Morgunblaðið - 22.02.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ EIMMTUDAGUR ffi. FEBRÚAR 1990
35
Kveðjuorð:
Bjarni S. Þórðarson
trésmíðameistari
Fæddur 7. nóvember 1903
Dáinn 24. janúar 1990
Samferðarmenn 4 langri vegferð
verða okkur gjarnan misjafnlega
minnisstæðir og þegar við hugsum
til þeirra, þá reynast sumir eiga svo
sterka mynd í huga okkar, að jafn-
vel rödd þeirra og hlátur hljómar
fyrir eyrum, þó þeir séu víðsfjarri
eða horfnir af þessum heimi.
Einn slíkur samferðarmaður var
mágur minn Bjarni Þórðarson
trésmíðameistari á Flateyri, sem
lést á sjúkrahúsinu á ísafirði, 24.
janúar sl. Allt frá fyrstu kynnum
okkar eftir að hann kvæntist systur
minni fyrir rúmum 57 árum, hefur
hann verið mér eins konar persónu-
gervingur athafnásemi og starfs-
orku — maðurinn sem geislaði af
glaðværð af þeirri sælu tilfinningu
að geta látið hendur standa fram
úr ermum og móta og skapa stórt
og smátt sér og öðrum til gagns
og gleði. Þessa persónutöfra átti
Bjarni í svo ríkum mæli, að aðrir
hrifust ósjálfrátt með af atorku
hans og starfsgleði, og ekki spillti
þar fyrir hlýlegt viðmót hans, sem
sannarlega „kom að innan“.
Bæði um Vestfirði og víðar til
sjávar og sveita standa byggingar,
sem um ókomin ár munu vitna um
handverk hans innanstokks og ut-
andyra, og þeir sem notið hafa
þeirra verka, munu án efa minnast
Frá afhendingu peningagjafar sjómannakvenfélaganna í Reykjavík
í þyrlukaupasjóð. Tálið frá vinstri: Helgi H. Georgsson, form. Stýrr,
Sigríður Smith, kvenfélaginu Keðjunni, Þórunn Olafsdóttir, kvenfé-
laginu Hrönn, Jónína Steingrímsdóttir, kvenfélaginu Hrönn, Matt-
hildur Krisljánsdóttir, kvenfélaginu Öldunni, Erla Sigurðardóttir,
kvenfélaginu Hrönn, Gerður Gunnarsdóttir, kvenfélaginu Öldunni,
Kristín Ölafsdóttir, kvenfélaginu Öldunni, Sólborg Marinósdóttir,
kvenfélaginu Keðjunni, Margrét Björgvinsdóttir, kvenfélaginu Keðj-
unni. Því miður gátu fulltrúar frá kvenfélaginu Bylgjunni ekki verið
viðstaddir.
þess lengi, að þar hafi þeir ekki
keypt köttinn í sekknum. Mágur
minn var líka alltaf boðinn og búinn
til þess að rétta hjálparhönd og
gera öðrum greiða. Börn hans nutu
þess í ríkum mæli og margur ann-
ar, þó að honum væri ekki vanda-
bundinn.
Bjarni Þórðarson átti meðal ann-
ars því láni að fagna að vera heilsu-
hraustur alla tíð fram á síðustu ár,
og í kjallaranum í húsi sínu á Flat-
eyri átti hann lítið trésmíðaverk-
Afhentu 200.000 krón-
ur í þyrlukaupasjóð
NÝLEGA aflientu sjómanna-
kvenfélögin I Reykjavík rúmar
200.000 krónurí þyrlukaupasjóð
nemendafélags Stýrimannaskól-
ans í Reykjavík.
Sjóður þessi er til eflingar Björg-
unarsjóði Stýrimannaskólans.
Markmið björgunarsjóðsins er að
þrýsta á og styrkja kaup á betri
og öflugri björgunarþyrlum. Söfnun
hefur staðið yfir frá því í ágúst
1989 og hafa borist mörg framlög
og loforð um framlög. Nú á næstu
dögum fá allir útgerðarmenn og
skipshafnir á íslandi, bréf frá félag-
inu með beiðni um stuðning við
þetta mál.
(Fréttatilkynning)
■ NÁMSSJÓÐUR Verslunar-
ráðs
íslands veitir tveimur háskóla-
nemum í framhaldsnámi 160 þús-
und króna styrk hvorum á þessu
ári. Nemarnir eru Þórunn Svein-
bjarnardóttir, sem stundar nám
í Bologna á Ítalíu í alþjóðastjórn-
málum og hagfræði og Jón
Björnsson, sem nemur markaðs-
fræði og stjórnun við Rider Col-
lege í Bandaríkjunum.
Námssjóður Verslunarráðsins
hefur þann tilgang að styrkja fjár-
hagslega á hveiju ári tvo náms-
menn, sem eru að hefja eða stunda
framhaldsnám í erlendum háskól-
um. Með því er ætlunin að efla
íslenskt atvinnulíf og framþróun
þess. Námsmenn úr Verslunarskóla
Islands eiga sérstaka athygli við
úthlutun styrkjanna.
■ í TENGSLUMvið endurskoðun
á skipulagi og starfsháttum
menntamálaráðuneytisins var aug-
lýst laus til umsóknar staða skrif-
stofustjóra almennrar skrifstofu, en
þeirri skrifstofu er ætlað að sinna
verkefnum er varða rekstur ráðu-
neytisins og ýmsa sameiginlega
þjónustu. Umsóknarfresti lauk 2.
