Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1990 5 Veiðar í íslensku fískveiðilögsögunni: Erlend skip veiða árlega um 13 þúsund tonn af botnfíski 44ra ára belgískur síðutogari með veiðiréttindi á íslandsmiðum 65 ERLEND skip veiddu um 13 þúsund tonn af botnfiski í íslensku fískveiðilögsögunni árið 1989. Þar af veiddu 56 færeyskir línu- og handfærabátar 11.048 tonn, 6 norskir bátar um 400 tonn og 3 litlir belgískir síðutogarar 1.634 tonn. Elstur belgísku togaranna er Belgian Sailor en hann var smíðaður í Ostende í Belgíu árið 1946 og er því 44ra ára gamall. Hinir eru Amandine og Henry- Jeanine, sem smíðaðir voru í Ostende árið 1961, að sögn Land- helgisgæslunnar. Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri búið að ákveða hversu mikið Norðmenn og Færeyingar mættu veiða í íslensku lögsögunni í ár en þeir sæju sjálfir um að útdeila íslenska kvótanum á milli ski- panna. Hins vegar mættu ákveðin belgísk skip veiða samtals 4.400 tonn hér við land á ári. Hann sagði að þessar þjóðir hefðu viðurkennt útfærslu íslensku fiskveiðilögsög- unnar í 50 mílur árið 1975 og þess vegna, meðal annars, hefðu þær fengið að veiða áfram hér við land. „Það var verið að umbuna þess- um þjóðum fyrir að viðurkenna útfærsluna í 50 mílur. Við skiljum einnig sérstöðu Færeyinga, sem eru háðir veiðum á erlendum mið- um, þar sem landgrunn þeirra gefur tiltölulega lítið af sér. Fær- eyingar hafa stundað hér veiðar öldum saman. Þeir veiddu hér um 17 þúsund tonn á ári eftir út- færsluna 1975 en undanfarin ár hafa þeir veitt hér 10-12 þúsund tonn á ári.“ Sex norskir bátar máttu stunda línu- og handfæraveiðar við Suð- urland í fyrra. Uppistaðan í afla þeirra er lúða en með henni fá þeir löngu og keilu, að sögn Jóns. „Þetta eru alltaf sömu bátamir, sem koma hingað. Norðmennirnir hafa getað gert út á lúðu með góðum árangri og ég hef oft heyrt þá furða sig á því hvers vegna við gerum það ekki líka.“ Jón sagði að þegar íslenska lögsagan hefði verið færð út í 50 mílur hefðu Norðmenn veitt um 2 þúsund tonn á íslandsmiðum á ári en frá 1985 hefðu þeir fengið að veiða hér 400 tonn á ári. „Sumir Norðmannanna hafa veitt hér í áratugi og einn þeirra hefur sagt mér að lífsgrundvellin- um verði kippt undan honum fái hann ekki að stunda þessar veiðar áfram. Þvi hefur einnig verið skot- ið inn í viðræður við Norðmenn um skiptingu loðnukvótans að þeir hafi fengið að veiða botnfisk hér við land,“ segir Jón. Hann sagði að belgiskir togarar mættu veiða 4.400 tonn á ári hér við land en þeir veiddu ekki nema um þriðjunginn af því magni. „Samningurinn við Belga var bundinn við 15 skip, að ég held, en þau hafa dottið út smám sam- an.“ Belgísku togararnir mega einungis veiða við Suðurlandið. Þeir veiddu 1.634 tonn af botn- fiski á íslandsmiðum í fyrra, þar af 309 tonn af þorski, 483 tonn af ýsu, 369 tonn af karfa og 190 tonn af ufsa, að sögn Þóris Guð- mundssonar hjá Fiskifélagi Is- lands. Þórir sagði að 56 færeysk skip hefðu veitt samtals 11.048 tonn af botnfiski hér við land árið 1989, þar af 2.012 tonn af þorski, 606 tonn af ýsu, 2.246 tonn af ufsa, 4.522 tonn af löngu og keilu, svo og 94 tonn af lúðu. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Selur í heimsókn EKKI alls fyrir löngu kom selur nokkur sér fyrir á ísjaka úti í Blöndu miðri á milli byggðarinnar austan og vestan ár á Blönduósi og gaf bæjarbúum kost á að gaumgæfa sig. Þó selir séu algengir í sjónum utan við ósa Blöndu er það sjaldgæft að þeir hætti sér upp í ána. Það hefur þó komið fyrir að veiðimenn í Blöndu hafi orðið varir við seli á laxveiðisvæðinu sem er um það bil 3-4 kílómetrum frá ósi Blöndu um háveiðitímann. Þessi spariskírteini bera enga vexfi. Þessi spariskírteini bera góda vexli. Fjárfestir þú í réttu spariskírteinunum? Spariskírteini ríkissjóðs sem gefin voru út fyrir 2 árum, , 1. flokkur D2, bera ekki neina vexti eftir 1. febrúar. Þú | missir því daglega af tekjum, bæði vöxtum og verðbótum ef þú innleysir ekki þessi spariskírteini og endurfjárfestir fyrir þau. 8 Þessa dagana eru ntargir flokkar spariskírteina ríkissjóðs innleysanlegir. Þótt margir þeirra beri enn vexti og verð- bætur getur verið mikill munur á vöxtum hinna ýmsu flokka. Því er rétti tíminn til að huga að spariskírteinum sínum-núna. Dæmi um vonda fjárfestingu: Ef spariskírteini að verðmæti 500.000 kr. liggja óhreyfð í eitt ár eftir gjalddaga tapast 139.000 kr. miðað við 20% verðbólgu og 6,5% raunvexti. Verðbréfamarkaður Fjár- festingarfélags íslands hf. hefur áralanga reynslu í að kaupa og selja spariskírteini ríkissjóðs. Við getum nú boð- ið skiptikjör ríkissjóðs auk eldri spariskírteina með 6,5% vöxtum. Q2> VERÐBREFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF. HAFNARSTRÆTI • KRINGLUNNI AKUREYRI 28566 68970« 25000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.