Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1990 t Eiginmaður minn, VALDIMAR EINARSSON, Skólabraut 2, Grindavík, andaðist í sjúkrahúsi Keflavíkur 30. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigrfður Sigurðardóttir. t Minningarathöfn um föður minn, GUÐNA ÞÓRÐARSON fyrrverandi verkstjóra, sem andaðist 29. janúarferfram frá nýju Fossvogskapellu fimmtu- daginn 1. febrúar kl. 10.30. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 6. febrúar kl. 13.30. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Aðalsteinn Guðnason. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG SIGURJÓNSDÓTTIR frá Seyðisfirði, áður búsett í Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. febrúar kl.15.00. Hildur Jónsdóttir, Kristín Björg Jónsdóttir, Unnur A. Jónsdóttir, Magnús Jónsson, Sigurjón Jónsson, Frímann Gunnlaugsson, Vésteinn Ólason, Elín Halldórsdóttir, Ingunn Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN BERGÞÓRSDÓTTIR frá Hvammstanga, Vesturgötu 15, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 31. janúar kl. 14.00. Alda Magnúsdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir, Ólöf Magnúsdóttir, Þórir Magnússon, Hólmar Magnússon, Alexander Jóhannesson, Hermann Nfelsson, Stefán Þórarinsson, Jensfa M. Leó, Guðrún R. Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Bjami Þ. Kjartans- son vélvirki — Minning Fæddur 22. febrúar 1940 Dáinn 25. janúar 1990 Klukkan tifar og tíminn líður. Arin hverfa út í eilífðarþokuna; stundum óþægilega hratt hjá okk- ur, sem komin erum á miðjan ald- ur. Lífsins gangur er okkur tjáð. En stundum finnst okkur þó sem skapari himins og jarðar minni okk- ur nokkuð hranalega á vegamót lífs og dauða. Það er sjaldnast ásættan- legt, þegar fólk á besta aldri er hrifið á brott. Hjá vini mínum Bjarna Þór Kjart- anssyni vélsmið, var tíminn útrunn- inn tæpum mánuði fyrir fimmtugt. Andlát hans var frelsi frá margra mánaða þjáningu og þrautum, og var ögn sanngjarnara fyrir þær sakir. Bjarni Þór fæddist í Reykjavík 22. febrúar 1940; Móðir hans er Ásta Bjarnadóttir frá Húsavík og kjörfaðir Kjartan heitinn Sæmunds- son forstjóri KR0N. Bjarni ólst upp á Húsavík og í Reykjavík og átti góða daga á Víkingavatni í Keldu- neshreppi hjá þeim sæmdarhjónum Sveini Björnssyni bónda og Guð- rúnu Jakobsdóttur konu hans. Kynni okkar Bjarna hófust fyrir tæpum fjórum áratugum, þegar steinsnar var á milli heimila okkar við Hraunteig í Laugarnesinu. Þau kynni leiddu til vináttu, sem ekki rofnaði þrátt fyrir nokkra fjarlægð á milli lífsins gönguleiða á stundum. Bjarni Þór var um margt óvenju- legur ungur maður. Hann var vel greindur og áhugamál hans voru að ýmsu leyti frábrugðin því sem gerðist hjá öðrum jafnöldrum. Hann dreymdi stóra drauma og var með afbrigðum hugmyndaríkur. En stundum skorti úthald til að nýta hæfileikana eða nýjar hugmyndir ruddu öðrum á brott. Frásagnar- gleði var honum í blóð borin og hann var minnugur með afbrigðum. Hæfileikar hans til að draga upp lifandi myndir af atburðum með orðum og látbragði gerðu hann að sagnameistara, sem oft breytti drungalegum degi í annan betri. Bjarni Þór var viðkvæmur dreng- ur og ekki er fráleitt, að hann hafi stundum notað hæfileika sagna- meistarans til að breyta hörðum heimi í annan ögn mildari. Þannig gat hann oft glatt sjálfan sig og aðra. Eins og gengur vorum við báðir áttavilltir á unglingsárunum. Við áttum marga góða daga saman í skóla og við leiki og störf. Heim- spekilegar vangaveltur og umræður um stjórnmál tóku oft langan tíma, en færðu okkur ekki nær niðurstöðu um það hvernig við ættum að ráð- stafa eigin lífi. Bjarni ákvað að hefja nám í vélsmíði og lauk því með sóma. Hann starfaði um tíma við iðn sína en réðst síðan á far- skip og var á sjó um langt árabil. Eftir að hann kom í land stofnaði hann heildverslun, sem hann rak um nokkurt skeið. Ungur kynntist Bjarni mikilli afbragðs konu, Hrafnhildi Björns- dóttur, sem síðar varð eiginkona hans. Þau eignuðust fjóra drengi: Kjartan Þór, fæddur 1959, Birgi, fæddur 1962, Geir, fæddur 1964 og Baldur Sívertsen, fæddur 1977. Vegna fjarvista Bjarna kom það að verulegu leyti í hlut Hrafnhildar að annast uppeldi drengjanna fjögurra og fyrir dugnað og fórnfýsi nýtur hún nú virðingar allra sem til þekkja. - Þau hjón slitu samvistir fyrir um það bil tveimur árum en vinátta hélst með þeim. Fyrir nokkrum mánuðum veiktist Bjarni og reyndist vera með krabba- mein. Þessi illskeytti óvinur hafði betur og að morgni 25. janúar lést Bjarni, 49 ára gamall. Læknum og hjúkrunarfólki á Landakotsspítala eru færðar innilegar