Morgunblaðið - 31.01.1990, Qupperneq 29
r
,'V'íál ’ltTf'At l .tii íf'JS/.tl'jiíiV'Hfí tft(íAjfiM itt'Jllí
MÖRGUNBLAÐIÐ'MIÐVIKÚDÁGUR 31. JANÚAR 1990
RADA UGL YSINGAR
BÁTAR-SKIP
Sómi - íbúð
Óska eftir Sómabát í skiptum fyrir 5 her-
bergja íbúð. Aðeins góður og vel útbúinn
bátur kemur til greina.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl., merkt:
„K - 7618“ fyrir 5. febrúar.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Atvinnuhúsnæði óskast
á leigu
Óskum að leigja 3-400 fm iðnaðarhúsnæði
til langs tíma. Æskileg staðsetning mið- eða
Austurbær Reykjavíkur. Húsnæðið þarf að
vera á jarðhæð en þó kemur til greina að
hluti þess sé samtengdur 2. hæð. Lágmarks
lofthæð 3 m. Góð aðkoma og bílastæði nauð-
synleg.
Tekið á móti upplýsingum í síma 622366.
Fiskiskip/fiskverkun
Til sölu er útgerðarstöð sem samanstendur
af:
• Saltfiskverkun.
• Skreiðarverkun.
• Frystihúsi.
• Vertíðarbátum.
Fyrirtækið er vel staðsett á suð-vesturhorni
landsins og býður upp á ýmsa möguleika.
Þeir, sem hafa áhuga, leggi inn nafn og síma-
númer á auglýsingadeild Mbl. merkt: „F -
8905“ fyrir 7. febrúar nk.
TILKYNNINGAR
&
Fasteignagjaldendur
Mosfellsbæ
Álagningu fasteignagjalda í Mosfellsbæ er
lokið. Gjalddagar hafa verið ákveðnir fimm:
1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní.
Álagningarseðlar ásamt gíróseðli fyrir 1.
hluta hafa verið sendir til gjaldenda.
Bæjarstjóri.
Landsmálafélagið Fram heldur opinn hé-
degisverðarfund í veitingahusinu Gafl-inn
laugardaginn 3. febrúar nk!, kl. 12.00..
Sigurður B. Stefánsson, hagfræðingur,
ræðir um stöðu og horfur í efnahagsmálum
1990.
Allir velkomnir.
Landsmálafélagið Fram.
5JÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Sjálfstæðisflokkurinn
Hafnarfirði
Skattar, ríkisútgjöld o.fl.
Félag sjálfstæðis-
manna í Langholts-
hverfi efnir til fundar
í Valhöll, Háaleitis-
braut 1, kl. 20.30
fimmtudaginn 1.
febrúar.
Umræðuefni: Skatt-
ar, ríkisútgjöld og
fleira.
Ræðumenn: Friðrik
Sophusson, alþingismaður, og Pálmi Jónsson, alþingismaður.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Baráttan við báknið
Landsmálafélgið Vörður mun halda málþing um ríkisumsvif laugar-
daginn 3. feþrúar nk. kl. 10.00 til 13.00 í Valhöll v/Fláaleitisbraut.
1. Málshefjendur:
Friðrik Sophusson, alþingismaður: Baráttan við báknið; hvað hefur
áunnist?
Geir H. Haarde, alþingismaður: Atvinnulífið og ríkisbúskapurinn.
Hreinn Loftsson, lögmaður: Hvaða fyrirtæki er hægt að einkavæða?
Markús K. Möller, hagfr.: Hvert er hlutverk ríkisins?
Dr. Vilhjálmur Egilsson, framkvstj.: Rikissjóður: Af hverju ekki halli?
2. Opnar umræður:
Málshefjeodur, ásamt Ólafi ísleifssyni, hagfr., Pálma Jónssyni, alþm.,
og Ólafi G. Einarssyni, alþm.
