Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 22
22 esei naaoTHo ííuaAauiaifla GiöAjaMuofloi MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1989 Morgunblaðið/Bjami Það var þröngt setinn Svarfaðardalur í húsakynnum Ríkisútvarpsins við Efstaleiti við upphaf bókaviku og nutu ungir sem aldnir dagskrár- innar og þess, sem á boðstólum var. Börn og bækur: Allir kirkjustaðir landsins falli undir skipulagslög TILLAGA þess efiiis að allir kirk- justaðir landsins falli undir skipulagslög og að samráð sé haft við kirkjuyfirvöld þégar ný hús eru reist á kirkjustöðum var flutt á Kirkjuþingi í gær. í tillögunni er gert ráð fyrir að allir kirkjustaðir verði skipulags- skyldir, einnig þeir sem jafnframt eru lögbýli þar sem hefðbundinn búskapur er rekinn. Sett verði ákvæði í byggingarreglugerð um að leita skuli umsagnar kirkjuyfir- valda í héraði áður en byggingar- leyfi er veitt á kirkjustað fyrir öðr- um byggingum, svo sem íbúðar- húsum og eða útihúsum á lögbýlum. í þriðja lagi gerir tillagan ráð fyrir að ákvæði laga, sem fjallar um stað- setningu kirkna við skipulagningu lagningar í stijálbýli. Að sögn flutningsmanns, Þór- halls Höskuldssonar, er tilgangur tillögunnar að tryggja að hjá skipu- lags- og byggingaryfirvöldum verði hugað að stöðu kirknanna, ekki síst til sveita, og réttur þeirra tryggður þegar öðrum byggingum er valinn staður í nágrenni kirkju eða útlit þeirra ákveðið. „Og það á líka við þótt byggt sé ijarri kirkjunni, t.d. þegar nýtt íbúðarhús er reist á kirk- justað til sveita. Oft getur þá sköp- um skipt um starfsmöguleika kirkj- unnar hver fjarlægð hennar er frá bæjarhúsum," segir flutningsmaður m.a. í greinargerð. í skipulagslögum er gert ráð fyr- ir meðhöndlun lögbýla á annan veg en skipulagsskyld svæði. Byggingar á lögbýlum koma ekki til kasta skipulagsstjórnar heldur aðeins byggingarnefndar og sveitastjórn- Tillaga þessa efnis var borin fram á Kirkjuþingi í gær af Þórhalli Höskuldssyni, sóknarpresti á Akur- eyri. „Kirkjuþing minnir á hve mik- ilvægt er fyrir máluppeldið að hinir fullorðnu gefi börnunum tíma, tali við þau og lesi fyrir þau. Sérstak- lega hvetur þingið presta og aðra starfsmenn safnaðanna til að leggja sitt af mörkum í barnastarfi kirkj- unnar og styðja þetta átak eftir ar. Tillagan gengur þannig út á að allir kirkjustaðir sæti sömu meðferð hjá skipulags- og byggingaryfir- völdum og að tryggt sé að ekki séu gerðar minni kröfur fyrir kirkju- staði í stijálbýli en í þéttbýli. megni og minnir á hve mikilvægan þátt kirkjan hefur alla tíð átt í málrækt þjóðarinnar." Þórhallur benti á það í framsögu sinni, að meirihluti af vökutíma barna og unglinga færi í að hlusta á erlenda tungu í gegnum sjónvarp og dægurtónlist. Því væri mikil þörf á öflugu mótvægi.af hálfu for- eldra og uppalenda. Félag fréttamanna: Mótmælir afskipt- um Utvarpsráðs Kirkjuþing fagnar málræktarátaki „KIRKJUÞING 1989 fagnar því málræktarátaki, sem nú fer fram á vegum menntamálaráðuneytisins og hvetur eldri sem yngri til að taka höndum saman um að varðveita og rækta móðurmálið." Bókaútgefendur gangast fyrir sérstakri bamabókaviku Málræktarátak í skólum og aukin virkni bókasafna þessa vikuna BÖRN og bækur er yfirskrift barnabókaviku, sem nú stendur yfir í húsakynnum Ríkisútvarps- ins við Efstaleiti. Jafiiframt er þessi vika helguð málrækt í grunnskólum landsins og al- mennings- og skólabókasöfn verða með ýmislegt til að krydda starfsemina. Barnabókavikan var opnuð við hátíðlega athöfii á sunnudag af forseta íslands Vigdísi Finnbogadóttur. Utvarp- að var beint frá athöftiinni. Barnabókavikan er á haldin á vegum Félags íslenzkra bókaútgef- enda, en bókasýninguna hýsir Ríkisútvarpið í húsakynnum sínum að Efstaleiti og skipuleggur heim- sóknir á hana. Við opnun sýningar- innar bauð útvarpsstjóri, Markús Örn Antonsson, gesti velkomna og síðan opnaði forsetinn hana form- lega. Að auki ávörpuðu samkomuna Jón Karlsson, formaður Félags íslenzkra bókaútgefenda, Iðunn Steinsdóttir, rithöfundur og Guðrún Ágústsdóttir, aðstoðarmaður menntamálaráðherra. Fjölbreytt tónlist og fjöldasöngur krydduðu svo samkomuna, en Brúðuleikhúsið var með sýningu utan dyra og kunn- ingjar barnanna úr Stundinni okkar voru á vappi meðal fólksins inni. Ríkisútvarpið skipuleggur heim- sóknir á sýninguna, en hún er ekki opin nema fyrir skipulagða hópa. Á mánudag höfðu nær allir skoðun- artímar verið pantaðir, nema klukk- an 16.00 síðdegis. Efni tengt þess- ari viku verður svo víða að finna í dagskrá beggja útvarpsrása Ríkisútvarpsins og í