Morgunblaðið - 17.02.1990, Síða 30

Morgunblaðið - 17.02.1990, Síða 30
30 MORGU^B^jAÐIÐ LAUGARDAGUR: 17. FEBRÚAH 1990 STJORNUSPA eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) r* Persónutöfrar þínir blómstra í dag og fleyta þér langt. í kvöld getur komið upp vandamái í sambandi við peninga. Naut (20. apríl - 20. maí) tfj^ Þú hefur ekki fengið nógu góða ráðgjöf í fjármálum, en ró- mantíkin ætti að færa þér gleði. Forðastu óhófseyðslu í kvöld. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Láttu innsæið ráða ferðinni í ijármálunum. Byijaðu á ein- hveiju uppáhaldsverkefni í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí) >"$8 Verkefni sem þú ert að byija á kann að reynast erflðara en þú gerðir ráð fyrir. Undirbúðu þig vel áður en þú hefst handa við það. Rómantíkin er aðalat- riðið í dag. Vertu með þeim sem þér þykir vænt um. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú kannt ekki að meta óum- beðin ráð í dag. Það er alls ekki víst að þú viljir gera hlut- ina eins og aðrir telja réttast að gera þá. Hjón njóta útivistar saman. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú velur milli ieiks og starfs í dag. Svo virðist sem þú hafir mestan ávinning af því að slappa af og skemmta þér. Rómantíkin kemur við sögu. Vog (23. sept. - 22. október) $& Þú ert ef til vill að prýða heimil- ið um þessar mundir. Varastu að eyða of miklu í afþreyingu. Þú ættir að njóta kvöldsins í faðmi Qölskyldunnar. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) Þó að tjáningarhæfileikar þínir séu óumdeilanlegir verðurðu að vera vel á varðbergi svo að þú glepjist ekki til að kaupa einhvem óþarfa. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Í53 Það gengur ekki að vera með hálfan hugann við starfið. Ein- hver misskilningur getur komið upp í kvöld. Steingeit (22. des. - 19. janúar) m Þú virðist ætla að heilla alla sem hafa samband við þig í dag. Ábyrgðarleysi vinar þíns kemur þér úr jafnvægi. Reyndu að eyða ekki of miklum pening- um í kvöld. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Þú kemst í samband við ein- hvem sem verður þér að liði. Þú gætir orðið fyrir tmflun sem kemur í veg fyrir að þú stand- ist tímaáætlun með ákveðið verkefni. Haltu friðinn við vini þína í kvöld. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú átt ánægjulegan dag í hópi ættingja og vina. Reyndu samt ekki að blanda saman starfi og leik. Góða skemmtun. AFMÆLISBARNIÐ er um- * bótasinnað og iaðast oft og ein- att að stjómmátastarfsemi. Það á auðvelt með að afla íjár, en'kýs'öft fremur að léita sér • .starfsframa en stunda sjálf- stæða starfsemi. Það hefur trú- arlega og heimsþekilegá af- •stöðu til lífsins og hefur áhuga á vísindum og listum. Það skar- ar ævinlega fram úr þar sem það fmnur kröftum sínum viðn- ám. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vtsindalegra staðreynda. DÝRAGLENS GRETTIR TOMMI OG JENNI LJOSKA 'É£3 ÞA1ZFAP BlÐFA ■ föLios oyt ' KAUPHöEXKUPJ KANNSKI A>Ot?GUN - \ P/ieueiwn VEfz.£>\ ■ ) PB-Tfít PACáOfí — frr FERDINAND SMAFOLK D0E5 A GRAMMA WAVE TME RI6UT T0 CRiTICIZE A GRANPCMILP, OR 5H0ULD 5ME CRITICIZE TME KIP'5 M0THEK WM0,0F C0UR5E, 15 HER OWN CHILP ? IN MV OPINION, I DONT THINK 5HE P0E5.AND ITMINK l’M 60IN6TOTELL HER... Hefur amma rétt á því að gagnrýna barnabarn, eða ætti hún að gagn- rýna móður krakkans, sem auðvitað er hennar eigið barn? Það er mín skoðun að hún eigi ekki að gera það og ég held að ég fari og segi henni það.. Nema, auðvitað, að þú viljir gera það ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Fögur er hlíðin,“ sagði Gunn- ar forðum og harðneitaði að fara. Vissulega er spilið hans Agnars Jörgenssonar, sem birt var hér í þættinum síðstliðinn föstudag, ægifagurt. En þar fyr- ir utan ekkert tilefni til að leggja spilin á hilluna. Hlíðin hefur á sér margar hliðar, sjónarhomin eru óteljandi og fegurðin enda- laus: Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ Á2 VK76 ♦ ÁD643 + D102 Vestur Austur ♦98 ... ♦ D7664 VDG9 ¥108 ♦ KG10975 ♦ 83 *K9 *G864 Suður ♦ KG103 ¥ Á5432 ♦ - ♦ Á753 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 hjarta 2 tíglar 3 tíglar Pass 4 tíglar Pass 4 spaðar Pass 5 lauf Pass 5 tíglar Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass ( Útspil: spaðanía. Þrír tíglar norðurs lofuðu stuðningi við hjartað og a.m.k. áhuga á geimi. Suður freistaðist til að melda fyrirstöðuna í tígli og eftir það héldu norðri engin bönd. Slemman er auðvitað fyrir neðan allar hellur, en batnaði verulega þegar austur lét spaða- drottninguna í fyrsta slag — frá hans bæjardyrum gat útspilið verið frá K109 („þriðja frá brot- inni“). Nú tók suður sér pensil í hönd og hóf að mála hlíðina. Hann spilaði spaða á ás, tók kóng og ás í trompi og spilaði spaðagosa. Ef vestur trompar verður hann að gefa slag með því að spila frá öðrum láglitakónginum. Ef hann spilar til dæmis tígli, losn- ar sagnhafi við tvö lauf heima, hendir svo laufi niður í spaða- tíuna og trompar það síðasta. Neiti vestur að trompa spaða- gosa og tíu, fara niður tvö lauf i blindum. Síðan kemur laufás og laufstunga. Þá er LÍTILL tígull trompaður heim og vestri kastað inn á tromp. Hann á ekkert nema tígul eftir og lendir í sama vanda. Fögur er hþ'ðin. En í þetta sinn var fegurðin öll á léreftinu. í raunveraleikanum var hún hlíðin forag upp fyrir haus eftir margra daga rigningu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson í undanrásum júgóslavneska meistaramótsins í ár kom þessi staða upp í skák alþjóðameistar- ans Mirkovic (2.405), sem hafði hvítt og átti leik, og Stefanovski (2.310). 25. Dxf6! - Hg8, 26. He7 og svartur gafst upp, því hann á enga vörn við hótuninni 27. Dxg7 og mátar. Úrslit júgóslavneska meistaramótsins fara fram nú í febrúar, en núverandi meistari er hinn 23 ára gamli Zdenka Kozul.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.