Morgunblaðið - 24.10.1989, Síða 2
2
Í8SJ 5HHC'T>I0 .)>£ ÍIUDAQULGIÍM GÍGAIíIl^IJOflOM
MORGUNBLAÐIÐ ÍRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1989
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra:
Leggur fljótlega fram
þingsályktunartillögfu
STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra telur stækkun ál-
vers í Straumsvík geta skipt miklu máli í því erfiða atvinnuástandi
sem gera megi ráð fyrir á næstunni, einkum suðvestanlands. Iðnað-
arráðherra segir að fljótlega muni hann leggja fram þingsálykt-
unartillögu um stækkun álversins.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra flutti stefnuræðu
sína í Sameinuðu þingi í gær-
kvöldi. í stefnuræðunni kom meðal
annars fram að gert er ráð fyrir
að viðræðum íslenskra stjórnvalda
við erlenda aðila um stækkun ál-
vers ljúki fljótlega. Benti
Steingrímur á í ræðu sinni að með
byggingu álvers mætti auka hag-
vöxt um einn af hundraði og at-
vinnu um 0,5 af hundraði. „I því
ástandi þjóðarbúsins sem nú er,
er nauðsynlegt að skoða þennan
kost vandlega,“ sagði Steingrímur.
í ræðu sinni tilkynnti Steingrím-
ur einnig að ríkisstjómin hefði
ákveðið að afnema verðtryggingu
fjármagns og sjálfvirkar viðmiðan-
ir hvers konar. Kvað Steingrímur
það verða gert þegar verðbólga á
6 mánaða mælikvarða væri komin
undir 10 af hundraði. „Er þess
vænst að svo geti orðið á seinni
hluta ársins 1990.“
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi
stóriðjustefnu ríkisstjómarinnar;
treysti forsætisráðherra sér ekki
til þess að kveða fastar að orði en
svo að skoða ætti þann kost að
stækka álverið í Straumsvík.
„Þögnin er látin tala um það hvort
stjómarflokkarnir og fulltrúar
þeirra í stjórn Landsvirkjunar ætli
að taka ábyrgð á því orkuverði sem
hugmyndir era nú um.
Þorsteinn tilkynnti og í ræðu
sinni að Sjálfstæðisflokkurinn
stefndi að því að afnema „vinstri-
stjómarskattheimtuna"; ekkna-
skatturinn yrði afnuminn, tekju-
skattinum yrði strax komið í sama
horf og við upphaf staðgreiðslu og
unnið yrði að því lækka virðisauka-
skattinn til samræmis við núver-
andi söluskattshlutfall.
Þorsteinn gagnrýndi og forsæt-
isráðherra fyrir að taka ekki fyrir
þau mál sem helst hefðu brannið
á þjóðinni „vegna virðingarleysis
hennar fyrir lögum, almennum
stjómsýsluvenjum, trúverðugleika
og sannsögli".
I máli Jóns Sigurðssonar iðnað-
arráðherra kom fram að líkur væra
á því að viðunandi samningar tækj-
ust við Atlantal-hópinn svokallaða
um stækkun álversins í
Straumsvík. Myndi hann leggja
fram þingsályktunartillögu vegna
þessa á Alþingi á næstunni.
Sjá stefiiuræðu forsætisráð-
herra á miðopnu.
Lést í umferðarslysi
Frá slysstað á Laugavegi í gærmorgun. Morgunbiaðið/Júiius
Slasaðist illa í
hörðum árekstri
MAÐUR á sjötugsaldri slasaðist alvarlega í hörðum árekstri við
Heklu-húsið á Laugavegi í gærmorgun og var fluttur meðvitund-
arlaus á sjúkrahús.
Maðurinn ók Nissan-fólksbíl
sínum austur Laugaveg eftir
hægri akrein og er talið að hann
hafi beygt yfir vinstri akrein og
ætlað að taka U-beygju vestur
Laugaveg þegar hann lenti í vegi
fyrir Toyota jeppa á leið austur
eftir vinstri akrein.
Áreksturinn var harður. Öku-
maður fólksbílsins tvífótbrotnaði
og hlaut innvörtis áverka.
Tækjabíll slökkviliðsins þurfti að
koma á vettvang til að losa hann
úr flaki bílsins. Okumaður og far-
þegi í jeppanum vora einnig flutt-
ir á slysadeild en fengu að fara
heim að lokinni skoðun.
ÁTJÁN ára stúlka beið bana er
bíll sem hún ók lenti út af vegi
í Landbroti í V-Skaftafellssýslu á
Iaugardag.
Talið er að ökumaður hafi misst
stjórn á bílnum, sem rann til á veg-
inum, lenti á vegaskilti og fór tvær
til þijár veltur utan vegar. Ökumað-
ur kastaðist út úr bílnum og mun
hafa látist samstundis. Tveir far-
þegar, sem vora í bílnum, sluppu
með minniháttar meiðsli.
Ingibjörg Guðrún Hilmarsdóttir
var 18 ára, fædd 25. ágúst 1971
og bjó á Kársnesbraut 27 í Kópa-
vogi. Hún lætur eftir sig móður og
þijú systkini.
Stefiit að sameiningii
Pólaris og Veraldar
Ingibjörg Guðrún Hilmarsdóttir
FERÐAMIÐSTÖÐIN Veröld keypti í gær ferðaskrifstofuna Pólaris
og rífti um leið samningi sínum við Samvinnuferðir/Landsýn en á
föstudaginn var undirritaður samningur um kaup Samvinnuferða á
Pólaris. Að sögn Svavars Egilssonar, eiganda Veraldar, er stefnt
að því að sameina Veröld og Pólaris í framtíðinni en fyrst um sinn
verði ferðaskrifstofurnar tvær reknar með sama sniði og áður.
