Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 2
2 Í8SJ 5HHC'T>I0 .)>£ ÍIUDAQULGIÍM GÍGAIíIl^IJOflOM MORGUNBLAÐIÐ ÍRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1989 Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra: Leggur fljótlega fram þingsályktunartillögfu STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra telur stækkun ál- vers í Straumsvík geta skipt miklu máli í því erfiða atvinnuástandi sem gera megi ráð fyrir á næstunni, einkum suðvestanlands. Iðnað- arráðherra segir að fljótlega muni hann leggja fram þingsálykt- unartillögu um stækkun álversins. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra flutti stefnuræðu sína í Sameinuðu þingi í gær- kvöldi. í stefnuræðunni kom meðal annars fram að gert er ráð fyrir að viðræðum íslenskra stjórnvalda við erlenda aðila um stækkun ál- vers ljúki fljótlega. Benti Steingrímur á í ræðu sinni að með byggingu álvers mætti auka hag- vöxt um einn af hundraði og at- vinnu um 0,5 af hundraði. „I því ástandi þjóðarbúsins sem nú er, er nauðsynlegt að skoða þennan kost vandlega,“ sagði Steingrímur. í ræðu sinni tilkynnti Steingrím- ur einnig að ríkisstjómin hefði ákveðið að afnema verðtryggingu fjármagns og sjálfvirkar viðmiðan- ir hvers konar. Kvað Steingrímur það verða gert þegar verðbólga á 6 mánaða mælikvarða væri komin undir 10 af hundraði. „Er þess vænst að svo geti orðið á seinni hluta ársins 1990.“ Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi stóriðjustefnu ríkisstjómarinnar; treysti forsætisráðherra sér ekki til þess að kveða fastar að orði en svo að skoða ætti þann kost að stækka álverið í Straumsvík. „Þögnin er látin tala um það hvort stjómarflokkarnir og fulltrúar þeirra í stjórn Landsvirkjunar ætli að taka ábyrgð á því orkuverði sem hugmyndir era nú um. Þorsteinn tilkynnti og í ræðu sinni að Sjálfstæðisflokkurinn stefndi að því að afnema „vinstri- stjómarskattheimtuna"; ekkna- skatturinn yrði afnuminn, tekju- skattinum yrði strax komið í sama horf og við upphaf staðgreiðslu og unnið yrði að því lækka virðisauka- skattinn til samræmis við núver- andi söluskattshlutfall. Þorsteinn gagnrýndi og forsæt- isráðherra fyrir að taka ekki fyrir þau mál sem helst hefðu brannið á þjóðinni „vegna virðingarleysis hennar fyrir lögum, almennum stjómsýsluvenjum, trúverðugleika og sannsögli". I máli Jóns Sigurðssonar iðnað- arráðherra kom fram að líkur væra á því að viðunandi samningar tækj- ust við Atlantal-hópinn svokallaða um stækkun álversins í Straumsvík. Myndi hann leggja fram þingsályktunartillögu vegna þessa á Alþingi á næstunni. Sjá stefiiuræðu forsætisráð- herra á miðopnu. Lést í umferðarslysi Frá slysstað á Laugavegi í gærmorgun. Morgunbiaðið/Júiius Slasaðist illa í hörðum árekstri MAÐUR á sjötugsaldri slasaðist alvarlega í hörðum árekstri við Heklu-húsið á Laugavegi í gærmorgun og var fluttur meðvitund- arlaus á sjúkrahús. Maðurinn ók Nissan-fólksbíl sínum austur Laugaveg eftir hægri akrein og er talið að hann hafi beygt yfir vinstri akrein og ætlað að taka U-beygju vestur Laugaveg þegar hann lenti í vegi fyrir Toyota jeppa á leið austur eftir vinstri akrein. Áreksturinn var harður. Öku- maður fólksbílsins tvífótbrotnaði og hlaut innvörtis áverka. Tækjabíll slökkviliðsins þurfti að koma á vettvang til að losa hann úr flaki bílsins. Okumaður og far- þegi í jeppanum vora einnig flutt- ir á slysadeild en fengu að fara heim að lokinni skoðun. ÁTJÁN ára stúlka beið bana er bíll sem hún ók lenti út af vegi í Landbroti í V-Skaftafellssýslu á Iaugardag. Talið er að ökumaður hafi misst stjórn á bílnum, sem rann til á veg- inum, lenti á vegaskilti og fór tvær til þijár veltur utan vegar. Ökumað- ur kastaðist út úr bílnum og mun hafa látist samstundis. Tveir far- þegar, sem vora í bílnum, sluppu með minniháttar meiðsli. Ingibjörg Guðrún Hilmarsdóttir var 18 ára, fædd 25. ágúst 1971 og bjó á Kársnesbraut 27 í Kópa- vogi. Hún lætur eftir sig móður og þijú systkini. Stefiit að sameiningii Pólaris og Veraldar Ingibjörg Guðrún Hilmarsdóttir FERÐAMIÐSTÖÐIN Veröld keypti í gær ferðaskrifstofuna Pólaris og rífti um leið samningi sínum við Samvinnuferðir/Landsýn en á föstudaginn var undirritaður samningur um kaup Samvinnuferða