Morgunblaðið - 24.10.1989, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 24.10.1989, Qupperneq 56
 NÝTTUÞÉR f^ ELDHÚSTÆKJA 1 TILBOÐIÐ FRÁ ■ ■ mbm ss damixa i m Gott fólk býður góðan daginn ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Fjögurra og tveggja ára fangelsi fyr- ir kókaínsölu ÞRIR menn voru í gær dæmdir í Sakadómi í ávana- og fikniefiia- málum fyrir meðhöndlun á liðlega 220 grömmum af kókaíni. Ingi Sörensen, 45 ára gamall, hlaut 4 ára fangelsi fyrir sölu, dreifingu og meðhöndlun efhisins. Helgi Bernharðsson Helgason, 33 ára, hlaut 2 ára fangelsi fyrir með- höndlun og söltt á hluta elhisins. Þriðji maðurinn hlaut 70 þúsund króna sekt en hann hafði keypt af efninu til eigin nota. Ingi var sakfelldur fyrir að hafa efnið undir höndum frá miðjum júní á þessu ári þar til hann var handtekinn þann 28. júlí. Á heimili hans fundust við handtöku 60,5 grömm af kókaíni. Afganginum hafði hann ráðstafað og selt grammið á 6-7.000 krónur. Hann var dæmdur til að sæta upptöku á 330 þúsund krónum í reiðufé. Helgi B. Helgason hafði einnig selt hluta efnisins á 8.500 krónur grammið. Af heildarmagninu kom lögregla höndum yfir um 140 grömm af nær hreinu kókaíni við húsleit. Ásgeir Friðjónsson sakadómari kvað upp dóminn. 23 látist í umferðinm á þessu ári ÞAÐ SEM af er þessu ári hafa 23 látið lífið í umferðarslysum hér- lendis. Á sama tíma í fyrra höfðu 22 látist, en það ár létu alls 29 lífið í umferðarslysum. Mörg undanfar- m ár hafa banaslys í umferðinni að meðaltali verið 24 á ári. Það sem af er árinu hafa 2 látist í umferðarslysum í Reykjavík, sem urðu í mai og júní. í sveitarfélögum næst höfuðborginni, þ.e. Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, hefur 1 lát- ist og í dreifbýlinu 20, þar af 4 í þessum mánuði. í fyrra létust 10 í umferðinni í Reykjavík, sem var óvenju há tala. Þar af létust 7 fyrstu 6 mánuði ársins. Það ár létust 16 í dreifbýlinu og 3 á Stór-Reykjavíkur- svæðinu, alls 29. Á þessu ári hafa 23 látist í 17 umferðarslysum og á sama tíma í fyrra höfðu 22 látist, einnig í 17 slysum. iviurguiiuiauiu/ xvctgiiítr axuissuh Pétur Vilbergsson stýrimaður á Heklu þar sem hann stóð þegar brotsjórinn reið yfir skipið og fyllti brúna á einu augnabliki. Sjórinn í brúnni náði okkur í háls - segir Pétur Yilbergsson stýrimaður á Heklu BÁTSMAÐURINN á strandferðaskipinu Heklu beið bana þegar skip- ið fékk á sig brotsjó um fímm sjómílur norðaustur af Oðinsboða í Húnaflóa síðastliðinn laugardag. Bátsmaðurinn hét Júlíus Breiðíjörð Skúlason. Hann var 41 árs gamall, fæddur 29. maí 1948, til heimilis að Borgarheiði 22 í Hveragerði. Júlíus lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Milljóna tjón varð þegar Hekla fékk mjög harðan brotsjó framan á brú skipsins með þeim afleiðing- um að rúður í íbúðum skipveija og rúður í brú splundruðust og sjór fossaði inn í brú og vistarverur, eyðilagði tækjabúnað og tætti í sundur þilveggi og leiðslur. „Það voru 11 vindstig þarna, mikill sjór og skipið var uppi á toppnum á stórri öldu þegar brot- sjór reis ennþá hærra fyrir framan skiþið á örskoti og við höfðum varla . tíma til að snúa okkur við áður en brúin var orðin full af sjó, vélarnar stoppaðar og þegar við tveir sem vorum á vakt í brúnni náðum að standa á fætur stóðum við í sjó upp í háls í brúnni,“ sagði Pétur Vilbergsson stýrimaður á Heklunni í samtali við Morgunblaðið. „Mér skolaði inn í kortaklefa fyrir aftan brúna, en ég reyndi strax að bijótast að stýrinu til þess að beygja skipinu undan og tókst það að einhveiju leyti. Það var ótrú- legt að sjá hvernig brotsjórinn reið yfir skipið á augabragði, en hnútur- inn var ámóta breiður og sjálft skipið, því ég sá vel hafið báðum megin við brotsjóinn. Við höfðum slegið af skömmu áður og sigldum á um 5 mílna ferð. Þar sem önnur brúarhui'ðin var opin að hluta með krókfestingu flæddi sjórinn þat' út, en stjórntækjin í brúnni voru meira og minna óvirk. Stýrið var þó virkt og eftir að vélstjórarnir komu skipsvélunum í gang aftur gátum við athafnað okkur og haldið undan veðrinu, en við vorum á Ieið frá Norðurfirði og vestur um þegar óhappið varð um 5 sjómílur norð- austur af Oðinsboða. Ég hef verið sjómaður í 14 ár við ýmsar aðstæð- ur, en aldrei séð neitt þessu líkt.