Morgunblaðið - 17.02.1990, Page 22

Morgunblaðið - 17.02.1990, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1990 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1990 23 íW Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- '■rgjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Havel á íslandi Byltingin í Tékkóslóvakíu skilaði þeim árangri á fáeinum dögum, að valda- menn kommúnista hrökkluð- ust úr stöðum sínum. Við það myndaðist tómarúm á æðstu stöðum og þar komu til sög- unnar tveir þjóðkunnir og heimsfrægir menn, annar Tékki, Vaclav Havel, og hinn Slóvaki, Alexander Dubceck. í ræðu sem Havel flutti eftir að hann tók við emb- ætti forseta í lok desember síðastliðins lét hann orð falla á þann veg, að hann liti á það sem meginhlutverk sitt að efla með þjóðinni andlegan þrótt og standa við hlið þeirra sem minnst mega sín í þjóð- félaginu. Vegna staðfestu í baráttunni gegn lygum kommúnista þótti Havel best fallinn til þess að leiða þjóð- ina fyrstu skrefin á lýðræðis- brautinni. Sjálfur var hann tregur til að taka að sér starf- ið og enn er óljóst, hvort hann gefur kost á sér í kosn- ingum í sumar. í fyrstu virt- ist hann harðákveðinn í að vera forseti aðeins í fáeina mánuði en síðan hefur hann heldur dregið í Iand að því leyti. Nýtur hann óskoraðs trausts meðal þjóðarinnar og er bæði elskaður og virtur, að minnsta kosti í höfuð- borginni, Prag. í hugum manna utan og innan Tékkóslóvakíu er Vacl- av Havel tákn hugrekkis og staðfestu andspænis einræði og erlendri hernaðaríhlutun. Ofsóknir kommúnista hafa ekki megnað að þagga niður í honum. Þvert á móti hefur hann eflst við hverja raun og glímir nú fijáls maður við þá erfiðustu að leiða þjóð sína úr niðurlægingu og fátækt. í fyrstu utanlandsferð sinni sem forseti fór Havel til Austur- og Vestur-Þýska- lands. Sýndi hann þá strax, að hann færi ekki hefðbundn- ar leiðir í samskiptum við aðrar þjóðir; samskipti Tékkóslóvaka og Þjóðverja höfðu síður en svo verið vin- samleg. í Póllandi sagði hann, að í Þýskalandi væri að finna einn af lyklunum að friðsamlegri Evrópu. Þjóð- veijar hefðu gert mikið gagn með því að bijóta niður múr- inn og opna þannig leiðina að Evrópji án múra, án járn- tjalds og gaddavírs. Nú sýnir Havel okkur ís- lendingum þann heiður að koma hér við á för sinni til Kanada og Bandaríkjanna. Hingað kemur hann fremur sem leikritaskáld og andófs- maður en forseti þjóðar sinnar; hann vill kynnast því, hvemig Þjóðleikhúsið setur eitt leikrita hans, Endur- bygginguna, á svið. Það setur þó síður en svo skugga á heimsóknina hingað, að okk- ur gefst tækfifæri til að taka á móti honum sem þjóðhöfð- ingja. Deilt um orkuskatt Deila hefur risið milli þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar íjármálaráð- herra og Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra um það, hver hafi átt hugmyndina að skatti á orkufyrirtæki. Þegar þetta mál bar á góma í haust var látið að því liggja, að alger samstaða væri um það innan ríkis- stjórnarinnar. Eftir að and- staða við hugmyndina jókst var minna rætt um þessa samstöðu. í sjónvarpsþætti með Halldóri Blöndal, þing- manni Sjálfstæðisflokksins, í upphafi vikunnar sagði Ólaf- ur Ragnar Grímsson, að Al- þýðuflokkurinn hefði átt hugmyndina að því að í