sjónvarpinu. Ennfremur verður efnt til sam- keppni meðal grunnskólanema um ritgerð, smásögu eða ljóð á vegum bókaútgefenda og menntamála- ráðuneytisins og er skilafrestur í samkeppninni til 10. nóvember næstkomandi. í almennings- og skólabókasöfn- um verða sögustundir tíðar og rit- höfundar munu heimsækja söfnin í STJÓRN Félags fréttamanna hefur sent mótmæli til Útvarpsráðs vegna afskipta ráðsins af fréttastofu sjónvarpsins. Hér er átt við samþykkt Útvarpsráðs þar sem farið var fram á að Ingimar Ingimars- son hætti sem þingfréttamaður eða fengi anuan mann með sér. Innkaupastofiiun vill gera samning við Vara FJÓRIR af fimm stjórnarmönnum Innkaupastofnunar Reykjavíkur- borgar vilja ganga að nýju til samninga við Vara h/f um öryggis- gæslu í ýmsum stofnunum borgarinnar, en gildandi samningur við fyrirtækið um þessa þjónustu rennur út um næstu mánaðamót. Þetta mál kom til umræðu á fundi stjórnarinnar I gær. Borgarráð mun væntanlega ræða málið á fundi sínum í dag. Verkamannafélagið Dagsbrún hefur, eins og fram hefur komið, látið þetta útboð til sín taka og hefur skrifað borgarstjórn bréf þar sem þess er óskað að samið verði við Securitas h/f um gæsluna vegna deilu um skyldu starfsmanna Vara til aðildar að Dagsbrún. Tryggvi Þór Aðalsteinsson, sem tilnefndur er af Alþýðubandalaginu í stjórn Innkauapstofnunar, vildi að samið yrði við Securitas um verkið en aðrir stjórnarmenn, Magnús L. Sveinsson formaður, Anna K. Jóns- dóttir, Ólafur Jonsson, fulltrúar meirihlutans, og Kristinn Finn- bógason, fulltrúi Framsóknar- flokksins, vildu ganga til samninga við Vara, sem átti lægra tilboðið. Um er að ræða öryggisgæslu við skóla, dagheimili og nokkrar aðrar borgarstofnanir. töluverðum mæli. Þá verður fóstr- um á dagvistum boðið að koma á söfnin með börnin. í bréfinu segir að stjórn Félags fréttamanna vilji taka það fram að hún telji „. . . það ekki í verka- hring Útvarpsráðs að hlutast til um verkstjórn á einstökum deildum Ríkisútvarpsins. Stjórn FF mót- mælir framgöngu Útvarpsráðs í þessu máli og varar við fordæmi sem með henni er sett.“ Páll Benediktsson, formaður Fé- lags fréttamanna, sagði að Út- varpsráð hefði farið út fyrir verk- svið sitt. Það væri hlutverk frétta- stjóra að ákveða hvort einstakir fréttamenn væru hæfir í sínu starfi. Hlutverk Útvarpsráðs væri hins- vegar að hafa afskipti af dag- skránni en ekki einstökum deildum. Vonir bundnar við þenslumæla NÚ ERU 10 ÁR liðin frá því að þenslumælar voru settir í sjö borholur á Suðurlandi en menn binda miklar vonir við slík mælitæki í sambandi við jarðskjálftaspár, að sögn Ragnars Stefánssonar deildar- stjóra jarðeðlisfræðideildar Veðurstofu Islands. Camegie- stofnunin í Bandaríkjunum hefur lagt til þenslumælana en Veðurstofa Islands hefur séð um rekstur þeirra. Ragnar Stefánsson sagði í samtali við Morgunblaðið að enn væri ekki hægt að spá fyrir um jarðskjálfta. „Hins vegar má búast við breytingum á berg- spennu á undan stórum jarð- skjálftum og þenslumælar geta hugsanlega gefið slíkar breyt- ingar til kynna. Menn eru því að vonast til að fljótlega verði hægt að senda út gagnlegar við- varanir á undan stórum jarð- skjálftum.“ Ragnar sagði að Al- mannavarnir hefðu sýnt mæling- unum á Suðurlandi mikinn áhuga og þær yrðu strax látnar vita ef mælarnir sýndu miklar breytingar á bergspennunni. Glenn Poe og Michael See- Talið mann Morgunblaðið/Þorkell frá vinstri: Glenn Poe, Ragnar Stefánsson og Michael See- Langi sívalningurinn á mynd- inni er einn af þenslumælunum sem settir hafa verið í borholur á Suðurlandi til að mæla breyt- ingar á bergspennu. mann verkfræðingar hjá Carnegie-stofnuninni hönnuðu þenslumælana og hafa komið hingað nokkrum sinnum undan- farin ár til að setja þá niður. Þeir sögðu að slíkir mælar hefðu einnig verið settir niður í Kína, Perú, Kalifomíu og Japan. Hins vegar hefði Carnegie-stofnunin sett fleiri slík tæki niður hérlend- is en annars staðar í heiminum. Hver mælir kostar 25 þúsund Bandaríkjadali, eða um 1,5 millj- ónir króna, að sögn Glenn og Michael. Þenslumælunum var komið fyrir rannsóknaborholum og ónýtum 100 til 400 metra djúp- um holum sem boraðar höfðu verið eftir heitu vatni á sjö stöð- um á Suðurlandi, við Hellu, Búr- fell, Jaðar, Geldingaá, Stórólfs- hvol, Saurbæ í Holtahreppi og Skálholt. Mælarnir voru steyptif inn í bergið i borholunum með þansementi. Mæligildin eru send með útvarpssendum til Veður- stofunnar í Reykjavík, þannig að breytingar á bergspennu í holunum eiga að sjást þar strax.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.