Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 9
9 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1990 Bestu þakkir til ykkar allra, sem sýndu mér vináttu og heiðruðu mig á fimmtugsafmœli mínu með gjöfum, kveðjum og heillaóskum. Kjartan Jóhannsson. I/ELKOMINÍ TESS Híiar vörur Úrval af stærðum 36-38 með 40% afslætti. TESS Opiú lamdaga 10-12. NEÐST VIÐ DUNHAGA, S. 622230. v NEt ÞORRAMATURINN LJÚFFENGI HJA OKKUR FERVELUMFÓLK I ViÐSKIPTAERINDUM! Gistiaöstaöa er glaesileg á Hótel Sögu. I herbergjunum er góö vinnuaöstaöa og öll þægindi þar fyrir hendi. A veitingastööum okkar bjóöum við mat og þjónustu í sérflokki og fundaraðstaða á hótelinu ereins og best verður á kosiö. Haföu samband í síma 29900. lofar góöu! Vélmenni í Reykjavík. Vélmenni og fjöldafram- leiðsla í ritinu Vísbending, sem gefin er út af Kaupþingi hf. birtist nýlega grein eftir Jón Gunnar Vil- helmsson hagfræðing, þar sem þeirri athyglis- verðu hugmynd er hreyft, að íslendingar nýti vélmenni við fjöldaframleiðslu, m.a. við úrvinnslu á áli. Leið til auk- innar fjöl- breytni í upphafi greinar sinnar í Vísbendingu segir Jón Gunnar Vilhelmsson: Á íslandi eru erlend viðskipti um 30-40% af þjóðarframleiðslunni. Vöruútflutningnr bygg- ist að 70 hundraðshlutum á eirnii náttúruafurð, fiski, og fiskiðnaðurinn er rekinn með halla. Loks er halli á viðskiptajöfnuði landsmanna króniskt vandamál, að ekki sé minnst á þjóðarbúskap- inn í heild. Því er ekki vanþörf á að menn haldi áfrain að leita ýmissa leiða til þess að auka fjöi- breytni, þar á meðal í iðnaðarframleiðslu. Þótt ýmislegt hafi áunnist í að auka fjöl- breytni innan fiskiðnað- arins sjálfs, dugar það ekki til ef tryggja á hag- vöxt og velmegun i framtiðinni. Islendingar þurfa að flyfja inn naer- fellt allar „langtima" neysluvörur sínar, svo og ýmsar aðrar vörur og er óraunhæft að ætla einni grunnafurð að standa að mestu undir slíku fargi. Einkum á þetta við um fisk vegna þess, að afli er ótryggur og verð- sveiflur miklar á mat- vöru á erlendum mörk- uðum. Hér á eftir verður vik- ið nokkrum orðum að möguleikum þess að helja hér á landi fjölda- framleiðslu á ýmiss kon- ar varningi, svo sem varahlutum. Líklegt er að slíkar vangaveltur hafi hingað til strandað á því, að mönnum hafi virst sem ýmis gnmdvall- aratriði hafi skort, svo sem mannafla, hráefiii til vinnslunnar og markaði fyrir framleiðsluna. Hráefiii Hvað hráefhi áhrærir, er Ijóst, að úr því unnt er að flylja imi á hagkvæman hátt Iiráefiú til álbræðslu og flytja álið síðan út aftur á erlenda markaði, hlýtur að vera unnt að koma á slíkum fiutningum í fjölda- framleiðsluiðnaði einnig. Ennfremur liggur beint við I að kanna alla möguleika á ! frekari úrvinnslu þess áls sem framleitt er í Straumsvík og þess sem framleitt verður í álbræðsl- um öðrum sem reistar verða hér á landi og spara á þann hátt flutningskostn- að á hráefiú. Mannafli Þá er komið að mannaf- Ianum sem þarf til fram- leiðslunnar. Þar kemur tvennt upp í hugann. Ann- ars vegar að laða hingað verkafólk frá öðrum lönd- um, hins vegar að nota vél- menni. Erfitt er að sjá hve mik- inn fjölda erlendra verka- manna unnt væri að laða hingað til lands með langtímabúsetu fyrir aug- um. Margt kemur þar við sögu, svo sem einangrun landsins, stirð veðrátta og tungumálaerfiðleikar. Ólík- legt er að unnt yrði að laða fólk hingað til langdvalar, nema kaupmátturinn yrði þeim mun hærri hér á landi en annars staðar í nálægum