Morgunblaðið - 31.01.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1990
43
ItfámR
FOLX
■ LIVERPOOL er tilbúið að selja
enska landsliðsmanninn John
Barnes til félags á meginlandinu
eftir heimsmeistarakeppnina í sum-
ar, ef marka má
FráBob frétt í Sun í gær.
Hennessy Hann er 25 ára. Liv-
i Englandi erpool keypti Bames
frá Watford á
900.000 pund fyrir tveimur og hálfu
ári. Skv. fréttinni munu bikarmeist-
ararnir ekki láta hann fyrir minna
en 5 milljónir punda.
John Barnes
■ TALIÐ er að ítölsk félög og
jafnvel frönsk muni slást um Bar-
nes, sem hefur lýst yfir áhuga á
að spila með liði á meginlandinu.
■ JOE Jordan, þjálfara Bristol
City, var boðinn nýr þriggja ára
samningur eftir sigurinn á Chelsea
í bikarkeppninni á laugardaginn.
Hann þáði samninginn með þökkum
og skrifaði strax undir. Liðið er í
efsta sæti 3. deildar.
M BRYAN Robson, fyrirliði
Manchester United, er ekki búinn
að ná sér af meiðslum sem hafa
hijáð hann að undanförnu. Hann
verður því ekki með í nágranna-
slagnum á laugardaginn, er United
mætir Man. City, eins og vonir
stóðu til. Mike Phelan kemur hins
vegar inn í lið United á ný eftir
meiðsli.
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
BIKARKEPPNI KARLA:
16-liða úrslit, seinni leikur:
KR-UMFL.................115: 62
■KR hefur tryggt sér sæti! 8-liða úrslitum.
16-liða úrslit - fyrri leikir:
UMFG-ÍBKb...............90 : 74
Stigahæstu menn: Ron Davis 22, Guðmund-
ur Bragason 17 og Marel Guðmundsson 14
fyrir UMFG. Kristinn Friðriksson 23 og
Gestur Gylfason 12 fyrir ÍBK.
UBK-UMFNb................65 : 87
NBA-DEILDIN:
Minnesota - Saeramento...109: 91
Chicago Bulls - Atlanta Hawks.121:101
Dallas-NewJerseyNets.....108: 88
San Antonio - LA Lakers.. 86: 84
Handknattleikur
1. DEILD KVENNA:
Grótta - Stjarnan..........18:19
Mörk Gróttu: Brynhildur Þorgeirsdóttir 5,
Sigríður Snorradóttir 4/2, Laufey Sigvalda-
dóttir 3, Elísabet Þorgeirsdóttir 2, Þuríður
Reynisdóttir 2, Helena Ólafsdóttir 2.
Mörk Stjörnunnar: Herdfs Sigurbergs-
dóttir 6, Guðný Gunnsteinsdóttir 3, Guðný
Guðnadóttir 3, Ragnheiður Stephensen 3/2,
Helga Sigmundsdóttir 2, Ásta Kristjáns-
dóttir 1, Drifa Gunnarsdóttir 1.
2. DEILD KARLA:
Ármann - Breiðablik.........18:28
Valurb-ÍBK..................26:24
3. DEILD KARLA:
Framb-Fýlkir.............. 27:23
Ögri - Ármann b.............25:30
Knattspyrna
Tveir leikir fóru fram í ensku bikarkeppn-
inni í gærkvöldi;
Cambridge - Millwall........ 1:0
Dave Thompson gerði eina markið. Skoraði
í eigið mark þegar tvær mínútur voru eftir
af framlengingu. Thompson renndi knettin-
um þá framhjá markverði sínum af rúml.
20 metra færil! Cambridge er í 4. deild,
Millwall í 1. deild.
Watford - Sheffield. Utd.............1:2
Brian Deane og Paul Stancliffe settu mörk
Sheffield Utd., Gary Porter skoraði fyrir
Watford.
■Cambridge mætir Bristol City og Sheff.
Utd. mætir Barnsley í 16-liða úrslitum.
3. DEILD:
Bristol City - Chester.........1:0
VINÁTTULEIKUR:
Bordeaux - Júgóslavía...........2:1
Klaus Allofs (45.), Piet Den Boer (80.) -
Faruk Hadzibejic (48.) 10.000.