efna- hagsaðgerðum ríkisstjórnar- innar í desember væru orku- fyrirtækin látin greiða tekju- skatt. „Það var hugmynd Alþýðuflokksins að gera það núna í þessari lotu,“ sagði fj ármálaráðherra. Jón Sigurðsson sagði á þingi á þriðjudag, að fullyrð- ingar um að Alþýðuflokkur- inn hefði átt þessa hugmynd væru alrangar. Úr því að enginn þorir lengur að kannast við að eiga hugmyndina um þennan nýja skatt, sem myndi hækka all- an orkukostnað í landinu, virðist einsýnt að hann kom- ist ekki til framkvæmda. Frelsi með og án fyrírvara eftir Þorstein Pálsson í dag kemur til landsins með fríðu fylgdarliði mikill aufúsugestur. Havel forseti Tékkóslóvakíu er góð- ur merkisberi þeirra miklu breyt- inga sem átt hafa sér stað í Austur- Evrópu undanfama mánuði. Hann hefur farið fyrir þeim sem brotið hafa niður ógnarstjóm sósíalista. Það er einkar ánægjulegt fyrir íslendinga að Havel skuli gefa sér tóm til þess að koma hér við í til- efni af því að sýningar eru að hefj- ast á leikriti hans hér. Koma hins nýja forseta Tékkóslóvakíu af þessu tilefni verður eins og til þess að tengja íslendinga frekar við þá miklu og sögulegu atburði sem nú gerast austan þeirrar línu sem áður var girt jámtjaldinu. Tékkar hafa áður gert tilraunir til þess að bijóta af sér ok sósíalism- ans. Árið 1968 líður mönnum seint úr minni. Þá voru vígtólin frá Moskvu notuð til þess að bijóta á »bak aftur frelsisviðleitni þjóðarinn- ar. Með vopnavaldi var unnt að hrekja menn frá völdum og koma í veg fyrir stjórnarfarslegar og efnahagslegar breytingar, en fijáls hugsun var ekki þurrkuð út. Baráttan hélt áfram. Hún kostaði ýmsa setu í fangabúðum, þar á meðal hinn nýkjörna forseta sem heimsækir íslendinga í dag. En það verður ekki hlaupið að því fyrir þjóð eins og Tékka að hlaupa í einu vettfangi inn í þjóðfélag lýðræðis og markaðskerfis. En hinni nýju forystu í tékkneskum stjórnmálum fylgja góðar óskir og við hana em bundnar miklar vonir. Á sama tíma og forseti Tékkó- slóvakíu kemur hingað í heimsókn em þeir alþýðubandalagsmenn önn- um kafnir við að gera upp málefni fortíðarinnar. Eftir innrásina í Tékkóslóvakíu 1968 sleit Alþýðu- bandalagið öllum tengslum við þá kommúnistaflokka sem staðið höfðu að innrásinni. Eftir stóð því sérstakt vináttusamband við komm- únistaflokk Sjáseskus í Rúmeníu. Núverandi forseti sameinaðs al- þings taldi Sjásesku einstaklega gæfulegan þjóðarleiðtoga og ógnar- legan sjarmör. En umfram allt töldu alþýðubandalagsmenn að komm- únistaflokknum í Rúmeníu hefði tekist hvað best að þróa sósíalisma í átt til lýðræðis. En svo virðist sem það ve^ist nokkuð fyrir alþýðu- bandalagsmönnum eins og málum er komið að gera þær sakir upp. Á nýafstöðnum flokksfundi í Al- þýðubandalaginu gáfust menn upp við þetta verkefni. Birtingarmenn- imir, sem starfað hafa undir vernd- arvæng Ólafs Ragnars Grímssonar, fengu ekki stuðning við tillögu sína um uppgjör við fortíðina. Formað- urinn sneri ræðum sínum til fugla himinsins. Niðurstaðan var því ein- hvers konar núlllausn. En sannarlega hefði það verið styrkur fyrir núverandi mennta- málaráðherra ef flokkur hans hefði getað gert hreint fyrir sínum dyrum að því er varðar tengslin við komm- únistaflokkana í Austur-Evrópu áður en leikritaskáldið, sem nú er forseti þeirrar Tékkóslóvakíu sem er að bijóta af sér hlekki sósíalism- ans, kemur í heimsókn hingað. Athyglisvert er að hinn nýi for- seti Tékkóslóvakíu kaus sér fjár- Þorsteinn Pálsson „Með þessu móti er ekki verið að takast á við útgjaldavanda ríkisins. Forseti alþýðusam- bandsins hefiir rétti- lega bent á þá skinlielgi sem felst í þessum að- gerðum.