Morgunblaðið - 17.02.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 1990
Greiðslukortafyrirtæki:
Kvörtun ASI vegna
gj aldskrárhækkunar
svarað eftir helgi
GREIÐSLUKORTAFYRIRTÆKIN munu í næstu viku taka til athug-
unar erindi Alþýdusambands íslands um að þau endurskoði hækkan-
ir á þjónustugjöldum sínum, sem tóku gildi um síðastliðin mánaða-
mót. Erindið barst þeim á fimmtudag. Venjubundinn stjórnarfundur
Visa ísland verður á miðvikudag, en forsvarsmenn Kreditkorta hf.,
munu skoða málið á mánudaginn. „Eg hef ekki trú á öðru en við
munum skoða þetta með jákvæðu hugarfari," sagði Atli Orn Jóns-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri Kreditkorta.
Einar S. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Visa ísland, sagði að
í desember hefðu verið teknar
ákvarðanir um árlegar hækkanir á
þjónustugjöldum vegn§. verðlags-
þróunar, sem síðan hefðu tekið gildi
1. febrúar. Árgjald korthafa hefði
hækkað úr 1.500 krónum í 1.750
krónur eða 16,6%. Útskriftargjald
hefði hækkað úr 100 krónum í 120
krónur og úr 50 krónum í 60 ef
skuldfært væri beint á tékkareikn-
ing. Árgjald gullkorts hefði hins
vegar hækkað hlutfallslega meira,
þar sem meira væri innifalið en
áður, einkum hvað varðaði trygg-
ingar. Það hefði hækkað úr 5.400
krónum í 6.500 krónur.
Atli Öm sagði að kortagjaldið
hjá þeim hefði hækkað úr 1.500 í
1.800 krónur 1. febrúar og útskrift-
argjaldið úr 100 í 150 krónur. Þá
hefði gjaldið vegna gullkorts hækk-
að um 30%.
Morgunblaðið/Sverrir
Hlutabréfí Samvinnubanka skipta um eigendur
Formlega var gengið frá yfirtöku Landsbankans á 52% hlut SÍS í Samvinnubankanum í gær. Á myndinni
sést Guðjón B. Ólafsson forstjóri SÍS afhenda bankastjórum Landsbankans, Sverri Hermannssyni og Björg-
vin Vilmundarsyni, hlutabréf í Samvinnubankanum.
Ásdís Birgisdóttir
Norðurland:
Ásdís valin
fegurðar-
drottning
ÁSDÍS Birgisdóttir var valin
fegurðardrottning Norður-
lands á fjölmennri samkomu
í Sjallanum á Akureyri í
gærkvöldi. Ásdís, sem er frá
Hrafhagili í Eyjafírði, var
einnig valin ljósmyndafyrir-
sæta Norðurlands.
Stúlkurnar völdu vinsælustu
stúlkuna úr sínum hópi og varð
Lena Rós Matthíasdóttir frá
Ólafsfirði fyrir valinu.
Vangaveltur viðskiptaráðherra
eins og þruma úr heiðskíru lofti
- segir Valur Arnþórsson bankastjóri Landsbanka íslands
VANGAVELTUR viðskiptaráðherra á Alþingi um hugsanlega breyt-
ingu ríkisviðskiptabankanna í hlutafélagabanka koma eins og
þruma úr heiðskíru lofti, segir Valur Arnþórsson bankastjóri
Landsbankans. Hann segir hafa komið fram í samtölum sínum við
forsætisráðherra að stefha ríkisstjórnarinnar sé að óbreytt form
verði á rekstri bankanna. Valur segir ótvírætt að Landsbankinn
geti nú eignast um 94% af hlutabréfum Samvinnubankans og eftir
að hafa eignast 67% sé Landsbankinn óbundinn af slíku hlutfalli.
Hann útilokar ekki að á síðari stigum málsins verði sfjórn Lands-
bankans reiðubúin til að ræða við Búnaðarbankann um samvinnu
við hagræðingu á einstaka afgreiðslustöðum. Mál þetta mun ekki
hafa verið rætt með formlcgum hætti í bankaráði Búnaðarbankans.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði á Alþingi síðastliðinn
fimmtudag að Landsbankinn hefði
ekki að svo stöddu stöðu til að
kaupa öll hlutabréf í Samvinnu-
bankanum og hann lét að því liggja
að breyta megi ríkisbönkunum,
Landsbanka og Búnaðarbanka, í
hlutafélög og að Búnaðarbankinn
komi að einhveiju leyti inn í kaup
Landsbankans á Samvinnubank-
anum. Valur Amþórsson var innt-
ur álits á þessum hugmyndum við-
skiptaráðherra.
