Morgunblaðið - 19.10.1989, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 19.10.1989, Qupperneq 52
TMNCHESTER BYSSUR OG SKOTFÆRI Heildsöludreifing: I.Guðmundsson, sími :24020 SAGA CLASS Fyrir þá sem eru aðeins á undan FLUGLEIDIR FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Líkist mjög aðstæðum við Suðurlandsskjálfta - segir Páll Einarssonjarðeðlisfræðingur um landskjálftann suður af San Francisco Jarðskjálftinn í San Francisco eins og hann mældist á Veðurstofh Islands. Beinu línurnar fyrir ofan og neðan sýna ástandið nokkru fyrir og eftir skjálftann. Afgreiðslu á 700 húsnæðis- lánum flýtt um hálft ár STJÓRN Húsnæðisstofnunar hef- ur ákveðið að flýta afgreiðslu 700 húsnæðislána vegna fyrstu ibúða lántakenda. Um er að ræða láns- loforð um greiðslu fyrri hluta lánanna á tímabilinu júní, júlí og ágúst á næsta ári. Lántakendum verður gefinn kostur á að taka fyrri hluta lánsins á þessu ári og síðari greiðsluna sex mánuðum síðar. Aðalástæður þessa eru að ónýtt lán frá áramótum eru á þriðja hundrað talsins, að lífeyr- issjóðirnir hafa keypt skuldabréf af Húsnæðisstofiiun fyrir meira fé en áætfað var og loks þrýsting- ur frá aðilum á vinnumarkaði á að biðin eftir lánum verði stytt. Þeir 700 umsækjendur, sem gef- inn er kostur á að fá fyrri hluta lánsins greiddan á þessu ári, eru þó ekki bundnir af að taka því boði, þeir geta eftir sem áður haldið sig við upphaflega áætlun um greiðslu- tíma. Upphæðin sem um er að ræða er samtals úm 1.400 milljónir, þar sem meðallán er nú um tvær millj- ónir króna. Fyrri hluti lánsins til þessara 700 lántaka er því um 700 milljónir króna. Innan húsnæðismálastjórnar hef- ur verið óánægja með, að Hús- næðisstofnun safnaði sjóði í Seðla- banka á sama tíma og haldið er í hemilinn varðandi lánveitingar. Björn Þórhallsson fulltrúi launþega. í stjórninni segir að sá grunur hafi læðst að mörgum að með sjóðsöfn- un langt umfram þarfir væri verið að undirbúa húsbréfakerfi með því að nota ekki fé sem ætlað væri til almennra lána. „Þegar farið er að frysta það fé, sem lífeyrissjóðirnir leggja til húsnæðiskerfisins sam- kvæmt samkomulagi frá 1986, og nýta það til annarra þarfa ríkis- sjóðs, þá rísum við upp. Og það mun braka verulega í, ef þeir ætla að reyna að seilast lengra eftir lífeyrissparnaði launþega,“ segir Björn. Meðal nokkurra stjórnarmanna var framangreind óánægja ein helsta ástæða þess, að greiðsiu lán- anna er nú flýtt. FUNDUR var haldinn hjá Jarð- skjálftanefhd í gær og drög lögð að því að þrír til fjórir menn yrðu sendir vestur um haf til Kaliforniu til þess að kynna sér áhrif jarðskjálftans í San Franc- isco og reyna að draga lærdóm af þeim. Páll Einarsson jarðeðlis- fræðingur sagði í samtali við Morgunblaðið að vart væri hægt að hugsa sér skjálfta sem líktist meir íslenskum aðstæðum en þann sem varð í Kaliforníu á þriðjudag. Kæmi þar til styrk- leiki skjálftans og hreyfing í jarð- skorpunni, byggingarlag mann- virkja og Qarlægð frá helsta þétt- býlissvæði. Ákvörðun um kynnisferð á skjálftaslóðirnar verður að líkindum tekin í dag, en Jarðskjálftanefnd er skipuð af samgönguráðherra. Guðjón Petersen, framkvæmda- stjóri Almannavarna, sagði í sam- taii við Morgunblaðið í gær, að ef af kynnisferð til Kaliforníu yrði, myndu að líkindum sérfræðingar á sviði