Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990
//7?©t±ur dags\r\s er spaghetti tme5
fcóksfcofum ! •só&unm. "
Ást er...
.. .rétt útkoma dæmis-
ins.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all righta reaerved
® 1990 Loa Angeles Times Syndicate
Vera má að ég sé skrítinn
en er ekki eitthvað að?
Með
mor^unkaffmu
Er með öllu vonlaust að
þú getir gert nokkuð rétt?
HÖGNI HREKKVlSI
Ekkí er sopið kálið
Til Velvakanda.
Vitið þér að Vladímír Íljítsj Lenín
hélt frá Sviss, um óvinalandið
Þýskaland til Finnlands með tíu
milljónir dala í farteskinu, til að
taka við völdum í St. Pétursborg,
steypa kratastjórninni þar, og tjasla
saman hrundu keisaradæmi? Sjald-
an hefur nokkur fjárfesting skilað
eigendum meiri arði: Vopnum í eina
heimsstyrjöld og smærri styijaldir,
einnig arðvænlegasta vígbúnaðar-
kapphlaupi sögunnar 1945 til 1990.
Síðasti. keisari írans sagði fjár-
málavini hafa svikið sig, og trúi
hver sem vill að Ayatollah Khom-
eini og Adolf Hitler hafi náð vöidum
í löndum sínum með „tvær hendur
tómar“!
Íhaldssöm og munaðargráðug
forréttindastétt Sovétríkja kaus
vingjarnlegan Míkhaíl Gorbatsjov
til aðalritara kommúnistaflokks, af
því að stórveldið er gjaldþrota og
til lána lífsnauðsyn að breyta ásjónu
þess út á við. En fátt er með öllu
gott, Varsjárbandalagið er úr sög-
unni — og Norður-Atlantshafs-
bandalagið á ekki lengur neina
viðsemjendur um vopnafækkun!
Satans leiðtogar falla nú úr veld-
isstólunum, eins og spil í spilaborg,
og kennir þar ólíklegustu nafna,
eins og Nicolai Ceausescu og Aug-
usto Pinochet. Ástæða: Örfámenn
fjármálaklíka er orðin alvarlega
hrædd um tilvist sína, sem annarra
samborgara. Skelfileg umhverfis-
mengun blasir við, uppblástur gróð-
urlendis og skógareyðing á við
nokkur íslönd að stærð í heiminum
árlega. Kjarnorkuver leka geigvæn-
lega og minniháttar aðilar hafa
komist yfír kjarnorkuvopn, til
dæmis ódáða gerviríkið ísrael o.fl.
Ekki hefur í þessu tilfelli þótt
ástæða til „að taka eið af mistiltein-
inum“, smáríki utan íjármálakerfis,
eins og Kúba og Albanía, gætu
enst eitthvað enn.
„Ekki er sopið kálið, þó í ausuna
sé komið“, og feyskin stjórnmála-
kerfi hrynja þegar þau fá ekki
lengur „heróínsprautuna sína“ úr
fjármálaheiminum, því ef mannkyn-
ið ætlar að endurnýjast áfram,
verður það að minnka orkunotkun-
ina í heiminum um 85-90 prósent
og til þess að það sé unnt, verða
menn að skipta með sér aflahlut
eða jarðargróða líkt og frumkristnir
menn, essenar, ínúítar, írókesar og
samsvarandi þjóðir.
Innskot: Peningar eru uppfynd-
ing Satans og stjórntæki hans,
kerfi þetta á upptök í Mið-
Austurlöndum fyrir ca. 5000 árum
og þarfnast ekki daglegrar stjórn-
unar. Gallinn við peningana er að
óverðugir geta valsað með vinnu
og lífsþarfir annarra, án þess að
hafa til þess unnið sjálfir. Jesús
sagði allt um fyrirbæri þetta í
musterinu forðum (sjá guðspjöll),
Úrskurðir Verðlagsráðs
Til Velvakanda.
Það er undarleg skepna Verð-
lagsráð ríkisins. Með hennar ljúfa
samþykki taka tannlæknar viku-
kaup verkamanns af honum fyrir
klukkutímasetu í stólum þeirra.
