Morgunblaðið - 10.02.1990, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990
23
Margir sóttu um
lóðir í Giljahverfi
UMSÓKNIR bárust frá níu
byggingarfyrirtækjum og
þremur sjálfstæðum aðilum um
Sjallinn;
Dagskrá-
in Staðan
í hálfleik
sett upp
STAÐAN í hálfleik «er ný
skemmtidagskrá sem sett
verður upp í Sjallanum og
frumsýnd laugardagskvöldið
17. febrúar næstkomandi.
Dagskráin er byggð upp á tón-
listarferli Pálma Gunnarsson-
ar söngvara og þar verða flutt
mörg af hans vinsælustu lög-
um siðastliðin 20 ár.
Höfundur og leikstjóri sýning-
arinnar er Bjami Hafþór Helga-
son sjónvarpsstjóri Eyfírska
sjónvarpsfélagsins, en kynnir á
sýningunni verður Sigmundur
Emir Rúnarsson fréttamaður.
Auk Pálma koma fram í sýning-
unni söngkonurnar Ellen Kristj-
ánsdóttir og Erna Gunnarsdóttir.
Hljómsveit undir stjóm Atla Örv-
arssonar sér um undirleikinn, en
hana skipa auk Atla, Tryggvi
Híibner, Þórir Úlfarsson, Sigurð-
ur Reynisson, Jón Ingólfsson og
Rúnar Georgsson.
I sýningunni ber mest á lögum
Magnúsar Eiríkssonar, en einnig
verða flutt lög eftir Gunnar Þórð-
arson, Geirmund Valtýsson,
Magnús Þór Sigmundsson og
fleiri. Heiðursgestir sýningarinn-
ar verða hjónin Gróa og Önundur
Grenz, en það eru leikararnir
Steinunn Ólafsdóttir og Einar
Kristjánsson sem em í hlutverk-
um þeirra.
lóðir í Giljahverfi, en umsóknar-
frestur um lóðir er runninn út.
I fyrsta áfanga hverfisins er
gert ráð fyrir 80 ibúðum í fjór-
um átta hæða fjölbýlishúsum og
43 einnar hæðar raðhúsum. Alls
sóttu verktakar um lóðir fyrir
120 íbúðir í raðhúsum, eða
nærri þrefalt fleiri lóðir en til
ráðstöfunar eru.
Jón Geir Ágústsson bygginga-
fulltrúi Akureyrarbæjar sagðist
ekki hafa átt von á svo mörgum
umsóknum um lóðimar. „Þetta fór
fram úr þeim vonum sem ég hafði
gert mér,“ sagði Jón Geir. Hann
sagði að langflestir þeirra sem
sóttu um lóðirnar væru bygginga-
verktakar og væru menn að
tryggja sér framtíðaraðstöðu til
lengri tíma.
Bygginganefnd mun úthluta
lóðunum og gerði Jón Geir ráð
fyrir að úthlutunin yrði tekin fyrir
á fundi nefndarinnar síðar í þess-
um mánuði. Vinna er þegar hafin
vegna uppbyggingar hverfisins,
en Jón Geir bjóst við að fram-
kvæmdir myndu hefjast í vor, eða
snemma sumars.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Á hestbaki
Stillt og fagurt veður hefur verið á Akureyri undanfama daga og
hafa margir notað sér það til andlegrar upplyftingar, ýmist rennt sér
um brekkur Hlíðarfjalls eða brugðið undir sig skautum og tekið nokk-
ur listdansspor. Þessar ungu stúlkur tóku hest sinn og hnakk og héldu
í útreiðartúr í góða veðrinu í gær.
Dalvík;
Undirskrift-
um safnað
vegna opn-
unar áfeng-
isútsölu
NOKKRIR áhugamenn um að
komið verði upp áfengisútsölu á
Dalvík ætla að hrinda af stað
undirskriftasöfhun meðal kosn-
ingabærra bæjarbúa þar sem því
er beint til bæjarstjórnar að sam-
hliða bæjarsljórnarkosningum í
maí verði kosið um það að áfeng-
isútsala verði sett upp í bænum.
í Bæjarpóstinum, sem gefinn er
út á Dalvík og kom út á fimmtu-
dag, er haft eftir Brynjólfí Odds-
syni skipstjóra á Baldri EA og eins
af forsvarsmönnum áhugahópsins
að undirskriftalistarnir verði lagðir
fram fljótlega. í blaðinu er einnig
haft eftir Brynjólfí að fyrstu undir-
skriftirnar séu þegar komnar á blað
og séu það skipveijar á Baldri EA
sem skrifað hafa undir áskoranina.
Rétt um eitt þúsund manns era
á kjörskrá á Dalvík og þurfa því
um þijúhundrað og þijátíu að skrifa
nafn sitt á undirskriftalistann, en
•bæjarstjóm getur ákveðið að kosið
skuli um málið fari 'A hluti kjós-
enda fram á það.
Fyrri umræða fjárhagsáætlunar Dalvíkurbæjar;
Tekjui' bæjarsjóðs Dalvíkur
áætlaðar um 135 milljónir
Þrj úhundraðasti fimdur bæjarstjórnar haldinn í gær
FJÁRHAGSÁÆTLUN Dalvíkurbæjar var lögð fram til fyrstu um-
ræðu á bæjarsfjórnarfiindi í gær, en það var þrjúhundraðasti bæjar-
stjórnarfundurinn á Dalvík. Áætlaðar tekjur bæjarsjóðs nema um
134,4 inilljónuni króna, en það er um 23% hækkun frá áætlun síðasta
árs. Áætlað er að um 35% tekna verði eftir til fjárfestinga eða 46,6
milljónir króna, en hækkun rekstrargjalda milli ára nemur sam-
kvæmt áætlun aðeins um 7%.
