Morgunblaðið - 31.01.1990, Qupperneq 36
36
MOIffiU^gLAfflP MIÐVmupAGUR 31. JANÚAR 1990
fclk í
fréttum
HEIÐNI
Chamberlain
biður stokka
og steina
ásjár
Ættingjar og vinir leikarans
Richards Chamberlain ótt
ast nú um kappann eftir að nýr
sjónvarpsmyndaflokkur sem hann
fer með aðalhlutverkið í, fékk fá-
dæma lélegar viðtökur. Flokkurinn
heitir „Island son“ og fjallar um
hawaiiískan mann sem snýr aftur
til heimahaga sinna til að sinna
innfæddum eyjaskeggjum. Herra
Væminn, Chamberlain, leikur um-
ræddan lækni og sjá ýmsir dr. Kild-
are afturgenginn og það skugga-
lega. En Chamberlain hefur tekið
óvinsældunum illa.
Fregnir herma að hann kenni
ekki sér eða þættinum um ófarim-
ar, að þátturinn hefur hrokkið allt
ofan í 77. sætið yfir vinsælustu
sjónvarpsseríur. Nei, það er vegna
þess að framleiðendurnir fóru ekki
að ráðum hans við nafngift þátt-
anna. Vildi hann i samráði við inn-
fæddan dulspeking kalla þættina
„Kahuna" sem merkir töfralæknir
á frummálinu. Þetta þótti framleið-
endunum einum of og þvertóku fyr-
-ir. Charmberlain er sum sé að reyna
að stilla til friðar, að reyna að sann-
færa guðina um að þetta séu hörku-
þættir og vinsamlegir Hawaii og
vilji þeir gera svo vel að veita þeim
brautargengi. Gengur svo langt að
Chamberlain rabbar við tré og blóm
og gijót, eða ryður út úr sér töfra-
þulum þar sem hann situr utan við
sig undir pálmatijám. Þá er búið
að virkja dulspekinginn Nönu
Veary, sem er á áttræðisaldri. Rölt-
ir hún um tökusvæðin á hveijum
morgni og stráir telaufi og vígðu
vatni á jörðina eyjaguðunum til
dýrðar og á hveijum degi tekur hún
Chamberlain í tíma, kennir honum
að hlusta á jörðina tala og nema
boðskap og visku tijánna og blóm-
anna eins og hermt er.
RAUNIR
Villisvm
ekki eftirlæti
Michaels
J. Fox
Michael J. Fox lenti í hremmingum
er tökur á kvikmyndinni „Back to
the Future 3“ stóðu yfir. Hluti
myndarinnar var tekinn upp til
sveita og eitt sinn er Mikki refur
var að skoða sig um í nærliggjandi
skógarijóðrum, fraus hann gersam-
lega er hann stóð skyndilega aug-
liti til auglitis við risavaxið villisvín.
Eftir augnabliks hik, gerði svínið
sig líklegt til að renna á leikarann
sem hljóðaði þá hástöfum og kom
þá enn hik á villidýrið.
Tæknimaður einn hafði heyrt
skrækina í Michael, þrifið loftbyssu
og runnið á hljóðið og er hann sá
hvað verða vildi miðaði hann á
svínið og bjóst til að hleypa af. En
þá kallaði Michael að hann skyldi
ekki drepa dýrið, gerði sér ekki
grein fyrir að um loftbyssu var að
ræða. Og engu líkara var en að
tæknimaðurinn vissi heldur ekki að
þetta var aðeins loftbyssa, því hann
miðaði til hliðar við svínið og hleypti
af. Kvikindið styggðist og forðaði
sér, en Michael Fox og tæknimaður-
inn studdu hvor annan til tjald-
búðanna.
JOSS
LAUGAVEGI 101
SÍMI17419
Richard Chamberlain
Villisvín eiga ekki upp á pallborðið hjá Michael Fox.
Arnold og Maria.
MANNFJÖLGUN
Schwarze-
negger reynd-
ist sannspár!
Fjölgun hefur nú orðið í Schwarz-
enegger-fjölskyldunni, Maria
Shriver, eiginkona vöðvabúntsins
Amolds, fæddi fyrir skömmu miðl-
ungsstóra dóttur. Gekk fæðingin
fremur erfiðlega, tók ,18 klukku-
stundir og var móðirin bæði þrekuð
og blóðlítil er upp var staðið. Arnold
stóð við hlið herniar allan tímann og
herma fregnir að hann hafi haft stöð-
ugar áhyggjur af öilu sem nafn er
gefandi meðan á atburðinum stóð.
Á daginn kom að Arnold er spá-
maður góður. Hann hafði spáð því
að bamið yrði annaðhvort drengur
eða stúlka og það reyndist vera hár-
rétt hjá honum! Heyrst hefur að
ákveðið hefði verið, að ef um stúlku-
barn yrði að ræða, yrði það skýrt
Eunice, i höfuðið á móður Maríu,
Eunice Kennedy Shriver, sem var
systir hins látna fyrrum Bandaríkja-
forseta John F. Kennedy, en svo
hefðu þau hjón horfið frá því og vilj-
að skíra stúlkubarnið Christina.