Morgunblaðið - 17.02.1990, Blaðsíða 10
Ð' LÁtó^DÁÓÚR !17. Í'ÉbHÚAR 1990
OPi
A Þorraþræl
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
Þáttur nr. 153
Ágætu lesendur.
Fyrir hönd Garðyrkjufélags ís-
lands óska ég ykkur gæfis og
gengis á nýbyijuðu ári og þakka
góð samskipti á liðnum árum.
Okkur sem ritum stundum pistla
í Blóm vikunnar er nokkur vandi
á höndum. Þessi greinarskrif hafa
notið vinsælda og fjölmargir hafa
haft samband við umsjónarmann
til að spyijast nánar fyrir um efni
greina sem birtar hafa verið. Síðan
hafa þeir sem safna greinununum
iðulega samband við okkur hafi
þeir misst af Blómi vikunnar. Því
miður heyrast stöku óánægjuradd-
ir þegar greinamar eru „ólánlegar"
í laginu að mati safnaranna. Við
því fær umsjónarmaður ekki gert,
„vaxtarlag“ greinanna ræðst af
rými á litsíðum blaðsins, en víst
tökum við undir með söfnurunum,
sem fá hálfgert taugaáfall þegar
greinarnar eru allar á langveginn.
Það er orðin hefð hjá Blómi vik-
unnar að leggjast í dvala í svart-
asta skammdeginu en vakna til
lífsins með hækkandi sól. Nú er
skammdegið að baki, daginn hefur
þegar lengt um fjölmörg hænufet
og blessuð sólin hækkar stöðugt á
himni. Því er mál að Blóm vikunn-
ar vakni af vetrarsvefninum.
Það er manninum eðlilegt að
hafa nokkrar áhyggjur af um-
hverfi sínu. Flest undanfarin ár
hefur síminn á skrifstofu garð-
yrkjufélagsins yart þagnað í janúar
eða febrúar. Áhyggjufullir garð-
eigendur hafa spurt hvað þeir eigi
til bragðs að taka með páskalilj-
urnar og túlipanana undir suður-
veggnum sem séu á harðaspretti
upp úr moldinni, sé ekki hægt að
stoppa þetta óðagot með einhveij-
um ráðum? En nú er mér til efs
að þetta sé áhyggjuefni margra.
Nú eru snjóalög og fannfergi um
land allt, fréttir af ófærð og snjó-
flóðahættu daglega í fjölmiðlum.
Ósjálfrátt kemur fram í hugann
kvæði Kristjáns Jónssonar fjalla-
skálds sem ort var á Þorraþræl
fyrir liðlega einni öld.
Nú er frost á Fróni
frýs í æðum blóð.
Kveður kuldaljóð
Kári í jötunmóð.
Undanfama 2-3 vetur höfum við
sannarlega kynnst því að veturinn
getur verið bæði langur og strang-
ur um allt land. Skáldið orti um
bjargarleysi kotbóndans í harðind-
um. Sem betur fer getum við betur
varist glímutökum Veturs konungs
Vetur á
Þingvöllum.
nú en áður og harðir vetur eru
ekki lengur fellivetur.
Landið okkar fagra hjúpað snæ
býr yfir kyngimætti og dulúð sem
grípur mannshugann föstum tök-
um og vekur sterkar kenndir í
bijósti flestra. Þrátt fyrir allt er
ættjörðin sá staður þar sem við
viljum flest lifa og deyja. Og með
hækkandi sól beinist hugurinn
fram á við.
Senn er sigruð þraut
ég svíf á braut.
Kvað Kristján fyrir munn þorra.
Og fyrstu vorteiknin eru þegar
á lofti. Ræktunarfólk les nú fræ-
lista af miklum ákafa og sumir eru
þegar farnir að huga að sáningu.
Við hjá GI vorum einmitt að senda
frælistann til félagsmanna. Þessi
frælisti er ólíkur öðrum að því leyti
að félagarnir safna sjálfir fræi á
haustin og leggja í fræbanka, eins
fáum við nokkuð af fræi frá erlend-
um grasagörðum, oft tegundir sem
eru lítt reyndar hér en samt áhuga-
verðar. Félagar geta síðan pantað
15 tegundir gegn 100 kr. gjaldi.
Nýir félagar fá sendan frælistann
ásamt fréttabréfinu við inngöngu.
Já, ræktunarfólk þarf ekki að
kvíða iðjuleysinu næstu vikurnar
eða mánuðina. Stofublómin þurfa
sína umhirðu. Brátt þarf að skipta
um mold og hlúa að þeim á annan
hátt og margar tegundir stofu-
blóma launa snyrtingu með ríku-
legri blómstrun að sumri.
Eins fer í hönd góður árstími
til að klippa tré og ýmsa runna —
standi þeir á annað borð upp úr
snjónum. Þurfi að fjarlægja stórar
tijágreinar er gott að gera það
áður en vökvastreymið í tijánum
byijar.
