Morgunblaðið - 07.01.1990, Blaðsíða 31
-I-
MOKGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM ■SUNNlíP£.fíU8
7, JANÚAR 1990
4-
Úr Heimsóknartíma.
Úr Stjörnum Cesars.
MYNDLIST
Islendingur
vekur at-
hygli vestra
Ungur íslenskur myndlistarmað-
ur, Bjami Ólafur Magnússon,
hefur getið sér gott orð við Kansas
City Art Institute, sem er virtur lista-
háskóli í Bandaríkjunum. Verk hans
og vinna öll hafa vakið þess háttar
athygli, að nafn hans hefur verið
fært á svokallaðan „Djáknalista“
sem þykir mikill heiður.
Bjarni hefur verið við nám í skóla
þessum síðustu þijú árin og telja
kennarar hans að mikils sé af honum
að vænta. Nú eftir áramótin stóð til
að hann skipti um skóla, tæki til við
nám við skóla í Los Angeles. Sjálfur
er Bjarni Vestmanneyingur og auk
þessa alls útskrifaður úr Lögreglu-
skóla ríkisins.
Bjarni Ólafur við eitt verka sinna.
UTGAFA
„Unglingarnir gífiirlega
kröfiiharður lesendahópur“
Nýlega kom út nýtt tímarit
sem telst ekki til tíðinda í
sjálfu sér í landi hinna fjölmörgu
tímarita. Hins vegar er hér um
tímarit fyrir unglinga að ræða og
því e.t.v. fróðlegra en eila að fylgj-
ast með, því hvert blaðið af öðru
sem hafa átt að sinna þeim aldurs-
hópi hefur hafið göngu sína, en
horfið jafn harðan. Staðreynd sem
bendir til þess að ekki sé á vísan
að róa svo ekki sé meira sagt.
Blaðið heitir „Hitt blaðið“ og
Morgunblaðið ræddi aðeins við
ritstjórann, Steinar Viktorsson,
spurði hann hvers vegna ekki
væri ástæða til að ætla að Hitt
blaðið færi sömu leið og hin blöð-
in. Steinar svaraði og sagði:
„Við vinnum hlutina öðru vísi.
Við rennum ekki blint í sjóinn,
þannig byijuðum við undirbúning
okkar á því að efna til skoðana-
könnunar meðal 7.500 grunn-
skólanema þar sem þeir voru
spurðir: Vantar blað? og Hvernig
efni á að vera í slíku blaði? Okkur
fannst ótrúlegt annað en að svör-
unin hlyti að verða jákvæð, sér-
staklega þegar að er gáð hversu
vel erlend popptímarit þrífast hér
á landi. Það varð líka raunin, svör-
unin var ótvíræð. Nú, könnunina
gerðum við vegna þess að það er
mat okkar að ekkert tímarit þjóni
þessum aldurshópi." En hvað
sagði svörunin ykkur annað en
að það vantaði blað?
„Þetta er gífurlega kröfuharður
lesendahópur og ekki hlaupið að
því að gera honum fyllilega til
hæfis. En í stuttu máli verður
blaðið að vera fjölbreytt að efni
og framsett með þeim hætti að
það standi jafnfætis bestu erlendu
tímaritunum. Það þýðir fjórlitur á
hverri síðu og sitthvað í hveiju
blaði um flest eða allt sem ungl-
ingar velta fyrir sér og hafa áhuga
á,“ segir Steinar.
Umrætt blað, Hitt blaðið, er
52 síður með margs konar efni
fyrir unglinga. Það á að koma út
mánaðarlega. Við blaðið vinna
alls um sjö einstaklingar, hinir
sömu sem gefa út blaðið Heilsu-
rækt og næring sem haldið hefur
verið úti um dijúgt skeið.
Steinar Viktorsson,
ritstjóri „Hins blaðsins11
Morgunblaðið/Sveirir
ENGtABÖRNÍN
Bankastræti 10. S: 22201.
ÚTSALA