Morgunblaðið - 22.02.1990, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.02.1990, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990 Nokkur orð um Oháða söfii- uðinn á 40 ára afinæli hans eftir Þórstein Ragnarsson Á þessum tímamótum í sögu safnaðarins er ekki úr vegi að upplýsa fólk um söfnuðinn. Það verður gert í örstuttu máli með því að segja frá stofnun hans og sögu, einnig verður vikið að kenn- ingargrundvelli safnaðarins og hver staða hans er innan hinnar evangelísk-lúthersku kirkju hér á landi. Stofiiun saftiaðarins Óháði söfnuðurinn var stofnaður í ársbyijun árið 1950 og eru þrjár dagsetningar oft nefndar í því sam- bandi: Fundur áhugamanna um stofn- un safnaðarfélags var haldinn 26. janúar og var sá fundur nefndur „stofndagur" í fundargerðarbók. Þann 13. febrúar var síðan haldinn framhaldsfundur þar sem sam- þykkt voru lög fyrir söfnuðinn og safnaðarstjóm kosin og aðrir emb- ættismenn. í Morgunblaðinu þann 14. febrú- ar 1950 birtist grein um þennan fund: „Ný'r söfnuður stofnaður í Reykjavík í gær“ og áfram var skrifað: „Á framhaldsfundi í gær- kvöldi var stofnaður nýr söfnuður hér í Reykjavík: „Nýi Fríkirkju- söfnuðurinn . .. Emil Bjömsson, cand. theol. verður prestur þessa safnaðar, er telur á 6. hundrað stofnendur." Það var síðan þann 17. febrúar 1950 sem söfnuðurinn fékk stað- festingu Dóms- og kirkjumála- ráðuneytis og er sá dagur formleg- ur stofndagur safnaðarins. Söfnuðurinn byggði safnaðar- heimili, sem vígt var 13. október 1957 og fallega kirkju við Háteigs- veg í Reykjavík. Kirkjan var vígð á sumardaginn fyrsta 23. apríl 1959. Þar er hin besta aðstaða, bæði hvað varðar guðsþjónustu- haldið og félagslega starfsemi ýmiss konar. Frá stofnun safnaðarins hafa 3 prestar þjónað söfnuðinum: Sr. Emil Björnsson var fyrsti prestur safnaðarins og starfaði samfleytt í rúma 3 áratugi. Sr. Baldur Krist- jánsson var prestur safnaðarins í tæp 2 ár, en undirritaður tók við síðla árs 1985. Frá upphafi safnaðarstarfsins hefur Kvenfélagið verið burðarás- inn í hinu félagslega starfi innan safnaðarins. Fyrsti formaður Kvenfélagsins var frú Aðalheiður Guðmundsdóttir, kona sr. Emils Björnssonar, fyrrv. safnaðarprests, þá tók við frú Ágústa Erlends- dóttir, en núverandi formaður er frú Elsa Guðmundsdóttir. Fyrsti formaður safnaðarins var Andrés Andrésson, klæðskeri, og var hann jafnframt einn af hvata- mönnum um stofnun hans. Andrés var formaður safnaðarins í nær aldarfjórðung og þá tók við Sigurð- ur Magnússon og var hann formað- ur í 9 ár, til ársins 1983, en þá tók núverandi formaður Hólmfríð- ur Guðjónsdóttir við formennsku. Núverandi organisti safnaðarins er Jónas Þórir Þórisson. Starfssvæði safnaðarins hefur frá upphafi verið bundið við Reykjavík, Kópavog og Seltjarnar- nes. Þess má geta að unnið er að rýmkun starfssvæðisins til þess að koma til móts við fjölmarga aðila, sem verið hafa í söfnuðinum og hafa flutt út fyrir svæðið, t.d. í Garðabæ, Hafnarfjörð eða í Mos- fellsbæ, en vilja vera áfram í söfn- uðinum, en fá það ekki vegna þess að starfssvæðið er takmarkað við ofangreind 3 bæjarfélög. Fríkirkju- söfnuðirnir eru um þessar mundir T Sr. Þórsteinn Ragnarsson að leita eftir því við hlutaðeigandi yfirvöld, að þessari skerðingu á mannréttindum linni, og söfnuðirn- ir fái rýmkað starfssvæði í sam- ræmi við bættar samgöngur. Hvernig söfiiuður er Óháði söfhuðurinn? Óháði söfnuðurinn er, ásamt tveimur öðrum fríkirkjusöfnuðum hér á landi, hluti af hinni evang- elísk-lúthersku kirkju á íslandi og byggir á sömu játningum og þjóð- Framhaldsnámskeið í táknmáli