Mörgum hefur orðið hált á svell-
inu í vetur og nú finn ég að ég
er komin á hálan ís og best að
hætta sér ekki lengra út á þessa
glæru. Vonandi getum við á næst-
unni bæði gert skil snyrtingu inni-
og útigróðurs í Blómi vikunnar.
Næsti fræðslufundur garðyrkju-
félagsins verður haldinn á Holiday
Inn fimmtudaginn 22.2. kl. 20.30.
Kennarar Garðyrkjuskóla ríkisins
halda erindi og sýna myndir um
Ijós og ræktun og lýsingu og fjalla
um garðskálaplöntur og ræktun í
heitum og köldum skálum. Fundir
félagsins eru öllum opnir.
Sigríður Hjartar
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 526. þáttur
■ ÁTVR, Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins, opnar nýja útsölu
í Miklagarði við Sund um næstu
mánaðarmót. Þann 15. janúar
síðastliðinn Ieigði Mikligarður hf.
ÁTVR 250 fm húsnæði sem innrétt-
að hefur verið í austurenda verslun-
arinnar. Af þessum ástæðum hafa
að undanförnu staðið yfír miklar
breytingar á anddyri og kassalínu
í versluninni og áætlað er að þessum
framkvæmdum verði lokið fyrir 1.
mars næstkomandi. Við þessar
breytingar verður mun betri að-
staða og þjónusta á greiðslukössum,
í þjónustumiðstöð og veitingastofu,
segir í frétt frá Miklagarði, og að-
koma og brottför úr versluninni
þægilegri.
Matthías Eggertsson í
Reykjavík skrifar og tekur af
mér ómakið í bréfi sínu:
„I útvarpi og sjónvarpi að
undanförnu hefur verið sagt frá
miklum snjóþyngslum sums
staðar á landinu. Jafnframt hef-
ur verið greint frá því að al-
mannavarnanefndir á viðkom-
andi stöðum hafi látið boð út
ganga að hætta á snjóflóðum
sé yfirvofandi. Síðar hafa komið
nýjar tilkynningar þar sem sömu
nefndir hafa aflýst eða aflétt
hættuástandinu.
Þetta hefur orðið mér nokkurt
umhugsunarefni. Víst er aflýst
leiksýningum og kappleikjum og
aflétt þungatakmörkunum á
vegum, svo að dæmi séu tekin.
Þar eru þeir sömu á ferð og
ákváðu að halda leiksýningu eða
takmarka öxulþunga, þ.e. menn
með holdi og blóði. Hins vegar
eru það náttúruöflin eða forsjón-
in sem koma á snjóflóðahættu,
og máltilfinning mín segir mér
að aðrir geti þá ekki aflýst henni
né aflétt. Kannski á hér við að
víðar er Guð en í Görðunum?
Með góðri kveðju.“
Umsjónarmaður þakkar þessa
tímabæru hugvekju.
★
Far, Hafnar frægi staður,
far vel, þig aldrei lít eg meir;
frá þér eg ferðast glaður,
frá þér til íslands geð mitt þreyr.
Föðurláð
framar met eg,
frið og náð
hreppt þar get eg,
en um þitt ráð
tönn fyrir tungu set eg.
(Sr. Hallgrímur Eldjámsson 1723-1779.)
★
Þórður Kárason í Reykjavík
skrifar mér einkar vinsamlegt
bréf með „þökk fyrir góða pistla
í Mogga“. Hann biður mig að
koma áhugamálum sínum á
framfæri. Bréf hans er langt og
efnismikið, svo að eitthvað kann
nú að verða útundan. Sumt seg-
ir hann líka í gamni og ætlar
ekki til birtingar.
1) Þórði finnst stundum í les-
endadálkum blaðanna „birt
dæmi um skrúðmælgi og yfir-
drifinn stíl, þar sem venjulegur
lesandi skilur ekki hvað við er
átt“. Hann spyr hvort ekki sé
rétt „að þeir hjá blöðunum héldu
þessum „gullkornum“ til haga
og birtu þetta af og til. Sumum
til viðvörunar en öðrum, einkum
þeim háskólalærðu, til eftir-
breytni.“
2) Þá langar hann til að í blöð-
unum birtist skrá yfir helstu
sjóði sem veiti fé til menningar-
mála á íslandi og skorar á Morg-
unblaðið að láta vinna slíka skrá.
Umsjónarmaður vísar þessum
liðum til „þeirra hjá blöðunum“.
3) Þórði finnst sögnin að
harma ofnotuð í sjónvarpi (ekki
í prentmáli) og yrkir um það
vísur að gamni sínu. Ein er
svona:
Það er skrítið þetta og hitt
með þessa sögn, að harma.
Harma ég þetta, harma ég hitt,
harma ég mína garma.
Umsjónarmaður er ekki frá
því, að stjómmálamenn mættu
gjarna taka vægara til orða
stundum, þegar þeir segjast
harma „þetta og hitt“.
Þórður Kárason spreytir sig á
Iimrum eins og fleiri vinir þáttar-
ins, en sá kveðskapur eins og
ýmislegt fleira í bréfi hans á
ekki að fara lengra, og þakkar
umsjónarmaður honum góðar
kveðjur.
