Morgunblaðið - 10.02.1990, Page 14
•MORGUNBLÁÐIB LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR' 1990
14
Bréfaskák:
„Ekta íþrótt fyrir
landsbyggðina“
- segir Frank Herlufsen alþjóðlegur meistari
Vogum.
ÞRIÐJI íslendingurinn til að ná alþjóðlegum meistaratitli í bréfa-
skák er Frank Herlufsen. Hann náði hálfum áfanga á 2. Evrópu-
móti landsliða 1978-1980, og aftur hálfiim áfanga á 3. Evrópu-
móti landsliða 1983-1988. Að auki náði hann hálfum áfanga á 10.
Ólympíumótinu 1982-1988. Frank fékk fyrir nokkru staðfestingu
á titlinum frá Alþjóðasambandi bréfaskákmanna með skjali og
verðlaunapeningi.
Frank hefur tekið mikinn þátt
í skák. Á árunum 1966-1969 tefldi
hann hjá Taflfélagi Reykjavíkur.
Þá gerði hann hlé þar til hann
varð Norðurlandsmeistari árið
1975 og hraðskákmeistari Norður-
lands sama ár. Síðan tók hann til
við bréfaskákina. Hann hefur
einnig fengist við blindskák.
Bréfaskák er tefld með þeim
hætti að skákmennimir senda
hvem leik bréflega, og er þeim
gefinn umhugsunarfrestur í þrjá
daga fyrir leikinn. Þess vegna tek-
ur bréfaskák langan tíma, en
tíminn ræðst þá helst af póstsam-
göngum. Ekki er óalgengt að
skákin taki 2-3 ár. Frank segir
að það hafi tekið langan tíma að
bíða eftir leikjum frá Austur-
Evrópu, Argentínu, Ekvador og
Kúba hafí slegið öll met. Vegna
þess hve langan tíma tók að bíða
eftir hverjum leik við Kúbverjann
bauð Frank honum jafntefli til að
ljúka skákinni, en segist sjá mikið
eftir því.
Að sögn Franks hefur verið
mikill uppgangur í bréfaskák á
íslandi síðustu tvö ár. Þátttakend-
ur eru hátt á annað hundrað, og
um 80 þeirra eru virkir. Frá 1976
hafa verið haldin íslandsmót. Á
fyrsta mótinu lenti Frank í þriðja
sæti, en í öðra íslandsmótinu árið
1978 náði hann íslandsmeistarat-
itli eftir framlengingu, en því móti
lauk 1982.
íslendingum hefur gengið mjög
vel í landskeppnum, þar sem þeir
hafa unnið alla andstæðinga sína
utan Svía, sem þeir töpuðu fyrir.
íslendingum stendur til boða
þátttaka á erlendum vettvangi í
Evrópumótum og heimsmótum.
Dæmi um þátttökuíjölda á einu
móti er 4.000 skákmenn, en
keppnin fer fram í riðlum. Tíminn
fyrir skákina er þijú ár, og ef
henni er ekki lokið fer hún í dóm.
„Bréfaskák er ákaflega
skemmtileg" segir Frank. „Maður
verður að lesa um skák og fylgj-
ast með því nýjasta í skákinni, og
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Frank Herlufsen við skákborðið
með skjal frá Alþjóðlega bréfa-
skáksambandinu og verðlauna-
pening sem viðurkenningu fyrir
alþjóðlegum meistaratitli í bréfa-
skák.
ef maður verður undir er mjög
erfítt að snúa taflinu við.“ Þá seg-
ir hann bréfaskák ekta íþrótt fyrir
landsbyggðina og fyrir þá sem
vilja tefla heima. í bréfaskák er
hægt að velja fjölda þátttakenda
og hefur Frank teflt 20 skákir á
sama tíma.
Núna hafa 5 íslenskir bréfa-
skákmenn náð hálfum áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli. í bréfa-
skák era einnig stórmeistarar.
Aðspurður segist Frank hafa gælt
við þá hugmynd að tefla að stór-
meistaratitli, en þar væri við
harðsnúið lið að tefla og ekkert
ákveðið í þeim efnum.
EG
Ekkert óeðlilegt við
aðildarmáta Þró-
unarfélagsins í GKS
- segir Gunnlaugur Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags íslands
GUNNLAUGUR Sigmundsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags ís-
lands hf., segist ekki sjá neitt athugavert við það að hann sitji í sljórn
GKS, sem er nýstofnað fyrirtæki sem varð til með þáttöku félagsins
við samruna Kristjáns Siggeirssonar hf. og Gamla kompanísins hf.,
en forsvarsmenn nokkurra húsgagnaframleiðenda hafa gert athuga-
semd við aðildarmáta Þróunarfélagsins að GKS. Þá'-segir hann ekki
vera á dagskrá að auka hlutafé Þróunarfélagsins í GKS, en það er
nú 500 þúsund krónur.