„Ég hef á undanfömum mánuð-
um ítrekað átt viðræður við for-
sætisráðherra íslands, Steingrím
Hermannsson, um afstöðu ríkis-
stjómarinnar til ríkisviðskipta-
bankanna," sagði Valur. „í þeim
samtölum hefur komið fram að
stefna ríkisstjómarinnar væri ein-
dregið sú, að ríkisviðskiptabank-
amir yrðu reknir áfram sem slíkir
í óbreyttu formi. Vangaveltur við-
skiptaráðherra á Alþingi um hugs-
anlega breytingu á ríkisviðskipta-
bönkunum í hlutafélagabanka
koma því sem þrama úr heiðskíru
lofti og eru mér lítt skiljanlegar.
Ég fyrir mitt leyti er tilbúinn til
þess að ræða á faglegum grand-
velli kosti þess og galla að ríkisvið-
skiptabönkunum yrði breytt i
hlutafélagabanka, en ég tel að
slíkar viðræður verði að fara fram
á faglegum grandvelli og eigi ekki
að koma fram á mjög óvæntan
Ferðamálaráðstefha á Egilsstöðum:
Brýnt að skilað sé lögboðn-
um framlögnm til ferðamala
- segir Steingrímur J. Sigfiísson samgönguráðherra
Egilsstöðum.
NÝ STEFNUMÓTUN í ferðamálum verður aðalmál ferðamálaráð-
steftiu sem nú stendur yfir á Egilsstöðum. Ráðstefhuna sælya um
150 manns hvaðanæva af landinu. í ávarpi Steingríms J. Sigfusson-
ar samgönguráðherra kom fram að ferðaþjónusta væri sú atvinnu-
grein sem hraðast hefði vaxið undanfarin ár og hafa störf í henni
tvöfaldast undanfarin 10 ár. Nú starfa um 6.000 manns í greininni
og er það um 3% af heildarmannafla á vinnumarkaðnum.
um 145 milljónum króna en að
einungis 48 milljónir renni til
Ferðamálaráðs. „Þetta verður að
laga,“ sagði samgönguráðherra,
„annars kemur að því fyrr eða
síðar að þessi atvinnugrein getur
ekki staðið undir þeim væntingum
sem til hennar era gerðar.“
Valtýr Sigurbjamarson, for-
stöðumaður Byggðastofnunar á
Steingrímur taldi brýnt að stað-
ið yrði við að lögboðin gjöld af
sölu Fríhafnarinnar á Keflavíkur-
flugvelli rynnu óskert til ferða-
mála. Samkvæmt lögum eiga 10%
af sölu Fríhafnarinnar að renna
til Ferðamálaráðs. Skil á þessu
gjaldi hafa hins vegar einungis
numið 20—25%. Á þessu ári er
gert ráð fyrir að þetta gjald nemi
Akureyri, fjallaði um uppbyggingu
ferðaþjónustu í dreifbýli. Hún hef-
ur verið mjög ör undanfarin ár,
t.d. hjá Ferðaþjónustu bænda.
Benti Valtýr á að vegna framfara
sem væru að verða á flugvöllum
landsins myndi innkomuleiðum
erlendra ferðamanna sem kæmu
flugleiðis til landsins fjölga. Þegar
næsta sumar myndi erlend ferða-
skrifstofa hefja beint flug til Akur-
eyrar frá Evrópu. Slík þróun yrði
á Egilsstöðum þegar nýr flugvöllur
þar yrði fullgerður. Þetta hlyti að
efla ferðaþjónustu á landsbyggð-
inni og greinina í heild.
- Björn
hátt á Alþingi eða í fjölmiðlum.