Múlagöngin:
200 metr-
arerueftir
VINNA við gerð jarðganga í gegn-
um Ólafsfjarðarmúla gekk vel í
þessari viku og eru nú einungis
um 200 metrar eftir þar til komið
verður í gegn Dalvíkurmegin.
Björn Harðarson staðarverkfræð-
ingur Vegagerðarinnar sagði að
síðasta vika hefði verið mjög erfið
og ein sú versta sem gangamenn
hefðu lent í, en bergið var afar
slæmt. „Það kom okkur ekki á óvart,
það var búist við erfíðu bergi sam-
kvæmt þeim rannsóknum sem búið
var að gera, en þetta var býsna er:
fitt,“ sagði Björn Harðarson. í
síðustu viku var aðallega unnið við
að styrkja bergið á 15-20 metra
kafla. Verið var að vinna í útskoti
og sagði Björn að við slíkar aðstæð-
ur væri meiri hætta á hrani, en allt
gekk þó óhappalaust fyrir sig.
Reiknað er með að eftir réttan
mánuð verði búið að sprengja fyrir
göngunum. „Þá verður mannvirkið
fokhelt og innréttingin eftir,“ sagði
Björn. Hann sagði mikla vinnu eftir
við göngin þegar í gegn væri komið,
en verktakarnir, Krafttak hf.,
stefndu á að jarðgöngin yrðu tilbúin
í október/nóvember á þessu ári.
Útsvarsáætlun er 7,5% en það
er sama álagningarhlutfall og á
síðasta ári en útsvör era stærsti
tekjuliður bæjarsjóðs og nema urri
82 milljónum króna. Aðrir tekjuliðir
era aðstöðugjöld og fasteignaskatt-
ar og gerir áætlunin ráð fyrir sama
álagningarhlutfalli á aðstöðugjöld
og á síðasta ári þrátt fyrir heimild
til verulegra breytinga til hækkunar
á einstaka atvinnustarfsemi. Fast-
eignagjöld lækka að raungildi frá
síðasta ári og er áætlað að þau
gefi bæjarsjóði 16,3 milljónir króna.
Alagningarprósenta fasteigna-
skatts af íbúðarhúsnæði er 0,4%
og 1,0% af atvinnuhúsnæði. Hol-
ræsagjald er ekki lagt á fasteignir
á Dalvík. Stærstu útgjaldaliðir eru
fræðslumál og yfirstjórn bæjarins.
Miklar framkvæmdir era ráð-
gerðar á þessu ári, enda allverulegt
fé sem eftir verður af tekjum úr
rekstri. Ráðgert er að veija 64,5
milljónum króna til framkvæmja
og afborgana lána á vegum bæjar-
sjóðs en séu bæjarfyrirtæki talin
með verður upphæðin 121,7 milljón-
ir króna. Stærstu verkefnin eru
bygging grunnskóla og malbikun
gatna og gangstétta auk margra
annarra smærri verkefna. Miklar
framkvæmdir eru fyrirhugaðar við
Dalvíkurhöfn en ráðgert er að hefja
byggingu varnargarðs norðan norð-
urgarðs hafnarinnar ásamt upp-
fyllingu og er sú framkvæmd áætl-
uð kosta um 30 milljónir króna.
Fjárveiting ríkissjóðs til Dalvíkur-
hafnar á þessu ári era 13 milljónir
króna, þar af eru 10 milljónir áætl-
aðar til uppgjörs fyrri fram-
kvæmda.
Ljóst er við lestur áætlunarinnar
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
sljóri á Dalvík.
að íjárhagur Dalvíkurbæjar er
traustur um þessar mundir. Dregið
hefur úr fjármagnskostnaði og svo
virðist sem verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga ætli að verða hagstæð
fjárhag bæjarejóðs þegar til lengri
tíma er litið. í framsögu sinni hafði
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
þó fyrirvara á þar sem ekki er enn
að fullu séð hvaða áhrif virðisauka-
skattur kemur til með að hafa á
bæjarsjóð svo og fyrirhugaður
orkuskattur ríkisstjórnarinnar. Svo
kann að fara að skattlagningin leiði
til þess að draga þurfí úr fram-
kvæmdum við endurskoðun áætlun-
arinnar á miðju ári.
Fundur bæjarstjómar var tíma-
mótafundur þar sem hann var sá
þijúhundraðasti í röðinni, en
Dalvíkurbær hlaut kaupstaðarrétt-
indi árið 1974.
Fréttaritari
Húsfriðunarsjóður
Akureyrar
Umsóknir um lán eða styrki úr Húsfriðunarsjóði
Akureyrar á þessu ári þurfa að berast fyrir 1.
mars nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
byggingafulltrúa, Geislagötu 9, og á skrifstofu
menningarmála, Strandgötu 19b. Á þeim stöðum
eru einnig veittar nánari upplýsingar um húsfriðun-
arsjóðinn. Menningarfulltrúi.
Akureyri
Afnot af íbúð
í Davíðshúsi
Eins og áður hefur komið fram, þá gefst fræðimönnum
og listamönnum kostur á að sækja um 1 -6 mánaða dvöl
í lítilli íbúð í Davíðshúsi til að vinna að fræðum sínum
eða listum. íbúðinni hefur ekki enn verið ráðstafað tíma-
bilið okt,—des. 1990.
Þeir, sem hefðu hug á að sækja um afnot af íbúðinni
það tímabil, eru beðnir að senda umsókn fyrir 1. mars nk.
Umsóknir ber að senda til:
Akureyrarbær,
c/o Ingólfur Ármannsson, menningarfulltrúi,
Strandgötu 19b, 600 Akureyri.