Morgunblaðið - 10.02.1990, Qupperneq 27
MOUGl'NHLAPID JLAUGAKDAGUU 1,Q)',^EQRÚ.AH 19,90
> _____
Olafur Tryggvason
Olafsvík — Minning
Fæddur 26. apríl 1941
Dáinn 30. janúar 1990
Hann Óli frændi er dáinn. Vegir
Guðs eru oft órannsakanlegir. Núna
er komið óbrúanlegi skarð í ættina.
Þann 29. janúar eignaðist ég
frænda og næsta dag missti ég einn
sem var mér og manni mínum mjög
kær. Þegar maður er lítill er frændi
oft bara frændi en oft breytist það
og frændsemin öðlast annað gildi.
Á þeim tíma er ég var að kynnast
manni mínum bjó ég hjá Öla og
konu hans Sjöfn. Þá tókst með
okkur innileg vinátta sem hefur
haldist æ síðan. Ef ég ætti að skrifa
um okkar góðu stundir saman gæti
ég haldið endalaust áfram en þær
eru geymdar í hjörtum okkar.
Elsku Sjöfn, Bárður, Sölvi Fann-
ar, Anna Sigga og Trausti. Guð
styrki ykkur í þessari sorg. Einnig
afa og systkin sem sjá á eftir ást-
kærum bróður.
Blessuð sé minning hans.
Rut Bragadóttir og fjölskylda
Okkur félaga í Kiwanisklúbbnum
Korra í Ólafsvík langar í fáeinum
orðum að minnast félaga okkar og
vinar Ólafs Tryggvasonar, sem lést
30. janúar sl. eftir nokkurra mán-
aða erfið veikindi. Hann verður
jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju í
dag, 10. febrúar.
Nokkru eftir stofnún Kfwánís’-
klúbbsins Korra árið 1976, gerðist
Óli, eins og við kölluðum hann, fé-
lagi í Korra. Honum voru fljótt fal-
in ýmis trúnaðarstörí fyrir klúbb-
inn. Hann var forseti starfsárið
1979-1980 og formaður ýmissa
nefnda eftir það. Þá var hann fyrsti
umsjónarmaður Tryggingasjóðs
Kiwanisfélaga í okkar lúbbi. Einn-
ig var hann í forystu fyrir bridge-
sveit Korra, þegar hún háði árlega
keppni við Lionsmenn í Ólafsvík.
Við það að starfa saman í Kiwan-
isklúbbi kynnast menn margvísleg-
um hliðum á mönnum, bæð f leik
og starfi. Óli var jafnan dugmikill
í störfum sínum fyrir Korra og allt-
af tilbúinn ef á þurfti að halda.
Hann var skipstjórnarmenntaður
og kom sér það vel fyrir klúbb eins
og Korra, þar sem aðal fjáröflunar-
leiðin hefur verið sjóróðrar. Einn
besti eiginleiki Óla var glaðværðin
og tryggðin og var hann ætíð hress
______________________________;27
ög Hleyþtf fjöri i umræður á klúbb-
fundum. Minnisstæður er pistill sem
hann flutti okkur einu sinni, en þar
sagði hann frá fyrsta síldarsumri
sínu fyrir norðan, en þá var hann
aðeins 14 ára gamall. í árlegum
skemmtiferðum okkar Korrafélaga
til Reykjavíkur, var Óli ávallt hrók-
ur alls fagnaðar. Hann var mikill
náttúruunnandi og hafði mikinn
áhuga fyrir veiðiskap. Sagði hann
oft, að hann yrði ekki virkur til
starfa fyrir klúbbinn fyrr en eftir
að veiðitímabilinu lyki.
Við félagar Óla í Kiwanisklúbbn-
um Korra viljum þakka honum fyr-
ir ánægjuleg kynni og gott starf í
þágu Kiwanishreyfingarinnar.
Eftirlifandi eiginkonu hans, Sjöfn
Sölvadóttur, börnum og öðrum að-
standendum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Félagar í Kiwanisklúbbn-
um Korra, Ólafsvík
D4a / JC^I Y^ÍMC^AR
Landsmálafélagið Fram,
Hafnarfirði
Bæjarmálafræðsla
Fjögurra kvölda námskeið, opið öllum stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins, verður haldið í Sjálfstæöishúsinu við Strandgötu 29 og
stendur yfir frá kl. 20.30 til 22.45 hvert kvöld. Hvert námskeið mið-
ast við 25 þátttakendur. Á fræðslukvöldum þessum verður stjórn-
skipulag bæjarins útskýrt af bæjarfulltrúum og nefndarmönnum.