Ég reyndar vara mjög við opin-
beram vangaveltum um slík stór-
mál því þær geta hugsanlega skað-
að ríkisviðskiptabankana og dreg-
ið úr trausti á þeim bæði innan
lands og utan.“
Valur var spurður hvort hann
teldi rétt mat viðskiptaráðherra,
að Landsbankinn geti ekki keypt
meira en 88% hlut í Samvinnu-
bankanum og Búnaðarbankinn
þyrfti að koma inn í myndina.
„Það þarf ekki að fara í neinar
grafgötur um að sú stefna hefur
verið mörkuð að Landsbankinn
kaupi hlutaféð í Samvinnubankan-
um,“ segir hann, „og þetta starf
hefur þegar verið hafið með því
að við höfum keypt meirihlutann,
eða 52%, af Sambandi íslenskra
samvinnufélaga og munum á
næstu dögum og vikum halda
áfram að kaupa hlutafé af þeim
aðilum sem eru í viðskiptum við
Landsbankann. Sú stefna er í raun
og vera mörkuð, að við munum á
nokkram tíma kaupa allt hlutaféð
í Samvinnubankanum og getum
reyndar, miðað við núverandi
stöðu Landsbankans, keypt allt að
94% af hlutafénu. Það liggur hins
vegar í augum uppi að um leið og
við höfum eignast 67% hlutafjárins
gætum við, ef svo bæri undir, slit-
ið Samvinnubankanum og þar með
yfirtekið hann allan og eram þá
óháðir þeim hlutföllum sem til
umræðu hafa verið og sem við-
skiptaráðherra nefndi sem 88% á
Alþingi. Þrátt fyrir þessa mörkuðu
stefnu um það að við kaupum
Samvinnubankann má ljóst vera
að við getum verið tilbúnir á síðari
stigum til þess að ræða við Búnað-
arbankann um það að hann komi
með einhveiju móti inn í þetta
mál, til dæmis varðandi einstök
útibú, þar sem hagkvæmt gæti
verið fyrir alla aðila að Búnaðar-
bankinn kæmi að málum," sagði
Valur Amþórsson.
Halldór Blöndal, bankaráðs-
maður í Búnaðarbankanum, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær
að sér kæmu ummæli viðskipta-
ráðherra á þingi á fimmtudag
mjög á óvart. „Þótt kaup Lands-
banka á hlutabréfum í Samvinnu-
banka hafi borið á góma í banka-
ráði Búnaðarbankans er þetta mál
með jjllu órætt þar. Mér hefur
skilist að bankastjóm Landsbank-
ans telji hagkvæmni kaupanna í
því fólgin að ná öllum hlutabréfun-
um og verð þeirra hafi verið við
það miðað,“ sagði Halldór Blöndal.
Perrier-
vatn tekið
af markaði
um sinn
NIÐURSTÖÐUR rannsóknar
Hollustuverndar ríkisins á
Perrier-ölkelduvatni sýna að
7 míkrógrömm af benzene
eða bensól voru í hveijum
lítra. í framhaldi af því var
ákveðið að taka Perrier af
markaði hér á landi um sinn
að minnsta kosti.
Halldór Runólfsson hjá Holl-
ustuverndinni sagði að þetta
væri undir viðmiðunarmörkum
Alþjóða heilbrigðismálastofn-
unarinnar, en ákveðið hefur
verið að feta í fótspor Dana og
Englendinga þar sem miðað er
við að ekkert megi finnast af
þessu efni í vatninu. Halldór
sagði ekki ljóst hvernig efnið
hefði komist í ölkelduvatnið.
Halldór sagði að mjög gott
samstarf hefði verið við inn-
flytjanda vatnsins í máli þessu.
Flugleiðir hf.:
50 umsókn-
ir um flug-
mannsstörf
UM 50 umsóknir um stöður flug-
manna eru nú þjá Flugleiðum og
segir Einar Sigurðsson blaðafull-
trúi félagsins að meginhluti
þeirra hafí borist er félagið aug-
lýsti þrjár flugmannastöður
lausar nýlega.
Einar segir að ráða eigi í þijár
stöður aðstoðarflugmanna í innan-
landsflugi. Ástæður ráðninganna
era langvarandi veikindi tveggja
flugmanna félagsins og þjálfun
annarra, sem stendur fyrir dyrum.
Gert er ráð fyrir að um ótíma-
bundna ráðningu sé að ræða.