að þeir
fái að hafa samskipti við ættingja
sína og við lögfræðinga að eigin
vali og að þeir fái læknisþjónustu
sé hennar þörf. Farið fram á að
þeir verði látnir lausir tafarlaust
og án nokkurra skilyrða ef þeir
eru í haldi eingöngu fyrir stjórn-
málaskoðanir sínar. Farið jafn-
framt fram á ítarlega og hlutlausa
rannsókn á staðhæfingum þeim
sem borist hafa um pyntingar.
Skrifið til:
H.E. Sheikh Mohammad Ali Kha-
lifa
Al-Khalifa („Your Excellency"),
Minister of Interior,
PO Box 13, Police Fort Compo-
und,
Salmaniya,
State of Bahrain.
Heilsugæsla á Þingeyri óþörf?
Frá Huldu Sigmundsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins á Þingeyri.
Á sama tíma og félagasamtök
hefja vetrarstarf eða búa sig undir
það, bólar ekki á lækni eða hjúkr-
unarfræðingi, ekki svo mikið sem
auglýst eftir fólki til þessara starfa
á Þingeyri frekar en allt væri í sóm-
anum með heilsugæsluna. Skólarnir
hafa hafið starf sitt fyrir þó nokkru,
Núpsskóli með um 60 unglinga og
grunnskólinn á Þingeyri með 80-90
börn og unglinga. Skólaskoðun
virðist óþörf, einnig flensusprautur.
Það léttist brúnin á Þingeyring-
um þegar fréttist að Póstur og sími
væri að láta vinna að bættum skil-
yrðum fyrir sjónvarpsútsendingu,
ljósleiðari kominn í jörðina í Mýra-
hrepp, geislinn væntanlegur að
norðan, en engin hreyfing er komin
á byggingu eða uppsetningu sjón-
varpssendis, líklega nóg að gert til
að fá heimamenn til að greiða gjöld-
in möglunarlaust hér eftir sem
hingað til. Nú er læknirinn farinn
fyrir nokkru og örlar. ekki á svo
mikið sem auglýsingum um að
vant.i lækni.
Skíðalyftan stendur viðgerð við
smiðjuna, líklega hættuminnst að
hreyfa hana ekki þaðan. Einhver
gæti fundið upp á að fótbijóta sig
ef lyftan væri tekin í gagnið þegar
snjþr er kominn á jörðu.
1 sílýsi þeirra, er stjórna heil-
brigðismálum er Dýrðfirðingum
ljóst, að ráðamenn varðar lítið lang-
nætti vetrar, vestur á fjörðum.
DACHSTEIN
Fjallaskór
Ósviknir DACHSTEIN með tvöföldum saumum, nfð-sterkum
gúmmisóla, vatnsþéttri reimingu. Framleiddir f Austurrlki og
sérstaklega geröir fyrir mikió álag og erfiöar aöstaeður.
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Skrifstofutækni
Tölvufræðslunnar
Þú stendur betur
að víei að loknu
hagnýtu námi
Með námi í skrifstofutækni nærð þú góðum tökum á
tölvum og notkun þeirra. Þú kynnist bókfærslu, stjórnun
og fleiri viðskiptagreinum, rifjar upp ýmislegt í íslensku
og færð góða iimsýn í viðskiptaensku.
Námið tekur 3-4 mánuði og að því loknu útskrifast
þú sem skrifstofutæknir. Þú getur valið um morgun-,
eftirmiðdags- eða kvöldtíma. Við bjóðum upp á afar hagstæð
greiðslukjör. Innritun er þegar hafin.
Hringdu strax í síma 687590
og við sendum þér bækling um hæl.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 24, sími 687590