Morgunblaðið - 10.02.1990, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990
Morgunblaðið/Sverrir
Davíð Oddsson, Björn Jósef Arnviðarson og Friðrik Sophusson slá á létta strengi við upphaf fundarins
á Hótel Sögu í gær.
Drög að ályktun flokksráðsfimdar sjálfstæðismanna:
Samdráttur ríkisútgjalda
prófsteinn á sljórnina
í DRÖGUM að stjórnmálaályktun flokksráðs- og formannafundar Sjálf-
stæðisflokksins, sem hófst í Reykjavík í gær, er nýlegri samningsgerð
aðila vinnumarkaðarins fagnað, en jafnframt tekið fram að það verði
prófsteinn á ríkisstjórnina hvort henni takist að tryggja árangur samn-
inganna með samdrætti ríkisútgjalda.
„Aðilar vinnumarkaðarins hafa nú
með afgerandi og ábyrgum hætti
tekið fram fyrir hendur ríkisstjórnar-
innar með sögulegum samningum
um kaup, kjör og verðlagsforsendur,
sem undirritaðir voru í byijun þessa
mánaðar," segir í ályktunardrögun-
um. „Samningarnir eru hugsaðir sem
vöm gegn frekari kjararýrnun og
atvinnuleysi. Þessi samningsgerð,
sem Sjálfstæðisflokkurinn styður
heils hugar, sýnir að verkalýðshreyf-
ingin og forystumenn í atvinnulífí
skilja betur en ríkisstjórnin nauðsyn
þess að gera íslenzkan þjóðarbúskap
samkeppnishæfan við önnur lönd og
aðlaga íslenzkt efnahagslíf breyting-
um í viðskipta- og samkeppnislönd-
um. Það mun verða prófsteinn á vilja
og getu ríkisstjómarinnar til að
leggja jákvætt til þessara mála hvort
henni tekst að draga úr ríkisútgjöld-
unum til samræmis við þann út-
gjaldaauka, sem samningunum fylgir
fyrir ríkissjóð."
í ályktunardrögunum er einnig
minnzt á breytingarnar í Austur-
Evrópu, og að á meðan þessi sögu-
lega framvinda eigi sér stað í nálæg-
um Iöndum, sitji afturhaldsstjóm á
íslandi. Þar er látið í ljósi vantraust
á ríkisstjóminni og talin upp ýmis
mál, sem henni eru talin til vansa.
Þar segir meðal annars: „[Ríkis-
stjómin] hefur látið undir höfuð
leggjast að veita atvinnuvegunum
eðlileg starfsskilyrði en þess í stað
beitt handahófskenndum aðgerðum
með ríkistryggðu lánsfé og jafnvel
þjóðnýtingu til þess að fleyta áfram
fyrirtækjum sem náðar njóta meðan
fjöldi annarra hefur þurft að sætta
sig við gjaldþrot."
Um síðastnefnda atriðið sagði
Matthías Bjamason alþingismaður í
almennum umræðum, að stjórn-
málanefnd fundarins þyrfti að at-
huga það nánar. „Er það stefna Sjálf-
Stæðisflokksins að öll fyrirtæki, sem
eiga í erfíðleikum verði að fara í
gjaldþrot?" spurði Matthías. Hann
nefndi sem dæmi að á Súgandafirði
væri eitt fyrirtæki yfírgnæfandi í
atvinnulífinu „Ef það hefði farið á
hausinn, orðið gjaldþrota og skipin
seld burt, hefði um leið verið búið
að gera heimilin gjaldþrota," sagði
þingmaðurinn. „Þurfa ekki að vera
mannleg samskipti ríkjandi hjá flokki
eins og Sjálfstæðisflokknum, sem
hefur byggt að vemlegu leyti upp
það velferðarþjóðfélag, sem við búum
í. Til þessa verðum við að taka tillit
í ríkum mæli. Það hafa fjölmörg fyr-
irtæki á landinu fengið mikla fyrir-
greiðslu og flestöll eru vel að þeirri
fyrirgreiðslu komið.“
Matthías sagði að ástæðan fyrir
vandræðum fyrirtækjanna væri
stjórnun veiðanna, dregið hefði verið
úr möguleikum fólks til að bjarga
sér. Þetta ætti sérstaklega við um
þau byggðariög, sem lægju nærri
þorskveiðimiðum. „Þar hafa stjórn-
völd og meirihluti Alþingis tekið
ákvörðun og bera því ábyrgð á hvem-
ig komið er víða um landið. Þess
vegna er ekki hægt að taka svona
til orða í flokki allra stétta," sagði
Matthías. Hann gagnrýndi mjög
frumvarpið, sem leggja á fyrir Al-
þingi um stjómun fiskveiða. „Ef
maður ýtir skektu frá landi með
færi, þá má hann ekki renna færinu,
sem hefur þó verið leyft frá því ís-
land byggðist, í rúm 1100 ár, nema
Sex lög keppa til úrslita og eru
það Sú ást er heit, flutt af Björg-
vini Halldórssyni, Eitt lag enn, flutt
af Sigríði Beinteinsdóttur og Grét-
ari Órvarssyni, Eitt lítið lag, flutt
af Helgu Möller, Ágústi Ragnars-
syni og Sigurði Vilberg Dagbjarts-
syni, Eg Iæt mig dreyma, flutt af
sækja um sérstakt leyfi til æðsta
stjómvalds," sagði Matthías.