Gunnlaugur sagði að strax í upp-
hafí hafí það verið ákveðið af stjórn
Þróunarfélagsins að þó félagið legði
fram hlutafé í eitthvert fyrirtæki þá
þýddi það alls ekki að sjálfgefið
væri að félagið legði fram hlutafé í
önnur nákvæmlega samskonar fyrir-
tæki, og það hefði verið staðfest af
öllum stjómum félagsins síðan. „Hjá
okkur sem hlutafélagi er ekkert til
sem heitir fordæmisgildi, gagnstætt
því sem væri um opinbera lánasjóði.
Þetta er hlutafélag sem ríkissjóður
á beint í 29,3%, og síðan eru á ann-
að Hundrað aðrir hluthafar. Menn
vilja gleyma því að þetta er hlutafé-
lag og tengja okkur gjarnan við eitt-
hvað sjóðakerfí, og ef við ættum að
fara eftir því sem þessir umræddu
husgagnaframleiðendur eru að
segja, þá hefðum við í raun og veru
engan flöt á að starfa. Þá má geta
þess að enginn þessara aðila er með
erindi hjá Þróunarfélagi íslands, og
aðeins eitt formlegt erindi hefur
borist frá húsgagnaframleiðendum
sem ætluða að sameinast, og það
er einmitt frá GKS.“
Að sögn Gunnlaugs var uppruna-
legt erindi Gamla kompanísins hf.,
Kristjáns Siggeirssonar hf. og Axels
Eyjólfssonar hf. til Þróunarfélagsins
beiðni um 7,5 milljónir kr., en Axel
Eyjólfsson hefði síðan ákveðið að
draga sig út úr fyrirhugaðri samein-
ingu fyrirtækjanna. „Við lýstum þá
yfir í upphafi að ákveðnar forsendur
yrðu að vera til staðar til þess að
af þessu gæti orðið, og þær forsend-
ur liggja ekki að öllu leyti fyrir enn.
Við skrifuðum okkur fyrir 500 þús-
und króna hlutafé í desember síðast-
liðnum, en hinir aðilarnir eru hvor
um sig með yfír 30 milljóna króna
hlutafé. Það má því segja að hags-
munir okkar í þessu fyrirtæki séu
litlir, þó hins vegar ég hafi farið að
vinna að framgangi þess eftir að ég
kom þar inn í stjórn."
Gunnlaugur sagði að ekki hefði
verið á dagskrá að auka hlutafé
Þróunarfélagsins í GKS. Hins vegar
hefði verið gengið út frá því í upp-
hafi við sameiningu fyrirtækjanna
að nýtt viðbótarhlutafé upp á 21
milljón kr. kæmi inn í fyrirtækið,
en hann teldi óvíst að þörf væri fyr-
ir það í dag.
Framtíð lífeyrismála á Islandi:
Iðgjöld þurfa að hækka í 17
til 30% ef sjóðimir eiga að
standa við skuldbindingar
Lífeyrissjóður verslunarmanna fær nær
50% betri ávöxtun hlutabréfa en skuldabréfa
IÐGJÖLD almennra lífeyrissjóða þurfa að hækka í 17% og ið-
gjöld sjóða opinberra starfsmanna í 25% til 30% að öðru óbreyttu,
eigi sjóðirnir að geta staðið undir lífeyrisskuldbindingum sínum
í náinni framtíð. Þetta kom fram í máli Péturs Blöndal formanns
Landssamtaka lífeyrissjóða á fundi um framtíð lífeyrismála á ís-
landi, sem Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins og Málfundafélagið
Óðinn héldu á miðvikudag. Fram kom á fundinum að í nokkur
ár hefur legið á borði fjármálaráðherra frumvarp um breytta
skipan lífeyrismála en ekki varið lagt firam á Alþingi. Ennfremur
að staða sjóðanna sé verulega slæm og yóst að þeir geti ekki
staðið við skuldbindingar sínar. Guðmundur H. Garðarsson al-
þingismaður greindi frá því að Lífeyrissjóður verslunarmanna á
um 415 milljónir króna í hlutabréfum, sem skiluðu um 13% ávöxt-
un árið 1988, samanborið við 7,7% ávöxtun annarra skuldabréfa.
Pétur Blöndal sagði að lífeyris-
greiðslur sjóðanna þyngdust á
næstu árum, elli- og örorkulífeyr-
isþegum muni fyrirsjáanlega
fjölga gífurlega í framtíðinni, á
móti komi tækniframfarir sem
geri atvinnulífínu kleift að standa
undir lífeyrisgreiðslunum „Ég hef
þá bjargföstu trú að við getum
haldið áfram að greiða þann
lífeyri sem við höfum í dag, en
iðgjaldið þarf að hækka mjög
umtalsvert, og það er hægt að
hækka það. Með auknum fram-
förum, meiri þekkingu og bættum
lífskjörum getur hinn vinnandi
maður staðið undir miklu hærri
iðgjöldum heldur en hann gat
áður og ef launin hækka um 50%
á næstu 20 til 30 árum, sem er
ekki óraunhæft, þá má segja að
af þessum 50% fari eins og 20%
til lífeyrisþega.“
Hann sagði að hækka þyrfti
iðgjaldið úr 10% af tekjum eins
og það er í dag upp í um það bil
17% hjá almennu sjóðunum og
upp í 25% til 30% hjá lífeyrissjóð-
um opinberra starfsmanna, eigi
sjóðirnir að geta greitt út óskertan
lífeyri.
