Morgunblaðið - 22.02.1990, Side 27

Morgunblaðið - 22.02.1990, Side 27
MOKGUNBIiAÐIÐ FIMMTUDAGUK 22. FEBKUAK 1900 27 Beiðni um skýrslu um Atlantal-álver: Spurt um orkuverð, eign- arhald og staðsetningu „Með vísan til 30. greinar laga um þingsköp óskum við undirritaðir alþingismenn eftir því að iðnaðarráðherra flytji Alþingi skýrslu um fyrirhugaða byggingu nýs álvers.“ Þannig er upphaf beiðni sem tíu þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa sent iðnaðarráðherra. að skýrslan verði tekin til umræðu á fundi Sameinaðs þings eins fljótt og við verður komið. í skýrslunni skal svara eftirtöld- um spurningum: 1) Hvenær er gert ráð fyrir að frumvarp um heimild til að semja við erlend álfyrirtæki um byggingu Atlantal-álversins verði lagt fram? 2) Hvert verður meginefni frum- Árni Gunnarsson, forseti neðri deildar, hringir til atkvæðagreiðslu. __ Bandormur í framhaldi af kjarasamningum; Stj órnarandstaðan greið- ir götu slj órnarfrumvarps Forsætisráðherra: Nýtt fiskverð og aflamiðlun fyrir nk. mánaðamót Stjórnarfrumvarp um ráðstafanir vegna kjarasamninga var afgreitt samhljóða frá neðri deild til efri deildar Alþingis í gær. Frumvarpið er „bandormur", sem fjallar um sjö aðskilin efni, sem öll tengjast ný- gerðum kjarasamningum. Félagsmálanefhd neðri deildar, stjórnarand- staða og stjórnarliðar, skilaði sameiginlegu áliti og mælti með sam- þykkt frumvarpsins með einni breytingu, er varðar verðlagsnefnd bú- vöru. Stuðningur stjórnar- andstöðunnar Rannveig Guðmundsdóttir (A-Rn) mælti fyrir álitinu og breyt- ingartillögu félagsmálanefndar. Geir Haarde (S-Rv) sagði að þingmenn Sjálfstæðisflokks í þing- deildinni styddu frumvarpið, enda væri sjálfgefið að standa við þau fyrirheit, sem stjórnvöld hafi gefið aðilum vinnumarkaðarins, og stuðla að því að efnahagsmarkmið samn- inganna næðust. Galli væri þó á gjöf Njarðar. Frumvarpið væri hvergi nærri tæmandi að þvi leyti er varðar efndir á fyrirheitum ríkis- stjórnarinnar. Eftir standi og hlutur ríkisstjórnarinnar að falla frá ráð- gerðum skattahækkunum, svo sem skatti á orkufyrirtæki og hækkun bifreiðagjalda. Gagnrýnivert sé í þessu sambandi að ríkisstjórnin hyggist skerða framlag sitt til at- vinnuleysistryggingasjóðs um 200 m.kr. á sama tíma og útgjaldaskyld- ur sjóðsins séu auknar og atvinnu- leysi fari vaxandi. Hreggviður Jónsson (FH-Rn) gerði grein fyrir breytingartillögum hans og Inga Björns Albertssonar (FH-Vl), þess efnis, að heildarskatt- ar sveitarfélaga, tengdir fasteigna- mati, megi ekki fara fram úr 0,625% af matinu, sem og að sveit- arfélög skuli sundurliða í reikninga um fasteignaskatta, þ.e. gera grein fyrir hvern veg þeir væru reiknað- ir. Stjórnarliðar felldu þessar tillög- ur. Þorsteinn Pálsson (S-Sl) taldi frumvarpið gott og gilt, svo langt sem það næði. A skorti að ríkis- sjórnin stæði við fyrirheit, gefið fyrir rúmu ári við gerða kjarasamn- inga þá og ákvörðun fiksverðs, um niðurfellingu jöfnunargjalds. Þá skorti á það að ríkisstjórnin standi við gefið fyrirheit um aflamiðlun. Þar strandi mál á innbyrðis ágrein- ingi ráðherra. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði að fiskverð yrði ákveðið fyrir 28. febrúar nk. og að ágreiningur um aflamiðlum verði leystur fyrir fiskverðsákvörð- un. Fleiri tóku til máls þótt ekki verði frekar rakið Efiiisatriði frumvarpsins Frumvarpið er í sjö köflum. Sá fyrsti fjallar um breytingu á lögum um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins: ellilífeyrisþegar fá hlut- deild í orlofsuppbót skv. BSRB- samningi. Annar kveður á um að allir, sem ráðnir eru hjá ríkinu til 12 mánaða eða lengur, skuli njóta fullra rétt- inda skv. lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Þriðji lækkar álagningarstofn fasteigna í sveitum. Fjórði kafli fjallar um hömlur á hækkun á heildsöluverði