Fleiri ræddu um sjávarútvegsmál
og fiskveiðistjómun í umræðum á
fundinum og töldu margir að álykta
þyrfti sérstaklega þar um, einkum í
ljósi væntanlegs fmmvarps um fisk-
veiðistjórnun. Þeirra á meðal vom
Helgi Hólm, Guðmundur Hallvarðs-
son, Sveinn Hjörtur Hjartarson,
Bjarni Hjartarson og Sigurður Ein-
arsson. Sigurður sagðist sannfærður
um að sú þróun, að opinberir sjóðir
ættu fyrirtæki úti á landsbyggðinni,
það væri nauðsynlegt að það væm
einstaklingar á stöðunum, sem þau
ættu. Hann sagðist heldur aldrei
geta skilið að eitt fyrirtæki ætti ski-
lið að fá fyrirgreiðslu umfram annað.
Seturétt á fundi sjálfstæðismanna
eiga allir formenn flokksfélaga og
-samtaka, flokksráðsmenn og sveit-
arstjómarmenn flokksins. Fundinum
lýkur á morgun, sunnudag.
Ellen Kristjándóttur, Til þín, flutt „
af Björgvini og Ég er að leita þín,
flutt af Eyjólfi Kristjánssyni.
Höfundar laganna em, í stafrófs-
röð, Björn Björnsson, Friðrik Karls-
son, Gísli Helgason, Gunnar Þórðar-
son, Hörður G. Ólafsson og Magnús
Þór Sigmundsson.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sveit Tammy leikur fyrir dansi
Bandaríska sveitasöngkonan Tammy Wynette er nú stödd hér á landi.
Hún hefur haldið tvenna tónleika fyrir fullu húsi á Hótel íslandi við
mjög góðar undirtektir. Þriðju og síðustu tónleikar söngkonunnar verða
í kvöld á Hótel íslandi og er einnig uppselt á þá. Samningar hafa tekist
við stórhljómsveit Tammy um að leika fyrir dansi í veitingahúsinu Holly-
wood í kvöld, laugardagskvöld, að Ioknum tónleikum söngkonunnar.
Söngvakcppnin:
Lag íslands valið í
sjónvarpssal í kvöld
ÚRSLIT í söngvakeppni sjónvarpsins ráðast í kvöld, en þá verður
valið framlag Islands til Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu,
sem verður í Júgóslavíu í maí.
glT spurt og svarað
LESENDAÞJÓNIJSTA MORGUNBLAÐSINS:
SKATTAMAL
MORGUNBLAÐIÐ aðstoðar að venju lesendur sína við gerð skatt-
framtala með þeim hætti að leita svara við spurningum þeirra
um það efni.
Lesendur geta hringt í síma Morgunblaðsins, 691100, milli
klukkan 11 og 12 á morgnana og spurt um umsjónarmann þáttar-
ins „Spurt og svarað um skattamál". Hann tekur spurningarnar
niður og kemur þeim til embættis ríkisskattstjóra. Spurningarnar
sem borist hafa og svör við þeim birtast hér á siðunni.
Afsláttur af
fasteignagjöldum
N.N spyr:
Ég fór á ellilaun síðastliðið
haust,' en maðurinn minn fyrir 20
árum. Getum við fengið afslátt
af fasteignagjöldum? Hvaða regl-
ur gilda um afslátt af fasteigna-
gjöldum?
Svar
Álagning fasteignagjalda er
ekki í höndum skattstjóra. Ríkis-
skattstjóri er því ekki réttur aðili
til að svara þessari spurningu.
Viðhaldskostnaður á
íbúðarhúsnæði
Lilja spyr:
Kemur viðhaldskostnaður á
eigin íbúðarhúsnæði, sem ég nýti
ekki sjálf, til frádráttar á skatt-
framtali?