HANDKNATTLEIKUR / SPANN
AHreð og Wenta hafa
fengið flesta ása
Svíinn Per Carlén látinn fara frá Atletico Madrid
ALFREÐ Gíslason og Pólverj-
inn Bogdan Wenta, félagarnir
hjá Bidasoa, er nú stigahæstu
leikmenn íeinkunnargjöf
spænska íþróttablaðsins EIAs,
en blaðið gefur leikmönnum
ása í einkun eftir leiki - frá ein-
um upp í fjóra ása fyrir leik.
Bogdan Wenta er efstur á blaði
með 39 ása, en Alfreð kemur
næstur með 38 ása. Garralda hjá
Granollers er með 37 ása, Vujovic,
Barcelona, Jacobs-
en, Cuenca og Ca-
stellui, San Antonio,
eru með 36 ása,
Zuniga, Bidasoa, 35
ása og Stinga, Valencia, 34 ása.
Aðrir Islendingar en Alfreð eru
ekki á lista yfir þá tuttugu og fimm
leikmenn sem hafa fengið flesta
ásam.
Per Carlén rekinn
Sænski landsliðsmaðurinn Per
Carlén, sem leikur með Atletico
Madrid, var látinn hætta hjá félag-
inu í gær. Um leið var tilkynnt að
þjálfarinn Jordi Alvaro, væri hætt-
ur. Þá hefur verið skipt um form-
ann handknattleiksdeildar félags-
ins. Forseti Atletico Madrid, Jesus
Gil, er mjög óánægður með árangur
félagsins. Eftir að Atletico tapaði í
Pamplona - gegn San Antonio -
23:25, um sl. helgi, voru þessar
ákvarðanir teknar.
Ekki er vitað hverjir verða eftir-
menn Carlén og Alvaro hjá félag-
inu, en Rúmeninn Dumitru er efstur
á óskalistanum yfir leikmenn.
Atletico ætlaði sér mikla hluti á
þessu keppnistímabili. Félagið fékk
til sín fjóra nýja leikmenn: Carlén,
Papitu, Maydral og Rubind. Atletico
er nú sex stigum á eftir Barcelona,
en næsti leikur liðsins er einmitt
gegn Barcelona í Madrid á sunnu-
daginn.
Þess má geta að þetta var fimmta
ár Carléns á Spáni, en hann lék
fjögur ár með Granollers.
Alfreð Gíslason hefur staðið sig
vel hjá Bidasoa.
Atli
Hilmarsson
skrifar
frá Spáni
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
Giinther Mader á fullri ferð.
Þnofi sigur-
inn hjá Mader
Norðurlandabúar í þremur af fjórum
efstu sætunum í Frakklandi í gær
AUSTURRÍKISMENN fögnuðu
enn einum sigrinum í heims-
bikarkeppninni í alpagreinum i
Les Menuires í Frakklandi gær.
Giínther Mader sigraði í risa-
svigi og Norðmenn nældu í silf-
ur og bronsverðlaun.
Sigurinn í gær var sjötti sigur
Austurríkis í karlaflokki á 17
dögum. Þetta var jafnframt þriðji
sigur Maders í heimsbikarnum, en
áður hafði hann unnið í svigi og
stórsvigi 1988 og 1989. „Það var
mikilvægt fyrir mig að ná loks að
sigra í risasvigi," sagði Mader. „Ég
hef reynt að vera með í öllum grein-
unum fjórum, en hef ekki getað
keppt í bruni vegna eymsla í hægra
hnéi eins og stendur."
Norðmenn geta verið ánægðir
með árangurinn í gær. Ole Kristian
Furusedt varð annar, 0.45 sek á
eftir Mader og Atli Skárdal í þriðja
sæti. Þriðji Norðurlandabúinn, Lars
Böije Eriksson frá Svíþjóð, varð
fjórði.
Pirmin Zúrbriggen hafði síðasta
rásnúmerið í fyrsta ráshópi, og var
brautin farin að versna er hann fór
niður. „Ég gat ekki keyrt niður
brautina eins og ég geri í hörðum
snjó. Ég hlakka til að komast á
harðari snjó,“ sagði Zúrbriggen sem
hafnaði í 7. sæti. Við það minnkaði
bilið milli hans og Furusedt í stiga-
keppninni úr 48 stigum í 37 stig.
Mader er í þriðja sæti samanlagt,
76 stigum á eftir Svissledingnum.
HANDBOLTI / 1. DEILD KVENNA
Naumt hjá
Stjomunm
ÞAÐ var mikil spenna undir
lokin í viðureign Gróttu og
Stjörnunnar í gærkvöldi. Grótta
hafði leitt leikinn frá byrjun, en
liðið mátti sætta við að Stjörn-
ustúlkurnar „stælu“ sigrinum
undirlokinog sigruðu 18:19.