Hárgreiðslufólk má taka 1.250
kr. fyrir hárblástur sem tekur
stundum bara 10 min. (=7.500
pr. klst.) Viðgerðarfyrirtæki eitt
sendi viðskiptavinum sínum bréf
í haust þess efnis að nú hækkuðu
þeir sína tímataxta úr kr. 1.900 í
2.200. Úrskurður Verðlagsráðs
var sá að það væri allt í lagi.
Ég var farin að spyija sjálfa
mig af hveiju ríkið sparaði _sér
ekki kostnaðinn við þessa stofnun.
En viti menn, þeir vöknuðu til
lífsins og settu hnefann í borðið
þegar dagmæður gerðust svo ósv-
ífnar að hækka sitt gjald um
tópar 14 kr. á tímann, 2.500 kr.
á mán. sem er 180 tímar.
Ein skilningslítil
Dómsdagur
eftir 40 ár?
Washington. Reuter.
Grænmeti í flest
mál, húsin kynt
með sólarorku og
reiðhjól á hvert
mannsbarn eru
meðal þess, sem
koma skal, vitfi
mennimir bjarga
sjálfum sér frá stór-
kostlegum ófdrum
af völdum mengun-
ar. Kemur þetta fram í ársskýrslu banda-
I rísku umhverfisvemdarstofnunannnai i
Worldwatch Institute en þar segir, að^
, mannkynið hafi 40 ár til að breyta háttura
) sínum. Takist það ekki muni hrömun
fisins leiða af sér efnahagslegt
innskoti lýkur.
Rafbílar eru engin lausn á meng-
unarvanda, því mesta af raforku
heimsins kemur frá hverflum sem
eru knúnir orku kola og olíu, sem
inniheldur frumefnið brennistein,
og þá rignir sýru, barrskógum og
vötnum til ónýtis. Afleiðing kjarn-
orkutilrauna um 1960 er nú farin
af segja til sín í sérstöku krabba-
meini sem orsakast af geislun er
hættulaus var talin á sínum tíma.
Öll kjarnorkuver leka út í umhverf-
ið. Enginn veit nema fímm þjóðir
eigi útrýmingu fram undan vegna
slyssins í Tsjernobyl, Úkraínumenn,
Hvítrússar, Litháar, Lettar og Eist-
lendingar, ef til vill Skandinavíu-
samar einnig. Afleiðing orsakar
þessarar tegundar segir til sín tveim
áratugum seinna.
Mjói vegurinn, mannkyni til
áframhaldandi endurnýjunar, er
ekki íbúum í ofgnægtarlöndunum
tilhlökkunarefni: Labba í vinnuna
og til aðdrátta, í mesta lagi nota
strætó, ef vistfræðilegur rekstrar-
grundvöllur reynist fyrir þeim. Nýta
næsta umhverfi til framleiðslu
fæðis og klæða til dæmis: svalir í
blokkum og umframfermetra hús-
næðis. í frítíma spila á spil eða
ódýr hljóðfæri, til dæmis. quena-
blokkflautu sem má búa til úr svo
til hvaða pípu sem er, sé hún ekki
of víð, dansa, kveðast á, fara í víki-
vakaleiki við kolu- eða kertaljós, í
nálægu húsi eða utandyra — þar
sem loftslagið gerir það unnt.
Bjarni Valdimarsson
<
4
4
4
4
4
4
Víkverji skrifar
Víkveija langar til að taka upp
þráðinn frá því síðasta laug-
ardag, þegar rætt var um þær
ógöngur sem íslensk verkmenntun
er komin í. Tilefni þess að Víkverji
bryddar aftur upp á þessu er bréf
Árna Brynjólfssonar hjá Lands-
sambandi íslenskra rafverktaka til
Víkveija, sem birtist á þessum
vettvangi í gær. Árni spyr nefni-
lega í lok bréfs síns, hvort ekki
sé líklegra að hópur áhugamanna
gæti fremur áorkað nauðsynleg-
um breytingum á iðnnámskerfinu
en væri það gert undir handar-
jaðri starfsmanna menntamála-
ráðuneytisins. Þessari spurningu
svarar Víkveiji hiklaust játandi
og vildi helst sjá skrefið stigið til
fulls, þannig að samtökum at-
vinnulífsins yrði hreinlega gert
kleift að yfirtaka iðnskólakerfið.