Ráðstefnustjóri: Guðmundur Magnússon, sagnfr.
Málþingið er öllu áhugafólki opið.
Landsmálafélagið Vörður.
Kópavogur - spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður i Sjálfstæðishús-
inu, Hamraborg 1,3. hæð, miövikudaginn 31. janúar kl. 21.00 stund-
vislega. Mætum öll.
Stjórnin.
Kópavogur - opið hús
Opið hús verður í Sjálfstæðishúsinu Hamraborg 1,3. hæð, miðviku-
daginn 31. janúar milli klukkan 17 og 19. Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins í prófkjörinu mæta. Allir velkomnir. Heitt á könnunni.
Stjórnin.
Mosfellingar
Skrifstofa Sjálfstæðisfélags Mosfellinga, Urðarholti 4, opnar fimmtu-
daginn 1. febrúar.
Opið verður alla fimmtudaga milli kl. 20.00 og 22.00.
Skorað er á alla sjálfstæðis- og stuöningsmenn að koma og taka þátt
I félags- og kosningastarfi.
Síminn hjá okkur er 667755.
Stjórnin.
Vestmannaeyjar
Aðalfundur
Sjálfstæðiskvennafélagið Eyglóð heldur aðalfund miðvikudaginn 31.
janúar kl. 20.30 í húsi félagsins við Heimagötu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
3. Bingó.
Mætið vel.__________________ Stjórnin.
Vígsla félagsheimilis
sjálfstæðisfélaganna
Nýtt félagsheimili sjálfstæðisfélaganna við Heimagötu verður form-
lega vígt laugardaginn 3. febrúar nk. Opið hús verður kl. 15.00-
17.00 og verður þar boðið upp á kaffi og meðlæti. Um kvöldið verð-
ur matarveisla í húsinu.
Þeir, sem hyggja á þátttöku i matarveislunni, vinsamlegast tilkynnið
þátttöku hjá Grimi á skrifstofunni í sima 11344 fyrir hádegi.
Sjálfstæðisfélögin i Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjar
- Auglýst eftir framboðum
Kjörstjórn Sjálfstæðisflokksins fyrir væntanlegt prófkjör 24. og 25.
febrúar nk. auglýsir eftir framboðum á prófkjörslistann fyrir næstu
bæjarstjórnarkosningar. Framboðin skulu tilkynnt skriflega til for-
manns kjörstjórnar, Guðjóns Hjörleifssonar, fyrir kl. 15.00 sunnudag-
inn 4. febrúar nk. Kjörstjórnin.
Þorrablót
sjálfstæðisfélaganna
í Kef lavík
veröur haldið i Glaumbergi, laugardaginn 3. febrúar, kl. 19.30. Jafn-
framt mun tveggja vikna námskeiöi Stjórnmálaskóla Sjálfstæðis-
flokksins í Keflavik verða slitið á sama tima. Þátttaka tilkynnist i síma
12021 miðvikudag og fimmtudag milli kl. 18.00 og 19.30.
Keflvíkingar fjölmennið.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Keflavik.
Stjórnmálaskóli
Sjálfstæðisflokksins
Staður: Keflavík, Hringbraut 92
Seinni hluti.
Miðvikudagur 31. janúar: Kl. 18.00-19.30. ísland á alþjóðavett-
vangi: Sveinn Loftsson, lögfræðingur.
Kl. 20.00-22.00: Ræðumennska: Gísli Blöndal, markaðsstjóri.
Fimmtudagurinn 1. febrúar: Kl. 18.00-19.30 Sveitastjórnarmál: Ell-
ert Eiríksson, bæjarfulltrúi.
Kl. 20.00-22.00 Pallborðsumræður - Sjálfstæðisflokkurinn: Eliert
Eiriksson, Jónina Guðmundsdóttir, Árni Ragnar Árnason o.fl.
Laugardagur 3. febrúar: Kl. 19.30 Skólaslit: Glaumbergi.
