Morgunblaðið - 17.02.1990, Blaðsíða 34
> iAötóífói/ÁGtJte1 A,(í’ÉMWAtt Usfðo
fclk í
fréttum
ANDLÁT
„Hudson“
allur
Breski leikarinn kunni, Gordon
Jackson, lést fyrir skömmu.
Jackson var vel þekktur hér á
landi einkum undir nafninu Hud-
son, en það var nafn yfirþjónsins
í sjónvarpsþáttaröðinni „Hús-
bændur og hjú“ sem naut fádæma
vinsælda hér á landi sem og víðar
þar sem þættirnir voru sýndir.
Jackson átti fleiri hlutverk að
baki og þótti virtur og snjall leik-
Gordon Jackson
ROKK
Fish fetar
áfram
sína leið
Rokksöngvarinn sem hefur
kallað sig „Fish“ svo lengi
að fáir vita skírnamafnið,
hefur nú dustað af sér rykið
tveimur árum eftir að hljóm-
sveit hans Marillion lagði upp
laupana, sent frá sér sólóplötu
og hlotið frábæra dóma.
Fish, sem er risi að vexti og
þykir heldur sóðalegur á að
líta, hefur þótt frábær söngvari
og tónlist sú sem hann flutti
með Marillion var með afbrigð-
um vinsæl, en hún sór sig mjög
í „Genesis“-ættina. Sagt er að
hljómsveitin hafi liðast í sundur
vegna deilna um hvaða tónlist-
arstefnu skyldi taka. Væri
vænlegt að fylgja tískustraum-
um, eða fara áfram eigin leiðir?
Þar stóð Fish einn uppi gegn
félögum sínum er til kastanna
kom og því fór sem fór. Platan
hans nýja, „Vigil in a Wilder-
ness of Mirrors" sver sig mjög
í ætt við tónlist Marillion meðan
Fish stjómaði ferðinni og
áhangendur hljómsveitarinnar
hafa fylkt sér á bak við söngv-
arann.
Söngvarinn Fish.
an.
. ö'ihfe
Barnaföt Barnaskór
TILBOÐSVIKAN
hefst / dag
Opið kí. 1000 - 1600
30-50% afsláttur af öllum
vörum í eina viku
síðan allt á fullt verð aftur.
Póstsendum
X & z
BARNAFATAVERSLUN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6B, SÍMI 621682
Skattpíndir rokkarar.
LANDFLOTTI
Skattpíning hrekur
rokkara á braut
Rokkararnir í sænsku hljómsveit-
inni Europe em nú alvarlega
að íhuga að flýja land sitt og þjóð,
þar eð sænsk skattayfirvöld eru nú
komin á hæla þeim og telja þá
skulda milljónatugi í opinberum
gjöldum. Þeir félagar eru reyndar
sjaldnast á sænskri gmnd, búa hér
og þar og ferðast mikið, enda vin-
sældirnar miklar, þeir hafa hins
vegar aldrei sagt upp ríkisborgara-
rétti sínum.
Mál af þessu tagi hafa áður
skotið upp kollinum í Svíþjóð og
sænskir íþrótta- og tónlistarmenn
hafa sest að í öðrum löndum til að
losna undan sænska skattahramm-
inum sem þykir býsna þungur.
Svend Rygaard, fjármálastjóri
sveitarinnar, segir kröfur sænska
skattstjórans svo fáránlegar að það
taki því varla að tala um þær, hins
vegar sé ljóst að honum sé fúlasta
alvara og því verði viðeigandi ráð-
stafanir gerðar. Fór hann ekkert
nánar út í þær ráðstafanir.
RAFMOTORAR
1000 - 1500 - 3000 snúninga
0,25-37 kw
Til afgreiðslu strax
Poii/xffi
Suðurlandsbraut 10
Sími 686499 - Fax 680539
Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson
Á stúdentamótum er gjarnan brugðið á glens á kvöldvökum, og þarna er enn ein útfærslan á Rauðhettu
litlu.
KRISTUR KALLAR
30 manns á vetrarmóti
Kristilegs stúdentafélags
Aðra helgi í febrúar var árlegt
vetrarmót Kristilegs stúdent-
afélags haldið í Ölveri undir Hafnar-
fjalli í Borgarfirði. Yfirskrift móts-
ins var „Kristur kallar — og kelling-
ar“.
Aðalræðumaður mótsins var
Skúli Svavarsson kristniboði og
sóttu um 30 manns mótið. Jafn-
framt var skipt í umræðuhópa, og
yfirskriftin rædd í þeim. Mótið
endaði með messu, sem Guðni
Gunnarsson skólaprestur sá um.
Kristilegt stúdentafélag hefur
haft samverur á föstudagskvöldum
á Freyjugötu 27. Nú mun vera á
dagskrá að hvíla þær samverur
eitthvað, og vera í stað þess á
samverum í Suðurhólum 35 í
Reykjavík í nýju húsi KFUM/K í
stað samveranna á Freyjugötunni.
Jafnframt ætlar Stúdentafélagið að
auka starfið á meðal háskólastúd-
enta og vera með reglulega Biblíu-
lestra í Háskóianum, svo sem verið
hefur. Sér ákveðinn hópur innan
Háskólans um lestrana ásamt
skólapresti. Á að byija með sam-
verurnar í Suðurhólahúsinu í lok
febrúarmánaðar og verða þær á
föstudagskvöldum kl. 20.30.
- P.Þ.