á Pólaris. Að sögn Svavars Egilssonar, eiganda Veraldar, er stefnt að því að sameina Veröld og Pólaris í framtíðinni en fyrst um sinn verði ferðaskrifstofurnar tvær reknar með sama sniði og áður. „Þetta kom nokkuð snöggt upp Pólaris sameinist en það mun og það á eftir að ganga frá ýmsu. Ííklega taka nokkurn tíma,“ sagði Eg reikna með því að Veröld og Svavar. „Það er mikil hagræðing í Til vinstri er Hótel Eimskip séð fi-á Skúlagötu en teikningin til hægri sýnir hótelið frá Vatnsstíg. Skipulagsnefiid; Tillaga að Hótel Eimskip samþykkt TILLAGA arkitektanna Garðars Halldórssonar og Ingimundar Sveinssonar að Hótel Eimskip við Skúlagötu var samþykkt af meirihluta skipulagsnefndar í gær. Gert er ráð fyrir að hótelið verði 17.830 fermetrar að stærð á fimmtán hæðum með 219 tveggja manna herbergjum, veitingasölum, sundlaug, heilsurækt og bifreiðageymslu og er nýtingarhlutfall lóðanna að meðaltali 2,04. Að sögn Þorkels Sigurlaugs- sonar framkvæmdastjóra þróun- arsviðs Eimskips er næsta verk- efni að gera áætlanir um kostnað við byggingu hótelsins og endur- skoða hagkvæmni þess. „í fram- haldi af því verður metið hvort grandvöllur sé fyrir byggingu, fjármögnun og rekstri svona hót- els,“ sagði Þorkell. „Sheraton- hótelkeðjan hefur meðal annars verið nefnd sem hugsanlegur rekstraraðili. Ekki verður þó ráð- ist í svona íjárfestingu nema að vel athuguðu máli. Svona alþjóð- legt hótel myndi styrkja veralega stöðu Reykjavíkur sem ráðstefnu- borgar og efla ferðaþjónustu hér á landi og alla þá aðila sem starfa að henni.“ í samþykkt skipulagsnefndar er lagt til við borgarráð að sótt verði um breytingu á staðfestu deiliskipulagi Skúlagötusvæðisins á fyrirhugaðri lóð hótelsins. í greinargerð borgarskipulagsins með tillögunni segir að gert sé ráð fyrir hóteli á lóð númer 14 við Skúlagötu, minni íbúðarbyggð á lóð númer 12 og niðurfellingu á byggingarrétti á lóð í svokallaðri hljóðmön við Skúlagötu. Heildar- nýting verður í samræmi við deili- skipulagið og kröfum um bifreiða- stæði verður fullnægt. Fram kem- ur að hótelið fær annan svip og annað umfang en íbúðarbyggðin eða eins og segir í greinargerð- inni: „Það er einnig þekkt í sögu borga og í samræmi við eðli starf- seminnar að stór miðborgarhótel séu markandi í heildarsvip byggð- ar.“ Bent er á að miðað við hug- myndir skipulagsins opni tillagan útsýni til norðurs fyrir hluta byggðarinnar í „Skuggahverfinu" þar sem húsið er mjótt að byggð- inni og ströndinni. Einnig eru felld niður hús sem gert var ráð fyrir í skipulaginu norðan Lindargötu. Húsið muni lítið angra byggð fyr- ir austan og vestan með sólskugga vegna fjarlægðar og skuggi af suðlægri sól fellur út á Skúlagötu og Sætún. Tillagan verður lögð fyrir borg- arráð í dag og síðan fyrir bygging- arnefnd. sameiningu og ég held að þessi , kaup eigi eftir að styrkja stöðu Pólaris og Veraldar," sagði Svavar. Pólaris skrifaði undir samning við Samvinnuferðir á föstudaginn en fyrirvari var á samningnum. Pólaris rifti þeim samningi í gær. Að sögn Páls Jónssonar, annars aðaleiganda Pólaris, var samning- urinn ekki frágenginn. „Við gátum ekki sætt okkur við tilboð Sam- vinnuferða og ákváðum að hafna því,“ sagði Páll. Helgi Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Samvinnuferða, sagði að Samvinnuferðir myndu ekki reyna að koma í veg fyrir riftunina. „Við munum láta þetta standa og ætlum ekki einu sinni að athuga hvort þessi riftun er lögleg. En við erum ekki ánægðir með þessi vinnu- brögð,“ sagði Helgi. „Það er aug- ljóst að eigendur Pólaris hafa feng- ið betra boð og ef það leysir vanda þeirra munum við ekki standa í vegi fyrir þeim. Samvinnuferðir eru stór ferðaskrifstofa og þessi samn- ingur hafði ekki veralega þýðingu fyrir okkur,“ sagði Helgi. í fyrsta skipti tvær konur í Hæstarétti TVÆR konur sátu í fyrsta skipti í Hæstarétti Islands í gær þegar Auður Þorbergsdóttir borgar- dómari tók sæti sem varadómari í refsimáli sem þá var flutt. Guðrún Erlendsdóttir hæsta- réttardómari skipar einnig dóm- inn í málinu. Með Auði og Guðrúnu dæma hæstaréttardómararnir Guðmund- ur Jónsson, Hrafn Bragason og Gunnar M. Guðmundsson, settur hæstaréttardómari, þetta mál.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.