Morgunblaðið - 17.02.1990, Page 25
ÁRNAÐ HEILLA
K /\ ára afinæli. Fimmtug-
DU ur verður á morgun,
sunnudag, 18. febrúar Gunn-
ar H. Stefánsson, fi-am-
reiðslumaður, Espigerði 4
hér í Rvík. Hann og kona
hans taka á móti gestum í
sal Tannlæknafél. íslands,
Síðumúla 35, í dag, laugar-
dag, kl. 17-20.
■ SAMKOMUR á vegum nokk-
urra leikmannahreyfinga innan
íslensku þjóðkirkjunnar hefjast í
Bústaðakirkju sunnudaginn 18.
febrúar. Að samkomunum standa:
Kristilegt félag ungra manna
(KFUM), Kristilegt félag ungra
kvenna (KFUK), Kristilegt stúd-
entafélag (KSF), Kristileg skóla-
samtök (KSS), Samband
íslenskra kristniboðsfélaga (SIK)
og Ungt fólk með hlutverk
(UFMH). Samkomurnar í Bústaða-
kirkju munu allar hefjast klukkan
20.30. Þær verða öll kvöld vikunnar
nema miðvikudagskvöldið 21. febr-
úar. Yfirskrift kirkjunnar verður
hin forna spurning mannsins: „Guð!
Hvar ertu?“ í raun er spurningin
sígild og vissulega ofarlega í hugum
margra í dag. í Bústaðakirkju verð-
ur reynt að nálgast svarið í ljósi
kristinnar trúar. Dagskrá samko-
manna í Bústaðakirkju verður mjög
^ölbreytt. Áhersla verður lögð á
margs konar söng, lofgjörð, vitnis-
burð, prédikun og bæn. Sérstakur
gestur, og aðalræðumaður á sam-
komunum verður Ulrich Parzany,
framkvæmdastjóri KFUM í Vest-
ur-Þýskalandi. Hann hefur hvar-
vetna getið sér gott orð sem skel-
eggur prédikari og tekið talsverðan
þátt í alþjóðlegu samstarfi innan
kirkjunnar. Hann mun flytja mál
sitt á ensku en túlkað verður jafn-
harðan á íslensku. Sunnudaginn 18.
febrúar mun Parzany einnig préd-
ika við guðsþjónustu í Bústaða-
kirkju og miðvikudaginn 21. febrú-
ar (þann dag sem ekki verður sam-
koma í Bústaðakirkju) mun hann
halda til Akureyrar þar sem hann
talar meðal annars á samkomu í
húsnæði KFUM og KFUK í
Sunnuhlíð um kvöldið kl. 20.30.
■ HÁRGREIÐSL UMEISTAR-
INN DAR frá London heldur hár-
greiðslusýningu á Hótel Borg
sunnudaginn 18. febrúar og hefst
hún kl. 14.30. DAR, sem er hér á
vegum Wella á íslandi, þjálfar nú
landslið íslendinga í hárgreiðslu
fyrir heimsmeistarakeppni í hár-
greiðslu sem haldin verður í Rotter-
dam 23.-25. september nk. Á sýn-
ingunni sýnir DAR það helsta í
komandi vortísku í klippingu, litun
og pennanenti. Allur ágóði af nám-
skeiðum og sýningum hárgreiðslu-
meistarans hér á landi rennur til
þjálfunar landsliðsins.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1990
..--t,.,.,-, t-*1 ■!■■■ t t.-' .■ t.t ""T" 'rrr
25
MÓTUN
ATVINNUSTEFNU
Ríkisstjórnin boðar í næstu viku til þriggja funda um mótun atvinnustefnu. Á fundinum verða
flutt stutt framsöguerindi og síðan eru pallborðsumræður.
VESTFJARÐAKJÖRDÆMI
Fundur fyrir Vestfjarðakjördæmi verður haldinn í
Stjórnsýsluhúsi ísafjarðar, þriðjudaginn 20.
febrúar, klukkan 20:30.
Framsöguerindi flytja: Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra, Júlíus Sólnes, ráðherra Hag-
stofu, Áslaug Alfreðsdóttir, hótelstjóri og Einar
Hreinsson, sjávarútvegsfræðingur. Auk þeirra
taka þátt í pallborðsumræðum Eiríkur Böðvars-
son, framkvæmdastjóri, Jón Páll Halldórsson,
framkvæmdastjóri, Jónas Ólafsson, sveitarstjóri á
Þingeyri, Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í
Bolungarvík og Pétur Sigurðsson,'formaður
Alþýðusambands Vestfjarða.
Fundarstjóri verður Haraldur L. Haraldsson,
bæjarstjóri á ísafirði.
Eirikur Jón Páll Jónas Ólafur
Pétur Haraldur L.
SUÐURLANDSKJÖRDÆMI
Fundur fyrir Suðurlandskjördæmi verður haldinn
á Hótel Selfossi miðvikudaginn 21. febrúar,
klukkan 20:30.
Framsöguerindi flytja: Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, Júlíus Sólnes, ráðherra
Hagstofu, Óli Þ. Guðbjartsson, dómsmálaráð-
herra, Einar Sigurðsson, útgerðarmaður og odd-
viti Olfushrepps, Oddur Már Gunnarsson, iðnráð-
gjafi Suðurlands, Sigríður Ólafsdóttir, formaður
atvinnumálanefndar Selfoss, Sigurður Kristjáns-
son, kaupfélagsstjóri K.Á. á Selfossi, Sigurður
Oskarsson, formaður Alþýðusambands Suður-
lands, og Þórir N. Kjartansson, framkvæmdastjóri
Víkurprjóns, Vík.
Fundarstjóri verður Karl Björnsson, bæjarstjóri á
Selfossi.
Júlfus Steingrfmur J.
Jörundur Finnbogi
Sigurður I.
Sigurður S.
AUSTURLANDSKJÖRDÆMI
Fundurfyrir Austurlandskjördæmi verður haldinn
á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum,fimmtudaginn
22. febrúar, klukkan 20:30.
Framsöguerindi flytja: Júlíus Sólnes, ráðherra
Hagstofu, Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar-
og samgönguráðherra, Arnbjörg Sveinsdóttir,
bæjarfulltrúi, Seyðisfirði, Hörður Þórhallsson,
sveitarstjóri, Reyðarfirði, Jörundur Ragnarsson,
kaupfélagsstjóri, Egilsstöðum, Finnbogi Jónsson,
framkvæmdastjóri, Neskaupstað og Sigurður
Ingvarsson, formaður Alþýðusambands Austur-
lands. Auk þeirra tekur Einar Rafn Haraldsson,
formaðuratvinnumálanefndará Egilsstöðum þátt
í pallborðsumræðum.
Fundarstjóri verður Sigurður Símonarson,
bæjarstjóri á Egilsstöðum.
■ Atvinnumál framtíðarinnar varða alla. Fólk er því hvatt til þess að mæta á fundina og láta skoðanir sínar í Ijós.
BÓKAMARKAÐUR V Ö K U H E L G A F E L L S
Sértilboð
dagsins:
Takmarkað upplag
Slórfalleg bók
um Þórarin B. Þorláksson listmálara.
Venjulegtverð: 2.978,-
^órarinn B. Markaðurinn
Þ<>riáksson stendur tíl
21. febrúar
Tilboðsverð:
995,-
HELGAFELL
Síðumúla 29 • Simi 688 300.