★
Um ættarnafiiið Hagalín.
Árið 1916 var Hagalín lög-
fest ættarnafn, og segir í
Stjórnartíðindunum að „ættar-
nafnstaki“ væri Guðmundur
Hagalín Gíslason skipstjóri á
Núpi í Dýrafirði. Um aðdrag-
anda þessa segir Guðmundur
skáld í Hér er kominn Hoffinn
að nafnið sé norskt að uppruna.
Langafabróðir sinn hafi verið
heitinn eftir norskum skipstjóra,
Hagelien, sem látist hafi á heim-
ili eins ættingja síns. Eftir lát
afa síns, Guðmundar Hagalíns á
Mýrum í Dýrafirði, hafi mjög
margir verið skírðir þessu nafni
og móðir sín löghelgað sér (Guð-
mundi skáldi) nafnið sem ættar-
nafn, enda mun hann sá hinn
sami og nefndur er í Stjórnartíð-
indunum.
í allsheijarmanntali hef ég
flest fundið tíu Hagalína, árið
1910. Níu þeirra voru fæddir í
Ísaíjarðarsýslu.
★
Salómon sunnan kvað:
Ein borga er nefnd Barcelona;
þar er bannað að servera róna,
enda læstu þeir börum
með hurðum á hjörum,
þegar Hrollaupr birtist á Skjóna.
★
Þegar menn fara á skíði, gera
þeir ýmist að ganga eða renna
sér. Sögnin „að skíða“ fínnst
mér bjálfamál. Nú geta menn
rennt sér í Hlíðarfjalli, eins og
ívar Sigmundsson hefur tekið
til orða.
★
Ég hélt að enskuárátta í aug-
lýsingum þeirra MS-manna
hefði verið kveðin niður um dag-
inn í sambandi við kakómjólkina
(kókómjólkina). En svo er víst
ekki. Þeim virðist svo mjög í
mun að kenna íslenskum börn-
um ensku á kostnað móðurmáls-
ins, að slim er nú troðið inn í
auglýsingu um ávaxtasafann
Flórídana. Þetta skal þeim ekki
haldast uppi átölulaust.
P.s.: I útvarpsfréttum var
sagt: „... í flutningi Sigríðar
Beinteinsdóttur og Grétar Örv-
arssonar". Naumast þarf að taka
fram að söngvarinn heitir Grét-
ar, ékki ‘ Grét. Lagið var því „í
flutningi" Grétars og Sigríðar.
Til sölu í Grafarvogi
120 fm íbúðir á góðum stað. Stórar stofur, góðar suður-
svalir og þvottahús á hæðinni. Bílskúr fylgir. íbúðirnar
henta vel fyrir eldra fólk.
Frekari upplýsingar í síma 31104.
Örn Isebarn, byggingameistari.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri
EINAR ÞÓRISSON LONG, SOLUMADUR
KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. l.öggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu auk annarra eigna:
Á vinsælum stað í Ártúnsholti
Nýtt og glæsil. raðhús á tveimur haeðum um 160 fm. Næstum full-
gert. 3-4 svefnherb. Góður bílsk. Langtímalán. Sólskála má hafa á
bílskúrsþaki.
Á vinsæium stað á Seltjarnarnesi
'Steinhús ein hæð um 125 fm með sólskála og bílsk. Stór eignarlóð.
Nýtt gler, parket og gestasnyrting. Laust fljótlega.
í suðurhlíðum borgarinnar
5 herb. íbúð á neðri hæð og I kjallara. Alls 152,4 fm. Næstum full-
gerð. Allt sér. Nýlegt tvíbýlishús. Tilboð óskast.
Ný endurbyggð - allt sér
4ra herb. séríbúð á vinsælum stað í Garðabæ. Öll ný endurbyggð
næstum fullgerð. Laus strax.
Á vinsælum stað í Seljahverfi
4ra herb. endaíb. stór og góð með sérþvottahúsi. Stæði í bílhýsi.
Mikið útsýnl.
Á vinsælum stað í vesturborginni
3ja herb. stór og góð íb. á 3. hæð 88 fm. Nýtt bað, gler og póstar.
Geymsla og föndurherb. í kj. Laus 1. júní.
í smíðum - hentar fötluðum
3ja herb. glæsil. íb. á 1. hæð, fullb. undir trév. 117 fm. Sérstaklega
hönnuð fyrir hreyfihamlaða. Svalir á suð-vesturhlið og sérlóð. Bílsk.
og fullgerð sameign. Hagstæðir greiðsluskilmálar. Vinsamlegast leitið
nánari upplýsinga.
Góð kaup
Höfum á skrá nokkrar einstaklingsíbúðir, 2ja, 3ja, 4ra herb. íbúðir og
eina sérhæð á góðu verði með mjög hagstæðum greiðslukjörum. Nán-
ari uppl. aðeins á skrifst.
Opiðídagkl. 10.00-16.00.
2ja herb. íbúð
óskast íborginni.
Má vera á jarðhæð.
AIMENNA
FASTEIGHASALAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370