„Þetta kom nokkuð snöggt upp Pólaris sameinist en það mun
og það á eftir að ganga frá ýmsu. Ííklega taka nokkurn tíma,“ sagði
Eg reikna með því að Veröld og Svavar. „Það er mikil hagræðing í
Til vinstri er Hótel Eimskip séð fi-á Skúlagötu en teikningin til hægri sýnir hótelið frá Vatnsstíg.
Skipulagsnefiid;
Tillaga að Hótel Eimskip samþykkt
TILLAGA arkitektanna Garðars Halldórssonar og Ingimundar
Sveinssonar að Hótel Eimskip við Skúlagötu var samþykkt af
meirihluta skipulagsnefndar í gær. Gert er ráð fyrir að hótelið
verði 17.830 fermetrar að stærð á fimmtán hæðum með 219
tveggja manna herbergjum, veitingasölum, sundlaug, heilsurækt
og bifreiðageymslu og er nýtingarhlutfall lóðanna að meðaltali
2,04.
Að sögn Þorkels Sigurlaugs-
sonar framkvæmdastjóra þróun-
arsviðs Eimskips er næsta verk-
efni að gera áætlanir um kostnað
við byggingu hótelsins og endur-
skoða hagkvæmni þess. „í fram-
haldi af því verður metið hvort
grandvöllur sé fyrir byggingu,
fjármögnun og rekstri svona hót-
els,“ sagði Þorkell. „Sheraton-
hótelkeðjan hefur meðal annars
verið nefnd sem hugsanlegur
rekstraraðili. Ekki verður þó ráð-
ist í svona íjárfestingu nema að
vel athuguðu máli. Svona alþjóð-
legt hótel myndi styrkja veralega
stöðu Reykjavíkur sem ráðstefnu-
borgar og efla ferðaþjónustu hér
á landi og alla þá aðila sem starfa
að henni.“
í samþykkt skipulagsnefndar
er lagt til við borgarráð að sótt
verði um breytingu á staðfestu
deiliskipulagi Skúlagötusvæðisins
á fyrirhugaðri lóð hótelsins. í
greinargerð borgarskipulagsins
með tillögunni segir að gert sé ráð
fyrir hóteli á lóð númer 14 við
Skúlagötu, minni íbúðarbyggð á
lóð númer 12 og niðurfellingu á
byggingarrétti á lóð í svokallaðri
hljóðmön við Skúlagötu. Heildar-
nýting verður í samræmi við deili-
skipulagið og kröfum um bifreiða-
stæði verður fullnægt. Fram kem-
ur að hótelið fær annan svip og
annað umfang en íbúðarbyggðin
eða eins og segir í greinargerð-
inni: „Það er einnig þekkt í sögu
borga og í samræmi við eðli starf-
seminnar að stór miðborgarhótel
séu markandi í heildarsvip byggð-
ar.“
Bent er á að miðað við hug-
myndir skipulagsins opni tillagan
útsýni til norðurs fyrir hluta
byggðarinnar í „Skuggahverfinu"
þar sem húsið er mjótt að byggð-
inni og ströndinni. Einnig eru felld
niður hús sem gert var ráð fyrir
í skipulaginu norðan Lindargötu.
Húsið muni lítið angra byggð fyr-
ir austan og vestan með sólskugga
vegna fjarlægðar og skuggi af
suðlægri sól fellur út á Skúlagötu
og Sætún.
Tillagan verður lögð fyrir borg-
arráð í dag og síðan fyrir bygging-
arnefnd.
sameiningu og ég held að þessi
, kaup eigi eftir að styrkja stöðu
Pólaris og Veraldar," sagði Svavar.
Pólaris skrifaði undir samning
við Samvinnuferðir á föstudaginn
en fyrirvari var á samningnum.
Pólaris rifti þeim samningi í gær.
Að sögn Páls Jónssonar, annars
aðaleiganda Pólaris, var samning-
urinn ekki frágenginn. „Við gátum
ekki sætt okkur við tilboð Sam-
vinnuferða og ákváðum að hafna
því,“ sagði Páll.
Helgi Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða, sagði að
Samvinnuferðir myndu ekki reyna
að koma í veg fyrir riftunina. „Við
munum láta þetta standa og ætlum
ekki einu sinni að athuga hvort
þessi riftun er lögleg. En við erum
ekki ánægðir með þessi vinnu-
brögð,“ sagði Helgi. „Það er aug-
ljóst að eigendur Pólaris hafa feng-
ið betra boð og ef það leysir vanda
þeirra munum við ekki standa í
vegi fyrir þeim. Samvinnuferðir eru
stór ferðaskrifstofa og þessi samn-
ingur hafði ekki veralega þýðingu
fyrir okkur,“ sagði Helgi.
í fyrsta
skipti tvær
konur í
Hæstarétti
TVÆR konur sátu í fyrsta skipti
í Hæstarétti Islands í gær þegar
Auður Þorbergsdóttir borgar-
dómari tók sæti sem varadómari
í refsimáli sem þá var flutt.
Guðrún Erlendsdóttir hæsta-
réttardómari skipar einnig dóm-
inn í málinu.
Með Auði og Guðrúnu dæma
hæstaréttardómararnir Guðmund-
ur Jónsson, Hrafn Bragason og
Gunnar M. Guðmundsson, settur
hæstaréttardómari, þetta mál.