“ málaráðherra úr hópi fijálshyggju- manna, Klaus að nafni. Hann er sérstakur aðdáandi kenninga Milt- ons Friedmans. Klaus vill markaðs- búskap án nokkurra lýsingarorða eins og hann segir sjálfur. Á sama tíma kýs forsætisráð- herra íslands að hafa í stóli fjár- málaráðherra mann úr þeim flokki sem ekki hefur getað gert upp sak- irnar við sósíalíska fortíð sína og tengsl við kommúnistaflokka í Evr- ópu. íslenski fjármálaráðherrann setur fyrirvara gagnvart efna- hagsáætlun Norðurlanda og samn- ingum við Evrópubandalagið af því að þar er minnst á fijálsan fjár- magnsmarkað. Þess ber þó að geta að formaður Alþýðubandalagsins segist í raun og veru aldrei hafa hætt að vera framsóknarmaður þó að hann sé búinn að vera í tveimur stjórn- málaflokkum síðan að hann klauf Framsókn á sínum tíma. En hvað sem því líður hafa Tékk- ar nú fjármálaráðherra sem vill markaðsbúskap án fyrirvara en ís- lendingar hafa fjármálaráðherra sem hefur fyrirvara gagnvart auknu markaðsfrelsi. Þessi sami ijármálaráðherra hef- ur nú kynnt í ríkisstjórn tillögur um niðurskurð á fjárlögum. Athygl- isvert er að niðurskurðartillögur skuli nú lagðar fram þegar ekki eru einu sinni liðnir tveir mánuðir frá því að fjárlög voru samþykkt. Að hluta til má rekja þessar tillögur til útgjaldaauka í tengslum við kjarasamninga en að stærstum hluta til vanáætlana við gerð fjár- laganna. Þær vanáætlanir voru öll- um ljósar og skýrt og skilmerkilega á þær bent af hálfu talsmanna Sjálf- stæðisflokksins í fjárveitinganefnd við afgreiðslu fjárlaganna. Sjálfstæðisflokkurinn bauðst til þess að taka sameiginlega á vanda ríkissjóðs með öðrum þingflokkum ef það verkefni yrði falið sérstakri þingnefnd. Það var vel tekið í þá hugmynd af talsmanni Alþýðu- flokksins. Henni var hins vegar með öllu hafnað af fjármálaráðherra. Nú sætir hann harðri gagnrýni í eigin flokki fyrir það að hafa snið- gengið Alþingi, sjálft fjárveitinga- valdið, við þessa tillögugerð. Athygli vekur að sumar þessara niðurskurðartillagna byggjast ekki á því að draga úr opinberum út- gjöldum, heldur að færa útgjalda- vanda til. Niðurskurður á framlagi ríkissjóðs til atvinnuleysistrygg- ingasjóðs er ekki ákveðinn í tengsl- um við takmörkun á skuldbinding- um sjóðsins. Þær verða hinar sömu og áður. Sjóðurinn þarf því annað- hvort að ganga á eigið fé eða taka lán. Enginn útgjaldavandi hefur verið, leystur. Sama má segja um niðurskurð á framlögum til bygg- ingarsjóða ríkisins. Engin ákvörðun hefur verið tekin um takmörkun á umsvifum þeirra. Ákvörðunin felur það eitt í sér að Byggingarsjóður ríkisins þarf að taka lán í staðinn fyrir að ríkissjóður hefði ella þurft að taka það. Með þessu móti er ekki verið að takast á við útgjaldavanda ríkisins. Forseti alþýðusambandsins hefur réttilega bent á þá skinhelgi sem fellst í þessum aðgerðum. Og ekki verður sagt um hann að hann sé í flokkspólitísku stríði við fjármála- ráðherrann því að hann er