Grótta spilaði sterkan varnar-
leik í fyrri hálfleik og var fátt
um svör hjá Stjörnunni framan af.
í sókninni gekk einfalt línuspil
Gróttu vel upp og
sömu sögu er reynd-
ar að segja af
Stjörnunni. Grótta
leiddi í leikhléi 11:7.
Stjörnustúlkur jöfnuðu leikinn
fljótlega eftir hlé, en tókst þó ekki
að komast yfir. Þegar stutt var til
leiksloka var Grótta aftur kómin
þremur mörkum yfir og virtist sig-
urinn í höfn hjá þeim. Þá kom til
kasta dómara leiksins, sem reyndar
höfðu sett svip sinn á allan leikinn
með fádæma slakri dómgæslu. Þeir
Þórir Sandholt og Hafliði Maggason
misstu leikinn algerlega úr höndum
sér undir lokin með þeim afleiðing-
um að hann leystist upp í hreina
vitleysu. Gróttustúlkur voru tveim-
ur færri síðustu mínúturnar og
dugði það Stjömunni til þess að ná
yfirhöndinni í fyrsta og eina sinn í
leiknum.
Þrátt fyrir að dómararnir hafi
átt stóran þátt í atburðarásinni
undir lokin mega þó Gróttustúlk-
urnar sjálfum sér um kenna, en
reynsluleysi þeirra vóg þungt. Liðið
var mjög jafnt, en Brynhildur Þor-
geirsdóttir var atkvæðamest. Hjá
Stjörnunni var Herdís Sigurbergs-
dóttir góð, svo og Guðný Gunn-
I steinsdóttir.
Katrín
Friöriksen
skrifar
HANDBOLTI
HSÍ semur
viðPepsí
Handknattleikssamband ís-
lands og Pepsi/Sanitas
hafa gert með sér samning um
stuðning við landsliðið og þátt-
töku þess í heimsmeistara-
keppninni í Tékkóslóvakíu og
kynningu á Pepsi.
Sanitas mun greiða HSÍ
ákveðna upphæð af sölu Pepsi
á meðan á samningstímanum
stendur en ekki er gefið upp hve
há upphæðin er. Jón Hjaltalín
Magnússon, formaður HSÍ,
sagði að upphæðin skipti millj-
ónum og hækkaði í hlutfalli við
árangur en greitt er sérstaklega
fyrir sigur í heimsmeistara-
keppninni.
HSÍ mun í staðinn kynna
Pespi og standa fyrir söfnunar-
leik í samvinnu við Sanitas.
Jón Hjaltalín sagði að með
þessum samingi, og þeim sem
HSÍ hefur gert m.a. við Lands-
bankann og Flugleiðir, hefði
ljárhagsleg staða HSÍ skánað
til muna og gert sambandinu
kleift að fjármagna undirbúning
landsliðsins fyrir HM.
Mm
FOLX
■ JIMMY HiII, stjórnarformaður
Fulham, sem leikur í 3. deild, seldi
völl félagsins, Craven Cottage, í
gær. „Þetta tryggir framtíð félags-
ins,“ sagði formaðurinn, en félagið
hefur átt í mikium fjárhagserfíð-^j
leikum. Það voru heldur engir smá-
aurar sem hann fékk — 13 milljón-
ir punda, sem samsvarar 1,3 millj-
arði ísl. króna.
■ CRAVEN Cottage stendur á
mjög góðum stað í London, á bökk-
um Thames-árinnar. Kaupandinn
var byggingarfélag, sem fljótlega
mun rífa leikvanginn og byggja á
lóðinni. Áhangendur Fulham voru
ekki hressir þegar þeir fréttu af
sölunni og hyggja á mótmælastöðu
fyrir Ieik liðsins á laugardag. Ekki
hefur verið gefið upp hvar Fulham
leikur eftir að það flytur af Tham-^~
es-bökkum.
■ TVEIR verðlaunahafar í lyft-
ingum hafa fallið á lyfjaprófi á sam-
veldisleikunum í Nýja Sjálandi.
Það eru þeir Rick Chaplin frá
Wales, sigurvegari í snörun í 75
kg fl., og Subratakumar Paul, frá
Indlandi. Hann vann tvenn silfur-
og ein bronzverðlaun í 67,5 kg.
flokki.