Morgunblaðið - 24.10.1989, Page 24
Í24---------------------------------------- MORGUNBLAÐH) ÞRIÐJUDAGUR
fl<J (Il(
24
’ 1989
Reuter
Fyrrum eiginkona Bucks Helms, sem fannst á lífi á Oakland-brúnni,
ásamt tveimur börnum þeirra, fyrir utan Highland-sjúkrahúsið í San
Francisco. Fjöldi fólks hefúr haldið til við sjúkrahúsið og beðið fyr-
ir Helm.
Vitað er um 55 sem biðu bana í skjálftanum í San Francisco:
Fannst lifandi undir mörg-
um tonnum af steinsteypu
San Francisco. Reuter.
LÆKNAR reyndu í gær hvað þeir gátu til þess að bjarga lífí 57 ára
manns, Bucks Helms, sem fannst á lífi í rústum Oakland-brúnnar í
San Francisco á laugardag, Qórum dögum eftir að jarðskjálfti reið
yfir borgina. Vitað er um 55 menn, sem biðu bana í skjálftanum.
hæða hraðbraut milli Oakland og
Flestir þeirra létust er tveggja
San Francisco lagðist saman.
Um 250 vinir og vandamenn
Bucks Helms hafa haldið hópinn
fyrir utan Highland-sjúkrahúsið í
San Francisco þar sem hann berst
fyrir lífi sínu. Þykir það kraftaverk
að hann skyldi lifa af því bifreið
hans lagðist saman í orðsins fyllstu
merkingu. Bifreiðin lá samanklesst
undir morgum tonnum af stein-
steypu er slökkviliðsmaður fann
hann á laugardag. Sá hann hendi
sem stóð út úr brakinu hreyfast.
Helm hafði verið svo gott sem tal-
inn af. Reyndist hann mikið slasað-
ur en góðar vonir voru um að hann
næði sér.
Auk 55 látinna er vitað um 3.000
manns sem slösuðust í skjálftanum
og talið er að tjón á mannvirkjum
sé ekki undir 10 milljörðum dollara
eða 600 milljörðum ísl. króna. Um
8.000 manns misstu heimili sín.
Rafmagn fór af borginni en það var
að mestu komið á í gær. Eftir
skjálftann lá atvinnulíf í San Franc-
EINN af leiðtogum muhameðs-
trúarmanna á Bretlandi ítrekaði
á fúndi múhameðstrúarmanna í
Manchester um helgina kröfúna
um að Salman Rushdie, höfúndur
á mörgum aðalgötum borgarinnar
óg hafa þær því verið lokaðar vegna
viðgerða. Af þeim sökum myndaðist
mikil umferðarteppa víða í borginni
í gær er fólk sneri aftur til vinnu.
í gær var mikil úrkoma í San
Francisco og féllu aurskriður víða
í borginni. Óttast var að rigning
yrði til að auka á tjónið sem varð
í jarðskjálftanum í fyrri viku.
bókarinnar Söngva Satans, yrði
tekinn af lífi. Biskupinn í Man-
chester, sem sat fundinn, mót-
mælti þessari yfirlýsingu.
isco niðri þar til í gær. Tjón varð
Bretland:
T rúarleiðtogar
deila um Rushdie
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Könnun í Sovétríkjunum:
Míkhaíl Gorbatsjov reiður
vegna lítilla eigin vinsælda
Moskvu. Reuter, New York Times.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, nýtur mikils stuðnings
landsmanna sinna að því er fram kemur í skoðanakönnun, sem so-
véskt vikublað birti á laugardag. Fyrir rúmri viku birtist hins vegar
önnur skoðanakönnun í blaðinu þar sem Gorbatsjov komst ekki einu
sinni á blað og þá brást hann við með því að krefjast afsagnar rit-
stjórans. í öðru vikublaði kemur fram, að flestir Sovétmenn telja
kjörin ekkert hafa skánað vegna umbótastefnu Gorbatsjovs og hafi
raunar ekki átt von á því í bráð.
Fyrir um tíu dögum birti vikurit-
ið Argúmentíj í Faktíj vinsælda-
könnun, sem byggð var á 15.000
lesendabréfum, og var þar ekki
minnst á Gorbatsjov en róttækir
menn á borð við mannréttindafröm-
uðinn Andrei Sakharov, hagfræð-
inginn Gavríl Popov og Borís Jeltsín
röðuðu sér aftur á móti í efstu
sætin. Brást Gorbatsjov við með því
að boða til fundar með ýmsum rit-
stjórum, aðallega þeim fijálslynd-
ari, þar sem hann gagnrýndi þá
fyrir að draga upp dökka mynd af
árangri perestrojkunnar og Vadím
Medvedev, hugmyndafræðingur
kommúnistaflokksins, krafðist
þess, að Vladíslav Starkov, ritstjóri
Argúmentíj í Faktíj, segði af sér.