“ Gert var við Heklu til bráða- birgða á Hólmavík og var búist við að þaðan færi hún í fylgd varð- skips í nótt eða í býtið í morgun. Skipið fer í slipp á Akureyri, en að sögn Guðmundar Einarssonar, forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, er þar eini slippur landsins sem getur tekið upp jafn stórt skip. Hann sagði það nauðsynlegt svo kanna mætti hvort skemmdir hefðu orðið á botni og skrúfu. Búist er við að viðgerðin taki nokkrar vikur. Guð- mundur sagði að Skipaútgerðin myndi leita til annarra skipafélaga til að sinna flutningum og reynt yrði að komast hjá því að leigja skip til að sinna verkefnum Heklu. Sjá ennfremur blaðsíðu 18. Skriður að komast á salt- síldarviðræður í Moskvu VIÐRÆÐUR um sölu saltsíldar til Sovétríkjanna hófúst í Moskvu í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun nokkur skriður kominn á viðræðurnar og vonir bundnar við að samning- ar náist í þessari ferð. Gunnar Flóvenz, framkvæmdastjóri Síldarútvegsnefndár, sagði í samtali við Morgunblaðið i gær, Fiskiðjan Freyja á Suðureyri: Fyrirtækið innsiglað verði skuldir ekki greiddar FISKIÐJAN Freyja á Suðureyri verður innsigluð á næstu dögum ef opinberar skuldir hennar verða ekki gerðar upp, að sögn Péturs Kr. Hafstein sýslumanns á Isafirði. Greiðslustöðvun fyrirtækisins undan- farna 5 mánuði rann út á sunnudag. Ef til gjaldþrots fyrirtækisins kemur munu allt að 70% starfandi fólks á Suðureyri missa atvinnuna. Stjórn Hlutafjársjóðs Byggða- stofnunar hefur tvívegis vísað frá beiðni um fyrirgreiðslu, en í gær- morgun voru enn lagðar fram nýjar óskir fyrir stjórn sjóðsins. Að sögn Guðmundar Malmquist forstjóra Byggðastofnunar veltur allt á viðbrögðum helstu kröfuhafa Freyju hvort af fyrirgreiðslu getur orðið, svo sem fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, Sambands íslenskra samvinnufélaga og fleiri. Kröfur þessara aðila eru umtalsverðar og eru þar á meðal kröfur með ríkis- ábyrgð til dæmis vegna gamla Út- vegsbankans. Guðmundur sagði að til þess að Hlutafjársjóður gæti hugs- anlega komið fyrirtækinu til aðstoðar þyrftu kröfuhafarnir að afskrifa verulegan hluta af kröfum sinum. Ragnar Jörundsson sveitarstjóri á Suðureyri sagði að kröfuhafar á Suðureyri væru tilbúnir að gefa eftir eins mikið af kröfum sínum og þeir frekast geta. Þess má geta að togarinn Elín Þorbjarnardóttir og báturinn Sigur- von landa alltaf í heimahöfn. Atvinna hefur því verið næg á Suðureyri og þar hefur vantað fólk til starfa. að ekkert væri enn hægt að segja um gang mála. „Ég tel að skriður sé kominn á þessar viðræður, samninganefnd Síldarútvegsnefndar hefur verið kölluð til Moskvu til viðræðna og þær eru hafnar af alvöru. Sovésku kaupendurnir hafa fengið gjaldeyr- isheimild til viðskiptanna og það liggur fyrir hvei' ramminn í þessum viðskiptum þjóðanna er. Ég hef því þá trú að_ samningar takist," sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. íslenzka samninganefndin kom til Moskvu á laugardagskvöld og hófust viðræður við sovézku kaup- endurna á mánudagsmorgun. Gunnar Flóvenz sagði að fundum yrði haldið áfram næstu daga og hann gæti ekki tjáð sig um fram- vinduna. Fyrstu viðræður um saltsíldarsöl- una hafa aldrei hafizt svona seint, en venjulega hefur verið búið að ganga frá samningum ekki síðar en í lok október eða byijun nóvem- ber. Gjaldeyrisheimild hefur venju- legast staðið í vegi fyrir samninga- gerðinni, þar sem síldin, sem verið ei' að selja austur, fellur undir fjár- lög næsta árs í Sovétríkjunum. Að fenginni heimild hefur hins vegar oftast komið skriður á samninga- gerðina. Síldin er séld til Sovétríkj- anna í dollurum, en hækkun á þeim gjaldmiðli gagnvart krónunni er um 24% milli síldarvertíða. Keppikefli samningamanna er að ná fram verðhækkun, en líklegt er talið að það reynist erfitt. í samningum við Finna og Svía náðist nokkur verð- hækkun í gjaldmiðli þeirra þjóða frá samningum síðasta árs og vonast samningamenn til að sú staðreynd styrki samningsstöðu þeirra. Vonir eru bundnar við að samningar tak- ist í þessari ferð. í samningum um sölu á frystri síld til Japans og Evrópu hefur yfir- leitt samizt um sama eða svipað verð og á síðustu vertíð í gjaldmiðl- um hvers lands fyrir sig. í Japan var nú miðað við sama verð í jenum og í fyrra, en það er lítilsháttar lækkun talið í dollurum, en hækkun í krónum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.