einnig varamaður Alþýðubandalagsins á Alþingi. Athygli hefur vakið í kjölfar kjarasamninganna að ríkisstjórnin hefur ákveðið verulega hækkun á lyfjaverði. Og enn sem komið er hefur hún í engu breytt ákvörðun- um sínum um orkuskatt og umtals- verða hækkun á bifreiðagjöldum. Engu er líkara en ríkisstjórninni sé algjörlega ómögulegt að skilja þann veruleika sem býr að baki þeim nýja efnahagsgrundvelli er aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt. Viljinn til samstöðu og sameigin- legra átaka virðist vera fyrir hendi hvarvetna í þjóðfélaginu. Ríkis- stjórnin ætlar ein að skera sig úr þeim leik. Þar endurtekur sagan sig frá fyrra ári. Nokkrir þingmenn Framsóknar- flokksins hafa flutt athyglisverða tillögu um sérstakar aðgerðir í þeim tilgangi að ná fram sparnaði og hagræðingu í ríkisrekstri. Þeir leggja til að málið verði tekið úr höndum íjármálaráðherra og falið sérstakri nefnd eða verkefnisstjóm. Þeir telja að útilokað sé að vinna bug á vanda ríkissjóðs með niður- skurði á framkvæmdum og hækkun skatta. Þeir benda m.a. á þann möguleika við sparnað að sameina ríkisstofnanir. Athyglisvert er á hinn bóginn að þessir sömu þingmenn hafa tekið ábyrgð á því að ríkisstjómin hafn- aði tilboði Sjálfstæðisflokksins um að fela sérstakri þingnefnd eða starfshópi það verkefni að taka á útgjaldavanda ríkisins. Þessir sömu þingmenn hafa stað- ið að öllum skattahækkunum ríkis- stjómarinnar og ætla að greiða at- kvæði með þeim skattatillögum sem ríkisstjórnin á eftir að koma í fram- kvæmd og eru sérstök ögrun við launafólkið í landinu. Þessir sömu þingmenn hafa stað- ið að því að auka vemlega rekstar- útgjöld ríkisins i núgildandi fjárlög- um en draga úr framkvæmdafram- lögum. Frægur af endemum var stuðningur þeirra við tug milljóna króna aukin ríkisútgjöld til þess að rétta hag flokksmálgagnanna. Þessir sömu þingmenn hafa knú- ið í gegnum neðri deild Alþingis framvarp um stofnun nýs ráðuneyt- is án verkefna. Þeir hafa með at- kvæði sínu hafnað tillögum sjálf- stæðismanna um að sameina yfír- stjóm umhverfismála öðra starf- andi ráðuneyti. Sjálfstæðismenn hafa á þinginu í vetur tekið á málum með svipuðum hætti og greinir í þingsályktunartil- lögu þeirra framsóknarmanna. Það hafa þeir gert í afstöðu til ein- stakra mála ríkisstjómarinnar og með því að flytja sjálfstæð þingmál. Þingmenn Framsóknarflokksins hafa á hinn bóginn ávallt gengið í verki í atkvæðagreiðslum gegn þessum sjónarmiðum og þessari afstöðu sjálfstæðismanna. Það góða sem þeir vilja gera þeir ekki. Þó að tillaga þeirra sé góðra gjalda verð þá þvo þeir ekki hendur sínar með flutningi hennar meðan þeir taka ákvarðanir og greiða at- kvæði þvert gegn því sem þar seg- ir. En vera má að tillagan sé ábend- ing um að framsóknarmenn séu til- búnir til ábyrgrar afstöðu þegar núverandi ríkisstjóm er farin frá. Með tillögunni eru þeir í raun réttri að segja að best sé að það gerist sem fyrst. