Morgunblaðið - 18.02.1990, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ RISPUR SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1990
MORGUNBLAÐIÐ RISPUR SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1990
Mbl./GÚI
Levkas
Zaverda
Scorpion
LEVKAS
Vassiliki
0 Mitikas
'“'Spartahouri
MEGANISI
Sivota
f Kalamos
Kastos
y^ARKUDI- X
/ eyja
ATOKO-
Frikes e}f^ :J
Kioni /
Flscardo
CEPHALONIA
Siglt frá IMidrí
Myndii og texti/Árni Sæbeig
FÁTT ER tígulegra en skútur sem sigla þöndum seglum ut við sjónarrönd. Flesta hefur líklega einhvern tíma
dreymt um að sigla skútu á suðrænum slóðum en ekki látið af verða vegna ónógrar siglingakunnáttu. En það
er auðveldara að láta láta drauminn rætast en flesta grunar. Bátaleigur eru nú viða um heim og hafa á
þriðja áratug verið til þjónustu því fólki sem hefur langað til að sigla sjálft um fjarlæg höf i fríum sínum en
í slagtogi með fleirum. Ekki er krafist mikillar siglingarkunnáttu i svona hópsiglingum, það er hægt að
læra að sigla skútu hér heima eða fara á námskeið hjá skútuleigunum úti.
í haust sem leið bauðst undirrituðum ferð til Grikklands á vegum Ferðamiðstöðvarinnar Veraldar
og bresku skútu- og vélbátaleiganna Island sailing og YCA í Jónahafi. Þarna á slóðum Ódiseifs tók
ég þátt i hópsiglingu er taldi 12 skútur, stærðin á þeim var frá 28 til 36 feta. i þeim geta búið frá já
4 upp i 8 manns. Skuturnar eru allar með hjálparvélum og ef fólk er ekki vant að nota segl er >
hægt að ræsa vél og sigla með henni. Fólki er kennt það nauðsynlegasta sem það þarf að
vita um skúturnar er það kemur um borð. Traust og vant fólk frá skútuleigunum eru um borð
í einni skutu og siglir með hópnum fyrstu daganna. Jónahafið er kjörið fyrir þá sem eru
litt sigldir til að byrja á, vegalengdir milli hafna stuttar, lítið um grynningar og auðvelt /'■
að rata. Allar siglingar eru að degi til og er miðað við að ná næturstað fyrir
myrkur. Staðir sem siglt er á milli eru lítil friðsæl sjávarþorp með alla þá þjón-
ustu sem skutur og sæfarendur þarfnast. Heimamenn eru rólegt og . '
þægilegt fólk sem lætur þessa frístundasiglara ekki raska ró sinni . - '
þótt þeir líti við i þorpum þeirra. Það er ekki hægt annað en . '
að láta sér líða vel innan um þetta fólk og þá miklu nátt- ■ | :n‘j
urufegurð sem þar er, sjórinn er tær og notalegur til
að synda i, sól er þar að meðaltali 320 daga ári. Mer
var sagt að heimamenn læstu aldrei húsum sinum,
lásar væru oþarfir, fólk tæki ekki það sem það
ætti ekki. Það hefur ekki verið nein tilviljun
að Onassis gamli valdi eyju á þessum
stað sem sína draumaeyju. Það er
vel þess virði að dvelja og sigla
þarna um á meðan veröldin
býður ennþá upp á það.
Zflí®/:
.
' 1 í j .
mmm
ht - f
, 4 ' * -V; * V, ' ■
.. ! , , , *j- ..v,’ * o ‘r," ,
■ . ■ •.-... . .■■...■.
■ I ll
I ‘ ’X ■ 5 i
Morgunfundur, sigling dagsins rædd
4 f íSl' •
Komið að landi í Spartahourí
er
Grænmeti keypt á bryggjunni
Siglt seglum þöndum
Veiðimaður verkar kolkrabba
Höfnin í Spartahourí. Scorpio, eyja Onassis, í baksýn