Wélagslíf
□ GLITNIR 599001317 = 1
I.O.O.F. 9 = 1711318V2 =
O HELGATÉLL 59901317 IV/V
2 Frl
M Útivist
Myndakvöld
Fimmtud. 1. febrúar
i Fóstbræöraheimilinu, Lang-
holtsveg 109, og hefst kl. 20.30.
Frábærar myndir úr hálendisferð
Útivistar 1989: Snæfell - Kverk-
fjöll. Margrét Margeirsdóttir
sýnir. Kaffi og kökur að lyst inni-
falið í miðaveröi. Verð aðeins kr.
450, Allir velkomnir.
Sjáumst!
Útivist.
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Helgarferð 2.-4. febr.
Þorrablót Ferðafélagsins
Þórsmörk með gistingu í Skag-
fjörðsskála ef færð leyfir, annars
Eyjafjöll og Mýrdalur með ótal
spennandi stöðum til skoðunar-
og gönguferða. Gist í vel búnu
félagsheimili á Heimalandi.
Seljavallalaug i nágr. Þorrablót
og kvöldvaka á laugardagskvöld-
inu. Siðamaður: Árni Björns-
son. M.a. verða endurvaktir
gamlir þorrablótssöngvar. Með-
al gönguleiða: Austan Sólheima-
jökuls; fossar i Skógá í klaka,
Dyrhólaey og m.fl. Fararstjórar:
Kristján M. Baldursson og Hilm-
ar Þór Sigurðsson. Pantið strax.
Sætum fer fækkandi. Öðruvlsi
þorrablót. Brottför föstudag kl.
20.
Sunnudagsferðir 4. febr. kl. 13:
1. Gönguferð um Reynisvatns-
heiði. 2. Skiðaganga i Innstadal.
Ferðafélag islands.
d±£l SAMBAND (SLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Samkoma í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58, i kvöld kl.
20.30. Ræðumaður: Guðmundur
Guðmundsson. Allir velkomnir.
Stúkan Einingin nr. 14
Opinn fundur í Templarahöllinni
(kvöld kl. 20.30. Aldamótamark-
miðið í áfengismálum. Umsjón-
armenn: Halldór og Einar.
Gestafyrirlestur. Mætum öll.
Gestir velkomnir.
Æðstitemplar.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson miðill
heldur fund í Skútunni, Dals-
hrauni 14, Hafnarfirði, miðviku-
daginn 31. janúar kl. 20.30. Hús-
ið opnað kl. 19.30. Miðar seldir
við innganginn.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíunámskeið. Efni: Kynning á
guöspjöllunum. Byrjað verður kl.
20. Kaffihlé. Endað kl. 22.
Kennari: Garðar Ragnarsson.
Allir eru velkomnir.
Tilkynning frá
Skíðafélagi Reykjavíkur
Toyota skiðagöngumót 1990 fer
fram á Miklatúni nk. laugardag
3. febrúar kl. 14.00. Nafnakall
kl. 13.00. Keppt i 10 km skiða-
göngu karla - 5 km öldunga,
kvenna og unglinga. Ef snjóleysi
verður eða veður óhagstætt
kemur tilkynning I Ríkisútvarp-
ingu kl. 10.00 keppnisdaginn.
Mótsstjóri verður Páll Samúels-
son. Uppl. i sima 12371.
Stjórn Skíðafélags Reykjavikur.
SBjjsxnnA
félag um sorg og sorgarferli
á Suðurnesjum
Það hefur sýnt sig að hagnýt
atriði skipta máli við að ná sér
eftir missi. Þess vegna fór stjórn
Bjarma þess á leit við Ásbjörn
Jónsson, lögfræðing, að flytja
erindi um lögfræðileg málefni i
Kirkjulundi, Keflavík, í kvöld kl.
20.30. Hann svarar siðan fyrir-
spurnum. Fundurinn er öllum
opinn og við höfum heitt á könn-
unni.
Stjórnin.