jarðskjálftaverkfræði, jarðeðl- isfræði og almannavarna verða sendir. Guðjón Petersen var spurður um hugsanleg áhrif landskjálfta í líkingu við skjálftann í San Franc- isco hér á landi. Hann sagði óhægt að spá fyrir um það, þar sem lítil reynsla væri fengin á þá byggingar- staðla, sem giltu hér á landi. „Það er kannski athyglisvert að akbrúin upp að brúnni yfir San Francisco- flóa var sérstaklega styrkt eftir skjálftann í San Fernando á síðasta áratug. Samt fór sem fór,“ sagði Guðjón. Páll Einarsson 'segir að hingað til hafi menn verið efins um að tjón yrði í Reykjavík í Suðurlands- skjálfta en það sé mjög fróðlegt að sjá hvað gerist í San Francisco því hún sé í svipaðri ijarlægð frá skjálftaupptökum og Reykjavík er frá líklegu upptakasvæði Suður- landsskjálfta. Hrafnhildur Gunnarsdóttir kom að hrundu akbrautinni: Hjálpaði til við að bera fólk sem hafði slasast Ægir Jens Guðmundsson ók um brautina mínútu áður en skjálftinn reið yfir „EFTIR að skjálftinn gekk yfir fór ég út til að taka myndir. Vegurinn sem hrundi er rétt fyrir neðan hjá okkur. Það var óskap- legt að sjá þetta. Það var ekki margt fólk komið þá til að hjálpa og fáir lögreglumenn. Ég var dregin í að hjálpa til að bera fólk sem hafði slasast. Það voru þarna lík út um allt. Nú er sagt, að 273 hafi farist en þá er ekki búið að ná öllu fólkinu úr bílunum sem urðu þarna undir. Þeir segja, að það séu jafnvel 200 bílar þarna,“ sagði Hrafnhildur Gunnarsdóttir sem neinur Ijósmyndun og býr í Oakland. Ægir Jens Guðmundsson, sem stundar nám í kvikmyndagerð og býr í Oakland, ók akbrautina yfir Flóann í þann mund sem jarð- skjálftinn varð. Hann segist hafa verið kominn yfir sjálfan Flóann og á uppfyllingu, þegar landið gekk í bylgjum. Þótti honum eins og bílhjólin hoppuðu upp úr hjól- förum. Hann hafi strax áttað sig á því, að um jarðskjálfta hafi ver- ið að ræða. Aðrir ökumenn stöðv- uðu farartæki sín og gættu að því, hvort eitthvað væri að bílun- um. „Það var ekki fyrr en ég kom heim, að ég áttaði mig á því hversu naumlega ég hafði slopp- ið,“ sagði Ægir við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Það munaði kannski einni mínútu, að ég kæmist yfir.“ Síðasta spölinn þurfti hann að fara í átt að svörtum reyk vegna elda sem höfðu kviknað vegna skjálftans. Ægir var klukktutíma fyrr á ferðinni en hann er vanur vegna þess að tími féll niður í skólanum. Hann sagðist aldrei hafa litið til baka, eftir að hann var kominn yfir Flóann. Hrafnhildur Gunnarsdóttir var nýkomin heim til sín, þegar jarð- skjálftinn reið yfir. Sagðist hún ekki hafa vitað hvaðan á sig stóð veðrið. Veggirnir hefðu sveiflast að minnsta kosti 80 sentimetra í hvora átt en húsið staðið skjálft- ann af sér. Hún sagði að stykkin í akbrautinni hefðu verið mörg tonn á þýngd og bílarnir hefðu fallið marga metra. Að sögn Gunnhildar Lorensen, ræðismanns Islands í San Franc- isco, vill svo vel til að íslending- arnir búa yfirleitt á svæðúm þar sem lítið tjón varð af völdum skjálftans og eru þeir ailir sagðir Ægir Jens Guðmundsson heilir á húfi. Oddný Jónsdóttir Nelson frá Keflavík sagðist hafa verið við vinnu sína,- þegar skjálftinn reið yfir. Hún hefði flýtt sér að sækja barn sitt á dagheimili. Þar hefðu börnin öll setið undir borði og beðið innilega til Guðs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.