hefðbund- inna búvara fram til 1. desember 1990. Fimmti mælir fyrir um að ein- staklingar, sem verið hafi atvinnu- lausir í samtals fjóra mánuði eða lengur á tólf mánaða tímabili, fái uppbót hliðstæða þeirri sem greidd verður til láglaunafólks, samkv. nýgerðum samningum. Sjötti hækkar frítekjumark tekjutryggingar almannatrygginga. Sjöundi þrengir greiðsluskyldu ríkisins á launum við gjaldþrot fyr- irtækja, en kveður hins vegar á um að greiðsluábyrgð gagnvart lífeyris- sjóðum við gjaldþrot fyrirtækja verði 18 mánuðir. Frumvarpsgreinarnar vóru sam- þykktar með 28 til 32 atkvæðum, samhljóða. Fyrrnefndar tillögur 'Fijálslynda hægri flokksins vóru felldar. Breytingartillaga félags- málanefndar var hinsvegar sam- þykkt. Hún varðar 7. grein frum- varpsins. Þar stóð: „Þrátt fyrir ákvæði 10. og 12 gr. laga þessara er verðlagsnefnd búvöru heimilt að fresta að hluta eða öllu leyti fram- reikningi verðlagsgi-undvallar 1. marz 1990 og 1. júní 1990 og út- reikningi grundvallarins 1. septem-' ber 1990 í samræmi við Samkomu- lag Stéttarsambands bænda og að- ila vinnumarkaðarins frá 1. febrúar 1990. I breytingartillögunni, sem samþykkt var, segir: „I stað orð- anna „er verðlagsnefnd búvöru heimilt að fresta“ komi: skal verð- lagsnefnd búvöru fella niður.“ varpsins? 3) Hefur ríkisstjórnin mótað afstöðu sína til einstakra atriða málsins, svo sem eignar- halds, orkuverðs o.fl.? 4) Hefur ríkisstjórnin tekið ákvörðun um staðsetningu álversins? í greinargerð segir: „Allt til síðustu áramóta fóru fram viðræður milli nokkurra erlendra álfyrirtækja um byggingu álvers i Straumsvík. Alusuisse ákvað að draga sig út úr viðræðunum, sem byggðust á Atlantal-samningnum við iðnaðar- ráðuneytið frá 4. júní 1988. í stað- inn hefur Alumax staðfest aðild sína að Atlantalhópnum. Iðnaðarráðherra hefur lýst því yfír að hann muni leggja fram frum- varp um nýtt álver á yfirstandandi þingi. Umræður hafa orðið um mis- munandi staðsetningu nýs álvers að undanfömu. Ágreiningur var í liði ríkisstjórnarinnar um nýtt álver þegar ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar var mynduð haustið 1988. Nauðsynlegt er að iðnaðar- raðherra geri sem fyrst grein fyrir stöðu málsins og áformum ríkis- stjórnarinnar." Skýrslubeiðendur, Friðrik Soph- usson og níu aðrir þingmenn Sjálf- stæðisflokks, óska þess jafnframt, Ný þingmál: „Forskot ríkisrekstrar" Ásgeir Eiríkur Hannesson (B-Rv) hefur flutt frumvarp til breytinga á tekjustofnalögum sveitarfélaga. Flutningsmaður segir að Reykjavík leggi að- stöðugald á alla ijölmiðla nema einn, Ríkisútvarpið, og að frumvarpið sé flutt „til að freista þess að koma í veg fyr- ir að fjölmiðlum í þjóðfélaginu sé mismunað með „forskoti ríkisrekstrar“. Lífeyrisréttindi í fæðingarorlofi Sex þingmenn úr öllum þing- flokkum flytja áskorunartillögu á heilbrigðis- og tryggingaráð- herra, þessefnis, að nefnd sú, sem skipuð var í kjölfar kjara- samninga, til að gera tillögur um hvernig jafna megi rétt kvenna á vinnumarkaði til fæð- ingarorlofsgreiðslna, taki jafn- framt til athugunar lífeyrisrétt- indi foreldra í fæðingarorlofi. Fyrsti flutningsmaður er Rann- veig Guðmundsdóttir (A-Rn) Stj órnarfrumvarp um umhverfísmálaráðuneyti: „Meginþáttur máls- ins skilinn eftir“ Þijú misvísandi nefindarálit Annar minnihluti allsherjarnefndar efri deildar, Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv) og Salome Þorkelsdóttir (S-Rn), leggur til að stjórnar- frumvarp til breytinga á Sljórnarráði Islands [umhverfismálaráðu- neyti] verði fellt. Fyrsti minnihluti, Danfríður Skarphéðinsdóttir (SK-Vl), telur stofnun unhverfismálaráðuneytis skref í rétta átt, en tekur undir álit nefhdar- manna Sjálfstæðisfiokks, að „umhverfísráðuneyti án verkefna sé umbúð- ir einar“. Meirihluti neíhdarinnar, Jón Helgason (F-Sl), Guðmundur Agústsson (B-Rv), Jóhann Einvarðsson (F-Rn) og Skúli Alexandersson (Abl-Vl), leggur til að frumvarpið verði samþykkt eins og það kom frá neðri deild. Frumvarp um stofnun umhverfis- málaráðuneytis kom til annarrar umræðu í síðari (efri) þingdeild í gær. Stjórnarliðar leggja ofurkapp á að frumvarpið fái skjóta afgreiðslu og samþykki. í nefndarálitum stjóm- arandstöðuflokka, annarsvegar þing- manna Sjálfstæðisflokks og hinsveg- ar þingmanns Samtaka um kvenna- lista, er harmað, að fylgifrumvarp, sem kveður á um verkefni hins nýja ráðeytis, ef stofnað verður, hefur orðið viðskila við móðurfrumvarpið. í nefndaráliti annars minnihluta seg- ir orðrétt: „2. minnihluti telur að farsælla hefði verið ef meiri hluti nefndarinn- ar hefði gefíð sér tíma til að vinna þannig að málinu að beðið hefði ver- ið eftir fylgifmmvarpinu og breið samstaða hefði getað náðst um það. Þannig hefði afgreiðsla málsins orðið með meiri reisn en felst í því að beita minnihluta nefndarinnar ofríki og keyra þetta fmmvarp í gegn um þingið án fylgiframvarpsins sem er meginþáttur málsins." ¥ ÉLAGSLÍF □ SINDRI 59902227 = 2 Rvík. I.O.O.F. 5 = 17122208 <h = I □ St:.St:. 59902227 VII I.O.O.F. 11 = 17122281/a = Fl. Farfuglar Aðatfundir Farfugladeildar Reykjavíkur og Bandalags íslenskra farfugla verða haldnir laugardaginn 24. feb. kl. 14.00 á Sundlaugavegi 34 (nýja Farfugiaheimilið). Dagskrá: Venjuleg aðalfundar- störf. Lagabreytingar. Stjórnirnar. Trésmiðurinn Sími 40379 á kvöldin. Btá Útivist Helgarf erðir 23.-25. feb. Tindfjöll Gist í selinu. Gengið á Tindfjalla-. jökul á laugardag. Eina ferðin á Tindfjöll í ár. Þórsmörk í vetrarskrúða Ógleymanleg upplifun. Gist I Útivistarskálanum í Básum. Þægilegt gönguskíðaland. Uppl. og miðar á skrifstofu, Gróf- inni 1, sími/símsvari 14606. Útivist lærir að dansa Námskeið í Vikivökum og gömlu dönsunum hefst í kvöld, fimmtud. 22. feb. á Súndlaugar- veg 34, kl. 19.00. Mætið tíma- lega til skráningar. Sjáumst! Útivist. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Sænski söngvarinn Karl Erik Olivebring syngur og talar á almennri samkomu í kvöld kl. 20.30. Skoðanakönnun, meðal skráðra safnaðarmeðlima vegna for- stöðumannsskipta, fer fram í Fíladelfiu, Hátúni 2, föstudaginn 23. febrúar frá kl. 16.00-22.00 og laugardaginn 24. febrúar frá kl. 13.00-18.00. Hjálpræðisherinn Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Erik H. Petersen talar. Bæn og lofgjörð annað kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. S-svigsmótið í flokkum 30 ára og eldri verður haldið i Bláfjöllum laugardaginn 24. febrúar kl. 15.00. Þátttökutilkynningar berist til Arnórs í síma 82922. Allir „öld- ungar“ 30 ára og eldri eru hvatt- ir til að taka þátt í skemmtilegri keppni. Um kvöldiö verður sameiginleg- ur kvöldverður i Lækjarbrekku. Stjórnin. AD-KFUM Samkoma í Bústaðakirkju kl. 20.30. Fundur fellur inn í sam- komuviku vegna heimsóknar Ulrich Parzany, aðalfram- kvæmdastjóra KFUM í Vestur- Þýskalandi. Svigmót Armanns sem frestað var um siðustu helgi verður haldið í Bláfjöllum 24. og 25. febrúar 1990. Fyrri þátttöku- tilkynningar gilda. Þeir, sem hafa breytingar eða viðbótarþátt- tökutilkynningar, hafi samband í síma 77101 fyrir fimmtudags- kvöld 22. febrúar. Óbreytt dag- skrá. Stjórnin. Skiphoiti 50B, 2. hæð Almenn samkoma í kvöld 20.30. Þú ert velkomin(n)! I kvöld kl. 20.30 er almenn sam- 1 koma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42. Mikill almennur söngur. Vitn- isburðir Samhjálparvina. Kórinn tekur lagið. Orð hefur Bára Frið- riksdóttir. Allir velkomnir. Samhjálp. GUD hvar erti Samkoma í Bústaðakirkju [ kvöld kl. 20.30. Ræðumaður Ulrich Parzany frá Vestur-Þýskalandi. Mikill söngur, bæn og lofgjörð. Allir velkomnir. KFUK, KFUM, KSF, ■ KSS, SÍK, UFMH.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.