þessa mánaðar og bárust alls 17
umsóknir um stöðuna. Mennta-
málaráðherra hefur nú sett
Kristínu Jónsdóttur, námsstjóra,
skrifstofustjóra almennrar skrif-
stofu menntamálaráðuneytisins um
eins árs skeið frá 1. mars næstkom-
andi að telja.
stæði. Þar stóð hann við smíðar
öllum stundum síðari árin. Það var
mikil gæfa fyrir þennan starfsglaða
mann að geta meira að segja 86
ára gamall horfið stund og stund
að hefilbekknum í kjallaranum, þótt
heilsa og þrek væri að síðustu í
raun og veru farin sinn veg.
Þau hjón seldu loks húseign sína
á Flateyri á liðnu hausti og fluttu
í íbúð fyrir aldraða hjá Hlíf á
ísafirði. En það átti ekki fyrir
Bjarna að liggja að njóta þar ró-
legra hvíldardaga. Athafnalausra
daga hefði hann reyndar aldrei not-
ið til fulls. Hann fór fljótlega á
sjúkrahúsið á ísafirði, þar sem hann
háði erfiða baráttu síðustu mánuði
langrar ævi. Þeir mánuðir reyndust
líka systur minni þungir í skauti,
en hún vakti við hlið hans flestar
stundir.
Hann var jarðsettur á ísafirði 3.
febrúar sl.
Bjarni Sveinn Þórðarson fæddist
7. nóvember 1903 í Kleifakoti í
Mjóafirði í N-ísafjarðarsýslu og ólst
þar upp til sextán ára aldurs, er
faðir hans drukknaði, en þá fluttist
hann með móður sinni til Bolung-
arvíkur, þar sem hann stundaði sjó-
mennsku í nokkur ár. Árið 1925
sest hann svo að á Flateyri ásamt
móður sinni, gerist þar trésmiður
og fær meistararéttindi 1937. For-
eldar hans voru Þórður Guðmundur
Bjarnason bóndi í Gjörvudal og í
Kieifakoti og kona hans Kristín
Hannesdóttir.
Bjarni kvæntist 10. nóvember
1932 Guðríði Guðmundsdóttur f.
12. ágúst 1912. Foreldar hennar
voru Guðmundur Einarsson bóndi
á Brekku á Ingjaldssandi og kona
hans Guðrún Magnúsdóttir.
Börn Bjarna og Guðríðar eru:
Þórunn Kristín, f. 20. júní 1933,
átti Kristján Finnbogason vélstjóra
í Garðabæ, sem nú er látinn; Ás-
geir Gunnbjörn, f. 14. ágúst 1934,
d. 14. ágúst 1950, Guðrún f. 19.
október 1935, gift Guðmundi Hag-
alínssyni bónda á Hrauni á Ingj-
aldssandi; Guðmundur Skúli f. 12.
desember 1937, smiður í Garði í
Gerðum, kvæntur Halldóru Ottós-
dóttur og Þórður Sæberg f. 7. jan-
úar 1950, smiður í Aneby í Svíþjóð,
kvæntur Ulla Bjarnason. Tvíbura-
bróðir Þórðar fæddist andvana. Þá
ólu þau upp náfrænda Bjarna, Sæ-
þór Þórðarson, f. 16. nóvember
1942, smið í Njarðvíkum, kvæntan
Mörtu Haraldsdóttur.
Þessum orðum á blaði var ekki
ætlað það hlutverk að rekja langan
og fjölþættan æviferil Bjarna Þórð-
arsonar. Þau eru fyrst og fremst
virðingar- og þakklætisvottur,
kveðja að leiðarlokum — orð sem
voru ósögð, þá hann lifði eins og
oft vill verða.
Systur minni, börnum hennar og
öðru venslafólki þeirra eru hér
færðar einlægar samúðarkveðjur.
Löngum og farsælum starfsdegi
Bjarna Þórðarsonar er lokið. Hann
lifði og starfaði öðrum til fyrir-
myndar og féll með sæmd „í bylnum
stóra seinast". Blessuð sé minning
hans.
Jón H. Guðmundssðn
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HAFSTEIIMN JÚLÍUSSON
múrarameistari,
frá Vestmannaeyjum,
Kastalagerði 1,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. febrúar
kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á Krabbameins-
félagið.
María S. Björnsdóttir,
Sigurveig Heiga Hafsteinsdóttir, Bjarni Ragnarsson,
Eiriksína Hafsteinsdóttir, Óskar Sverrisson,
Guðný Hafsteinsdóttir, Jóhann Sveinsson,
Sigurður Hafsteinsson, Svava A. Viggósdóttir,
Júlíus Geir Hafsteinsson, Margrét Guðmundsdóttir,
Þröstur Hafsteinsson, Hrafnhildur Karlsdóttir
og barnabörn.
Öflug ryk?ggg!
VS 91153
Stillanlegur sogkraftur
(250- 1100 W).
4 fylgihlutir í inn-
byggðu hólfi.
Fjórföld sýklasía í
úlblæstri.
Sjálfinndregin snúra
og hleðsluskynjari.
SIEMENS framleiðsla i>
tryggir endingu og gæði. ||
Verð kr. 16.500,-
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
SKIPA PL0TUR - INNRETTINGAR
SKIPAPLÖTUR í LESTAR
BORÐ-SERVANT PLÖTUR
WC HÓLF ME0 HUR0
BAÐHERBERGISÞIUUR
LAMETT Á GÓLF - BORÐPLÖTUR
N0RSK VIÐURKENND HÁGÆÐAVARA
Þ.DORGBlMSSON&CO
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640
Nýjar vorvörur
DIYINA
GARDEUR
STICRER
Uéuntv
verslun v/Nesveg,
Seltjarnarnesi
Opið frá kl. 9.00-18.00
og laugardaga
frá kl. 10.00-14.00