Morgunblaðið - 10.04.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990
15
Atlaga að námsmönnum
- í nafhí félagshyggjunnar
eftir Þorstein
Siglaugsson
Ráðherra menntamála hefur nú
gert enn eina atlögu að lífskjörum
námsmanna.
Síðastliðið haust lofaði Svavar
Gestsson að leiðrétta þá skerðingu
námslána sem framkvæmd var í
ráðherratíð Sverris Hermannsson-
ar. Skilyrðið sem Svavar setti fyrir
þessari leiðréttingu var, að tekið
yrði meira tillit til tekna náms-
manna en áður var, eða 50% tekna
kæmu til frádráttar námslánum í
stað 30% eins og áður var. í staðinn
átti að bæta námsmönnum að fullu
upp fyrri skerðingu.
Nú hefur Svavar svikið þetta lof-
orð.
I þeim tillögum sem samþykktar
voru af fulltrúum félagshyggju-
stjórnarinnar á síðasta fundi stjórn-
ar lánasjóðsins, eru lífskjör náms-
manna skert verulega.
Lán til námsmanna sem dvelja í
heimahúsum skerðast um ca.
10.000 krónur á mánuði, verða
24.000 í stað 34.000. Minna er lán-
að vegna bóka- og efniskostnaðar
og svo mætti lengi telja.
Alvarlegasti þátturinn í þessu er
þó sá, að tekjutillit er aukið upp í
75%. Afleiðing þessa er sú, að þeim
námsmönnum, sem þurfa á því að
halda að vinna með námi til að
geta framfleytt sér, er gert mun
erfiðara fyrir en hingað til og var
þó ekki á það bætandi.
Á máli menntamálaráðherra
heitir þetta líklega sósíalismi.
Þetta aukna tillit til tekna þýðir
að fólk hlýtur að neyta allra bragða
til að koma tekjum sínum undan
skatti svo þær komi ekki til frá-
dráttar námslánum. Með þessu
dregur auðvitað úr skatttekjum
ríkisins. Alvarlegri eru þó siðferði-
leg áhrif þess, þegar ríkið beinlínis
hvetur fólk með slíkum hætti til að
svíkjast undan að leggja sinn skerf
til sameiginlegra þarfa þjóðarinnar.
En það.hefur löngum verið aðferð
sósíalista að beita öllum brögðum
til að grafa undan almennu borg-
aralegu siðferði. Takist það eiga
þeir hægara um vik að innprenta
fólki sínar eigin hugmyndir, sem
alls staðar virðast á undanhaldi
Eigum
fyrirliggjandi
HUNDRAÐS V OGIR
Hagstœtt verö
Leitiö upplýsinga
OlAFUR OfSLASON
& CO. !IF.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
„í þeim tillögum sem
samþykktar voru af
fulltrúum félagshyggju-
stjórnarinnar á síðasta
fundi stjórnar lána-
sjóðsins, eru lífskjör
námsmanna skert veru-
lega.“
nema innan félagshyggjustjórnar
Steingríms Hermannssonar.
Það er almennt viðurkennt í vest-
rænum þjóðfélögum að menntun sé
einhver besta fjárfesting sem þjóð-
félagið geti lagt út í. Á öld sérhæf-
ingar á öllum sviðum skilar aukin
og bætt menntun sér í betri lífskjör-
um þjóðarinnar. Af þessum sökum
hafa flestar vestrænar ríkisstjórnir
haft það markmið að efla menntun
þegna sinna, gera þeim auðveldara
fyrir að afla sér þekkingar.
Hins vegar hefur þessu oft verið
öfugt farið í þeim löndum þar sem
félagshyggjan hefur náð að
„blómstra". Nefna má sem dæmi
Kína á dögum menningarbyltingar-
innar. Þar var gengið út frá fremur
einfaldri röksemdafærslu: „Aðeins
menntamenn ganga með gleraugu.
Menntamönnum á að útrýma í þágu
alþýðunnar." Þar af leiðir: „Skjót-
um alla sem ganga með gleraugu.“
Og svo var gert.
Afleiðingarnar þekkja allir nú:
Kínverska þjóðin braust til örbirgð-
ar og eymdar á örskömmum tíma.
Hér á Islandi eru aðferðir félags:
hyggjumanna hins vegar aðrar: í
stað þess að skjóta þá, sem reyna
að afla sér menntunar, skulu þeir
líða hægan hungurdauða.
Nema auðvitað þeir, sem eiga
nógu efnaða aðstandendur til að
hin dauða hönd félagshyggjunnar
nái ekki til þeirra.
Höfundur er heimspekinemi í
Háskóla Islands.
M BIRTING, félag jafnaðar- og
lýðræðissinna, efnir til opins um-
ræðufundar undir yfirskriftinni
Kirkjan og samfél.agið, í kvöld,
þriðjudagskvöld, í dymbilviku. A
fundinum verða flutt þtjú stutt
framsöguerindi. Sr. Þorbjörn
Hlynur Árnason, sóknarprestur á
Borg á Mýrum, flytur erindi um
kirkjuna, frelsunarguðfræðina og
Suður-Ameríku. Þá fjallar Magn-
ús Torfi Ólafsson fyrrv. ráðherra,
um þátt kirkjunnar í samfélagsum-
bótunum í Austur-Evrópu og löks
talar Ólafur H. Torfason, ritstjóri
um kirkjuna og áhrif hennar á
íslenskt þjóðlíf fyrr og nú. Að fram-
söguerindum loknum verður orðið
gefið laust. Fundurinn er öllum
opinn og verður haldinn á Korn-
hlöðuloftinu í Bankastræti (milli
Litlu-Brekku og Lækjarbrekku)
og hefst kl. 20.30.
Sannkallað
PÁSKATILBOD
fyrir alla íslenska ostavini
15-20%
afsláttur!
DALA-BRIE
INNBAKAÐUR
DALABRIE
DALAYRJA
CAMEMBERT
DJÚPSTEIKTUR
CAMEMBERT
PORTSALUT
GRAÐAOSTUR
Birgðu þig upp fyrir páskana
í næstu búð