Skráning fer fram á skrifstofu Félags heyrnarlausra, Klapparstíg 28 í Reykjavík. Sími 13560. Kennt verður á þriðjudögum kl. 20.00 til 21.30 og fimmtudögum kl. 18.30 til 20.00. Morgunnámskeið standa einnig til boða á mánudögum og fimmtudögum kl. 09.00 til 10.30 Námskeiðin hefjast 6. mars. Kennslustundir verða 12. Þátttöku skal tilkynna í síðasta lagi fyrir 1. mars. Táknmálsnefnd. effcir þínu höfði. Komum á sfcaðinn og tökum mál. Gerum tilboð. Smíðum, málu^ glerjum og setjum í. Fagmennska frá upphafi til enda. Við erum aðilar að IGH og vinnum undir eftirliti Iðntæknistofnunar íslands. ÁRATUGA REYNSLA í GLUGGASMÍÐI Valft*elsi sjúklinga — hvað er nú það? eftir Árna Jónsson Undanfarna mánuði hefur tals- vert verið rætt og ritað um málefni heilbrigðisþjónustunnar, sérstak- lega í tilefni af framkomnu frum- varpi núverandi heilbrigðisráð- herra, sem í flestu stefnir að auk- inni miðstýringu í heilbrigðiskerf- inu, bæði hjá sjúkrastofnunum og einnig hjá heimilislæknum. Er ekki annað hægt en að undrast þessar hugmyndir um aukin ríkisumsvif og miðstýringu einmitt á þeim tíma þegar flestar þær þjóðir, sem hafa búið við þvílíkt kerfi eða sósíalisma, eru hver af annarri að taka upp aðra siði og reyna að færa sig yfir á braut markaðsbúskapar. Jafnvel í sjálfu höfuðvígi sósíalismans, Sov- étríkjunum, eru uppi sterkar raddir um að leggja eigi niður kommún- istaflokkinn og taka upp fijálsar kosningar og fijálst hagkerfi. Einnig virðist sem sænskir sósíal- demókratar, sem manna lengst og mest hafa staðið gegn öllum einka- rekstri í læknisþjónustu, séu í vax- andi mæli að gera sér ljóst að einka- rekstur á fullan rétt á sér víða í heilbrigðiskerfinu vegna þess að þar fáist mun betri þjónusta fyrir minna fé en hjá sambærilegum opinberum stofnunum. Eitt er það atriði, sem mér finnst ekki hafa verið nóg athugað þegar rætt er um þessi mál, og það er spurningin um valfrelsi sjúkling- anna. Undirritaður starfaði fyrir nokkrum árum sem læknir í Osló í Noregi. Þar er það fyrirkomulag, að þeg- ar leggja þarf sjúkling inn á sjúkra- hús fer það alfarið eftir heimilis- fangi hans á hvaða sjúkrahúsi við- komandi lendir. Varð mér illa við þegar fyrir kom að sjúklingar, oft gamalt fólk, sem ég þurfti að leggja inn á sjúkrahús, sárbændi mig um að senda sig eitthvert annað heldur en á það sjúkrahús, sem kerfið ætlaði þeim. Fólkið sagði, að þar hefði það verið áður og verið svo óánægt að þangað vildi það alls ekki fara aft- ur. Þetta kom ótrúlega oft fyrir. En kerfið er ósveigjanlegt. Á við- komandi sjúkrahús skyldi sjúkling- urinn fara grátandh ef ekki vildi betur til. Árni Jónsson „Er rétt að skipta Reykjavík upp í um- dæmi ríkisrekinna heilsugæslustöðva þannig að heimilisfang viðkomandi einstakl- ings ákveði hvert hann á að leita eftir læknis- þjónustu?“ Er þetta mannúðlegt kerfi? Fólk borgar opinber gjöld um langa ævi og þegar kemur að því að það þarf virkilega á heilbrigðisþjónustu að halda fær það ekki í neinu að ráða á hvaða sjúkrahúsi það lendir. Al- veg það sama gildir í heimiiisiækna- þjónustunni. Er rétt að skipta Reykjavík upp í umdæmi ríkisrek- inna heilsugæslustöðva þannig að heimilisfang viðkomandi einstakl- ings ákveði hverí hann á að leita eftir læknisþjónustu? Ailir sjá og skilja að margar ástæður geta vald- ið því að sjúklingurinn vill fremur leita til annars læknis. Er réttlætanlegt að búa til kerfi sem tekur þennan sjálfsagða rétt af einstakljngnum varðandi það sem skiptir hann mestu, líf hans og heilsu? Höfundur erlæknir og tunnlæknir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.