Morgunblaðið - 07.01.1990, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C
5. tbl. 77. árg.
SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Gregor Gysi:
Fækkað verði í
þýskum heijum
Austur-Berlín. Reuter.
GREGOR Gysi, leið-
togi kommúnista í
Austur-Þýskalandi,
lagði tii í gær að
þýsku ríkin fækkuðu
í herliði sínu um
helming á næstu
tveimur árum. Án
afvopnunar væri
ótrúverðugt að tala
um einingu Þýskalands. Ennfremur
hvatti hann til þess að herir banda-
manna yfírgæfú þýska jörð fyrir alda-
mót. Préttaskýrendur tejja Iíklegt að
Gysi hafí rætt þessar tillögur við Sov-
étmenn enda gera þær ráð fyrir að
380.000 sovéskir hermenn verði send-
ir heim frá Austur-Þýskalandi.
Straumur upp
að altarinu
Stokkhólmi. Reuter.
SVÍAR sem verið hafa í óvígðri sam-
búð giftu sig í stríðum straumum í
desember. Skýringin var sú að um
áramótin gengu í gildi lög sem skerða
réttindi til ekknabóta. Þó var kveðið
á um að þær ekkjur sem giftu sig
fyrir þann tíma fengju greitt eftir
gömlu lögunum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá hagstofú Svíþjóðar voru
ný hjónabönd tvær fyrstu vikurnar í
desember 6.589 en voru 2.999 allan
desember 1988. í bænum Karlstad var
t.d. tekin hópmynd af 51 nýgiftum
hjónum og voru flest komin af létt-
asta skeiði.
Faldi sig fyrir
Stalín í 42 ár
Moskvu. Reuter.
Sovétmaður, sem
barðist fyrir foður-
land sitt í seinni
heimsstyrjöldinni,
kom nýlega úr leyn-
um eftir að hafa falið
sig í skógi í Hvíta-
Rússlandi í 42 ár af
ótta við að verða hegnt fyrir að verja
stríðshefju er féll í ónáð hjá Stalín.
Maðurinn hafði reist kofa í skóginum
og lifði á sveppum og berjum, auk
þess sem hann veiddi dýr í gildru.
Ættingjar hans færðu honum stöku
sinnum fatnað og matVæli en það var
ekki fyrr en þeir sýndu honum dag-
blöð að hann sannfærðist um að breyt-
ingar hefðu átt sér stað i Sovétríkjun-
um.
Sameiningarþrá Azera;
*
Oeirðirnar alvarleg ógnun
við einingu Sovétríkianna
Moskvu. Reuter og Daily Telegraph.
ÓEIRÐIRNAR í Azerbajdzhan við landamæri írans og Sovétríkjanna síðustu daga eru
alvarlegustu þjóðernisróstur undanfarinna ára í Sovétríkjunum, að mati Reuíers-frétta-
stofunnar, og vega þær mjög að einingu landsins. I gær horfðu verðir á landamærum
Irans og Sovétríkjanna aðgerðarlausir á mannfjöldann sem reif niður landamæragirðing-
ar. Azerar, sem eru ein þjóð í tveimur löndum, þrá sameiningu og hefúr verið talað um
landamærin sem „Berlínarmúr Sovétríkjanna". 6 milljónir Azera búa í Azerbajdzhan og
4 milljónir í samnefndu héraði í Iran. Geider Isajev, flokksleiðtogi í héraðinu Nakhitsje-
van sem liggur að Iran, sagði af sér á fostudag vegna ástandsins.
Verðfall á fjármálamörkuðum heims á
föstudag er rakið til hins ótrygga ástands
í Sovétríkjunum. Kaupsýslumenn virðast hafa
óttast að harðlínumenn í Kreml væru að missa
þolinmæðina gagnvart umburðarlyndi
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. Gagnsókn
þeirra gæti skapað gífurlega óvissu um allan
heim. Gorbatsjov hefur aflýst flestum fundum
með erlendum ráðamönnum út mánuðinn til
að geta helgað sig vandamálunum heima fyrir.
Og þau eru ærin. Gorbatsjov þarf að kljást
við óánægju milljóna manna sem eru á barmi
hungurs, efnahag sem er í rúst og gífurlega
sVartsýni almennings. Eftir nær fimm ára
valdasetu Gorbatsjovs er enn erfitt fyrir al-
menna borgara að verða sér úti _um hráefni í
sæmilega næringarríka máltíð. Á sáma tíma
vex þjóðernissinnum í Eistlandi, Lettlandi og
Litháen, Georgíu, Armeníu, Azerbajdzhan,
Moldavíu og Úkraínu ásmegin.
í næstu viku fer Gorbatsjov til Litháen þar
sem kommúnistaflokkurinn hefur sagt sig úr
lögum við Moskvuvaidið. Harðlínumenn í
flokknum líta á ákvörðun Litháa sem alvar-
legt fordæmi sem gæti reynst fyrsta skrefið
í átt til þess að Sovétríkin liðist í sundur.
16-17
JÓL
MEÐ GÓÐU FÓLKI