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. V Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar: Mmnihlutinn vildi leggja 270 milljónir í ráðhúsið SÍÐARI umræða um íjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fór fram í borgarsljórn síðastliðið llmmtudagskvöld og aðfaranótt föstudags. Þar voru samþykktar breytingar á niðurstöðutölum reikningsliða áætlunarinnar, sem hafa í för með sér hækkun sem neraur tæplega 20 milljónum króna. Tekjur borgarinnar á árinu eru nú áætlaðar 10.675.914.352 krónur. Við umræðuna vakti Davíð Oddsson, borgar- stjóri, athygli á því, að nú gerðu fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn í fyrsta sinn ráð fyrir því i tillögum sínum, að nokkurt fé rynni tU byggingar ráðhúss borgarinnar. Minnihlutinn lagði til að 270 milljón- ir færu til byggingarinnar en meirihlutinn 520 miUjónir. Morgunblaðið/Þorkell Frá fundi borgarstjórnar í nótt þar sem fram fór síðari umræða um íjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1990. Borgarstjóri tók fyrstur til máls við umræður um fjárhagsáætlun- ina. Þar lét hann meðal annars svo ummælt, að breytingartillögur minnihlutaflokkanna væra um margt verr unnar en stundum áð- ur, götóttari og gegnsærri en fyrr, þó ekki hefði alltaf verið þykkt í þeim efnið. Þannig gerðu menn til dæmis ráð fyrir auknum tekjum án þess að geta fært fyrir því við- hlítandi rök. Sigurjón Pétursson (Abl) tók til máls að lokinni ræðu borgar- stjóra. Hann vakti athygli á því, að borgarfulltrúar minnihlutaflokk- anna stæðu saman að tillögugerð við afgreiðslu þessarar fjárhags- áætlunar og hefðu hagað henni þannig, að tekjur og gjöld borgar- sjóðs stæðust á. Hann nefndi að í tillögum sínum gerði minnihlutinn ráð fyrir að tekjur borgarinnar yrðu nokkuð hærri en fram kæmi í frum- varpi að Ijárhagsáætlun, en það væri byggt á þeirri reynslu undan- farinna ára, að tekjurnar væru vanáætlaðar í frumvarpinu. Dagvistarmál Kristín Á. Ólafsdóttir (Abl) mælti fyrir fyrstu ályktunartillögu minnihlutaflokkanna. Þar var lagt til að borgarstjórn mótaði þá stefnu, að í lok næsta kjörtímabils árið 1994 hefði dagvistarrýmum fyrir 0 til 6 ára börn fjölgað um 1.800, eða sem næmi núverandi biðlistum. Sérstaka áherslu ætti að Ieggja á ijölgun heilsdagsrýma. Jafnframt er lagt til að uppeldisstörf yrðu metin til hærri launa en nú, að borgin hækki rekstrarstyrki til dag- heimila, sem rekin era af öðram en borginni og að borgarsjóður veitti slíkum heimilum 50% stofn- styrk. Anna K. Jónsdóttir (S), formað- ur stjórnar Dagvistar barna, lagði til að tillögunni yrði vísað frá. Hún sagði að í tillögu minnihlutans væri skotið langt yfir markið og ef farið væri eftir henni yrði þar um að ræða bruðl með almannafé. Hún sagði að aldrei hefði dagvistarrým- um fjölgað jafn mikið og á þessu kjörtímabili; fjölgunin næmi 803 rýmum frá upphafi til loka kjörtímabilsins. Hún mótmælti hugmynd um hækkun rekstrarstyrkja til dagvist- arstofnana, sem aðrir aðilar en borgin reka, og sagði að niður- greiðsla með börnum þar ætti áfram að vera sú sama og með bömum á dagvistarstofnunum borgarinnar. Loks sagði Anna K. Jónsdóttir að 50% stofnstyrkur nýttist dagvistar- stofnunum afar misjafnlega, tillög- ur minnihlutans væru á misskilningi byggðar og bæri að vísa þeim frá. Einsetning í grunnskólum Elín G. Ólafsdóttir (Kvl) kynnti aðra ályktunartillögu minnihlutans, sem snerist um einsetningu í grann- skólum borgarinnar. Þar var miðað við að 120 milljónum yrði varið á næsta ári til þessa verkefnis og jafnvirði þess árlega í fimm ár í greinargerð með tillögunni seg- ir, að 163 skólastofur