Þannig yrði tryggt að því yrði
stýrt með hagsmuni atvinnulífsins
að leiðarljósi. Víkverji erþess jafn-
framt fullviss að atvinnurekendur
myndu stýra iðnnáminu af meiri
reisn en ríkið gerir í dag, jafnvel
þó þeir þyrftu að kosta meiru til
en nú er gert. Þar er víðast fullur
skilningur á því að fjárfesting í
vandaðri verkmenntun skili góð-
um arði, eins og best sést af starf-
semi Rafiðnaðarskólans, sem Árni
nefndi í bréfi sínu. Ef hins vegar
það ríkisrekna verknámskerfi sem
við búum við um þessar mundir
væri fyrirtæki, væri það trúlega
farið á hausinn.
Sá grundvallarmunur er á iðn-
námskerfi og öðru skólakerfi
í landinu, að því fyrrnefnda er
ætlað að mennta fólk til fyrirfram
ákveðinna starfa á fijálsum vinnu-
markaði. Það liggur þvi beinast
við að viðkomandi starfsgreina-
samtök taki að sér stefnumörkun
og framkvæmd menntunarinnar.
Rekstrarfyrirkomulag gæti e.t.v.
verið með svipuðum hætti og er á
tónlistarskólunum, þar sem ríkið
borgar laun kennaranna, en rekst-
ur að öðru leyti er í höndum sveit-
arfélaga eða einstaklinga. Þarna
mætti því slá tvær flugur í einu
höggi, menntunin yrði sett undir
stjórn þeirra sem hún skiptir
mestu og sparnaður ríkisins yrði
umtalsverður. Slíkt fyrirkomulag
myndi einnig leiða af sér heil-
brigða samkeppni milli iðngreina
um námsmenn, því væntanlega
leitar hæfileikafólkið í þær greinar
þar sem boðið er upp á menntun
af háum gæðaflokki.
xxx
Morgunblaðið notaði orðið
stormflóð um sjávarflóðin
sem ollu miklu tjóni á mannvirkj-
um á Eyrarbakka, Stokkseyri,
Grindavík og víðar aðfaranótt 9.
janúar síðastliðinn. Nokkrar um-
ræður urðu um orðið þegar frétt-
irnar birtust og síðan og eru ekki
allir sáttir við það. Blaðamaðurinn
tók orðið upp úr skýrslu um land-
brots- og flóðavarnir við suður-
ströndina sem verkfræðistofan
Fjarhitun hf. vann fyrir Hafna-
málastofnun árið 1984. Þar kemur
orðið fyrir í greinargerð um veður-
fræðilega athugun á flóðaveðrum
eftir Guðmund Hafsteinsson veð-
urfræðing og í yfirliti um tjón af
stormflóðum. Þótti blaðamönnum
orðið lýsa því mjög vel sem gerð-
ist þessa nótt og það er viður-
kennt íslenskt orð samkvæmt ís-
lenskri orðabók Menningarsjóðs,
þar sem gefin er upp merkingin
flóð sem stormur veldur. Vegna
gagnrýni hefur málið nú verið
kannað nánar og er viðkomandi
blaðamaður enn jafn öruggur um
ágæti þess að nota orðið um sjáv-
arflóð af völdum storms. Glöggur
heimamaður á Eyrarbakka er
mjög ánægður með orðið og segir
að það hafi verið notað um sjávar-
flóð áður, og nefndi flóðin 1925 í
því sambandi. Hann er sammála
blaðamanni um að ekki sé hægt
að nota brim eða skyld orð um
þessi sjávarflóð, það eigi við um
aðrar aðstæður. Orðabók Háskól-
ans hefur þijú dæmi um orðið
stormflóð. Það elsta er úr Klaust-
urpóstinum frá því snemma á 19.
öld: „Skaðinn af stormflóðunum
varð við löglegar skoðanir og virð-
ingu metinn." Annað dæmið er
úr tímaritinu Veðrið árið 1962 og
það þriðja úr Alfræði AB.
4
4
I
<