þakkir fyrir læknisverk og góða umönnun. Þegar litið er yfír farinn veg og æskustunda minnst, sannast óþyrmilega hve tíminn er afstæður. Frá æskuárunum á Hraunteignum er stutt stund og mælast vart ára- skipti. Samferðarmaður og góður vinur er horfinn. Blessuð sé minning hans. ÁG Kveðja frá Kiwanisklúbbnum Viðey Kallið er' komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Mig setti hljóðan er ég heyrði andlátsfregn Bjarna Þórs Kjartans- sonar sl. laugardag, því alltaf er það nú svo að við missi góðs félaga fyllist maður söknuði. Eg kynntist Bjarna Þór fyrst haustið 1986 er ég gekk í Kiwanisklúbbinn Viðey. Bjarni var einn af stofnfélögum klúbbsins. í honum gegndi hann hinum ýmsu trúnaðarstörfum sem hann skilaði af alúð og áhuga. Mik- ill var því missir okkar í klúbbnum er það var ljóst á sl. sumri að hann gat ekki starfað með okkur áfram sökum veikinda. Ég vil fyrir hönd okkar félaganna í Kiwanisklúbbnum Viðey senda fjölskyldu Bjarna Þórs innilegar samúðarkveðjur. Megi Guð blessa minningu góðs drengs. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Björn Ág. Sigurjónsson t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON, Bogahlíð 18, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni f Reykjavík, fimmtudaginn 1. febrúar kl. 15.00. Veronika Konráðsdóttir, Maria Þorsteinsdóttir, Jóhann Þorsteinsson, Pétur Þorsteinsson, Þórarna Ólafsdóttir, Sveinn Þorsteinsson, Anna Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, ÁGÚSTU ÓLAFSDÓTTUR frá Jörfa. Ólafur Bjarnason, Fríða Margrét Guðjónsdóttir, Þorsteinn Bjarnason, Guðrún G. Sæmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför, KJARTANS PÉTURSSONAR véistjóra, Hraunbæ 84, Stefanía Kjartansdóttir, Edda Kjartansdóttir, Birgir Agústsson, barnabörn og barnabarnabarn. Magnús Pálsson - Minningarorð Fæddur 8. ágúst 1905 Dáinn 23. janúar 1990 Svili minn, Magnús Pálsson, er fallinn frá, 84 ára gamall. Foreldr- ar hans voru þau hjónin Margrét Árnadóttir og Páll Friðriksson er bjuggu í Reykjavík. Þau eignuðust 10 börn og eru 7 þeirra enn á lífí. Magnús kvæntist mágkonu minni, Lovísu Helgadóttur, árið 1936 en Lovísa lést 22. ágúst 1985. Um tíu ára skeið bjuggu þau í sama húsi og við hjónin og urðu kynni okkar náin og góð og héldust svo ávallt síðan. Magnús og Lovísa eignuðust 5 börn en tvö þeirra létust ung. Eft- irlifandi börn þeirra eru Helgi Þór, kvæntur Kristínu Guðmunds- dóttur, Elín, gift Sigurði Ingimars- syni bifreiðarstjóra og eiga þau þijú börn, einn son og tvær dæt- ur, og yngst er svo Þuríður, ógift. Ungur réðst Magnús sem sendill hjá verslun Egils Jacobsens, en starfaði síðan þar sem útstillingar- maður í mörg ár, en hann hafði lært útstillingar í Kaupmanna- höfn. Hann starfaði lengi sem verslunarmaður í Kiddabúð og seinna sem sölumaður hjá Efna- gerð Reykjavíkur. Um nokkurra ára skeið rak Magnús eigin versl- un. Síðustu árin sem Magnús vann var hann sölumaður hjá S. Óskars- son hf. Magnús var mikill og góður heimilisfaðir og var hjónaband þeirra Lovísu bæði traust og gott. Eins og áður sagði voru kynni okkar náin og er margs að minn- ast. Við svilarnir spiluðum saman brids um margra ára skeið. Á okkar yngri árum meðan börnin okkar voru ung, áttum við saman sumarbústað og eru margar ánægjulegar minningar frá þeim tíma. Oft var farið og rennt fyrir silung í Selvatni og margar ánægjulegar samverustundir átt- um við þarna þessar tvær fjöl- skyldur. Ég og fjölskylda mín viljum nú kveðja Magnús að leiðarlokum með þökk fyrir allar þessar góðu samverustundir. Vilhj. Björnsson Okkur Íangar með nokkrum orðum að minnast afa okkar, Magnúsar Pálssonar. Nú er hann kominn til ömmu og barna þeirra tveggja. Margs er að minnast þeg- ar litið er til baka. Afi var alltaf svo hlýr og elskulegur og tók okk- ur opnum örmum þegar við kom- um niður í Drekavog. Við minn- umst sólskinsstunda í garðinum þar og á svölunum og ótal ferða í sundlaugarnar með þeim afa og ömmu meðan hún lifði. Við vissum að þau báru hag okkar mjög fyrir bijósti og það var okkur mikill styrkur að eiga þau að. Afi var alla tíð heilsuhraustur en eftir að amma dó fyrir rúmum fjórum árum fór heilsu hans að hraka og við vissum að hann saknaði henn- ar mjög. Nú eru þau aftur saman og við biðjum guð að blessa minningu þeirra beggja og þökkum þeim fyrir allt sem við geymum í minn- ingum okkar. „Far þú í friði, friður guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með guði, guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“ (V. Briem) Ingimar, Lovísa og Berglind Gerða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.