Geta ekki staðið við
loforðin
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands gerði framvarp um
lífeyrissjóði að umtalsefni, en það
hefur í nokkur ár legið á borði
fjármálaráðherra og ekki verið
lagt fram á Alþingi. Hann sagði
aðila vinnumarkaðarins hafa lagt
á það mikla áherslu þegar samn-
ingaviðræður stóðu á dögunum
að það yrði lagt fram og gert að
lögum. „Af okkar hálfu kom það
fram, að ef þetta framvarp yrði
ekki að lögum, eða annað með
svipuðu efni, þá hlyti að koma að
því, fyrr en seinna, að aðilar
vinnumarkaðarins, Vinnuveiten-
dasambandið og Alþýðusamband-
ið, myndu óska eftir því að fólk
yrði leyst undan þeirri skyldu að
greiða í lífeyrissjóði,“ sagði Þórar-
inn.
„Ástæðan er þessi: í dag erum
við með kerfí 80 eða 90 lífeyris-
sjóða sem era með rekstrarkostn-
að frá 2% upp í um 30% og marg-
ir með 6-8% af ráðstöfunarfé. Við
vitum það að þessir sjóðir era
misjafnlega ávaxtaðir og við vit-
um að innheimtan er misjöfn hjá
þeim og við vitum það að þeir eru
allir reknir samkvæmt sömu
grandvallarreglunni, ekki missir
sá sem fyrstur fær. Þeir lofa allir
meiri réttindum en þeir geta stað-
ið við og þau eru borguð út í dag
eftir þessari reglu: Ekki missir sá
sem fyrstur fær. Og við segjum
sem svo, kalt og ákveðið, því eru
takmörk sett hvað hægt er að
leggja á siðgæðisvitund okkar, svo
bág sem hún annars er.“
„Það er skelfileg staða,“ sagði
Þórarinn, „að horfa á lífeyrissjóð
sem allir vita að peningar sem
settir eru í í dag koma aldrei til
með að nýtast þeim sem setur þá
inn. Þeir eru búnir, famir, og
koma ekki aftur. Það er skelfileg
staða að þurfa að standa að því,
oft á ári, að þurfa að segja: Sam-
kvæmt lögunum um starfskjör
launþega er sérhveijum launa-
manni skylt að inna af hendi
tíund, fjóra beint frá sér, sex frá
sínum launagreiðanda, inn í lífeyr-
issjóð síns starfshóps eða starf-
stéttar, alveg burtséð frá því
hvernig hann er staddur eða
hvernig hann starfar. Ef þessum
málum verður ekki komið til betri
vegar innan afar skamms tíma,
þannig að þeir sem era að borga
í dag geti treyst því að þeir fái
úr þessum sama sjóði þegar þeir
þurfa á að halda síðar meir, þá
er eins gott að leggja þetta kerfí
niður,“ sagði Þórarinn V. Þórar-
insson.
3% í hlutabréfum
Guðmundur H. Garðarsson al-
þingismaður og formaður stjórnar
Lífeyrissjóðs verglunarmanna
ræddi meðal annars um ávöxtun
lífeyrissjóðanna og fjárfestingar
þeirra í atvinnulífinu. Hann kvað
Lífeyrissjóð verslunarmanna hafa
farið afar varlega í slíkar fjárfest-
ingar og eingöngu lagt fé í traust
fyrirtæki síðan hann fékk fyrstur
lífeyrissjóða heimild til slíks, að
fjárfesta í fyrirtækjum fyrir allt
að 10% af ráðstöfunarfé. Guð-
mundur sagði Lífeyrissjóð versl-
unarmanna nú eiga hlutafé fyrir
um 415 milljónir króna „og það
verður núna innan tveggja mán-
aða komið í 450 milljónir," sagði
hann. „Það eru 3% af heildareign
sjóðsins um síðustu áramót, sem
er um 14 milljarðar.“
Sjóðurinn á hlut í Eimskipafé-
laginu, Alþýðubankanum, Iðnað-
arbankanum og Verslunarbank-
anum. „Við erum núna búin að
kaupa í íslandsbanka og erum
með átta eða tfu prósent af hluta-
bréfum í íslandsbanka. Svo eigum
við í Fjárfestingarfélaginu og Fé-
fangi og nú nýverið keyptum við
mjög stóran hlut í Flugleiðum, við
erum með líklega sjö eða átta
prósent af hlutabréfum þar.“
Guðmundur sagði ávöxtun
hlutafjáreignar sjóðsins hafa verið
12% til 13% árið 1988, en ekki
liggur enn fyrir uppgjör fyrirtækj-
anna fyrir síðasta ár, þannig að
ávöxtunin það ár er ekki ljós. „Á
sama tíma var ávöxtun vegna
annarra skuldabréfa 7,7%.“