Því neitaði hann og 40 þingmenn
hafa lýst yfir stuðningi sínum við
hann.
Síðastliðinn laugardag birtist
síðan önnur könnun í vikublaðinu
og sagði þar jafnframt, að ranglega
hefði verið staðið að fyrri könnun-
ræðu, á fjölmiðlana og að undan-
förnu hefur hann hvað eftir annað
ráðist á þá, sem hann segir vera
að mála skrattann á vegginn. Hann
hefur þó aldrei gengið jafn langt
og með ummælum sínum um fyrr-
nefnda skoðanakönnun í Argú-
mentíj íFaktíj. Ef til vill hefur hann
viljað nota tækifærið til að sýna
andstæðingum sínum í flokknum,
að hann líði ekki hvað sem er, en
aðrir segja, að honum sé augljós-
lega um og ó.
„Ég held hann sé í raun mjög
taugaóstyrkur,“ sagði Andrei Sak-
harov. „Hér var ekki um neitt
kænskubragð að ræða. Hann átti
ekki von á, að fjölmiðlafrelsið yrði
jafn mikið og það er orðið og vegna
Míkhaíl Gorbatsjov
þess hve.ástandið í landinu er alvar-
legt er hann uggandi um afleiðing-
amar.“
Eins og fyrr segir hafa 40 þing-
menn lýst yfir stuðningi við rit-
stjóra Agrúmentíj í Faktíj og það
hefur vakið mikla athygli og furðu,
að einha fyrstur til þess varð Jegor
Lígatsjov, helsti fulltrúi afturhalds-
aflanna í kommúnistaflokknum.
Tatjana Kotjagína, sem sæti á í
ríkisskipáðri nefnd um efnahags-
legar umbætur, sagði í fyrri viku í
viðtali við lettneska æskulýðsblaðið
Sovetskaja Molodezh, að full
ástæða væri að óttast samsæri gegn
Míkhaíl Gorbatsjov og dró upp
dökka mynd af því, sem við tæki
undir yfirráðum afturhaldsins með
Jegor Lígatsjov í fararbroddi.
Koijagína sagði, að í stjórn-
málunum væru menn að skipast í
tvo hópa, annars vegar um menn
eins og Borís Jeltsín, sem vill rót-
tækar breytingar, og hins vegar um
Jegor Lígatsjov.
I viðtalinu sagði Koijagína, að
almenningur hefði andúð á
Lígatsjov og kæmist hann til valda
yrði efnt til allsheijarverkfalls í
landinu. „Þá verða yfirvöldin að
beita hernum fyrir sig og taka af
lífi þá, sem vinna gegn þeim. Fólk
mun aðeins vinna með byssuna yfir
sér,“ sagði Koijagína.
Leiðtogar múhameðstrúarmanna
boðuðu til fundarins til að ræða
afstöðuna til Söngva Satans. Bisk-
upi ensku biskupakirkjunnar í Man-
chester var boðið til fundarins, svo
og Gerald Kaufmann, talsmanni
Verkamannaflokksins í utanríkis-
málum.
Dr. Kalim Siddiqui, forstöðumað-
ur múhameðstrúarstofnunar í Lon-
don, sem þiggur fé af írönum, lýsti
því yfir í upphafi fundarins að fram-
fylgja ætti dauðadómi Khomeinis.
Síðan bað hann þá fundarmenn,
sem fylgjandi voru því, að rétta upp
hönd. Nánast allý 300 fundarmenn
gerðu það.
Þessi atburður kom hófsamari
leiðtogum múhameðstrúarmanna í
opna skjöldu. Bæði Kaufmann og
biskupinn mótmæltu þessum yfir-
lýsingum. Biskupinn ítrekaði eftir
fundinn að yfirlýsingar af þessu
tagi gætu varðað við lög vegna
þess að bannað væri að hvetja til
lögbrota á Bretlandi. Hann hvatti
lögregluna til að athuga málið.
í síðustu viku kom fram í BBC-
sjónvarpinu í þætti um múhameðs-
trúarmenn að þriðjungur breskra
múhameðstrúarmanna væri á þeirri
skoðun að Rushdie skyldi drepinn.
