Morgunblaðið - 30.12.1989, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.12.1989, Qupperneq 1
48 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 297. tbl. 77. árg. LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Havel verður forseti Tékkóslóvakíu: Kynnir sakarupp- gjöf um áramótin Prag. Reuter. Leikritahöfiindurinn Vaclav Havel, sem sat í fimm ár í fangelsi fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum og var lengi úthrópaður sem óvinur þjóðarinnar, sór í gær embættiseið sem forseti Tékkó- slóvakíu. Skömmu eftir að hann tók við embættinu hóf hann undir- búning sakaruppgjafar, sem kynnt verður um áramótin. Það var sjálfur Alexander Dub- cek, sem leiddi Havel í ræðustól, fyrrum formaður kommúnista- flokksins, höfundur „Vorsins í Prag“ og núverandi þingforseti. Allir þingmennimir, 323 að tölu, studdu Havel sem forseta, þann fyrsta, sem ekki er kommúnisti frá árinu 1948. Fyrir aðeins sjö mán- uðum var hann í fangelsi fyrir undirróður gegn ríkinu. „Ég heiti því að bregðast ekki trausti ykkar og ég mun stýra landi og þjóð að fijálsum kosning- um,“ sagði Havel þegar hann tal- aði til þúsunda manna, sem safn- ast höfðu saman við Prag-kastala þar sem hátíðarfundurinn var haldinn. Fólkið fagnaði Havel og Olgu, konu hans, ákaflega, veifaði þjóðfánanum og söng „Stundin er upprunnin" og „Lengi lifi forset- inn“. Gífurlegar mótmælaaðgerðir í Tékkóslóvakíu neyddu kommún- ista til að sleppa alræðistökunum á landi og þjóð og fyrir rúmri viku féllust þeir á, að persónugervingur andófsins, Vaclav Havel, yrði for- seti. Þá hefur einnig verið skýrt frá því, að Miroslav Stepan, áður háttsettur félagi í stjómmálaráð- inu, verði saksóttur fyrir að bera ábyrgð á ofbeldi lögreglunnar gegn mótmælendum. Þegar kjöri Havels var fagnað báru margir borða þar sem á var letrað „Sannleikurinn sigrar“ en það var slagorðið í andófinu gegn kommúnistum. Þau voru líka ein- kunnarorð Tomas Masaryks, hins mikils metna og fyrsta forseta Tékkóslóvakíu á árunum 1918-35. í augum Tékka og Slóvaka er Havel hinn eiginlegi eftirmaður Masaryks og í verslanagluggum og annars staðar um allt landið eru hafðar uppi myndir af þeim báðum saman. Vaclav Havel sór í gær embættiseið sem forseti Tékkóslóvakíu. Hér veifa þau hjónin, Havel og Olga, kona hans, til mannfjöldans, sem kom saman til að fagna nýja forsetanum en í augum Tékka og Slóvaka er Havel hinn eiginlegi eftirmaður Tomas Masaryks, fyrsta forseta landsins á árunum 1915-35. Rúmenía: Skriðdrekar að hverfa af götum Búkarest-borgar Búkarest. Reuter, Daily Telegraph. SKRIÐDREKUM var ekið af götum Búkarest-borgar í gær og yfirstjóm hersins lýsti því Póiska þingið: Afiiema ákvæði um forræði flokksins Markaðsbúskapur lögfestur VarsjA, Washington. Reuter. PÓLSKA þingið samþykkti í gær áætlun stjórnarinnar um umbætur í cfnahagsmálum en með henni er sagt, að frá og með 1. janúar 1990 skuli efnahagsstarfsemin lúta lögmálum markaðsbúskaparins. Ennfrem- ur var samþykkt að fella burt stjórnarskrárákvæði um forræði komm- únistaflokksins og nafni ríkisins var breytt í Lýðveldið Pólland. Vest- ræn ríki veittu Pólveijum i gær 500 milijón dollara neyðarlán til að milda afleiðingar aðhaldsaðgerðanna i cfnahagsmálum. Efnahagsmálaáætlunin er í 11 liðum og er þar meðal annars að fínna ný lög um bankastarfsemi, skattamál, gjaldeyrismál, sam- starfsverkefni og rétt vinnuveitenda til að segja upp fólki. Afleiðingarn- ar verða vafalaust þungbærar fyrir almenning og fyrirsjáanlegt er, að atvinnuleysi muni aukast mjög þeg- ar fjölda fyrirtækja, sem gengið hafa fyrir ríkisstyrk, verður lokað eða þau seld í hendur einstaklinga. Þá verður launum einnig haldið niðri til að koma böndum á verð- bólguna. Leszek Balcerowicz fjár- málaráðherra sagði í síðustu viku, að 5% vinnufærra manna, 890.000 af 17,6 miHjónum, yrðu hugsanlega atvinnulaus á næsta ári. Á þingi í gær voru einnig ræddar