Svar
Ef um er að ræða íbúðarhús-
næði sem leigt er út er heimilt
að færa viðhaldskostnað til frá-
dráttar leigutekjum. í öðrum til-
vikum er ekki heimilt að færa
viðhaldskostnað sem frádrátt á
skattframtali.
Vaxtagjöld vegna kaupa á
íbúðarhúsnæði
O.K. spyr:
Ég keypti íbúð 1988 og greiddi
hana upp til fyrri eiganda síðast-
liðið sumar, en það gerði ég með-
al annars með víxilláni sem móðir
mín tók í banka í þessu skyni.
Hún er skráður greiðandi víxils-
ins, en ég borga sjálf af honum.
Get ég nýtt mér þetta til vaxtaaf-
sláttar á skattframtali?
Svar
Vaxtagjöld vegna lána sem
sannanlega eru tekin til öflunar
íbúðarhúsnæðis til eigin nota
mynda stofn til útreiknings vaxta-
bóta. í þessu tilviki virðist spurn-
ingin vera um hvort um raun-
verulegt skuldasamband hafí ver-
ið að ræða hjá íbúðarkaupanda
vegna tiltekins víxilláns. Sé sýnt
fram á að svo hafí verið teljast
vaxtagjöldin mynda stofn til út-
reiknings vaxtabóta.
Sjúkradagpeningar
B.S. spyr:
Ég fékk greidda sjúkradag-
peninga frá sjúkrasamlagi vegna
veikinda á síðasta ári. Hvernig
geri ég grein fyrir því á skatt-
framtali? Þarf ég að greiða skatta
af þeim?
Svar
Sjúkradagpeningar eru skatt-
skyldir og færast til tekna í lið
7.3. á skattframtali.
Laun blaðburðarbarna
Halldór spyr:
Á að gefa laun blaðburðarbarna
upp til skatts? Ef svo er, hvemig
ber þá að telja þau frarri og hvaða
reglur gilda um skattlagninguna?
Svar
Laun blaðburðarbarna eru
skattskyld á sama hátt og að’rar
launatekjur. Ef um er að ræða
að bam yngra en 16 ára hafi
launatekjur þarf að fylla út skatt-
framtal barns RSK 1.02 þar sem
fram em taldar launatekjur
barnsins. Um útfyllingu barna-
framtals vísast í leiðbeiningar
ríkisskattstjóra bls. 15 og 16.
Á launatekjur barns er lagður
4% tekjuskattur og 2% útsvar.
Eignarskattur af
verðbréfúm
ÞJónasson spyr:
í leiðbeiningum með skatt-
framtali segir varðandi Ávöxtun-
arbréf og Rekstrarbréf að gefa
eigi að minnsta kosti helming
nafnverðs þeirra upp til skatts.
Getur þessi uppgjöf leitt til hækk-
unar á eignarskatti hjá viðkom-
andi? Hvemig var þetta reiknað
við álagningu í fyrra? Leiði álagn-
ing af þessum sökum til hærri
gjalda en eðlilegt er, geta þá ein-
staklingar farið fram á endur-
greiðslu sem því nemur með vöxt-
um?
Svar
Eignarskattar reiknast af eign-
arskattsstofni og þessi tilteknu
bréf mynda eignarskattsstofn.
Þessa tegund verðbréfa ber að
telja fram á nafnverði að við-
bættum áföllnum vöxtum og verð-
bótum. Vegna óvissu um verð-
mæti þessara tilteknu bréfa hefur
hins vegar verið látið óátalið ef
bréfin em talin fram á að minnsta
kosti hálfu nafnverði. Sé eignar-
skattur reiknaður af réttilega ák-
vörðuðum eignarskattsstofni
verður ekki séð að heimilt sé að
breyta því. Framteljendur mega
því ekki vænta þess að um endur-
greiðslu á eignarskatti verði að
ræða í slíkum tilvikum.
Kostnaður vegna aksturs
B.A. spyr:
Ef vinnuveitandi útvegar rútu-
ferðir til og frá vinnustað starfs-
mönnum að kostnaðarlausu, á þá
starfsmaður sem þarf að fara á
eigin bíl til vinnu, og fær bíla-
styrk, að telja aksturinn á eigin
bíl til og frá vinnustað eða að
rútustöð?
Svar
Ekki er heimilt að færa sem
frádrátt á móti fengnum bifreiða-
styrk kostnað vegna aksturs til
og frá vinnustað. Á það jafnt við
í þessu tilviki sem öðrum.