vanti til þess að allir skólar í borginni verði ein- setnir og að hver stofa kosti um 4,5 milljónir króna. Sigurjón Fjeldsted (S) sagði að í greinargerð með tillögunni kæmu fram ýmsar rangar upplýsingar. Lágmarkskostnaður á stofu væri 7,8 milljónir en ekki 4,5 og þar sem síðdegisdeildir í skólum borgarinnar væra 206 teldi hann þörf fyrir fleiri stofur en gert væri ráð fyrir í tillög- unni. Sagðist Siguijón telja að heildarkostnaður vegna einsetning- ar skólanna væri af þéssum sökum mun meiri en tillagan gerði ráð fyrir, jafnvel tveir milljarðar króna. Hann sagðist fylgjandi einsetningu skóla og lengingu skóladags en til- lagan væri full af rangfærslum og því ætti að vísa henni frá. Tilraunaskóli í Húsahverfi Elín G. Ólafsdóttir (Kvl) mælti fyrir ályktunartillögu um áð komið yrði á fót tilraunaskóla í Húsa- hverfi, þar sem jafnframt yrði rekið dagheimili, skóladagheimili og tón- listarskóli. Húsakynni, starfslið og þjónusta yrðu þar samnýtt eftir því sem kostur væri. Sigurjón Fjeldsted (S) sagðist ekki sjá að þessi tillaga snerist um tilraunaskóla heldur væri lagt til að þijár stofnanir yrðu byggðar á sömu lóðinni. Enn fremur sæi hann ekki hvemig samnýta ætti starfs- fólkið eða aðstöðuna. Sjálfstæðis- menn sæju ekki ástæðu til að styðja tillöguna og legðu til að henni yrði vísað frá. Málefni aldraðra Guðrún Ágústsdóttir (Abl) flutti tillögu frá stjórnarandstöð- unni um málefni aldraðra. Þar var lagt til að a) tvö hús yrðu keypt til að reka þar sambýli fyrir aldr- aða, b) keyptar yrðu 25 íbúðir í nágrenni þjónustumiðstöðva aldr- aðra, c) að hafinn yrði undirbúning- ur byggingar nýs hjúkranarheimil- is, d) að B-álmu Borgarspítala yrði lokið á næstu Jjórum áram og hjúkrunarrýmum fjölgað um 80, e) komið yrði á fót helgarþjónustu heimilishjálparinnar og f) að stofn- uð yrði ferðaþjónusta fyrir aldrað fólk í heimahúsum. Borgarfulltrúar sjálfstæðis- manna lögðu til að tillögunni yrði vísað frá. Árni Sigfússon, formaður félags- málaráðs, sagði að ekki hefði kom- ið fram þörf fyrir sambýli aldraðra að undanfömu umfram þörf á al- mennu leiguhúsnæði fyrir þennan hóp. Hins vegar væri svigrúm til beggja þessara úrræða innan þeirra fjárveitinga, sem þegar væra ætlað- ar til húsnæðiskaupa eða byggjnga í ijárhagsáætluninni. í-máli Árna kom einnig fram að á árinu yrðu keyptar 15 til 20 íbúðir í nágrenni þjónustumiðstöðva til útleigu fyrir aldraða. Jafnframt sagði hann að afstaða yrði tekin til ferðaþjónustu fyrir aldraða og heimahjúkranar um helgar í kjölfar könnunar á þjón- ustuþörf, sem nú stæði yfir. Páll Gíslason, formaður bygg- ingarnefndar aldraðra, tók einnig til máls vegna þessarar tillögu. Hann greindi frá því að margs kon- ar framkvæmdir væru nú í gangi til að bæta og auka hjúkranarrými í borginni, og væri Reykjavíkurborg nú til dæmis að hefja byggingu hjúkrunarheimilis í Húsahverfi. Oskynsamlegt væri að dreifa kröft- unum of mikið og fara að hanna tvö hjúkrunarheimili á sama ári. Slíkt væri bæði óraunhæft og óráð- legt. Páll vék einnig að málefnum B-álmu Borgarspítalans og sagði að ekki stæði á borgaryfirvöldum heldur ríkinu að standa við sinn hlut vegna þessara framkvæmda. Lögum samkvæmt ætti ríkið að greiða 85% kostnaðarins en borgin 15%. Samkvæmt fjárlögum yrði framlag ríkisins