Dagskrá:
Þriðjudagur 20. febrúar:
Setning: Þórarinn J. Magnússon, formaður Fram.
Stjórnskipulag/skipurit: Arni Grétar Finnsson.
Fjármál bæjarins: Jóhann Bergþórsson.
Hafnarmál: Sigurður Þorvarðarson.
Miðvikudagur 21. febrúar:
(þróttamál: Hermann Þórðarson.
Æskulýðs- og tómstundamál: Guðmundur Á. Tryggvason.
Atvinnumál: Finnbogi F. Arndal.
Byggingamál: Oddur H. Oddsson.
Menningarmál: Ellert Borgar Þorvaldsson.
Þrlðjudagur 27. febrúar:
Skipulagsmál: Lovísa Christiansen.
Feröa- og umhverfismál: Þórarinn J. Magnússon.
Heilbrigðismál: Eyjólfur Haraldsson.
Félagsmál: Sólveig Ágústsdóttir.
Mennta- og skólamál: Guðjón Tómasson og Hjördís Guöbjörnsdóttir.
Miðvikudagur 28. febrúar:
Undirbúningur fyrir kosningar: Jón Kr. Jóhannesson.
Framboðsmál: Matthías Á. Mathiesen.
Stjórnmál I Hafnarfirði: Árni Grétar Finnsson.
Námskeiðslok: Þórarinn J. Magnússon.
Námsskeiðsstjórn: Pétur Rafnsson.
Umræður eru eftir hvern dagskrárlið öll kvöldin.
Skráning þátttakenda er i Sjálfstæöishúsinu við Strandgötu daglega
til 15. febrúar.
Þátttökugjald er kr. 2.000,-.
Stjórn Fram.
Borgarnes - prófkjör
Prófkjör fer fram í Sjálfstæðishúsinu helgina 10. og 11. febrúar
nk. kl. 14.00-18.00 báða dagana.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verðurfimmtudaginn 8. og föstudag-
inn 9. febrúar i Sjálfstæðishúsinu kl. 17.00-19.00 báða dagana. Eins
er hægt að greiða atkvæði utankjörfundar á skrifstofu Sjálfstæöis-
flokksins I Valhöll í Reykjavík vikuna fyrir kjördag á venjulegum skrif-
stofutíma.
Rétt til þátttöku hafa allir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins I
Borgarnesi, sem kosningarétt hafa á kjördag 26. maí 1990.
Tölusetja skal nöfn frambjóðenda frá 1-7 eins og kjósandi vill að
efstu sæti listans verði skipuð.
Nöfn frambjóðenda eru:
Ari Björnsson, rafiðnfræðingur,
Bjarki Þorsteinsson, nemi,
Björn Jóhannsson, bifreiðasmiður,
Guðlaugur Þór Þórðarson, háskólanemi,
Guðmundur ingi Waage, trésmfðameistari,
Hálfdán Þórisson, bifvélavirki,
iris Grönfeldt, fþróttafræðingur,
Ingibjörg Hargrave, skrifstofumaður,
Ósk Bergþórsdóttir, húsmóðir,
Óskar Þór Óskarsson, vélamaður,
Sigrún Sfmonardóttir, fulltrúi,
Skúli Bjarnason, heilsugæslulæknir.
Bílaþjónusta verður prófkjörsdagana fyrir þá sem á þurfa að halda
til að komast á kjörstað. Sfminn er 71460.
Takið þátt - hafið áhrif.
Sjálfstæðisfélögin.
Félagsfundur
Stefnir, félag ungra sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði, helduropinnfélagsfund laugar-
daginn 10. febrúar kl. 17.30.
Fundarefni eru komandi bæjarstjórnakosn-
ingar og starfið framundan. Gestur fundar-
ins verður Þorgils Óttar Mathiesen, 3.
maður á lista Sjálfstæðisflokksins f vor.
Nýir félagar sérstaklega velkomnir.
Stjórn Stefnis.