ERLENT
Fundur leiðtoga breska samveldisins í Kuala Lumpur:
Hart deilt um afstöðuna til Suður-Afríku
inni. Þá hefði hefði aðeins verið
byggt á skoðunum þeirra, sem
hefðu haft fyrir því að skrifa blað-
inu. I nýju könnuninni voru tæplega
2.500 manns spurðir og kváðust
þá 66% styðja Gorbatsjov. Argú-
mentíj í Faktíj er víðlesnasta viku-
blað í Sovétríkjunum og kemur út
í rúmlega 26 milljón eintökum
I skoðanakönnun á sunnudag í
öðru vinsælu vikuriti, Ogonjok, kom
fram, að 35% bjuggust ekki við, að
umbótastefna Gorbatsjovs breytti
miklu í náinni framtíð; 16% töldu,
að allt myndi sitja við það sama,
og 18%, að ástandið myndi versna.
Aðeins 12% trúðu á breytingu til
batnaðar á næstu árum.
Svo virðist sem Gorbatsjov sé
farinn að gerast órór yfir afleiðing-
um glasnosts, hreinskilinnar um-
Kuala Lumpur. Daily Telegraph, Reuter.
LEIÐTOGAR ríkja breska samveldisins samþykktu á fúndi sínum í
Kuala Lumpur á sunnudag að falla ekki frá efnahagslegum refsiað-
gerðum gegn suður-afrískum sljórnvöldum fyrr en fúlHjóst væri að
breyting hefði orðið á stefiiu þeirra í kynþáttamálum. Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, birti hins vegar síðar eigin
yfirlýsingw, þar sem segir að mikilvægar breytingar hafi þegar orðið
í Suður-Afríku og því beri að hvelja stjórnina í Pretoríu til að halda
áfram á sömu braut en ekki að refsa henni. Aðrir leiðtogar á fundin-
um, svo sem forsætisráðherrar Ástralíu og Kanada, gagnrýndu yfir-
lýsingu Thatcher harðlega.
Thatcher undirrítaði sameigin-
lega yfirlýsingu leiðtoganna þótt
hún væri ósammála fjórum atriðum
í henni. Þau eru:
• Suður-afrísk stjórnvöld verði
beitt frekari efnahagslegum þiýst-
ingi með því að herða refsiaðgerð-
irnir og bannið við kaupum á suð-
ur-afrískum vopnum.
• Komið verði á fót óháðri stofnun
til að fylgjast með alþjóðlegum fjár-
málatengslum Suður-Afríkumanna.
• Staðhæfing um að refsiaðgerð-
irnar séu farnar að hafa áhrif á
stefnu Suður-Afríkustjómar.
• Sérstök nefnd utanríkisráðherra
samveldisríkjanna skili skýrslu eftir
sex mánuði um hvort umbætur
hafi orðið í Suður-Afríku.
í yfirlýsingu bresku stjórnarinnar
segir að mikilvægar breytingar hafi
orðið í Suður-Afríku frá síðasta
fundi leiðtoganna í Vancouver. Því
beri samveldisríkjunum að hvetja
til áframhaldandi umbóta fremur
en að beita frekari refsiaðgerðum.
Aðrir leiðtogar brugðust ókvæða
við yfirlýsingu Breta. Robert
Mugabe, forseti Zimbabwe, sagði
að framkoma Thatcher á fundinum
hefði verið „auvirðileg" og „ófyrir-
gefanleg". Hún hefði sýnt að Bretar
væru fylgjandi aðskilnaðarstefnu
suður-afrískra stjórnvalda. Hann
kvaðst aðeins hafa fallist á mála-
miðlun varðandi orðalag sameigin-
legu yfirlýsingarinnar vegna þess
að Thatcher hefði samþykkt hana.
„Ég bjóst alls ekki við að Bretar
færa að afneita henni,“ sagði for-
setinn.
John Major, utanríkisráðherra
Bretlands, vísaði á bug ásökunum
um að yfirlýsing Breta væri ögrun
við aðra leiðtoga á fundinum. „Það
er furðulegt að halda því fram að
Bretar megi ekki útskýra eigin
stefnu,“ sagði utanríkisráðherrann.
Hann sagði að sameiginlega yfirlýs-
ingin sýndi að leiðtogar samveld-
isríkjanna hefðu nálgast sjónarmið
bresku stjórnarinnar. Til að mynda
væri viðurkennt í yfirlýsingunni að
breytingar hefðu þegar orðið í Suð-
ur-Afríku.