í ár aðeins 10 millj- ónir króna og jafnvel gæti til þess komið að engu fé yrði varið til verk- efnisins af ríkisins hálfu. Unglingahús í miðbænum Sigrún Magnúsdóttir (F) kynnti tillögu minnihlutans um að kaupa 300 til 400 fermetra einingahús, sem koma ætti fyrir á lóð Selja- skóla til að skapa félagsaðstöðu fyrir nemendur þar. Jafnframt var þar lagt til að sérstöku unglinga- húsi yrði komið upp í miðbæ Reykjavíkur. Júlíus Hafstein (S), formaður íþrótta- og tómstundaráðs, lagði til að fyrri hluta tillögunnar yrði vísað frá þar sem skynsamlegri kostur væri að bíða þess að hægt yrði að koma upp aðstöðu fyrir félagsstarf nemenda í þeim hluta Seljaskóla, sem til þess væri ætlaður. Júlíus lagði til að síðari hluti tillögunnar yrði felldur. Stofnkostnaður vegna unglingahúss í miðbænum myndi nema tugum milljóna króna og ann- að eins færi síðan í reksturinn. Vísaði hann síðan til þess að borgin hefði keypt veitingahúsið við Álfa- bakka á síðasta ári og þar færi fram mikil starfsemi skólafélaga og ann- arra félagasamtaka ungs fólks. Júlíus lagði einnig til að felld yrði ályktunartillaga um æskulýðs- mál sem Bjarni P. Magnússon (A) kynnti. Þar var lagt til að borgin legði fram sérstakt rekstrarframlag til stuðnings starfsemi félaga í | hverfum borgarinnar, til dæmis vegna leiknámskeiða. Sagði Júlíus að tillagan ætti ekki við vegna breytinga á styrkjakerfi borgarinn- ar vegna þessa málaflokks. Bjami lagði einnig fram tillögu um að borgarstjóra yrði falið að gera tillögur um hvernig borgin gæti tryggt rekstur skíðasvæða KR í Skálafelli og Víkings og ÍR- í Hamragili. Júlíus Hafstein lagði til að tillögunni yrði vísað frá en greindi jafnframt frá því að rætt yrði við félögin um málið. Rafknúnir einteinungar Guðrún Ágústsdóttir (Abl) mælti fyrir tillögu minnihlutans um að kanna nýja kosti í almennings- samgöngum í samráði við sam- gönguráðherra og nágrannasveitar- félögin. í greinargerð með tillög- unni er einkum beint sjónum að rafknúnum einteinungum, sem ækju um á 2 til 3 metra háum súl- um meðfram umferðaræðum. Jóna Gróa Sigurðardóttir (S) sagði að tillagan væri út í hött og benti á að jarnbrautakerfi þekktist ekki í borgum með minna en hálfa milljón íbúa. Hún tók undir að fylgj- ast yrði með kostum í almennings- samgöngum og sagði að embættis- menn borgarinnar gerðu það mjög vél. Lagði hún til að tillögunni yrði vísað frá. Umferðaröryggismál Sigrún Magnúsdóttir (F) kynnti tillögu um umferðaröryggismál í nokkrum liðum. Þar er meðal ann- ars talað um að lagfæra sérstaka áhættustaði í borginni, láta gera sérstaka fræðsluþætti fyrir sjón- varp ætlaða gangandi vegfarend- um, leggja hitalagnir í gangstéttar og brattar götur, fjölga gangbraut- arljósum og gera tvenn undirgöng fyrir gangandi vegfarendur undir Miklubraut. Haraldur Blöndal (S), formaður umferðarnefndar, bar fram frávís- unartillögu á þessa tillögu minni- hlutaflokkanna. Sagði hann hana einkennast af yfírboðum og vera úr tengslum við raunveruleikann. Hann gagmýndi einnig tillögu minnihlutaflokkanna um að fella niður framkvæmdir við Sætún harðlega og sagði að þessi fram- kvæmd væri forsenda umferðar- öryggis fyrir íbúa hinnar nýju byggðar við Skúlagötu. í sama streng tók Helga Jóhannsdóttir (S). Efnasamsetning skolps