tillögur stjórnarinnar um breytingar á stjómarskránni og mættu þær harðri andstöðu margra þingmanna kommúnista. Samþykkt var þó að nema burt ákvæði um forræði flokksins og breyta nafni ríkisins í Lýðveldið Pólland, ekki Alþýðulýð- veldið Pólland. Vestræn iðnríki gengu í gær frá 500 milljón dollara láni til Pólveija en í janúar munu þeir fá einn milij- arð frá 22 vestrænum ríkjum. Síðastliðinn laugardag undirritaði pólska stjómin samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um 700 millj. dollara lán og með því var einnig greidd gatan fyrir margra milijarða dollara aðstoð vestrænna ríkja. Sjá grein á miðopnu. yfír að herinn hefði bæði tögl og hagldir í landinu. Allir þeir, sem sæti eiga í Þjóðarráðinu, alls 145 menn, eru þó enn flutt- ir á milli staða í brynvörðum vögnum og Nicolae Militaru, varnarmálaráðherra nýju stjórnarinnar, gaf fylgismönn- um Nicolae Ceausescus, fyrrum einræðisherra landsins, loka- frest til að leggja niður vopn, ella ættu þeir á hættu að verða teknir af lífi. Silviu Brucan, einn leiðtoga Þjóðarráðsins, sagði í viðtali við franska dagblaðið Le Monde að Kommúnistaflokkur Rúmeníu væri búinn að vera og mætti þakka fyrir að fá 5% at- kvæða í frjálsum kosningum. Aðstoðarutanríkisráðherrann í nýju stjórninni lét einnig svo ummælt að flokkurinn væri ekki lengur til. Cazimir Ionescu, varaforseti Þjóðarráðsins, sagði að hætta staf- aði enn af leyniskyttum, sem reyndu að ráða valdhafana af dög- um. Nokkrar þúsundir liðsmanna í öryggissveitunum, Securitate, hefðu verið handteknar en hundruð lékju enn lausum hala. „Fjöldi þeirra skiptir ekki máli, heldur það hversu vel þjálfaðir og vopnaðir þeir eru,“ sagði Ionescu. Silviu Brucan sagði í viðtalinu við Le Monde að fáránlegt væri að halda því fram að harðlínukommún- istar stjórnuðu Þjóðarráðinu eins og gert hefur verið. „Kommúnista- flokkur Rúmeníu átti engan þátt í byltingunni . . . Flokkurinn á hvorki hlut að máli í Þjóðarráðinu né byltingunni og við ætlum að halda því áfram,“ sagði hann. Margir Rúmenar halda því hins Hermaður horfir niður í neðan- jarðargöng við aðalstöðvar komm- únistaflokksins í Rúmeníu, en fylgismenn Ceausescus hafa notað göngin í árásum sinum á herinn. vegar fram að kommúnistar hafi enn of mikil völd í landinu og marg- ir þeirra séu of hallir undir Sovét- menn. í viðtali við bresku sjónvarpsstöð- ina Channel 4 sagði annar félagi í Þjóðarráðinu og jafnframt nýskip- aður menningarmálaráðherra, And- rei Plescu, að of snemmt væri að halda kosningar í apríl eins og heit- ið hefur verið. Rúmenar væru vart undir það búnir að koma á lýðræði í einu vetfangi. Hann kvað þó æski- legt að Þjóðarráðið reyndi að standa við heit sitt um að halda fijálsar kosningar í apríl. Umhverfisverndarsinnar, kristi- legir defnókratar og bændur hafa þegar hafið undirbúning kosning- anna. Lítið fer hins vegar fyrir kommúnistaflokknum og virðist Ceausescu algjörlega hafa gengið af honum dauðum. „Hann hefur ekki verið bannaður. Hann er ein- faldlega ekki til lengur," sagði Corneliu Bogdan, aðstoðarutanrík- isráðherra í bráðabirgðastjórninni. Sjá fréttir á bls. 21. Danir lækka skatta Kaupmannahð&i. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. SAMÞYKKT hefúr verið á danska þinginu að skattur af hagnaði fyr- irtælya, til dæmis hlutafélaga, lækki nú um áramótin úr 50% í 40%. Jafnaðarmenn halda því fram, að skattalækkunin fari í bága við sam- komulag þeirra og stjórnarf lokkanna um breytingar á skattalöggjöfinni en Poul Schluter forsætisráðherra vísar því á bug. Segir hann, að til- gangurinn með skattalækkuninni sé að bæta samkeppnisstöðu danskra fyrirtækja. Lagabreytingunni fylgir einnig, að nú geta húseigendur selt húsin án þess að greiða skatt af hugsanlegum hagnaði. Til þessa hafa þeir orðið að eiga húsin í tvö ár til að sleppa við skattlagningu við sölu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.