Morgunblaðið - 07.01.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANUAR 1990
17
Sjálfboðaliðar, sem vinna á aðfangadag við jólafagnað Verndar í
húsi SVFÍ; flestar hafa unnið þar árum saman. Frá vinstri eru Halld-
óra Jónsdóttir, Jóhanna M. Jóhannesdóttir, Guðrún Brandsdóttir,
Hanna Johannessen, Sigríður Bjarnadóttir, Sigríður Bjarnadóttir,
Þórunn Guðmundsdóttir og Sigríður Olafsdóttir.
VERND
Í30ÁR
FYRSTIJÓLAFAGNAÐUR Verndar var haldinn fyrir 30 árum,
en sjálft félagið var reyndar ekki formlega stofnað fyrr en hinn
1. febrúar 1960. Þetta fyrsta verkefni félagsins hefur verið árleg-
ur viðburður æ síðan.
Allt starf fyrir jólafagnaðinn er
unnið í sjálfboðavinnu. Mat,
drykki, gjafir og annað það, sem
til þarf, gefa ýmis fyrirtæki og
hafa flest þeirra stutt þetta starf
Verndar um árabil. Þá sjá félagar
í ungtemplarastúkunni Hrönn um
skreytingar á salnum.
Almenn markmið félagsins eru
að hlú að fólki, sem lent hefur í
erfiðleikum — sérstaklega þó þeim
sem komist hafa í kast við lögin —
og er reynt að aðstoða fólk eftir
fremsta megni við að komast á
skrið á nýjan leik.
Sr. Ólafur ásamt Þóru konu sinni, en á milli þeirra er Hanna Johann-
essen, formaður Jólanefndar Verndar.
Margir
einir um
jólin
— segir sr. Olafur
Jóhannsson
SÉRA ÓLAFUR Jóhannsson,
skólaprestur, hefur flutt hug-
vekju á jólafagnaði Verndar und-
anfarin fimm ár, „en þó margir
komi þangað og njóti friðar og
helgistundar er ég hræddur um
að margir séu samt sem áður
einir umjólin."
Sr. Ólafur segir að það hafi ver-
ið sér og konu sinni, Þóru Harð-
ardóttur, sönn ánægja að vera á
jólafagnaði Verndar undanfarin ár.
„Það hefur verið beinlínis verið
okkur gott að koma hingað. Maður
hefur kynnst mörgu af því fólki,
sem hingað kemur, og það upp til
hópa afar ljúft og þægilegt þrátt
fyrir. að margir hér hafi verið
óheppnir í lífinu. Umfram annað
annað á það þó sameiginlegt að
koma hingað í einlægum ásetningi
um að halda gleðileg jól, hvað sem
á gengur.“
Ólafur segir hjörðina vera mis-
jafna. „Hingað koma fyrrverandi
fangar, fullkomnir einstæðingar,
fólk sem ekki gengur heilt til skóg-
ar, áfengissjúklingar, góðkunningj-
ar lögreglunnar og fjöldi annarra,
sem erfitt er að staðsetja. Margir
þeirra eru mjög einmana, en hér
gefst þeim tækifæri til þess að vera
börn á jólunum — fá gjafir og njóta
umhyggju — og það er nú það, sem
ég held að við sækjumst öll eftir á
jólunum.
V
E R Ð L
Æ K K U N
í V E T U R
MÁNUD./MIÐVIKUD. ÞRIÐJUD. i FIMMTUD. FÖSTUDAGAR LAUGARDAGAR
09:30 Líkamsrækt 10:00 Eróbikk
10:30 Líkamsrækt 10:00 Jazz 4-5 ára
11:00 Líkamsrækt
11:00 Jazz 6-7 ára
13:30 Líkamsrækt 16:30 Jazz10-12ára
17:10 Líkamsrækt 17:10 Jazz 8-9 ára 17:20 Líkamsrækt
17:30 Jazz 13-15 ára
18:10 Átak 18:10 Líkamsrækt 18:20 Eróbikk
18:30 Barnshafandi 18:30 Start
19:10 Líkamsrækt 19:10 Átak
19:30 Eróbikk 75mín 19:30 Eróbikk 75mín
20:10 Start 20:10 Líkamsrækt
20:45 Líkamsrækt 21:10 Líkamsrækt
Allir tímar eru 55 mínútur nema annað sé tekið fram.
START: Fyrir þá sem hafa ekki verið í leikfimi
lengi og þurfa að losna við nokkur kíló. Áhersla
lögð á maga, rass og læri. Góðar teygjur og
slökun.
LÍKAMSRÆKT: Skemmtileg leikfimi með
áherslu á maga, rass og læri. Fjör, hvatning,
aðhald og hress tónlist. Engin hopp. Teygjur
og slökun. Æfingar með teygjum og lóðum
sem gefa frábæran árangur.
ERÓBIKK: Mikil hreyfing og meiri fitubrennsla.
Stuð, puð og púl. Fjörug tónlist og mikill sviti,
einföld spor.
BARNAGÆSLA MÁNUDAGA OG
MIÐVIKUDAGA FRÁ KL. 10-16.
ÁTAK í MEGRUN: Fyrir þá sem vilja grennast
um 5-15 kg. Æfingar fyrir maga, rass, læri og
upphandleggi. Engin hopp, hægari æfingar,
teygjur og slökun. Vigtun, gott aðhald, mikill
árangur og góður mórall.
FYRIR BARNSHAFANDI: Öruggar,
uppbyggjandi og styrkjandi æfingar. Teygjur,
öndunar- og slökunaræfingar. Styrkjandi
æfingar fyrir viðkvæma líkamshluta. Áhersla
lögð á bak, maga og handleggi.
JAZZBALLETT: Á laugardögum fyrir 4-7 ára
á sama tíma geta foreldrar farið í leikfimi eða
Ijós. Eldri hópar æfa tvisvar í viku,
nemendasýning haldin í vor.
SKRÁÐU ÞIG STRAX ( SÍMA 65 22 12.
HRFSS
UKAMSIVKKT (Xi IJÖS
BÆJftRHRAUNI ft/VIO KERAVKURVECWN/SIMI 652212
aiHHiiiiiiiiiii