Bjarni P. Magnússon (A) lagði fram tillögu frá minnihlutanum um að efnasamsetning skolps verði könnuð og til þess varið 2.500.000 krónum. Katrín Fjeldsted (S), formaður heilbrigðisráðs, sagðist taka undir margt í tillögunni og lagði til að henni yrði vísað til borgarráðs. Bjami lagði einnig fram tillögu um endurskoðun fjárhagsáætlunar Reykjavíkurhafnar, þar sem gert var ráð fyrir að tekjur vegna ofáætl- unar launa og annars kostnaðar yrðu látnar mæta kostnaði við við- gerð á gömlum trébryggjum í vest- urhöfninni og fleiri verkefni. Guðmundur Hallvarðsson (S), formaður hafnarstjómar, lagði til fyrir hönd borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins að tillögunni yrði vísað frá. Umhverfísmál og útivist Þá mælti Bjarni P. Magnússon fyrir tillögu um umhverfl og útivist í fjórum liðum, þar sem gert var ráð fyrir að borgarstjórn samþykkti fjögurra ára áætlun um endurbætur á opnum útivistar- og leiksvæðum, kaupum á leiktækjum á eldri leik- velli borgarinnar, hugmyndasam- keppni um nýtingu Nauthólsvíkur og Rauðavatnssvæðisins og að borgarfriðlandið í Vatnsmýrinni yrði girt af og ráðinn yrði umsjónar- maður „Tjarnarfugla“. Júlíus Hafstein sagði að það væri fyrst og fremst hlutverk þeirra flokka, sem bjóða munu fram við kosningarnar í vor, að leggja fram Jjögurra ára áætlun um það sem þeir ætla að leggja áherslu á á næsta kjörtímabili. Auk þess væru ýmis þau svæði, sem talað væri um í tillögunni, þegar á hönnunarstigi. Davíð Oddsson, borgarstjóri, lagði til að þeim hluta tillögunnar, er fjallaði um borgarfriðlandið, yrði vísað til borgarráðs. Nefndi hann einnig að uppi væru hugmyndir um að stækka friðlandið. Atvinnumál Elín G. Ólafsdóttir mælti fyrir ályktunartillögu minnihlutans um atvinnumál. Þar var lagt til að stofnaður yrði samstarfshópur til að leita leiða til að mæta brýnasta vandanum í þessum efnum. Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður at- vinnumálanefndar, lagði fram frá- vísunartillögu og gerði um leið grein fyrir námskeiðahaldi fyrir atvinnu- lausa einstaklinga í borginni. Guðrún Ágústsdóttir flutti tillögu á fundinum um að koma á máltíðum í grannskólum borgarinnar. Katrín Fjeldsted lagði til að tillögunni yrði vísað til skólamálaráðs og var það samþykkt með 9 atkvæðum sjálf- stæðismanna. Flestum tillögum minni- hlutans vísað frá Við atkvæðagreiðslu um fjár- hagsáætlunina voru breytingartil- lögurnar sem komu frá borgarráði að mestu samþykktar óbreyttar en tillögum minnihlutans var flestum vísað frá. Á því vora þó undantekn- ingar og féllust sjálfstæðismenn til dæmis á tillögu minnihlutans um 150.000 króna styrk til kórs Lang- holtskirkju og 300.000 króna styrk til Félags áhugamanna um íþróttir aldraðra. Tillögum um borgarfrið- landið í Vatnsmýri, umsjónarmann „Tjamarfugla" og könnum á efna- samsetningu skolps var vísað til borgarráðs. Undanþága frá aðstöðu- gjöldum felld niður Við umræðumar um Jjárhags- áætlunina kom meðal annars til atkvæðagreiðslu um afnám undan- þágu fjölmiðla frá aðstöðugjöldum. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins greiddu at- kvæði með afnámi undanþágunnar en fulltrúar Framsóknarflokks, Al- þýðubandalags og Kvennalista greiddu atkvæði gegn því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.