löndum. Fjöldaframleiðsluiðnað- ur krefst tíltölulega vel þjálfaðs starfsfólks og því er óhagkvæmt að þurfa í sifellu að skipta um mann- skap. ÖIlu fysilegri kostur væri því að koma hér upp iðnaði þar sem vélmenni sæju um framleiðsluna. Kostir vél- menna Vélmenni eru ýmsum kostum gædd, frá fram- leiðslusjónarmiði séð. Þau geta endalaust unnið fjölmörg tæknileg handtök af mikilli nákvæmni. Þar af leiðir að minnka má til muna þörfina fyrir verka- fólk. Þvi þarf ekki að draga verkafólk í stórum stíl frá öðrum iðngreinum. Einnig yrði afraksturinn væntan- lega há framleiðni og mikil gæði vörunnar. Vélmenni er unnt að for- rita þannig, að hægt er að framleiða mikinn fjölda af nokkrum gerðum skyldrar vörutegundar á skömmum tíma og ódýrfc Einnig er kleift að framleiða endan- legu afurðina í mörgum útgáfum, án mikils tilkostn- aðar. Þar af leiðandi er auðvelt að breyta fram- leiðslunni til að koma tíl inóts við breyttan smekk og nýjar þarfir og opna nýja markaðsmöguleika. Auðvelt er að áætla af mikilli nákvæmni hve lang- an tima tekur að framleiða ákveðinn fjölda stykkja og hve mikil framleiðslugetan er í heild sinni. Væntanlega yrðu rekstr- arstöðvanir vegna vinnu- deilna færri en ella. Aukin hagræðing fengist í lagcrhaldi og eftirlití með því, vegna aukins fram- leiðslujöfnuðar. Slíkt myndi fijótlega skila sér í lægra verði til neytenda og hærri kaupmætti til launafólks. Vel menntuð þjóð, en fá- menn Fyrir þjóð eins og íslend- inga, með hlutfallslega stór- an hóp af vel menntuðu fólki, einkum tæknimennt- uðu, mikið ónotað land- rými, næga orku og flutn- ingsmöguleika, virðist fiöldaframleiðsla með vél- mennum eftirtektarverður kostur. Hérlendis er við eðlilegar aðstæður mjög lítið um framboð af verkafólki, sem unnt væri að laða til vinnu við fjöldaframleiðslu. Þjóð- in er afar famenn og at- vinnuleysi lítíð eða ekkert á síðustu árum. Stærstur hlutí þess fólks sem á annað borð kemst og vill út á vinnumarkaðinn gerir svo, og unglingar byija snemma að vinna í löngum skólaleyf- um sinum. Víðtæk áhrif á fiölmarga þætti Ýmislegt bendir til þess, að tilkoma vélmenna gæti aukið fiölbreytni í iðnaði, og þar með stöðugleika í hagkerfinu, svo og þjóðar- tekjur. Utflutningsmöguleikar myndu aukast og þar með mættí vænta meiri stöðug- leika í viðskiptum við út- lönd. Slíkt ætti að hafa já- kvæð áhrif á gengisskrán- ingu og þar með annan út- flutning. Þó svo vélmenni komi til sögunnar, þarf að sjálf- sögðu að ráða einhvem fjölda fólks tíl vinnu, svo sem til stjómunar og við- halds. Væntanlega myndi eftirspum effir tækni- menntuðu og faglærðu starfsfólki aukast mest Raforka er notuð sem grunnorkugjafi við fjölda- framleiðsu með vélmenn- um. Slíkt er í góðu sam- ræmi við þá möguleika sem íslendingar eiga í þeim cfii- um. Síðast en ekki síst er svo að geta þeirrar auknu tækniþckkingar, sem starf- semi af þessu tagi hefði i för með sér og er afer mikil- væg fyrir framtíðina. SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS eru á lokainnlausn 1. febrúar. Þeim sem vilja endurfjárfesta spariféð bjóðiun við meðal annars: Ávöxtun umfram lánskjaravísitölu Ný spariskírteini með skiptiuppbót 6,2-6,3% Bankabréf Islandsbanka 7,5% Sjóðsbréf 1 9-9,5% Sjóðsbréf 4 9-10% Vaxtarbréf 8,5-9% VaLbréf 8,5-9% Skuldabréf Glitnis 9,6% VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF Ármúla 7,-108 Reykjavík. Sími 68 15 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.