IIFIMIJAI.I.UK
Borgarmála
fundur Heimdallar
Fundur verður hjá
borgarmálahópi
Heimdallar I Valhöll,
Háaleitisbraut 1,
mánudaginn , 12.
febrúar kl. 21.00.
Gestir fundarins
verða borgarfulltrú-
arnir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson og
Hilmar Guðlaugs-
son.
Stjórnin.
Akranes - bæjarmál
Fundur um bæjar-
mál verður haldinn I
Sjálfstæðishúsinu
við Heiðargerði,
sunnudaginn 11.
febr. ki. 10.30.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn.
Stjórn Fulltrúaráðs.
Vestmannaeyjar
Aðalfundur fulltrúaráðsins
Fulltrúaráð sjálfstæöisfélaganna í Vestmannaeyjum heldur aðalfund
fimmtudaginn 15. febrúar nk., kl. 20.30, í Ásgarði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kynning prófkjörsframbjóðenda.
3. Bæjarmálin og starfið framundan.
4. Skýrsla hússtjórnar.
5. önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Vestmannaeyjar
Aðalfundur
Sjálfstæöisfélagsins
Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja heldur aðalfund þriðjudaginn 13.
febrúar nk., kl. 21.00, í Ásgarði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Bæjarmálin.
3. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga.
4. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
fitjórnin.
Árnessýsla
Sjálfstæðiskvenna-
félag Árnessýslu
heldur kvöldverðar-
fund mánudaginn
12. febrúar nk. kl.
19.30 í Hótel Sel-
fossi. Gestir fundar-
ins verða Magnús
L. Sveinsson, for-
seti borgarstjórnar
Reykjavlkur, Bryndls
Brynjólfsdóttir, bæjarfulltrúi á Selfossi, og Oddur Már Gunnarsson,
iðnráðgjafi Suðurlands.
Stjórnin.
J .........................................
FERDAFELAG
™ ' ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11796 og 19533.
Sunnudagsferðir
11.febrúar
1. Kl. 10 Fljótshlíð í vetrarbún-
ingi - Seljalandsfoss. Öku- og
skoðunarferð. Gll í klakabönd-
um. Breiðabólsstaðarkirkja
skoðuð. Verð 1.500,- kr.
2. Kl. 13 Undlr Brimnesi é stór-
straumsfjöru. Áhugaverð
strandganga. Gengiö fyrir Brim-
nesið, frá Saltvík í Þaravík og
áfram með Hofsvíkinni. Verð 800,-
kr., frítt f. börn m. fullorðnum.
3. Kl. 13 Skfðaganga á Mos-
fellsheiðl. Göngusklðaferð fyrir
alla. Verð 800.- 'kr. Kynnist
næsta nágrenni okkar og góöum
félagsskap i Ferðafélagsferöum.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin.
Skíðagöngunámskeið verða i
tengsium við gönguskíðaferðir í
Bláfjöll og Hveradali 18. og 25.
febrúar. Leiðbeinandi: Halldór
Matthíasson. Einstakttækifæri.
Ferðafélag (slands.
Krossinn
Auðbrekku 2,200 Kópavogur
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Ufl Útivist
Þórsmerkurgangan
3.ferðsunnud. 11.feb.
Miðdalur - Kolviðarhóll. Gengin
gömul þjóðleið frá Miðdal yfir
Miðdalsheiði og Bolaöldur að
Kolviðarhól. Brottförkl. 10.30frá
BSl-bensínsölu. Stoppað við Ár-
bæjarsafn. Verð kr. 600,-. Munið
góða gönguskó.
Lltlafell - Kolviðarhóll. Samein-
ast morgungöngunni við Kleinu-
kot. Brottför kl. 13.00 frá BSl-
bensínsölu. Stoppað við Árbæj-
arsafn. Verð kr. 600,-.
Létt skíðaganga
Sunnud. 11.feb.
Miðast við getu þeirra sem tóku
þátt í skiðagöngunámskeiöinu.
Byrjendur geta bæst f hópinn
og fá sérstaka tilsögn.
Farið frá BSl-bensínsölu kl.
13.00. Stoppaö við Árbæjarsafn.
Verð kr. 600,-.
Sfmi/sfmsvari 14606.
Sjáumstl
Útivist.